Morgunblaðið - 07.10.1990, Side 32
i2 C
MORGUNBLAÐIÐ
VELVAKAIMDI sunnudagur
7. OKTOBER 1990
... að hafa vevkaskipti.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
° 1990 Los Angeles Times Syndicate
cAim
Og það sem meira er. Ég
rak líka ráðningarsljór-
ann...
HÖGNI IMÍKKKVISl
„þETTA /MIPNÆTURSNARI- HONU/M
eR ALVBG rARIOÓT í ÖFGAR."
Á FÖRNUM VEGI
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi:
Alúð og sköpunar-
gleði einkenna safnið
segir Hildur Hákonardóttir formaður Félags safnmanna
Blönduósi.
IJM ÞRJATIU manna hópur úr Félagi íslenskra safnmanna var á
ferðinni um Húnavatnssýslur og Skagafjörð um síðustu helgi. Til-
gangur þessarar ferðar var m.a sá að starfrækja farskóla safn-
manna og var skólahald að þessu sinni á Húnavöllum við Reykja-
braut. Meginviðfangsefni farskólans að þessu sinni var að útbúa
kennsluverkefni fyrir söfnin í landinu. Einn af viðkomustöðum safn-
manna var Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi, safn sem m.a. hefur
að geyma muni sem hin þjóðkunna kona Halldóra Bjarnadóttir hef-
ur gefið.
H
ildur Hákonardóttir er formað-
Félags íslenskra safn-
ur
manna og sagði hún að þetta væri
annað árið sem farskóli safnmanna
væri starfræktur. Að sögn Hildar
var megináherslan að þessu sinni
lögð á útbúa kennsluverkefni fyrir
söfnin. Þetta væri fyrst og fremst
hugsað fyrir skólanemendur þannig
að þeir hefðu einhver verkefni að
leysa í tengslum við heimsókn í
söfnin. Með þessum hætti taldi
Hildur líklegra að eitthvað sæti eft-
ir í hugum þeirra sem söfnin heim-
sækja.
Gamla sýslumannshúsið á
Kornsá flutt á Blönduós?
Auk þess að stunda námið á
Húnavöllum sóttu safnmenn nokkur
söfn í Húnavatnssýslum og Skaga-
fírði. Heimilisiðnaðarsafnið á
Blönduósi var eitt þessara safna.
Þetta er mjög sérhæft safn og hef-
ur fyrst og fremst að geyma hand-
verk kvenna fyrr á tímum. Hildur
Hákonardóttir sagði að þetta safn
væri eitt hið besta sinnar tegundar
hér á landi og það sem einkenndi
það helst væri alúðin í uppsetningu
þess og sköpunargleðin sem munir
safnsins endurspegla.
Rekstur heimilisiðnaðarsafnsins
hefur ætíð verið í höndum Sam-
bands austur-húnvetnskra kvenna
og yfírumsjón með safninu hefur
Elísabet Sigurgeirsdóttir. Elísabet
sagði að efst á óskalista þeirra sem
um safnið hugsa væri að fá gamla
íbúðarhúsið á Kornsá í Vatnsdal
flutt á Blönduós næsta sumar. Þetta
hús byggði Lárus Blöndal fyrrum
sýslumaður um miðja síðustu öld
og er það gjöf til safnsins frá Gesti
Guðmundssyni og börnum. Ef þetta
gæti orðið, yrði það mikil lyftistöng
fyrir safnið en þá þarf að koma til
aukinn stuðningur frá opinberum
aðilum, sagði Elísabet að lokum.
Jón Sig.
Þetta er mjög sér-
hæft safn og hefur
fyrst og f remst að
geyma handverk
kvenna fyrr á tímum
Safngripur skoðaður. Hildur Hákonardóltir formaður Félags íslenskra safnmanna
er til hægri á myndinni.
Yíkyeiji skrifar
V
[ndanfarið hafa verið þættir í
Ríkissjónvarpinu einu sinni í
sem heita „Ef að er gáð.“ Þar
er íjallað um börn og ýmsa sjúk-
dóma sem þau fá og leiða til fötlun-
ar, eða sagt frá ýmissi fötlun sem
börn kunna að fæðast með. Sýndar
eru myndir af þeirri þjálfun sem
oftast er unnt að veita börnunum
eftir þvi á hvaða stigi fötlunin er,
rætt við foreldra og aðstandendur
og reynt að bregða upp hvernig
þeim vegni í lífinu. Þetta eru stutt-
ir þættir og hávaðalausir en vand-
virknislega gerðir og skilmerkilegir.
Þeir eru verðir allrar athygli, bæði
sem fróðleikur og upplýsandi og
þeir eru ekki síður lærdómsríkir og
hollir foreldrum heilbrigðra barna.
xxx
Tvær kunningjakonur Vík-
veija fóru fyrir skömmu til
Benidorm með böm sín, þijár telpur
á aldrinum 6-12 ára. Auglýst hafði
verið sérstaklega hjá viðkomandi
fjölskyldu að alls konar uppákomur
og leikir væru í boði fyrir börnin
af hálfu ferðaskrifstofunnar og
minnist Víkveiji raunar auglýsinga
í blöðum og sjónvarpi um það.
Vegna þessara auglýsinga um
hversu líflegt og ljúft fjölskyldufólk
gæti haft það undir handleiðslu
ferðaskrifstofunnar völdu konurnar
tvær ferðina og ferðao' ..±stofuna.
Skemmst er svo frá því að segja
að ekkert var gert fyrir börnin nema
það sem foreldrar sáu um sjálfir.
Fararstjórar voru vingjarnlegir en
allltof fáir og sögðust engan tíma
hafa til að útbúa barnadagskrá
enda væri það ekki í þeirra verka-
hring. Þetta olli litlu ferðalöngunum
vonbrigðum sem höfðu búist við því
sem sjónvarpsauglýsingarnar
sýndu. Menn eiga vitanlega alltaf
að taka auglýsingar frá ferðaskrif-
stofum með fyrirvara og það er
greinilega full þörf á að leita ræki-
lega upplýsinga áður en farið er,
hvort það sé í bóði sem boðað er.
Prjónað í heimilisiðnaðarsafn-
inu á Blönduósi.