Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM
SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990
43^
Morten Karlsen skrapp
tók nokkur fluguköst.
Morgunblaðið/OrriVigfússon
austur að Sogi 20. september og
KVOTAKAUP
Formaður „Sílayeiðifél-
agsins“ heimsækir Island
Fyrir skömmu var staddur hér á landi í boði Orra Vigfússonar
Morten Karlsen frá Færeyjum. Morten er formaður færeyska
„Sílaveiðif élagsins" eins og það heitir á færeysku, en það sannast
aldrei betur en í þessu nafni, að þótt færeyska og íslenska séu lík,
þá eru þau líka afar ólík, því síli á færeysku táknar silung, en síli
á íslenska vísu afar smáan fisk, seiði eða einhvern titt sem vart
er talandi um.
Karlsen þessi hefur verið Orra
mjög svo innanhandar í til
burðum Orra til þess að festa kaup
á úthafslaxakvótum færeyskra báta
fyrir fjölj)jóðleg samtök. Morgun-
blaðið ræddi um kvótakaupin fyrir-
huguðu og laxveiðar í Færeyjum við
Morten Karlsen fyrir skömmu.
Við ræddum fyrst nokkuð um
kvótakaupin og Morten Karlsen
sagði m.a.: „Orri á stuðning okkar
vísan í þessu máli, því þetta er þrifa-
verk og við í Sílaveiðifélaginu njót-
um góðs af eins og aðrir stangaveiði-
menn í norðurhöfum. Hins vegar
erum við afar litlir og áhrifalitlir í
stórum málum og við vildum geta
hjálpað miklum mun meira til. Eitt
hefur slegið mig í þessu máli og það
er áhugaleysi færeyskra stjómvalda
að leysa vanda sem ætti að vera
auðleysanlegur. Svona deilur eru
jafnan til lykta leiddar með föstum
hætti, stjórnvöld taka málin fyrir
og semja. í þessu tilviki bregður svo
við, að stjómvöld í Færeyjum segja
við Orra: Þú verður að eiga beint
við bátana. Þetta segir manni að
færeyska stjómin hefur engan
áhuga á málinu og kærir sig koll-
ótta hvort það leysist eða ekki.
Þetta er furðuleg afstaða í ljósi
þess að færeysk fiskiskip fá að veiða
tel ég 12.000 tonn af fiski í ís-
lenskri lögsögu án nokkurra skuld-
bindinga og þannig hafa öll sam-
skipti verið afar góð. Þess vegna
ketnur þetta viðhorf manni á óvart.
Þið gætuð verið harðir og sagt sem
svo að okkar kvóti í ykkar lögsögu
yrði skorinn niður sem næmi því
laxamagni sem veitt er í færeyskri
lögsögu. Þá kæmi annað hljóð í
strokkinn. En þið gerið það ekki
vegna þess að þið viljið leysa málin
í bróðemi. Omi segir jafnan við mig
að enginn megi standa uppi í samn-
ingslok óánægður. Málið er komið
langt og ég hef trú á því að það
leysist. Með mann eins og Orra við
stjómvölinn myndi ég trúa því að
það myndi leysast þótt allt væri í
hnút.“
Um laxveiðar í Færeyjum sagði
Morten: „Það gengur lax í vötn
bæði í Leynum og Saksum. Þarna
er stutt á milli og laxinn gengur um
örstuttar ár til vatnanna. Veiðin er
misjöfn. Hefur farið í allt að 1.000
laxa, en í fyrra var hún komin á
botninn eftir hvem skellinn
af öðmm. Þá veiddust að-
eins 130 laxar. í sumar
hefur gengið betur og rétt
eftir miðjan september
voru komnir um 600 laxar
á land, en veitt er fram í
október. Þetta á meðal ann-
ar rætur að rekja til stór-
aukinna gönguseiðaslepp-
inga og stórbætts eftirlits
með veiðiþjófnaði sem hef-
ur verið stórvandamál.
Yfirleitt er um fluguveiði
að ræða og nota menn flotl-
ínur og smáar flugur og
laxinn er oftast eins árs
fiskur úr sjó, 4 til 6 pund.
Stærst hefur veiðst 21
punda fiskur og í sumar
er stærsti laxinn 16 pund.
Veiðin er ódýr, en aukin
gæsla og aukning seiða í
sleppingum kallar á hærri
veiðileyfi, eða meiri útlagða
vinnu félaga í
Sílaveiðifélaginu.
FISKIRÆKT
Fyrirsjáanleg góð uppsveifla
Þetta lítur virkilega vel út við
Sigurður Már fiskifræðingur í
Borgarnesi rafveiddum ána í
ágúst og ástandið er
þannig að það hefur
ekki mælst meira af
seiðum í ánni síðan á
miðjum áttunda
áratugnum er
uppsveiflan í veiðinni
var slík að métveiði
var hvað eftir annað.
Eg er nógu bjartsýnn
til að sjá fyrir mér
nýja langa upp sveifiu
í veiðinni,“ sagði Ingvi
Hrafn Jónsson fréttá-
maður í samtali við
Morgunblaðið, en hann
er auk þess landeigandi
við Langá á Mýrum og
lóðsar erlenda veiði-
menn um veiðilendur
sínar nokkrar vikur á
sumri hveiju.
Hann hefur og starf-
að ötullega að fiski-
ræktarmálum, en óvíða hefur
meira verið gert til þess að auka
laxagengd heldur en í Langá á
Mýrum og nægir að benda á að í
ánni eru eigi færri en fjórir laxa-
stigar.
Ingvi bætti við að hann hefði
eftir Sigurði fiskifræðingi að
ástand seiðabúskapar í öðrum ám
Borgarfjarðarsvæðisins væri ekki
lakara, mikið væri af seiðum og
sérstaklega væri ástandið gott á
þeim árgangi seiða sem mun
ganga til sjávar næsta vor og þá
skila sér sem smálax úr sjó suma-
rið 1992.
Að sögn Ingva virðist vera mik-
standa netaupptökumál í Borgar-
firði þannig að vel gæti samist,
unnið væri auk þess að kaupum á
Ingvi Hrafn við fiskiræktarstörf í Langá á Mýrum.
RAUNIR
Eggert stytt-
irsig.
• ••
Það er ekki alltaf tekið út með
sæidinni að vera
sjónvarpsfréttamaður, menn geta
þurft að vera í góðri líkamlegri
þjálfun, jafnvel þótt ekki sé verið
að glíma við flóknari hlut en að taka
upp stuttan texta um skák.
Þetta er boðskapur myndar Þorkels
sem hér birtist af Eggert Skúla
syni, fréttamanni á Stöð 2 og fyrrum
fréttastjóra Tímans, boðbera ftjáls-
lyndis o.s.frv. í áratugi.
Menn geta skoðað stöðuna þegar
ill meðbyr með stangaveiðimönn-
um, því það er ekki nóg með að
seiðin dafni vel í ánum, heldur
laxveiðikvótum Færeyinga og
vaxandi sleppingar gönguseiða
skiluðu æ betri árangri.
- skór
(adVAnzÐ
Teg. 1104
Litur: Svart leður.
Stærðir: Nr. 36-42
Verð kr. 5.685,-
Ecco-skór
gæóanna vegna
HQOÖ
Laugavegi 41, s. 13570
Skóverslun Þórðar,
Kirkjustræti 8,
sími 14181
Gríptu tækifæríö!
GoldStar síminn
m/símsvara á aðeins
kr. 9.952.......
• Sími og símsvari í einu tæki • Fjarstýranlegur án
aukatækja úr öllum tónvalssímum - hvaðan sem er«10
númera skammvalsminni • Fullkomnar leiöbeiningar á
íslensku «15 mánaða ábyrgö* Póstsendum.
KRISTALL HF.
SÍMI 685750 - FAX 685159 - SKEIFAN 11B -108 REYKJAVIK