Morgunblaðið - 07.10.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTOBER 1990
C 7
Halim stóð enn í þeirri trú að
hann væri að ræða við kaupsýslu-
.menn og stóðst ekki freistandi til-
boð þeirra um að launa honum ríku-
lega. Hann var heldur ekki beðinn
um upplýsingar um smíði kjarnork-
usprengju. Mossad hafði opinber-
lega ráðið hann í sína þjónustu,
þótt hann gerði sér ekki grein fyrir
því sjáifur. Donovan greiddi honum
8.000 dollara fyrir hjálpina.
Mennirnir frá Mossad voru ýtn-
ari en Donovan og báðu Halim um
uppdrátt af íraska kjarnorkuverinu,
nákvæmar upplýsingar um hvar það
væri og framleiðslugetu þess og
tímasetningar i byggingaráætl-
uninni. Halim lét undan og allt
gekk vel í fyrstu. Halim útvegaði
fleiri uppiýsingar og fékk ríflegar
greiðslur.
Egypzki visindamadurinn
Síðan varð Halim taugaóstyrkur
og bað Donovan um aðstoð. „Ég
hef verið gabbaður," sagði hann og
viðurkenndi að hafa gert „leyni-
samning" við þýzka fyrirtækið í
Amsterdam. „Peningarnir freistuðu
mín og konan er alltaf að heimta
peninga." Fimm mánuðir voru síðan
aðgerðin hófst.
Næst þegar þeir hittust reyndi
Donovan að sannfæra Halim um
að bandaríska leyniþjónustan CIA
stæði á bak við „kaupsýslumenn-
ina“ í Amsterdam og kvaðst hafa
samið við hana. „Þeir vilja aðeins
fá að vita eitt í viðbót, svo láta
þeir þig í friði" sagði hann._ „þeir
vilja komast að því hvernig írakar
muni bregðast við, þegar Frakkar
bjóðast til að útvega þeim „karam-
ellur“ í staðinn fyrir efnastyrkt úr-
an ..."
Halim kvað íraka aðeins vilja
efnastyrkt úran, en sagði að von
væri á egypzka eðlisfræðingnum
Yahia E1 Meshad, sem mundi yfir-
fara áætlunina og taka ákvörðun í
málinu fyrir íraka.
Að kröfu Donovans bauð Halim
egypzka vísindamanninum í veit-
ingahús til þess að Donovan gæti
hitt hann „óvænt“. Halim kynnti
þá, en Meshed hafði ekki áhuga á
að kynnast Donovan og Halim var
of taugaóstyrkur til að spyrja hann
um „karamellurnar".
Daginn eftir sagði Donovan Hal-
im að ef hann gæti útvegað áætlun
um flutninga _frá Sancelles-verk-
smiðjunni til íraks mundi „CIA“
telja að hann væri laus allra mála.
Þá hafði annar útsendari Mossads
upplýst að írakar hefðu ekki áhuga
á karamellum í staðinn fyrir efna-
styrkt úran. Þó var talið mikilvægt
að reyna að ráða Meshed í þjónustu
Mossads, þar sem hann var yfir-
maður allrar áætlunarinnar.
U_m líkt leyti kom Samira aftur
frá írak og Halim sagði henni frá
Donovan og erfiðleikunum í sam-
bandi við CIA. Salima brást reið
við og sagði að hann hefði líklega
lent í klónum á ísraelsku leyniþjón-
ustunni.
Kjarnaofninn eyóilagóur
Snemma í apríl 1979 óku tveir
vörubílar með hreyfla í Mirage-
orrustuþotur frá Dassault Breguet-
verksmiðjunum að flugskýli á bann-
svæði í La Seyne-sur-Mer nálægt
Toulon.
Ekkert athugavert þótti við það
að þriðji vörubíllinn bættist við á
leiðinm. I honum var gámur/þar
sem ísraelsmenn höfðu falið fimm
skemmdarverkamenn og kjarn-
orkuvísindamann. Vísindamaðurinn
átti að ákveða hvar í kjarnaofnin-
um, sem tók þrjú ár að smíða, koma
ætti fyrir sprengjum svo að þær
yllu sem mestu tjóni.
Einn af vörðum verksmiðjunnar
hafði nýlega verið ráðinn, en hafði
óaðfinnanleg meðmæli. Enginn
vissi að hann hafði tekið lykilinn
að geymslurýminu, þar sem íraski
búnaðurinn beið þess að verða send-
ur eftir nokkra daga. Að ráði vísind-
amannsins komu Israelsmenn fyrir
fimm plastsprengjum á mikilvæg-
um stöðum.
Athygli varðanna við verksmiðju-
hliðið beindist að umferðaróhappi
fyrir utan. Bifreið virtist hafa ekið
á unga, laglega konu. Hún virtist
Árásin í Beirút 1983: Mossad lét CIA ekki vita.
Lögðu kjarnorkuver í rúst: ísra-
elsk F-16-orrustuþota (við
Masada).
lítið meidd, en hrópaði ókvæðisorð
að bílstjóranum.
Hópur fólks safnaðist saman. í
hópnum voru ísraelsku skemmdar-
verkamennirnir, sem höfðu klifrað
yfir girðingu bak við verksmiðjuna
o'g gengið að framhliðinu. Einn
þeirra kveikti laumulega í flóknum
sprengiþræði með handvirku tæki
og sex tíundu hlutar kjamaofnsins
eyðilögðust í gífurlegri sprengingu.
Tjónið var metið á 23 milljónir
punda og áætlun íraka tafðist í
nokkra mánuði.
Verðirnir þutu inn í flugskýlið.
Bíllinn, sem ekið hafði á ungu kon-
una, ók á brott og unga konan
hvarf inn í hliðargötu.
Áður óþekkt samtök franskra
umhverfisverndarsinna sögðust
hafa staðið fyrir sprengingunni,
þótt lögreglan vísaði því á bug.
Lögreglan varðist allra frétta og
frönsk blöð veltu því fyrir sér hveij-
ir bæru ábyrgð á árásinni.
„Ég verð hengdur," sagði Halim
örvilnaður þegar hann hitti Donov-
an næst Hann sagðist vilja fara
aftur til íraks. Kona hans vildi það
og þar yrði hann óhultur.
Donovan reyndi að róa hann og
sagði að sennilega væri um iðnað-
arnjósnir að ræða. Hann reyndi að
eyða öllum hugmyndum Halims um
að ísraelsmenn hefðu staðið á bak
við sprenginguna og sagði að ef
hann vildi í raun og veru byija
nýtt Iíf skyldi hann setja sig í sam-
band við þá.
„Þeir borga þér vel. Þú færð
nýtt nafn. Þeir hefðu áhuga á því
sem þú veizt um kjarnorkuverið,"
sagði hann. Halim var á báðum
áttum.
Moróió ó hételinu
Meshad, egypzki eðlisfræðingur-
ihn, olli enn erfiðleikum. Mossad
gerði sér enn vonir um að ráða
hann í sína þjónustu, því að hann
var einn fárra virtra kjarnorkuvís-
indamanna Araba og handgenginn
íröskum ráðamönnum. Nokkrum
spurningum var enn ósvarað, þótt
Halim hefði verið hjálplegur.
Hinn 7. júní 1980 fór Meshad til
Parísar til að skýra frá lokaákvörð-
unum um viðskiptin. ísraelsmenn
höfðu komizt að því að hann mundi
gista á Meriden- hótelinu og komu
fyrir hlerunarútbúnaði í herbergi
Meshad: varð að ryðja úr vegi.
hans.
Seinna sagði Zamuba, kona
hans, að fjölskyldan hefði verið í
þann veginn að fara í frí, þegar
embættismaður hefði hringt í hann
frá Sarcelles-verinu.
Hún heyrði Meshad segja: „Af
hveiju ég? Ég get sent sérfræð-
ing.“ Upp frá því hefði hann verið
taugaóstyrkur og reiður og hún
taldi að ísraelskur útsendari í
frönsku stjórninni hefði lagt snöru
fyrir hann. „Auðvitað var hætta á
ferðum," sagði hún. „Hann sagði
mér að hann mundi halda áfram
að vinna að smíði sprengjunnar,
þótt það kostaði hann lífið."
Samkvæmt opinberri fréttatil-
kynningu gaf vændiskona sig á tal
við Meshad í lyftunni þegar hann
sneri aftur til hótelherbergis síns
kl. 7 e.h. eftir stormasaman fund.
Vændiskona, sem hann hafði hitt
að staðaldri, átti að koma til hans
hálftíma síðar. Hún var engin önnur
en Marie-Claude Magal, sem
Donovan hafði útvegað Halim, og
var á taunum hjá Mossad, þótt hún
vissi ekki nákvæmlega hveijir
vinnuveitendur hennar væru.
Mossad ákvað að snúa sér beint
til Meshads. „Ef hann samþykkir
er hann ráðinn," sagði yfirmaður
Mossads í París. „Ef hann neitar
er hann dauðans matur.“
Saddam Hussein: draumurinn
sem brást.
Arabískur útsendari Mossad var
sendur til herbergis Meshads rétt
áður en Magal kom. „Ég er frá
ríki, sem mun greiða þér stórfé
fyrir svör þín,“ sagði maðurinn.
Meshad skipaði honum að hypja sig
í burtu og hótaði að hringja í lög-
regluna.
Magal var' hjá Meshad í tvo
tíma. Meðan hann svaf laumuðust
tveir menn inn í hótelíbúðina. Her-
bergisþerna fann blóðugt líkið dag-
inn eftir. Engu var stolið.
Magal sagði lögreglunni að
Meshad hefði bölsótast út af
manni, sem hefði boðið greiðslu
fyrir upplýsingar. Hún trúði einnig
vinkonu sinni fyrir þessu og hún
kom vitneskjunni óafvitað á fram-
færi við Mossad.
Síðla kvölds 12. júlí 1980 lagði
maður nokkur svartri Mercedes-bif-
reið í Boulevard Saint Germain og
bauð Magal upp í bílinn til sín. Þau
tóku tal saman og í sömu svifum
kom önnur svört Mercedes-bifreið
æðandi. Væntanlegur viðskiptavin-
ur Magals gerði sér lítið fyrir og
ýtti henni út úr bíl sínum í veg
fyrir bílinn, sem nálgaðist. Magal
lézt samstundis. Báðar bifreiðarnar
brunuðu í burtu.
Flugferóin til Bagdad
Tæpu ári síðar, kl. 4 e.h. 7. júní
1981, á björtum og sólríkum sunnu-
degi, hófu 24 ísraelskar F-15- og
F-16-orrustuflugvélar sig til flugs
frá Beersheba. Ferðinni var heitið
til Tuwaitha rétt hjá Bagdad og
tilgangurinn var að sprengja íraska
kjarnorkuverið í loft upp. Flugvél-
arnar þurftu að fljúga 650 mílna
vegalengd yfir óvinalönd og ferðin
tók eina og hálfa klukkustund.
Með í ferðinni var eldsneytisflug-
vél af gerðinni Boeing 707, sem
leit út fyrir að vera leiguflugvél frá
írska flugfélaginu Aer Lingus. Orr-
ustuþoturnar flugu þétt saman og
Boeing-flugvélin beint fyrir neðan
þær, eins og hún væri ein á ferð í
venjulegu áætlunarflugi. Orrustu-
flugvélarnar sendu engin skilaboð,
en fengu boð um fjarskiptaflugvél,
sem truflaði aðrar merkjasendingar
og ratsjá óvinanna.
Eldsneytisvélin fyllti geyma orr-
ustuflugvélanna á miðri leið yfir
iraskri grund. Of hættulegt var að
bíða með það þar til eftir árásina,
þar sem þeim kynni að verða veitt
eftirför.
Síðan yfirgaf Boeing-þotan flug-
sveitina snögglega og flaug í fylgd
með tveimur orrustuflugvélum
norðvestur yfir Sýrland til Kýpur,
þar sem hún lenti rétt eins of hún
væri að koma úr venjulegu áætlun-
arflugi. Orrustuflugvélarnar yfir-
gáfu ekki Boeing-þotuna fyrr en
hún var komin út úr óvinalofthelgi
og flugu því næst aftur til Beersh-
eba.
Alger eyóilegging
Á meðan héldu hinar orrustuflug-
vélarnar ferð sinni áfram, vopnaðar
Sidewinder-eldflaugum, járn-
sprengjúm og 2.000 pundum af
leysisprengjum, sem fara eftir ljós-
geisla beint að skotmarkinu.
Vegna upplýsinga Halims vissu
ísraelsmenn nákvæmlega hvar þeir
áttu að hæfa skotmarkið til að
valda sem mestu tjóni. Aðalatriðið
var að fella hvolfþakið yfir kjarna
orkuversins. ísraelskur hermaður á
svæðinu vísaði ísraelsku flugmönn-
unum leiðina að skotmarkinu með
þar til gerðum búnaði.
Stefnutæki var ísraelsku flug-
mönnunum til leiðbeiningar fyrir
utan kjarnorkuverið, en til frekari
öryggis var útsendari Mossads beð-
inn að koma fyrir skjalatösku með
öðru slíku tæki inni í byggingunni.
Þessi útsendari var franskur tækni-
fræðingur, Damien Chassepied, og
af einhveijum ástæðum tafðist
hann inni. Hann var eini maðurinn,
sem lét lífið í árásinni.
Flugvélarnar flugu í lítilli hæð
að skotmarkinu til að forðast ratsjá
óvinanna, en kl. 6.30 e.h. hækkuðu
þær flugið í 2.000 fet. Svo snöggar
voru þær að það ruglaði ratsjá óvin-
anna og geislar kvöldsólarinnar
blinduðu írösku loftvarnaskytturnar
umhverfis kjarnorkuverið. Orrustu-
flugvélarnar steyptu sér niður hver
af annarri á svo mikilli ferð að ír-
ösku skytturnar gátu ekki rhiðað
og skutu út í loftið.
Engi-i loftvarnaflaug var skotið
og engar íraskar flugvélar veittu
ísraelsku árásarvélunum eftirför
þegar þær héldu heim á leið eftir
árásina. Flogið var í mikilli hæð
beint yfir Jórdaníu. Árásin hafði
heppnazt: draumur Saddams Huss-
eins um að gera írak að kjarnorku-
veldi voru að engu orðnir.
Kjarnorkuverið geryðilagðist í
árásinni. Hvolfþakið á bygging-
unni, þar sem kjarnaofninni var,
hrundi. Veggirnir splundruðust og
miklar skemmdir urðu á tveimur
öðrum byggingum.
ísraelsku orrustuflugvélarnar
komu heilu og höldnu aftur til ísra-
els aðeins þremur tímum eftir flug-
tak. Menachem Begin försætisráð-
herra hafði beðið frétta í tvo tíma
á heimili sínu við Smolenskin-
stræti ásamt öllum ráðherrum sín-
um.
Laust fyrir kl. 7 e.h. hringdi
Rafael Eitan hershöfðingi, yfirmað-
ur ísraelska hersins, í Begin. Hann
tilkynnti að árásin hefði heppnazt
og allir flugmennirnir væru heilir á
húfi. Begin sagði: Buruch hashant
(guði sé lof). Um viðbrögð Saddams
Husseins er ekki vitað.