Alþýðublaðið - 23.01.1959, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 23.01.1959, Blaðsíða 2
"%'EÐRIÐ í öag: Allhvass cöa hvass N, skýjað, frost 10 st. iNAfTURVARZLA þessa viku er í Vesturbæjarapóteki, Sími 22290. íBLYSAVARÐSTOí'A Reykja víkur í Slysavarðstofunni er opin allan sólarhringinn. Læknavörður L.R. (fiyrir vitjanir) er á sama stað frá kl. 8—18. Sími 1-50-30 LYFJABÚÐIN Iðunn, Reykja víkur apótek Laugavegs epótek og Ingólfs apótek fylgja lokunartíma sölu- búða. Garðs apótek, Holts apótek, Austurbæjar apó- tek og Vesturbæjar apótek eru opin til kl. 7 daglega, nema á laugardög ,.m til kl. 4. Holts apótek og Garðs apótek eru opin á sunnu- dögum milli kl. 1—4. e. h. HAFNARFJARÐAR apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl. 9— 16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16 og 19—21 KÓPAVOGS apótek, Alfhóls- vfegi 9, er opið daglega kl. fi-—20, nema laugardaga kl. fl;—16 og helgidaga kl. 13— 16. Sími 23100. FRÁ GUÐSPEKIFÉLAGINU Dögu.n heldur fund í kvöld fkl. 8.3Ó í Guðspekifélags- ihúsinu. Sigvaldi Hjálmars- son flytur erindi: „Boðskap ur sólarlagsins." Kaffiveit- ingar verða í fundaxlok. Utanfélagsmenn eru yel- komnir á fundinn. tTVARPIÐ i dag: 8—10 Morgunútvarp. 18.30 Barna tími: Merkar uppfinningár. 20.30 Daglegt mál. 20.35 Kvöldvaka. 22.10 Lög unga íólksins. FERÐAMANNAGENGIÐ: i. sterlingspund .. br. 91.86 USA-dolIar .... - 32.80 1 Kanada-dollar .. - 34.09 J00 danskar kr. .. - 474.96 100 norskar kr. .. - 459.29 100 sænskar kr. .. - 634.16 100 finnsk mörlc .. - 10,25 1000 frans. frankar - 78.11 ftfiO belg. frankar - 66.13 tfiO svissn. frankar - 755.76 100 tékkn. kr....- 455.61 €©0 V.-jþýzk mörk - 786.51 1000 lírur.........- 52.30 ÍL00 gyllini ......- 866.51 Sölugengi 1 Serlingspund kr. 45,70 1 Bandar.dollar— 16,32 1 Kanadadollar— 16,96 100 danskar kr. — 236,30 100 norskar kr. — 228,50 100 sænskar kr. — 315,50 100 finnsk mörk — 5,10 1600 franskir fr. — 38,86 lOObelg. frankar — 32,00 100 svissn. fr. — 376(0,0 100 tékkn. kr. — 226,07 10|| v-þýzk mörk — 391,30 Drengja og herra nærbuxur síðar, frá 23,50 stk. Þorsteinsbúð Snorrabraut 61. Tjarnargötu, Keflavík. Starfsemi meistarasambands bygg- ingamanna band byggingamanna í Reykja- vík formlega stofnað. Að st'ofn- un :þess stóöu eftirtalin f.élög: Meistarafélag húsasrniða, Múr- arameistarafélag Reykj avíkur, Málarameistar.af éi ag Reykj a- víkur, Félag löggi.ltra rafvirkja mei.'% ira jí; ReJ/kjavík, Felaig pípulagningameistara í Reykja vílc og Félag veggfóðrarameist ara í Reykjavík. | REYK JAVÍK hefur vaxið mjög ört á síðustu árum, enda hafa byggingaframkvæmdir verið afar miklar. Árið 1947 voru fullgerðar í bænum 468 íbúðir, en árið 1957 935 íbúðir. Á árinu, sem leið, er líklegt að fullgerðar hafi verið hér í borg yfir 1000 íbúðir. Frá þessu er skýrt í frétta- tilkynningu frá Meistarasam- bandi byggingamanna í Reykja vík. Um langt árabil hafa meist arar í byggingariðnaði haft með sér starfsgreinafélög, m.a. til að sinna sameigiiilegum hags- muna- og réttindamálum, til að koma fram gagnvart stjórn- arvöldum, þegar um er að ræða sameiginleg málefni og til þess að. vera samningsaðili við iðn- sveinafélög í viðkomandi starfs greinum um kaup og kjör. Um- sjón með framkvæmdum í Reykjavík og ábyrgð á þeim hafa meistarar í byggingariðn- greinum. MEISTARASAMBAND STOFNAÐ. Málefni þau, er starfsgreina- félög meistara í. byggingariðn- aði láta sig sérstaklega varða, eru í flestum tilfellum sama eðlis. Jafnhliða auknum bygg- ingaframkvæmdum og fjölgun iðnaðarmanna við bygginga- störf varð því meisturum ljós þörfin á að stofna samband meistarafélaga í byggingaiðn- aði. Talið var að slíkt samband, er ynni að sameiginlegum og sérstökum málefnum starfs- greina félaganna, gæti orðið til laeilla bæði fyrir meistarana og viðsemjendur þeirra. í maí sl. var Meistarasam- TÆPIR 500 MEÐLIMIR. MeðHrnir þessara fél.aga eru rétt innan við 500. En félags- menn samsvarandi iðnsveina- félaga eru um 1220. Iðnnemar samávarandi .iðngreina eru um 380. í þjónustu xneðlima Meist- arasambands byggingamanna eru því nálega 1600 iðnaðar- menn, auk fjölmargra verka- manna er alla jafna starfa við byggingaframkvæmdir í bæn- um. Meistarasambandið hefur skrifstofur í Þórshamri, Témpl arasundi 5, sími 1-66-94. Þar e.ru einnig til húsa skrifstofur allra þeirra félaga, er mynda sambandið. Þangað er ,að sjálf- sögðu heimilt að leita varðandi upplýsingar um allt það, er lýtur a'ð ré.ttindum og skyld- um sambandsmeðlima. STJÓRN ,SAMBANDS.INS. Stjórn Meistarasambands byggingamanna í Reykjaví,k er nú þannig skipuð: Tómas Vig- fússon, húsasmíðameistari, for- maður; Árni Brynjólfsson, raf- virkjameistari, og Þorkell Ingi- bergsson, byggingameistari. Framkvæmdastjóri Meistara- sambandsins er Guðmundur Benediktsson, lögfræðingur. (Fréttatilkynning, stytt.) rógskrif Þjóðviljans STJÓRN Lögregluíélags Reykjaivíkur hafa borizt al- mennar, skriflegar á'skoranir frá lcgreglumönnum við emb- ætti lögreglu'stjórans í Reyikja vík um að mótmæla illgirnis- legum og ósönnum árásum á Sigurjón Sigurðsson lögreglu- stjóra, í Þjóðviljanum undir dulnefnunum „Borgari11 og „Lögr,eglumað'ur“, þar sem lög reglustjóra er borið á brýn, að hann eigi sök á ófullkomnum húsakosti, sem lögreglumenn eigi við að búa, og að eigi hafi verið byggð ný lcgreglustöð o. fl. Stjórn Lögreglufóiagsins eri Ijúft að verða við þessum á- skor.unum og mótmælir harð- lega fyrir hönd lögreglumanna áminnstum rógskrifum, svo og; öðrum .níðskrifum ,um lögregíu menn. Vitað .er, að Jögreglu- stjóri hefur haft hina heztu, for göngu um undirbúning að bygg ingu nýrrar lögreglustöðvar og fangageymslu, .enda er .nú fyrir í hendi lóð og alfhá fjárupphæð, og er því sízt að saka hann um, að byggingaframkvæmdir eru ekki hafnar. Lýsum við yfir fyilsta trausti á lögregilustjóra;, Sigurjón Sig- urðsson, til a§ Jeysa farsællega ivelferðarm1-'! lcgreg'.unnar. Þá mótmælum við því einn- ig, að nafn lögreglunnar sé not- að til ærumeiðandi skrifa. Ýmsar aðrar fjarstæður í um- rædduni greinum teljum við ekki svaraverðar. - Reykjavík, 21. janúar 1959. í stjórn Lögregluíélags Rvíkur. Erlingur Pálsson. Bogi Jóhann Bjarnason. Guðm. Ilermannsson. Óskar Ólason. Bjarki Elíasson. UNGIR jafnaðarmenn í Reykjavik eru minntir á, að 1 raöslunámskeiðið heldur áfram nk. mánu- dagskvöld kl. 8.30 stund- víslega í Iðnó uppi, inn- gangur frá Vonarstræti. Leiðbemundi: Þorsteinn Pétursson. Uim'æðnefni: Hvað má spara á fjárlögum ríkis-, ins? Framsögumenn: Jón K. Valdiinarsson og Jó- hann Þorgeirsson. Nýir þótttakendur eru velkomnir. Mætið vel ogi stundvíslega! íbúðarhús í smíðum. safn ríkisins Isgf fram FJutt af menntamálanefnd efri delldar. ÚTBÝTT liefur verið á al- þingi frumvarpi til laga um fræðslumýndasafn ríkisins, flutt af menntamálanefnd. I 1. gr. frv. segir, að yfirstjórn safnsins skuli vera í höndum mienntamálaráðuneytisins. — Menntamálaráðherra skipar fimm manna stjórn safnsins til fjögurrá ára í senn, samkvæmt tillögum stjórna Sambands ísl. barnakennara, Landssam- bands framhaldsskólakennara, Menntamálaráðs og Útvarps- ráðs, en ráðherra skipar for- mann án tilnefningar. Forstöðumaður fræðslu- myndasatfns á sæti á fundum safnsstjórnar og hefur þar mál- frelsi. og tillögurétt, en eigi at- kvæðisrétt. Getur hann skotið þeirn ákvörðumum stjórnarinn ar, er mjög var.ða fjárhag safns ins, undir úrskurð ráðuneytis- ins. HLUTVERK SAFNSINS I .2. gr. frv. segir, að hlut- ver.k safnsins skuli vera, eftir þv sem við verður ikomið: a) Að festa 'kaup á erlendum cg Lnnlendum kvikmyndum og kyrrmyndum í þágu fræðslu- mála og annarra menningar- mála. h) Að eignast tæki til fræðslumyndagerðar, svo og sýningartæki eftir þörfum1, og jeiðibeina fræðslustofnunum, er þess æskja, um val og útvegun sýningartækja. c) Að lána skólum: og öðrum fræðslustofnunum myndir og tæki til notkunar við kennslu. Enn fremur að Jána þessum áð- jlum, svo og íélögum, er hafa menningarmál é stefnuskrá sinni og sta-nda öllum opin án tjllits til stjórnmá'Iasikoðana, .myndir og tækí til afnota í sambandi við félags- og skemimtanalíf. d) Að láta þýða eða gera ís- lenzkar skýringar við erlendar f r æð s lumy ndir. e) Að verja hluta af tekjum safnsins ti'l útvegunai' á hljómu plötum: og tónböndum' til notk- unar við fræðslu og félagslíf í skólum. Skal um þetta höfð samvinna við Ríkisútvarpið. f) Að hafa samráð við MenntamláJairáð íslands um gerð fræðslu- og menningar- irynd'a. Enn fremur getur safn- ið ráðizt í töku kynningar- mynda um einstaka þætti at- vinnuilífs og félagslífs, og er heimilt að semja við stofnanir og samtck um fjárhagslega þátt töku slíkra aðila í myndagerð- inn. g) Að efla íslenzka fræðs.lu- myndagerð á annan hátt — svo sem með því að styrkja efni- lega menn til þess að afla sér þekkingar í þeim efnum, er safninu megi síðar ,að gágni verða. REKSTUR .SAFNSINS í 3. gr. frv. eru ákvæði pim tekjur til sa'fnsins og fjárhagsá- ætlun þess. 4. gr. .segir fyrir um starfsmenn safnsins og forstöðu xr.ann og í 5. gr. eru ákvæði um nánari reglugerðir, sem mennta málarláðuneytið getur sett úm meðferð, vörzíu og útlárt mynda og tækja, svo og um myndasýningar. Ýtarleg greinargerð fylgií* frumvarpinu, þar sem greint eil frá starfsemi kennslumynda*. safns, tekjur þess og gjöld og margt fleira. í safninu eru nú um 1070 kvikmyndir, þar a£ 27 íslgnzkar. Langflestar um landafræði eða 250. BÆJUM, Snæfjallahreppi í gær. — Undanfarið hefur verið hér 8—12 stiga frost og í dag ec vont veður. Engin beit er fyrip fé, enda er það ekki vanalegt hér á vetruim. Ár og ilæknir erií undiir ís, m ekki firðir og víkuv svo að neinu nemi. P.J. £ 23, jan. 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.