Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 48
MOItGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Ungur mað- ur lést í um- ferðarslysi 23 ARA maður lést í umferðar- slysi á Tjörnesi í fyrrinótt. Annar maður slasaðist mikið og var flutt- ur á sjúkrahús í Reykjavík. Mennimir voru á leið akandi í fólksbíl frá Raufarhöfn til Akureyrar. Skammt austan Gerði- brekku lenti bíll þeirra út af vegin- um. Farþeginn kastaðist úr bílnum og er talinn hafa látist samstundis. Ökumaðurinn slasaðist mikið en komst upg á veg og gat gert vart við sig. Óvíst er hve lengi hann þurfti að bíða þar til næsti bíll kom að. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Akureyrar og þaðan á sjúkrahús í Reykjavík. Alhvít ijúpa á rúmsjó Siglufirði. W ALHVÍT rjúpa settist á Hafþór RE þar sem skipið var statt um 60 mílur út af Siglufirði nýlega, og þáði far með skipinu til iands. Tjegar komið var til hafnar hafði fuglinn skamma viðdvöl á Siglufirði áður en hann flaug til fjalla. Ekki er ljóst á hvaða ferðalagi ijúpan var en hennar er jafnan víðast von annars staðar en úti á rúmsjó. MJ Síðasta áning sumarsins. Nú eru útreiðarnar að baki og haustbeitin tekin við. Hamar SH hefur fundið síld í Berufjarðardýpi. Hamar SH finnur síld HAMAR SH fann talsvert magn af síld í Berufjarðardýpi í gærmorg- un og búist var við að hún yrði veiðanleg í nótt, að sögn skipvérja á Hamri en síldin verður fryst um borð í skipinu. Síld, sem fundist hefur í haust, hefur ekki verið veiðanleg í nót. Hamar SH fann einnig síld við I síldveiðar í þessari viku en þessi Dyrahólaey en hún var ekki skip frysta síldina, eða landa henni veiðanleg. Halldóra HF, Röst SK til frystingar. Síldveiðar mega hins og Stafnes KE fara væntanlega á | vegaralmennthefjastlO.október. Lögreglan mælir hraða og þunga umferðar á götum borgarinnar: 84% á löglegum hraða KÖNNUN sem lögreglan í Reykjavík gerði nýlega með nýjum bún- aði á þunga og hraða umferðar um Langholtsveg, við gönguleið barna í Langholtsskóla, leiddi í ljós að af 9221 ökutæki sem þar fóru um á einum sólarhring var 84% ekið á löglegum hraða en 16% hraðar en lög leyfa. 10 ökutækjum var ekið á yfir 90 kílómetra hraða og tveimur á 120-135 kílómetra hraða. Mestur var hraðaksturinn að kvöld- og næturlagi og var áberandi að bifhjól áttu þar oft hlut að máli. Ökumenn fjögurra bíla óku á 90-100 kílómetra hraða, hraði tveggja mældist 100-110 kílómetr- ar og og aðrir tveir óku á milli 110 og 120 kílómetra hraða. Mest var umferð um Langholts- veg frá klukkan 16-17 síðdegis þegar þar fóru um 772 ökutæki og litlu færri voru á ferðinni frá klukk- an 17-18. Milli klukkan 8 og 9 að morgni voru 552 bílar á ferð og í hádeginu óku rúmlega 520 bílar um Langholtsveginn við Holtaveg. Lögreglan mun halda áfram mælingum á þessu tagi víðs vegar um borgina, að sögn Omars Smára Ármannssonar aðstoðaryfirlög- regluþjóns, ekki síst á stöðum þar sem vænta má mikillar umferðar barna og annarra gangandi vegfar- enda. Niðurstöðurnar verða meðal annars notaðar til að skipuleggja hvar og hvenær hraðamælinga sé helst þörf. Einnig er borgaryfirvöld- um jafnóðum gerð grein fyrir niður- stöðum mælinganna ef að gagni mætti koma við endurbætur á gatnakerfinu. Flugleiðir vilja aðra hækkun á næstu vikum „VERÐ á þotueldsneyti hefur hækkað úr 160 dollurum í 486 dollara tonnið frá því í júlí síðastliðnum, eða um rúmlega 200% og það er Uóst að við verðum að biðja um aðra hækkun á fargjöldum innan eins mánaðar," segir Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða en fargjöld Flugleiða frá landinu hækka um 3% 1. október næstkomandi. Nafnvextirnir lækkað- ir nú um mánaðamótin Einar Sigurðsson segir að elds- neytiskostnaður Flugleiða sé 10-12% eftir leiðum og flugvélateg- undum, þannig að þumalputtaregl- an sé sú að 10% verðhækkun á elds- neyti þýði fargjaldahækkun upp á 1-1,2%. Á móti komi hins vegar fall á Bandaríkjadal undanfarið, þar sem hann hafi áhrif á eldsneytis- verðið, varahlutakaup og vaxta- byrði. „Verð á þotueldsneyti hefur hækkað vegna ástandsins fyrir botni Persaflóa og flugherir NATO og Saudi-Araba hafi verið að birgja sig upp af eldsneyti undanfarið. Flugfélög eru víða að búa sig undir niðurskurð á ferðum og aðhald á öllum sviðum,“ segir Einar. BANKAR og sparisjóðir lækka nafnvexti um mánaðamótin. Meðal- vextir af skuldabréfum lækka úr 14% í 12,9%. Forvexir víxla lækka að jafnaði úr 13,3% í 12,7%. Þá lækka vextir á klmennum sparisjóðs- bókum úr 3% í 2,3% að jafnaði. Hins vegar hækka vextir lítið eitt á gjaldeyrisreikningum. Svo nefnd séu dæmi um vexti einstakra banka, eru vextir á almennum sparisjóðsbókum 2,5% hjá Búnaðarbanka, Landsbanka og Samvinnubanka, en 2% hjá Islands- banka og sparisjóðunum. Þá eru forvextir víxla 12,75% hjá Lands- banka og Samvinnubanka en 12,25% hjá Búnaðarbanka, íslands- banka og sparisjóðum. Kjörvextir á A-flokki almennra skuldabréfa .verða 11,25% hjá. íslandsbanka, 11,75% hjá Búnaðarbanka, 12,25% hjá Landsbanka, 12,5% hjá spari- sjóðunum og 13,5% hjá Samvinnu- banka, en þar lækka skuldabréfa- vextir um 1,5% þann 11. október. í samtölum við bankastjóra í gær kom fram, að við ákvörðun vaxta nú var miðað við verðbólgu síðasta mánuð og verðbólguspá fyt'ir næstu tvo mánuði. Þar er gert ráð fyrir að verðbólguhraði aukist síðustu mánuði.ársins..........

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.