Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 ÓSKAST KEYPT Málverk óskast Áhugamaður um málverk óskar eftir málverk- um eftir Jóhannes Kjarval, Lovísu Matthías- dóttur, Erró og Svavar Guðnason. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl., merkt: „Trúnaður - 9283“. Gömul málverk óskast keypt Kjarval, Ásgrímur Jónsson, Jón Stefánsson, Engilberts, Júlíana Sveinsdóttir, Þórarinn B. Þorláksson, Jóhann Briem , Svavar Guðna- son, Þorvaldur Skúlason. Aðrir listamenn og erlend málverk koma til greina. Tilboð óskast send á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Trúnaðarmál - 8542“. ÝMISLEGT Stígamót Sjálfshjálparhópar fyrir konur sem orðið hafa fyrir nauðgun, eru að byrja. Nánari upplýsingar veittar hjá Stígamótum í símum 626868 og 626878. Áttu ívandræðum með aukakílóin? Ertu í saumaklúbb? Við komum í saumaklúbba og aðra kvenna- klúbba og kynnum nýja lausn á aukakílóa- vandanum. Hringið í síma 37857 kl. 20-22 í kvöld og næstu kvöld. Málverkauppboð Málverkauppboð Gallerí Borgar verður haldið í Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 7. októ- ber kl. 20.30. Tekið er á móti verkum í Galierí Borg við Austurvöli til biiðjudagsins 2. október. Verkin verða sýnd á sama stað 5., 6. og 7. október frá kl. 14.00-18.00. BORG Happdrætti Þann 23. september var dregið í happdrætti Átthagafélags Strandamanna í Reykjavík, til styrktar byggingu félagsheimilis á Hólmavík. Vinningar komu upp á eftirtalin númer: 1. vinningur: 1118. 2. vinningur: 549. 3. -5. vinningur: 20, 2958, 374. 6.-13. vinningur: 745, 2543, 913, 2589, 894, 1696, 21, 2683. Vinningshafar hafi samband við Sigurbjörn Finnbogason í síma 73310 eftir 11. október. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Aðalfundur Neytendafélags höfuðborgarsvæðisins verð- ur haldinn miðvikudaginn 17. september kl. 20.30 á Skúlagötu 26, 3. hæð. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Þing Neytendasamtakanna. 3. Önnur mál. Stjórnin. Framhaldsaðalfundur Kraftlyftingasambands íslands verður hald- inn á Holiday-lnn sunnudaginn 4. nóvember og hefst kl. 16.00 Stjórnin. Haustfagnaður Árnes- ingafélagsins í Reykjavík verður haldinn laugardaginn 6. október á Hótel Loftleiðum, Vík og hefst með borð- haldi kl. 20.00. Árnesingakórinn syngur og hljómsveit Jak- obs Jónssonar leikur fyrir dansi. Miðapantanir eru í versluninni Blóm og Grænmeti, sími 16711. Árnesingar eru hvatt- ir til að fjölmenna. Árnesingafélagið íReykjavík. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík óskar eftir til- boðum í gatnagerð í Borgarholti. Tilboðið nefnist: KELDNAHOLT - BORGARHOLT, GATNAGERÐ. Heildarlengd gatna er um 1280 m. Skila- dagur meginhluta verksins er 7. mars 1991. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðju- deginum 2. október gegn 15.000 kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu- daginn 11. október 1990, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 TILKYNNINGAR Auglýsing um veitingu leyfis til áætlunarflugs innanlands Samkvæmt auglýsingu um veitingu leyfa til áætlunarflugs innanlands nr. 523/1989, lið II a), gildir sérleyfið, Reykjavík-Húsavík- Reykjavík, til 31. desember 1990 og breytist þá í leyfi til almenns áætlunarflugs (án sér- leyfis) til 31. desember 1997. Samgönguráðherra mun, samkvæmt heimild í VII. kafla laga nr. 34 21. maí 1964 um loft- ferðir og reglugerð um flugrekstur, nr. 381/1989 sbr. 580/1989 og 279/1990, veita leyfi til ofangreinds áætlunarflugs með far- þega, vörur og póst fyrir tímabilið 1. janúar 1991 til 31. desember 1997. Ráðuneytið lýsir hér með eftir umsóknum flugrekenda um leyfi til áætlunarflugs á téðri flugleið. í umsókninni skal greina, auk nafns flugrekanda og heimilisfangs: - Mat umsækjanda á flutningsþörf á við- komandi flugleið. - Drög að áætlun á viðkomandi leið. - Önnur atriði sem umsækjandi telur skipta máli. Umsóknum, skv. ofanrituðu, skal skila til samgönguráðuneytisins eigi síðar en 25. október 1990. C LANDSVIRKJUN Útboð Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í framleiðslu og afhendingu á einangrun fyrir háspennulínur samkvæmt útboðsgögnum BLL-15, „Transmission Line Insulators". Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðju- deginum 2. október 1990 á skrifstofu Lands- virkjunar á Háaleitisbraut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð 2000 kr. Helstu magntölur eru: 390 stk. U120 BS Einangrar 5300 stk. U160 BS Einangrar 2900 stk. U210 BS Einangrar Afhendingardagur efnis er 1. apríl 1991. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjun- ar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 6. nóvember 1990, en þau verða opnuð þar sama dag kl. 13.00 að við- stöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Reykjavík, 26. september 1990. HÚSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS TÆKNIDEILD Samgönguráðuneytið 11. september 1990. TILBOÐ - ÚTBOÐ L LANDSVIRKJUN Útboð Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í framleiðslu og afhendingu á leiðurum fyrir háspennulínur samkvæmt útboðsgögnum BLL-14, „Transmission Line Conductors". Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðju- deginum 2. október 1990 á skrífstofu Lands- virkjunar á Háaleitisbraut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð 2000 kr. Helstu magntölur eru: Álblönduleiðari 57 km. Stálstyrktur álblönduleiðari 56 km. Afhendingardagur efnis er 1. maí 1991. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjun- ar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl. 12.00 mánudaginn 5. nóvember 1990, en þau verða opnuð þar sama dag kl. 13.30 að við- stöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Reykjavík, 27. september 1990. Utboó Hreppsnefnd Ölfushrepps óskar eftir tilboð- um í byggingu þriggja og fjögurra herbergja íbúða í einnar hæðar parhúsi úr steinsteypu við götuna Norðurbyggð 24A og 24B, Þor- lákshöfn. Brúttóflatarmál húss er 194 m2. Brúttórúmmál húss er 674 m3. Verkið tekur til allrar vinnu við gröft á grunni, uppsteypu og frágangi utan húss og innan, svo og frágangi lóðar. Verkinu skal lokið 15. febr. 1992. Útboðsgögn verða afhent væntanlegum bjóðendum á skrifstofu Ölfushrepps, Sel- vogsbraut 2, 815 Þorlákshöfn, og hjá tækni- deild Húsnæðisstofnunar ríkisins, Suður- landsbraut 24, 108 Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 2. okt. 1990, gegn 20.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sömu stöðum þriðju- daginn 16. okt. 1990 kl. 14.00 stundvíslega að viðstöddum bjóðendum er þess óska. F.h. hreppsnefndar Ölfushrepps. Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins. rI HUSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS 'ú SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVIK • SIMI ■ 696900

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.