Morgunblaðið - 07.10.1990, Síða 26
26 C
MORGUNBLAÐIÐ MYNDASOGUR SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) (HS
Þér helst illa á peningum í dag,
en þú ert á réttri leið í starfi þínu
og nærð að auka tekjumar. Láttu
heilbrigða skynsemi ráða ferðinni
hjá þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí) í/fö
Fólk íþyngir þér með vandamál-
um sínum svo að þú kemur ekki
öllu í verk sem þú ætlaðir þér.
Hugur þinn er opinn og skapandi
í dag.
Tvíburar
(21. maí - .20. júní) J»
Láttu áhyggjur af fjármálum
ekki sliga þig í dag. Líttu á mál-
ið frá sem flestum sjónarhomum.
Þú átt auðveldast með að koma
góðum hugmyndum fram í kvöld.
Krabbi
(21. júni - 22. júlí)
Félagslífið veldur þér vonbrigð-
um. Þú hefðir meiri ánægju af
lestri góðra bóka. Þér líður vel
andlega og innsæi þitt er upp á
sitt skarpasta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hugsaðu ekki um viðskipti í bili.
Taktu þátt í hópstarfi og njóttu
þess að skiptast á skoðunum við
góða vini í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ferðamenn geta orðið fyrir töfum
í dag og neyðst til að snara út
fé fyrir aukakostnaði. Gefðu þér
nægan tíma til að ná markmiði
þínu. Þú færð góðar hugmyndir
í tengslum við starf þitt.
(23. sept. - 22. október) i$&
Óvænt útgjöld sem tengjast
heimilinu falla á þig í dag. Þú
átt vel heppnaðan fund með ráð-
gjafa þínum. Þér gengur vel að
koma hugmyndum þinum á fram-
færi.
Sþorödreki
(23. okt. - 21. nóvember) Cj|j§
Það er heppilegra fyrir þig í dag
að kynna þér málin en fá aðra
til að fallast á skoðanir þínar.
Smá snurða hleypur á þráðinn
heima fyrir.
Bogmaöur
(22. nóv. -21. desember)
Ásetningur þinn er góður, en það
er ekki víst að þér takist að koma
eins miklu í verk og þú óskaðir
þér. Þú kannt allt eins að láta
reka á reiðanum og eyða deginum
í einhvers konar félagsvafstri.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert á báðum áttum um það
hvort þú eigir að fara á ákveðið
stefnumót í dag. Samband þitt
við bamið þitt er ekki eins gott
að það ætti að vera. Framahorfur
þínar fara batnandi.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Það er betra fyrir þig að fara út
að skemmta þér með vinum
þínum en halda samkvæmi heima
hjá þér. Þú færð góðar hugmynd-
ir sem koma þér að góðu haldi
við verkefni sem þú hefur með
höndum. Farðu í kvikmyndahús
eða hlýddu á fyrirlestrahald í
kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Hyggðu að hei'milisbókhaldinu og
öðru smálegu heima fyrir. Þú og
einn vina þinna eruð ekki á sömu
bylgjulengd núna. Smávægilegur
misskilningur getur komið upp.
AFMÆLISBARNIÐ kann því
betur að vinna eitt og sér en í
samvinnu við aðra. Lögfræði, rit-
störf og kennsa eru starfssvið
sem mundu veita því fullnæg-
ingu. Það er talsvert metnaðar-
gjarnt og býr yfir þekkingu sem
það getur gert sér mat úr. Það
mundi einnig ná lángt í rannsókn-
arstarfsemi, trúmálum og sái-
fræði. Það er ekki sérlega heima-
kært.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dægradvöt. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
FERDINAND
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
.Arnarson
Norski Evrópumeistarinn í
flokki 25 ára og yngri, Ame
Flaatt, sýndi margoft snilldar-
takta á EM í Þýskalandi í sum-
ar. Hér er eitt dæmi:
Vestur gefur, NS á hættu.
Norður
♦ K972
VÁ64
♦ ÁDG
4K103
Vestur
4DG10853
VD9
♦ 62
♦ D85
Austur
♦ Á
V G87
♦ 10985
♦ ÁG962
Suður
♦ 64
V K10532
♦ K743
♦ 74
Vestur Norður Austur Suður
2 tíglar Dobl Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: spaðadrottning.
Opnun vesturs á 2 tíglum
sýndi veika tvo í spaða, 6-lit og
6—10 punkta. Eftir útspilið var
Flaatt viss um að austur ætti
ásinn blankan og lét lítinn spaða
úr borðinu. Austur skipti yfir í
tígul í öðrum slag. Sem benti
óneitanlega til að hann ætti lauf-
ásinn.
Flaatt hafnaði því þeirri blátt
áfram spilamennsku að spila
laufi að kóngum. Þess í stað tók
hann ÁK í trompi, tígulás, yfir-
drap drottninguna með kóng og
trompaði síðasta tígulinn í blind-
um. Spilaði svo spaðakóng og
austur var varnarlaus. Fyrr eða
síðar yrði hann að spila frá iauf-
ásnum og gefa 10. slaginn. Það
var nauðsynlegt að yfirdrepa
tíguldrottninguna, því annars
gæti austur stungið spaðakóng-
inn og spilað tígli.
Stökkið í 4 hjörtu var gróf
yfirmelding, en þeir sem spiia
eins og Flaatt hafa vissulega
efni á að segja einum meira.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í New York,
sem haldið er til upphitunar fyrir
heimsmeistaraeinvígið, kom þessi
staða upp í skák enska stórmeist-
arans Jonathan Speelman
(2.605), sem hafði hvítt og átti
leik, og sovézka stórmeistarans
Juri Averbakh (2.450), sem var
á meðal beztu skákmanna heims
á sjötta áratugnum.
(stöðumynd)
Db6, 24. Rxd5! - Dxd4, 25.
Rxe7+ — Kh8, 26. Rxd4 — Bg4,
27. Be3 — Hd7, 28. Bf4 og svart-
ur gafst upp, því hann hefur tap-
að manni bótalaust. í næstu viku
hefst heimsmeistaraeinvígið og
verður teflt í Hudson-leikhúsinu á
Manhattan. Teflt verður á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstu-
dögum.