Morgunblaðið - 30.09.1990, Page 42

Morgunblaðið - 30.09.1990, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 KARLAR Traustvekj- andi * Eg var spurð að því um dag- inn, afhverju íslenskir karl- menn eru eiginlega alltaf í jakka- fötum. Gráum í vinnunni, bláum þegar þeir eru „kasjúal," og svört- um, þegar þeir eru formlegir, al- varlegir eða hát- iðlegir. Það hefur reyndar alltaf slegið mig, þegar verið er að sjón- varpa beint frá Alþíngi, að nær undantekninga- laust eru þingmenn í gráum jakkafötum. Þetta er eins og að vera komin til Kína; allir skulu vera eins. Annað sem er dálítið skrýtið, er að flestir þingmenn eru með hliðarskiptingu í hárinu. Auðvitað er til sá möguleiki að búið sé að markaðssetja þessa hollingu sem traustvekjandi. Persónulega vantreysti ég mönn- um í gráum jakkafötum. Þau eru svo yfirmáta hlutlaus að mér finnst menn sem klæðast þeim, hafa eitthvað að fela; mér finnst þeir vera litlir strákar í feluleik í Stórkallalandi. Þeir falla líka svo vel inn i hvunndaginn, að manni dettur í hug að þeir vilji ekki láta konur horfa á sig. En það er náttúrulega tóm vitleysa - þeir halda bara að þeir vilji það ekki; hluti af traustvekjandi og áreiðanlegri sjálfsímynd. En þetta er hálf þreytandi og prugglega hluti af því að alltaf er talað um að konur á Isiandi séu svo fallegar - en aldrei minnst á karlmennina, sem þó eru af sama stofni. Og þar sem fötin skapa manninn, segir það okkur að að upp til hópa eru íslenskir karlmenn litlausir per- sónuleikar. Það er hinsvegar eitthvað hlý- legt við karlmann í gallabuxum, fallegri peysu eða marglitri skyrtu, jafnvel þótt hún sé í þeim litum sem karlmenn virðast ekki hræðast; bláum, svörtum, brún- um, ryðrauðum, ólivu- og flösku- grænum - meir að segja eitthvað grátt, ef þeir eru mjög öryggis- lausir. Það er svo mikið tii af fiottum peysum og skyrtum og ?ég er svo heppin að eiga unglings- son, sem loksins er vaxinn upp úr djogging-göllum. Þar sem ég er stjórnsöm að eðlisfari, er ég ailtaf að reyna að fá hann til að kaupa eitthvað sem mér finnst huggulegt - og stundum tekst það. En ég sé það á honum og vinum hans, að það eru einhver önnur, óræð öfl búin að ákveða hvað er leyfilegt í litum - og hann vinnur ailtaf. Ég $kil það ekki, því hann er lika stjórnsamur og vill til dæmis ekki að ég sé í drögt- um. Ég beygi mig undir það, þótt ég segi honum ekki að ég vilji það ekki heldur. í rauninni ber ég leyndan ótta í bijósti við að allir þessir dreng- ir eigi eftir að enda uppi í gráum jakkafötum, í hinum ýmsu stofn- unum samfélagsins; ganga inn í kerfið, sem ógnar þeim ekki, gef- ur þeim stöðuheiti, sem segir ekkert um það hvers konar per- sónur þeir eru, eða hvernig þeim líður, en er eins og stimpill upp á að þeir séu vel lukkaðir og traustir. Svo fara þeir í feluleik í gráa kerfinu og gráa hvunndeg- inum, verða lífsleiðir vegna þess að þeir eru svo öruggir og þurfa svo sjaldan að takast á við tilver- una. Svo verða þeir heiialatir og konurnar þeirra verða leiðar á þeim - því þeir eru svo einlitir... ! ...og allan timann halda þessi grey að þeir séu traustvekjandi. Auðvitað á maður ekkert að fárast yfir þessu. heldur á maður að hafa fulla samúð með þeim og ósjálfstæði þeirra, sem er'eitt- hvað svo upprunalegt og fallegt - nær alveg aftur til Adams og Evu. '1 Adam gat ekki einu sinni feng- ið sér einn bita af epli, án þess að vera sagt að gera það. ÁRSTÍÐASKIPTI Islensk módel á Borginni Morgunblaðið/Þorkell Fyrir nokkru var haldin ' lýsna viðamikil tískusýning á Hótel Borg á vegum „Icelandic sem er upprennandi tískubákn hér á landi. Var bæði kynntur fatnaður og fólk, en mörg ný andlit skipa nú þessi módelsamtök. Þorkelsson sérfræð- Morgunblaðsins í tískuljós myndun var á staðnum og ljós hans skín hér á meðfylgjandi myndum frá Borginni umrætt kvöld. Myndirnar tala sínu máli, en kvöld- stundin var ein af vísbending- unum um að sumri er lokið, dagar styttast óðum og vetur er á næsta leiti. Þá byija aftur af krafti alls konar menningar- viðburðir, leikhús og skemmt- anir sem miðast við að fara fram innanhúss. VISINDI Mólíkúlin dansa og krystall- inn syngur Á ráðstefnu um svokölluð nýaldarmál fyrir skömmu, svo og vestur á Snæfellsnesi síðastliðið sumar, á Snæfellsáshátíðinni, kynnti Hilmar Orn Hilmarsson tónlistarmaður vægast sagt nýstárlega tónlist. Þetta var tónlist krystalla sem Hilmar framkallaði með sérstakri tækni ásamt samstarsfmanni sínum, David Tibet. Morgunblaðið ræddi við Hilmar um krystallasönginn og sitthvað honum tengt. Hilmar Örn Hilmarsson krystallatónlistarmaður og nýaldarspekingur. Hilmar sagði að upptaka kryst- allasöngsins ætti rætur að rekja til manns sem heitir Harry Oldfield og ýmissa verkefna sem hann hefur gefið sig að. Það sem hann er að smíða um þessar mundir sé til dæmis myndbands- tæki sem sýni orkusvið líkamans og nemur breytingar þess við hin- ar ýmsu kringumstæður. „Oldfield er elektrónískt séní og ýmsir framsæknir læknar eru farnir að nota tæki sem hann hefur smíðað til þess að auðvelda sjúkdóms- greiningu. Ef við förum aðeins út í kry- stallatónlistina, þá eru átta ár síð- an að ég kynntist tækninni hvern- ig rafsegulsvið getur haft hvetj- andi eða letjandi áhrif á líkamann. Ein hliðarafurð af þessu er að pumpa rafsegulbylgjum í hluti eins og krystal. Þá gefur krystall- inn frá sér sinn eigin hljóm, mólík- úlin dansa og gefa frá sér hljóð. Fyrir tveimur árum komu fram tæki sem ráða við tíðnina sem kemur af þessu og við fórum að taka upp söng ýmist iðnaðarkry- stalla eða stórra kvarsklumpa. Við notuðum nokkurs konar lins- umíkrafón sem getur „súmmað“ á einstök hljóð og tókum hljóðin upp á stafrænt segulband og fiutt- um þau þaðan yfir á tölvu, þar sem við gátum átt við hljóðin og búið til hljóðkokteila sem voru ýmist örvandi eða hvetjandi. Með ýmsum bylgjum er hægt að hafa ýmiss konar áhrif á heilastarfsem- ina og er með ólíkinaum hve ein- föld tæk-ni getur haft mikil áhrif, góð eða slæm allt eftir því hvern- ig tekið er á málunum. Þegar við David Tibet höfðum tekið upp þessa söngva settum við þá á hljómplötu og geisladisk og settum 7.000 eintaka upplag á Bretlandsmarkað með það fyrir augum að ágóði rynni til styrktar Harry Oldfield. Það fór nú svo, að þetta seldist upp og nýtt upp- lag er væntanlegt." En hvernig „söngur“ er þetta eiginlega? Hilmar ræskir sig og svarar: „Þetta er samansafn af hljóðum, vel völdum hljóðum sem virka „ballanserandi" á hugann. Þetta er tónverk, en ekki samið samkvæmt strangri tónfræðilegri hefð. Þó er þetta tónlist í þeim skilningi að um skipuleg hljóð er að ræða. Tónlist er mótuð á ákveðnum bylgjusviðum og þessi tónlist sem við erum að tala um er á 8 hertsa púlsum. Það 'gerist ekkert á augabragði, það tekur tónlistina 5 til 15 mínútur að hafa áhrif á heilann." Hilmar segir að lokum; „Við stöndum í dag á þröskuldi nýrra tíma. Við upp- lifum í fyrsta skipti svokallaða rafsegulm- engun, líkamar okkar verða stöðugt fyrir alls konar bylgjum sem margar hveijar eru okkur ónáttúru- legar ogjafnvel skað- legar. Á sama tíma vita menn æ meira um vitundina og hvernig unnt er að hafa ýmiss konar áhrif á hana með einföldum leið- um. Og eftir því sem fleiri svör fást, þeim mun fleiri spurningar vakna og fræðin verða skemmtilegri," segir Hilmar Örn Hilmarsson. KVÖLDNÁMSKEIÐ í SJÁLFS-DÁLEIÐSLU HUGEFLI Bolholti 4 4. okt. kl. 19.00. Námskeiðið byggir á nýjustu rannsóknum í dáleiðslu, djúpslölcun og NLP, Neuro Linguistic Programming aðferðafræðinni. Með Hugefli getur þú m.a.; A Hætt að reykja án taugaspennu. A Aukið innri styrk og sjálfstraust. A Losnað við offitu án megrunarkúra. A Aukið minni og einbeitni. A Náð djúpri slökun á 3 mín. A Losnað við fælni og ofhræðslu. A Bætt samskipti og árangur í starfi. A Aukið líkamlega vellíðan. A Bætt lærdómsgetu og námsárangur. Námskeiðið verður haldið á hverju fimmtudagskvöldi í 4 vikur. Leiðbeinandi er Garðar Garðarsson. Hann útskrifaðist með NLP gráðu frá Grinder, DeLozier & Associates í Bandaríkjunum árið 1988. Innritun og nánari uppl. hjá Mannræktinni í síma: 62 57 17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.