Morgunblaðið - 07.10.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
m:
MAIMNLIFSSTRAUMAR
SUNNUDAGUR 7. OKTOBER 1990
C 9
UIVIHVERFISIVIÁL//fe*r á eftirlit
meb mengun og hollustuvemd ab vera?
VaUldreifing -
miðstýríng
EIN AF ályktunum á XIV. lands-
þingi Sambands íslenskra sveit-
arfélaga sem haldið var 27.-28.
sept. síðastl. var á þessa leið:
„Landsþingið mótmælir harðlega
þeirri forræðishyggju ogtil-
hneigingu til ofstýringar er iðu-
lega kemur fram við setningu
laga og reglugerða um málefni
sem falin eru sveitarfélögum til
úrlausnar, þrátt fyrir skýlaus
ákvæði í sveitarstjórnarlögum
um sjálfsforræði sveitarstjórna í
eigin málefnum." Um þetta eru
menn sammála en ríkisvaldið
lætur sér oft fátt um finnast.
Tökum t.d. eftirlitsþáttinn að því
er varðar mengunarmál og holl-
ustuvernd. Ymislegt bendir nú
til að miðstýringaráráttan verði
ofan á og þessir málaflokkar
verði fluttir frá sveitarfélögun-
um til ríkisins.
A
Igrein sem birtist ekki alls fyrir
löngu í „Sveitarstjórnarmálum",
tímariti Sambands íslenskra sveit-
arfélaga eftir Þórhall Halldórsson,
forstöðumann heilbrigðiseftirlits
Hollustuverndar
ríkisins um heil-
brigðis og um-
hverfismál sveit-
arfélaga, fjallar
hann um hlutverk
heilbrigðisnefnda,
framkvæmd eftir-
lits í þessum mál-
um og verkefnin
eftir Huldu
Voltýsdóltur
framundan.
Samkvæmt núgildandi skipan
um hollustuhætti og heilbrigðiseft-
irlit er gert ráð fyrir að skipaðar
séu 46 heilbrigðisnefndir sem skipt-
ast á 13 eftirlitssvæði. í lögunum
eru ákvæði um að ekkert sveitarfé-
lag skuli vera án viðhlítandi heil-
brigðiseftirlits.
Hlutverk nefndanna er fjórþætt.
Þeim er ætlað að vinna að 1. bættri
heilbrigðisvernd í héraðinu, 2. bætt-
um mengunarvörnum, 3. fræðslu
um hollustumál og 4. samvinnu við
önnur yfirvöld og aðila sem vinna
að þessum málum. Reglugerðir sem
heiibrigðisnefndum er falið að sjá
um að framfylgt sé, undir yfirum-
sjón Hollustuverndar ríkisins, eru
mjög yfirgripsmiklar og auka verk-
svið heilbrigðisnefnda til mikilla
muna frá því sem áður var, segir
Þórhallur Halldórsson í grein sinni.
Framkvæmd eftirlitsins er í
höndúm heilbrigðisfulltrúa í umboði
heilbrigðisnefnda en fulltrúar eru
nú 27 talsins í 23 stöðugildum.
Þórhallur varpar fram þeirri spurn-
ingu hvort nefndunum hafi verið
gert kleift að sinna verkefni sínu
og svarar játandi, því sennilega
hafi engin nefnd á vegum sveitarfé-
laga meiri völd en heilbrigðisnefnd-
ir. Þeirra samþykktir þurfi t.d. ekki
að fara fyrir sveitarstjórnir til stað-
festingar.
Samkvæmt lögum geta heil-
brigðisnefndir : 1. veitt áminningu,
2. veitt áminningu og tilhlýðilegan
frest til úrbóta, eða 3. stöðvað við-
komandi starfsemi með öllu eða að
hluta. Af því má ljóst vera að meg-
inmáli skiptir hverjum er trúað fyr-
ir þeim þýðingarmiklu málaflokkum
sem eru á sviði heilbrigðisnefnda
og hveijir fara með jafn víðtæk
völd og hér um ræðir.
Þórhallur Halldórsson fjallar og
um verkefni sem bíða heilbrigðis-
nefnda. Hann minnir á að sérstök
mengunarvarnareglugerð hafi tekið
gildi í fyrsta sinn hérlendis og fjöl-
mörg stórverkefni á sviði umhverf-
is- og mengunarmála bíði úrlausn-
ar. Hann bendir á að augu manna
séu að opnast fyrir þeirri staðreynd
að það skipti sköpum fyrir lífsskil-
yrði landsmanna og Islands sem
matvælaframleiðanda að tekið verði
af festu á þeim málum.
Hann minnir á það alvarlega til-
vik sem upp kom vegna salmonellu-
sýkingar svo folöld drápust og að
sýkilsins hafi orðið vart í sauðfjáraf-
urðum hér á landi. Þá segir hann
og réttilega að hér sé um að ræða
forgangsverkefni sem mun rnæða
hvað mest á heilbrigðiseftirliti og
heilbrigðisnefndum, en að sjálf-
sögðu þurfi fleiri að leggja hönd á
plóginn svo framfylgt verði ákvæð-
um heilbrigðis og mengunarvarna-
reglugerðar. Fræðsla til almennings
skipti þar auðvitað miklu máli.
I greininni nefnir hann að frá-
gangur vatnsbóla hér hafi verið
stórlega bættur á undanförnum
árum enda verði að gera þá kröfu
til sveitarstjóma að íbúum þéttbýl-
isstaða sé tryggt ómengað og gott
neysluvatn.
Tryggari förgun úrgangs er í
athugun t.d. á höfuðborgarsvæðinu
og á Suðurlandi og vaxandi skiln-
ingur annars staðar á samvinnu
sveitarfélaga um þau mál. Frá-
rennslismál eru hins vegar mjög illa
á vegi stödd og nær engar útrásir
uppfylla ákvæði heilbrigðis- og
mengunarvarnareglugerðar. Hafn-
ar hafa þó verið markvissar endur-
bætur og þá fyrst og fremst á höf-
uðborgarsvæðinu, en hér er um
afar kostnaðarsamar framkvæmdir
að ræða.
Að lokum fjallar Þórhallur um
framtíðarskipan þessara mála í
stjórnkerfinu en sá þáttur skiptir
raunar sköpum. Þessi mál eru ofar-
lega á baugi í þjóðfélaginu vegna
tilburða um viðamiklar breytingar
og-tilflutnings einstakra málaflokka
milli ráðuneyta vegna stofnunar
umhverfisráðuneytis. Því miður
virðist þar gæta um of tilhneigingar
til miðstýringar í stað þess að flytja
eftirlitshlutverkið til þeirra
stjórnaraðila sem næstir standa og
eru í nánustum tengslum við íbúa.
Gefum Þórhalli orðið: „Núverandi
skipan byggist á þeirri grundvallar-
reglu að þessum málum sé best
borgið með því að heilbrigðis og
mengunarvarnaeftirlit sé á vegum
sveitarfélaganna. Öðru hvoru skýt-
ur sú skoðun upp kollinum að eftir-
litið þurfi að vera meira miðstýrt,
helst að eftirlitið í heild flyttist til
ríkisins. Af reyslu minni við heil-
brigðiseftirlit undanfarna áratugi
er ég á annarri skoðun. Miðstýrt
eftirlit úr Reykjavík verður aldrei
virkt. Eftirlitið krefst mikillar stað-
þekkingar og á að vera úti í héruð-
unum þar sem sjálf starfsemin fer
fram. Sveitarfélögunum . er það
meira kappsmál að bætá stað-
bundnar aðstæður en ríkisvaldinu.
Hins vegar er ljóst að ef sveitarfé-
lögin hafa ekki áhuga á að koma
þeim málum er mest varða daglegt
líf íbúanna og undirstöðuatvinnu-
vegi landsmanna í viðhlítandi horf,
getur það leitt til þess að eftirlitið
verði fært úr höndum þeirra.
Sveitarstjórnarmenn þurfa að
vera vel á verði ... og sporna gegn
lítt hugsuðum breytingum á yfir-
stjórn þessara mála byggðum á
pólitískri niðurstöðu fremur en fag-
legri. Heilbrigðis og mengunar-
varnaeftirlit eru mjög náskyldir
málaflokkar. Það yrði skref aftur á
bak ef yfirstjórn og framkvæmd
yrðu aðskilin til frambúðar.“
aukne cht
ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI
KÆLISKÁPAR
FRYSTISKÁPAR
OG
MARGT
FLEIRA
ELDAVÉLAR
OG
OFNAR
UPPÞVOTTAVÉLAR ÞVOTTAVÉLAR ÞURRKARAR
JtMMlh
0 SAMBANDSINS
KAUPFELOGIN HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
UM LAND ALLT VID MIKLAGARÐ
A+K ^ (***“*
myndvarpar
• Niðurfellanlegur armur
• Hæðarstilling á borði
• Frábær myndgæði
TEIKNIÞJÓNUSTAN SF,,
Bolholti 6,105 Rvk.S. 91-82099.
Gríptu tækifærið!
GoldStar síminn
m/símsvara á aðeins
kr.9.952.-
(stgr..m/vsk).
• Sími og símsvari í einu tæki
• Fjarstýranleguránaukatækja
úröllum tónvalssímum
- hvaöan sem er
• 10 númera skammvalsminni
• Fullkomnar leiðbeiningar á
íslensku
• 15 mánaöa ábyrgð
• Póstsendum.
KRISTALL HF.
SKEIFAM 11B - SÍMI 685750
Minnum á GoldStar
tölvurnar og símkerfin
HITAMÆLAR
Allar
stærðir
09
gerðir
SMaagiBiiir Jðm»»B)ira §> ©® M.
Vesíurgðtu 16 - Simai 14680-132»
Á VEGGI, LOFT OG GÓLF
TRAUSTARI HUÓÐEINANGRUN,
ÞYNGRI OG STEINULL
ÞVÍ ÓÞÖRF. A FLOKKUR
ELDTRAUSTAR
VATNSHELDAR
ÖRUGGTNAGLHALD
KANTSKURÐUR SEM EGG
HOLLENSK GÆÐAVARA
Þ.ÞORGRfMSSON&CO
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640