Morgunblaðið - 07.10.1990, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MANINILIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1990
C 11
MT ^
VIN /Eru Islendingar meö einhcefustu
vínneyslu í heimi?
Fimrn tegundir 43 %
rauðnnsneyslu
eftir Steingrím
Sigúrgeirsson
ÁFENGIS- OG TOBAKS-
VERSLUN ríkisins hefur stund-
um legið undir ámæli fyrir að
vera með mjög einhæfan v'arn-
ing á boðstólum. Fjöldi tegunda
er ekki ýkja mikill og úrvalið
af léttvínstegundum í útsölum
einkasölufyrirtækisins álíka og
í sæmilegri hverfisverslun á
meginlandi Evrópu.
Þegar litið er á sölutölur Áfeng-
is- og tóbaksverslunar ríkisins
yfir vín kemur hins vegar margt
athyglisvert í ljós. Fyrstu sex mán-
uði ársins 1990 voru alls seldir
410.198 lítrar af
víni (árið 1989
seldust 942.036
lítrar). Skiptist
salan þannig að
fyrsta helming
þessa árs var
rauðvínssala 47%
heildarsölu (50%
árið 1989),
hvítvínssala 37% (35%), rósavíns-
sala 6% (6%) og sala á kampavíni
og freyðivíni 10% (9%).
Hvað rauðvín varðar þá virðast
íslendingar hafa nokkuð stað-
fastan smekk, að minnsta kosti
benda sölutölur ársins 1989 og
fyrstu sex mánuði ársins 1990 til
þess. Ogþað semmeiraer, smekk-
ur landans virðist vera meira en
lítið einhæfur. Hið litla úrval virð-
ist því varla há hinum almenna
viðskiptavini.
Frönsk rauðvín eru greinilega í
langmestu uppáhaldi hjá íslend-
ingum. Fyrstu sex mánuði þessa
árs voru seídir um 123.429 lítrar
af rauðvíni frá Frakklandi sem er
64% af heildarsölu rauðvína. Ítalía
er í öðru sæti, en 40.564 lítrar af
ítölskum rauðvínum seldust á tíma-
bilinu sem jafngildir 21% af heild-
arsölunni. Síðan koma Kali-
forníuvín með 5,9% (11.336 lítrar),
spænsk vín með 5,4% (10.386
lítrar), portúgölsk vín 1,6% (2.992
lítrar), áströlsk vín 1,1% (2.161
lítrar) og vín frá öðrum löndum
mynda svo loks 1% af rauðvínssölu
ÁTVR.
Mest selda rauðvínstegundin á
íslandi jafnt árið 1989 sem fyrstu
sex mánuði þessa árs er beaujolais-
vín frá fyrirtækinu Piat. Hefur
þetta vín töluverða yfirburði á
rauðvínsmarkaðinum.
Ef litið er á söluna árið 1989
lítur hún svona út: 1. Piat de Beau-
jolais (62.773,5 lítrar), 2. Valpolic-
ella í tveggja lítra flöskum (58.334
lítrar), 3. Vin de pays de l’Hérault
- þ.e. sveitavín frá franska Miðjarð-
arhafshéraðinu Hérault (það hérað
Frakklands sem framleiðir mesta
vínmagnið) en það er selt í þriggja
lítra kössum (35.565 lítrar), 4.
Chateau Fontareche, sem er vín
frá vínhéraðinu Corbiéres í Suður-
Frakklandi (23.521 lítrar) og loks
5. St. Emilion (Bordeaux) frá A.
Bichot (21.536 lítrar).
Árið 1989 voru alls seldir
466.619,77 lítrar af rauðvíni á ís-
landi og þar af 201.730,25 lítrar
af þessum fimm efstu tegundum
eða 43,2% af heildarsölunni.
Á tímabilinu janúar til júní 1990
voru fímm efstu tegundirnar: 1.
Piat de Beaujolais (24.771,37
lítrar), 2. Vin de pays de l’Hérault
(23.496 lítrar), 3. Valpolicella
(14.992 lítrar), Chateau Fontarec-
he (12.259 lítrar) og 5. St. Emilion
(9.018 lítrar).
Á tímabilinu seldust alls
192.562,63 lítrar af rauðvíni, þar
af 84.537,62 lítrar af fimm vinsæl-
ustu tegundunum eða 43,9% af
heildarsölunni.
Ef litið er á sölu frá einstökum
vínræktarhéruðum Frakklands
kemur í ljós að tvö héruð virðast
öðrum fremur eiga greiða leið að
bragðlaukum Islendinga: Borde-
aux og Beaujolais. Rúmlega tutt-
ugu mismunandi tegundir Borde-
aux-vína voru seldar af ÁTVR
fyrstu sex mánuði ársins, alls
29.728,43 lítrar. Þetta þýðir um
15% af heildarsölu rauðvína og um
24% af sölu franskra rauðvína. Frá
Beaujolais var boðið upp á fimm
tegundir og seldust alls 29.504,62
lítrar. Þetta þýðir einnig um 15%
af heildarsölu rauðvína og 24% af
sölu franskra rauðvína. Samtals
Smekkur landans virðist
vera meira en lítið einhæfur
— menn kjósa það sem þeir þekkja
og eru ekki að prófa neitt nýtt.
hafa því þessi tvö héruð 30% af
íslenska rauðvínsmarkaðinum og
sjá fyrir tæpum helming af sölu
franskra rauðvína á íslandi. Vin-
sældir Beaujolais byggjast að
mestu á mikilli sölu á vini frá Piat
en sala á þeirri tegund er hvorki
meira né minna en 12% af heildar-
sölu rauðvína á íslandi og 19% af
sölu franskra vína.
Héruðin Corbiéres og Hérault
eru einnig ofarlega á blaði en sala
frá þeim byggir aðeins á einni teg-
und. Corbiéres er með 6% af heild-
arsölunni og Hérault með 12%.
Af öðrum héruðum má nefna
að Cote de Rhone-vín mynda 5%
heildarsölu fyrstu sex mánuði árs-
ins og 8% af sölu franskra vína.
Sala af vínum frá öðrum héruðum
er umtalsvert minni.
En hver er skýringin á þessari
einhæfni í neysluvenjum Islend-
inga hvað rauðvín varðar? Hvað
varðar tveggja lítra flöskurnar af
ítalska Valpolicella-víninu og
þriggja lítra kassana af sveitavín-
inu frá Hérault er það örugglega
buddan sem ræður. Þetta eru lang
ódýrustu vínin hjá ÁTVR og ef
miðað er við 75 cl (það er venju-
lega flösku) þá myndi sveitavínið
kosta 532,5 krónur en Válpolicella
570 krónur. Vinsældir hinna
vínanna þriggja byggjast líklega á
vanafestu. Engin kynning eða lýs-
ing á söluvörum ÁTVR auk hás
verðs eru eflaust stór þáttur í því
að menn kjósa það sem þeir þekkja
og eru ekki að prófa neitt nýtt.
í vatni í klukkustund.
Afhýðið kartöflurnar og skerið í
teninga ásamt gulrótunum, saxið
kúrbíta og lauk, afhýðið tómatana
með því að hella á þá sjóðandi vatni.
Eftir nokkrar mínútur er stungið á
hýðið með hvössum hníf, og það
losnar þá mjög auðveldlega af.
Bætið grænmeti út í pottinn þeg-
ar baunirnar hafa soðið í klukku-
stund og látið malla í 45 mín. Bragð-
ið á súpunni og setjið í stóra súpu-
skál. Hellið basilíkusósunni út í og
berið fram með parmesanosti.
Basilíkusósa:
20 basilíkublöð
100 g parmesanostur
5 hvítlauksrif
6 msk ólífuolía
Setjið basilíku, hvítlauk og olíu í
hnífakvörn. Bæðið ostinum saman
við.
Gegn streitu, svefnleysi og
meltingartruflunum
Basilíkan er upprunnin á Indlandi
þar sem hún hefur tengst helgisiðum
hindúa á ýmsa lund. Þá kemur hún
mjög við sögu náttúrulækninga í
Evrópu og Afríku. Þannig mælti
Plinius með henni gegn flogaveiki
og á síðmiðöldum sögðu læknar hana
„bæta skapið, hreinsa heilann og
styrkja blóðið", enda telja náttúru-
lækningamenn 20. aldar það engum
vafa undirorpið að basilíkan hafi
bæði róandi og krampaeyðandi áhrif,
fyrir nú utan það að vera meltingar-
bætandi. Þeir mæla með henni gegn
streitu, þ. á m. svefnleysi af völdum
kvíða, meltingartruflunum, svima,
mígreni — í stuttu máli mæla þeir
með henni sem náttúrulegu róandi
lyfi.
Ýmist er hægt að laga seyði af
' 3-5 g af basilíkublöðum út í 100 g
af vatni og drekka það eftir mat 2-3
á dag, eða búa til kryddvín á eftirfar-
andi hátt: Meijið/saxið smátt hand-
fylli basilíkublaða og setjið út í lítra
af rauðvíni. Látlð standa í þrjá sólar-
hringa, síið blöðin frá og sykrið vínið
ef vill. Drekkið lítið vínglas eftir
hveija máltíð.
Við slæmri hægðatregðu á síðan
að vera óbrigðult að blanda bas-
ilíkuvínið til helminga með ólífuolíu
og taka inn 3-4 msk daglega.
E.s. Hin ljúffenga Tungna-
basilíka fæst alltént í verslunum
Hagkaups ásamt mörgvim fleiri
kryddjurtum úr sömu sveit: þ. á m.
majóram, timjan, oregano, salvíu og
rósmarín. Furuhnetur fást í Heilsu-
húsinu.
Aukaferðir
til Mallorka
23.- 30. okt.- 8 dagar
Verð frá 28.900*
\ | / SKEMMTUN
VERSLUN
'/fY' GOLF
30. okt. - 3. nóv. - 5 dagar
Verðfrá 26.100*
* Miðáð er við 2 í Stúdíó á Royal Jardin del Mar.
Tilvalið fyrir t.d.
SAUMAKLÚBBA
SKIPSHAFNIR
VINNUSTAÐAHÓPA
DAGFLUG
FERÐASKRIFSTOFAN
(VTKMfTIK
HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMI 28388 OG 28580
^Sn=M=l?T*l=LJf3Íl