Alþýðublaðið - 23.01.1959, Qupperneq 4
/mmmmmm
^LÍtgefandi: Alþýötiflokkurinn. Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ást-
jþórsson og Helgi Sæmundsson (áb). Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmars-
son. Fréttastjóri: Björgviil Guðmundsson. Auglýsingastjóri Pétur Féturs-
son. Ritstjórnarsímar: 14901 og 14902. Auglýsingasími: 14906. Afgreiðslu-
sími: 14900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Prentsmiðja Alþýðubl. Hverfisg: 8—10.
Skásti kosturinn
ENGUM hugsandi manni blandast víst hugur
iim' nauðsyn þess að íslendingar reisi rönd við dýr-
ttíðinni og verðbólgunni. Og þess vegna hlýtur al-
..menningur að fagna þeim ráðstöfunum, sem nú-
verandi ríkisstjórn leggur til, en meginatriði þeirra
,or það, að launþegar og bændur gefi eftir 10 vísi-
tölustig og fái jafnframt í aðra hönd verðfækkun,
jsem nemi 17 vísitölustigum. Þannig er unní; að
stöðva dýrtíðarskriðuna með sameiginlegu átaki
landsmanna. Ella fer vísitalan upp í 270 stig á
þessu ári. Þá yrði ekki við neitt ráðið. Hrunið væ-ri
lcomið.
Auðvitað verður reynt að rangtúlka þessa við-
leitni. Sagt mun við þessa stéttina og síðan hina að
skerða eigi kaupið og lífskjörin. En vissulega ber
íið líta á þetta mál í heild með hag lands og þjóðar
fyrir augum. Niðurstaða þeirrar athugunar verður
sú, að þetta sé skásti kosturinn af þeim, sem fyrir
hendi eru. Þess vegna beitir Alþýðuflokkurinn sér
fvrir ráðstöfunum þeim, sem hér um ræðir. Verð-
foólgan er slíkur þjóðarvandi að hann verður ekki
leystur fyrirhafnarlaust. En íslndingar hljó.ta að
liorfast í augu við þann háska, ef vísitalan fer vpp
í 270 stig og dýrtíðarskriðan skellur yfir landið. Af-
ieiðingar þeirrar óheillaþróunar yrðu ægilegar,
Alþýðuflokkurinn vill umfram allt koma í veg
íyrir þau ósköp.
Meginásökun kommúnistá í tilefni af efnahags
jmálafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fær ekki stað-
izt. Kaupmáttur launanna samkvæmt því verður
meiri 1. marz en hann var 1. október í haust. Síð-
asta Alþýðusambandsþing lagði áherzlu á, að
verkalýðurinn nyti áfram þeirra lífskjara, sem
Ihann hafði tryggt sér 1. október. Það er unnt með
ráðstöfunum ríkisstjárnarinnail. En hvað munu
þau lífskjör lengi tryggð, ef verðbólgan og dýrtíð-
in fá að leika lausum hala? Reynsla undanfarinna
ára er ótvírætt svar við þeirri spurningu. Kornm-
únistum væri hollt að hyggja að þessum stað-
reyndum, ef fyrir þeim vakir að tryggja atvinnu
■og afkomu verkalýðsins í landinu.
Um það er að ræða að halda áfram að trúa á
foíekkingu dýrtíðarinnar eða taka upp raunhæfa
Ætefnu með lausn vandans fyrir augum. Óábyrg
stjórnarandstaða álítur sennilega fyrirhaínar-
minna að velja fyrri kostinn. En Alþýðuflokkur-
inn kýs síðari kostinn, hvort sem hann er í stiórn-
araðstöðu eða stjórnarandstöðu. Og með þeirri
stefnu ætlar hann að standa eða falla.
HVfNÆR VERDUR ÞYZKA-
iAND SANEINÁÐ?
UnDANFARIN . þrjú ár
hefur ekki ve'rið mikið talað
; om Þýzkalandsmálið, en nú
er það á ný orðið mál nr. 1 á
■' alþj.óðlegum vettvangi. Til-
laga Krústjovs um að Beriín
: yrði gerð að frjálsu borgríki
- og allur erlendur her fluttur
4 jíaðan brott, kom af stað um-
4 23, jan. 1959 — Alþýðublaðið
ræðunum. í fyrstu voru for-
ustumenn Vesturveidanna
uggandi vegna hins ógnvekj-
andi orðavals í orðsendingu
Krústjovs ,en brátt létu Rúss-
ar í það skína að hér væri
ekki um neina úrslitakosti að
ræða. Vesturveldin svöruðu
orðsendingu Rússa um nýáriö
(Framhald á 10. síðu).
Á þennan stað í hejUamim var geislanum beint og losnaði mað-
urinn, sexn var 55 ára við langyarandi kvalir. Geislunin tók
nokkra tíma, en árangurinn kom ekki þegar í stað í ljc-s. Fyrst
cftir fjórtán daga komu áhrifin fram.
InNAN tíðar mun sjúkl-
ingur ganga undir aðgerð
á sjúkrahúsi í Uppsöl-
um. Hann er annar í röð
þeirra, sem gangast undir
þess konar uppskurð, sem hér
um ræðir, geislaaðgerð. Sjúkl
ingurinn losnar við ígerðina
án svæfingar, blóðs eða upp-
skurðarótta.
Hér er um að ræða heila-
aðgerðir, en hér eftir sem
hingað til er álitið að skurð-
aðgerðir annars staðar í lík-
amanum verði einfaldari og
áhrifaríkari með hníf, en í
heilanum, og annars staðar,
þar sem erfitt er að komast
að, hefur þessi aðferð gevsi-
mikið gildi.
Þegar um er að ræða upp-
skurð vegna alvarlegra geð-
biiana er álitið að hætíu-
minna verði að nota geislana,
sem mögulegt væri að beina
að einu afmörkuðu svæði, án
þess að hætta geti verið á að
skaða nálæga heilbrigða vefi.
Hvernig eftirköstin verða,
hvort með þessu er siglt fram
hjá möguleikanum, að sjúkl-
ingurinn fái hjartaslag eða
taugaáfall meðaii á uppskurð-
inum stendur, eins og stund-
um á sér stað, er enn ekki
fullreynt. Nánari rannsókn er
þá fyrst unnt að gera, þegar
sjúklingur, sem gengizt hef-
ur undir slíkan uppskurð hef-
ur látizt.
Með beitingu geislanna á
vissar heilafrumur er áætlað
að unnt verði að yinna bug á
ýmsum sjúkdómum sálarlífs-
ins án þess að skadda aðrar
frumur, sem heilbrigðar eru,
þannig að engin hætta sé á
deyfð, sljóleika né skapgerð-
arbreytingum, sem orðið geta
ef margar fínustu taugar
heilans eru nokkuð hrærðar.
Sænskur prófessor, sem lát
ið hefur uppi álit sitt um
þetta mál, segist ekki búast
við að unnt verði að nota
þessa aðferð við krabbamein
þar eð greinar meinsemdar-
innar liggja yfirleitt það
dreift að ekki er mögulegt að
eyðileggja allan þann vef, sem
með þyrfti til þess að komast
fyrir krabbann.
Brotizt inn í
sœlgœtisgerð.
BROTIZT var í fyrrinótt inn
í nýja sælgætisgerð að Lauga-
yegi 27. Stolið var þar mjög
verðmætum rammamótum, er
notuð eru við sælgætisgerðina.
Hafði þjófurinn orðið að brjót-
ast í gegnum tvennar dyr, til
þess að komast inn. Skemmdir
voru nokkrar, m.a. mölbrotinn
dvrakarmur.
Framhald af 1. síðu.
að unda.iförnu og er annar hv.er
bær, af 30 í sveitinni, orðinn
vatnslaus, Allar ár og lækir
eru þurrar og verða menn að
sækja vatn hundruð metra
sumir hverjir, í uppsprettur og
lindir. Aldrei hefur jörð orðið
hvít í vetur, en mikill kl-aki.
Fé er stöðugt á beit. Talsverð-
ur ís er á sjónum. Fært er til
Patreksfjarðar, nema á einum
stað er mikil s.vellbunga. Þar
er skipt um bíla. — K.Þ.
Loks sneri blaðið sér til
Skipaútgerðar ríkisins og spurð
ist fyrir um það, hvort sam-
göngur á sjó hafi eitthvað taf-
izt. Ekki heíur borið á því enn
þá, enda lokast þær hafnir, er
sjglt er á, mjög sjaldan. Allar
skipaferðir úigerðarinnar hafa
því gengið sinn vanagang til
þessa.
■ —utm
89 þús. flug-
farþegar
ÁRIÐ 1958 nam tala flug-
farþega í heiminum samtals
89.000.000. Hér eru taldir
þeir farþegar, sem flugu með
flugvélum atvinnuflugfélaga
eingöngu, en ekki þeir, er
kunna að hafa flogið með her
flugvélum eða einkaflugvél-
um.
Upplýsingar þessar eru frá
Alþjóðaflugmálastofnun Sam
eniuðu þjóðanna í Montreal
— ICAO.
Aukning flugfarþega reynd
ist ekki eins mikil á s, 1. ári
eins og hún hafði verið á ár-
unum þar á undan er hún var
að jafnaði 12% á ári.
Farþegaaukningin í fyrra
reyndist nema um 4%, það er
að 3 milljónir fleiri farþegar
tóku sér far með flugvélum
árið 1958 en áríð 1957.
Washington, janúar (UPI).
FUNDIZT'hefur forn vél í
rykföllnum afkima í grísku
safni. Þessi vél er svo fullkom-
in, að eftir henni að dæma hef-
ur menning fornaldarinnar
staðið ótrúlega stutt að baki
okkar nýtízku menningu.
Vélin, sem gerð er úr eir eða
kopar er nú mjög ryðguð og
illa farin eins og búast má við,
þar eð ætlað er að hún hafi
verið notuð við útreikning
brauta himinhnattanna um 65
árum fyrir Krist. í henni er
mjög flókið verk með ýmis-
konar hjclum og öðru slíku
sömuleiðis var þar ritað spjald
með grískum bókstcfum þar
sem skýrt var eðli og gangur
vélarinnar og sýndar voru
ýmsar hringbrautir sólarinnar
og mánans.
Fundur þessi var gerður af
dr. Derek J. Price, sem er
fornleifafræðingur, sem hefur
elnkum kynnt sér forn áhöld
og tæki. Dr. Price hefur greint
frá því, að hann hafi fyrir um
það bil tíu árurn rekist á óör-
uggar heimildir um vél þessa.
Loks á þessu ári gafst honum
tækifæri til þess að leggja leið
sína til Aþenu og leita í forn-
leifum geymsluherbergja þjóð
minjasafnsins.
Fornleifafundurinn var raun
verulega gerður árið 1900 af
hóp grískra svampkafara frá
Antikytheraeyju, sem rákust á
skipsflak hlaðið marmara og
bronsstyttum. Enda þótt fund-
ur þessi væri gerður heyrum
kunnur, var vélinni lítil athygli
veitt. Fimmtíu og átta árum
síðar endurfann Dr. Price
hana.
Hann segir, að fundur þessi
væri eins og að opna pýramída
og finna þar inni atóm-
sprengju.
Hann hefur látið þá skoðun
í ljósi, að vél þessi sé svo flók-
in vélfræðilega séð, að líklega
hefði enginn getað búið hana
til fyrr en Edison og hans lík-
ar. Grikkir voru á hápunkti
menningar sinnar, þegar þessi
vél var gerð og. þá stóðu þeir
okkur ekki langt að baki.
Grikkirnir vissu að jörðin
var kringlótt. Þeir vissu um
tilveru Mer.kúrusar, Venusar,
Marz, Júpiters og Satúrnusar
eins vel og þeir vissu um sól
og mána. Þeir höfðu gert þá
uppgötvun, að þessir hnettir
höfðu fasta braut í kringum
sólina. Þeir höfðu rétt fyrir
sér hvað tunglið snerti, en það
var þó ef til vill mest heppni,
fremur en góð og gild stjörnu-
vísindi.
(Framliald á 10. síðu).