Morgunblaðið - 07.10.1990, Side 34
34 C
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFIMIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1990
ÆSKUMYNDIN...
er afHallbimi Hjartarsyni verslunarmanni og hljómlistarmanni
Heldur baldinn
sem krakki
„HELDUR var hann nú baldinn sem krakki.
Hann var ekkert sérlega hlýðinn, gat verið ósköp
stífur á sinni meiningu og fór sínu fram nokkuð
mikið. Það var þó ekki svo að ekki hafi verið
hægt að róa hann, en það þurfti á hann sérstakt
lag. Það voru hlýlegheitin sem giltu,“ segir Ge-
org Hjartarson um bróðir sinn Hallbjön Hjartar-
son kántrý-söngvara á Skagaströnd. Nú er von
á sjöttu kántrý-plötu Hallbjarnar á markaðinn
innan tíðar, en sú plata var hljóðrituð í hinni
frægu kántrý-borg Nashville, Tennessee í
Bandaríkjunum.
Hallbjörn er 55 ára að aldri,
fæddur 5. júní árið 1935 á
Blönduósi. Hann er yngstur sextán
systkina, en foreldrarnir voru Ásta
Þórunn Sveinsdóttir og Hjörtur Jón-
as Klemensson. Halibjörn hefur
nánast alla sína tíð búið á Skaga-
strönd. Þegar að því kom að Hall-
bjöm færi að vinna fyrir sér sem
unglingur, hóf hann störf hjá verk-
taka að nafni Hamilton á Keflavík-
urflugvelli. Þaðan flutti hann sig
til Reykjavíkur og vann hálfan dag-
inn hjá'Björnsbakarí og hálfan dag-
inn hjá Hótel Vík. Jafnframt stund-
aði hann píanónám í Tónlistarskóla
Reykjavíkur. Hallbjörn kynntist
eiginkonu sinni í Reykjavík sem er
færeysk að ættum og heitir Amy
Engilbertsdóttir. Fljótlega fluttu
þau norður á Skagaströnd þar sem
Hallbjörn hefur lengst af stundað
verslunarstörf. Frægastur er hann
þó fyrir stofnun kántrýbæjar á
Skagaströnd sem hann rak hátt á
fjórða ár auk þess sem hann gekkst
fyrir tveimur kántrýhátíðum.
Hallbjörn segir að þrátt fyrir all-
an barnaskarann á heimilinu hafi
systkinunum ávallt komið ágætlega
saman. Sum systkina hans voru þó
farin að heiman þegar hann fædd-
ist enda er aldursmunurinn á honum
og elstu systurinni um 25 ár. Hall-
björn segist hafa verið haldin mik-
illi bíladellu í æsku. Ýmist hafí hann
verið að keyra einhveija heimatil-
búna trukka á sjávarbökkunum eða
Hallbjörn Hjartarson
ímyndað sér að hann væri lang-
ferðarútubílstjóri. Svo voru krakk-
arnir auðvitað í leikjum sem þá
gengu, fallin spýtan og yfir.
Jónína Hafsteinsdóttir bjó í
næsta húsi við Hallbjörn þegar hann
var lítill snáði. „Hann var svona
ósköp venjulegur ungur maður.
Eins og gengur með nágranna var
töluverður samgangur á milli heim-
ilanna og ég minnist ekki annars
en að hann Hallbjörn hafi verið
prýðispiltur.“
Ekki þótti Hallbjörn neinn prakk-
A unglingsaldri stalst Hall-
björn Hjartarson í hljóðfæri
systkina sinna.
ari að eðiisfari og ekki var hann
heldur mikið fyrir íþróttirnar. Músík
var mikil á heimilinu og tíu ára
gamall fór Hallbjörn að æfa sig á
orgel hjá einni nágrannakonunni,
sem veitti honum tilsögn. Faðir
Hallbjarnar var harmonikuleikari
og bömin kunnu vel flest á einhver
hljóðfæri. Þegar systkinin voru að
heiman við vinnu stalst Hallbjörn
gjarnan í hljóðfærin enda átti hann
strax gott með að spila eftir eyr-
anu. Um tvítugt eignaðist Hallbjörn
svo sitt fyrsta hljóðfæri, sem var
píanó. Hann var einnig forsprakki
nokkurra hljómsveita fyrir norðan
sem hlutu nöfn eins og Villikettirn-
ir, Sundrung og Gallon.
SUNNUDAGSSPORTID...
KARATE
Karate er íþrótt sem mikillar ein-
beitni og íhugunar því margir sem
stunda hana leggja ekki síöur
áherslu á hinn andlega þátt kar-
ate en hinn likamlega. Þeir sem
stunda karate eru ekki fyrst og
fremst að hugsa um að vera gjald-
gengir í slagsmálum, heldur á hér
við hugsunin að byggja upp heil-
brigða sál í heilbrigðum líkama
eins og í öllum öðrum íþróttum.
Kári Breiðfjörð hefur lagt stund
á karate síðan 1983, fyrst hjá
Karateféiaginu Þórshamar en nú
síðari árin hjá Karatefélagi
ur keppt í karate, síðast á Evrópu-
mótinu í London 1987, en varð síðan
að gera hlé á keppni fram til 1989,
vegna vinstri handarinnar og að-
gérða sem gerðar voru á henni á
þessum tíma. „Það sem gaf mér
styrk til að halda áfram var að í
London 1987 sá ég einhentan mann
keppa og sá varð í þríðja sæti í
sínum flokki,“ segir hann.
Kári ætlar utan til Japan í vetur,
til náms og æfinga í íþrótt sinni.
Hann segir að hann ætli að dvelja
um sex mánaða skeið í Okinawa
og nema hjá frægum þjálfara í
gojuryu-karate og fá þar kennslu-
réttindi. „Þetta er búið að vera
gamall draumur hjá mér lengi og
nú sé ég fram á að hann geti orðið
að veruleika,“ segir Kári.
Reykjavíkur. Hann segir að hann
hafi valið að æfa þessa íþrótt öðrum
fremur vegna vinnuslyss sem hann
lenti í og hafði þær afleiðingar að
hann fatlaðist á vinstri hendi.
„Það eru til mörg afbrigði af
karate og ég lít á íþróttina ekki
síður sem andlega líkamsrækt en
líkamlega, karate hefur gefið mér
mjög mikið," segir Kári. Hann hef-
BÓKIN
ÁNÁTTBOKDINU
Satt að segja hef ég lítið lesið
undanfarið. Annars er ein bók
í miklu uppáhaldi hjá mér, það er
Halla og Heiðarbýlið eftir Jón
Trausta, bók sem ég hef lesið tvisv-
ar sinnum og hugsa að ég lesi í
þriðja sinn bráðlega. Þetta er svo
góð bók á þessum árstíma, í henni
er mikil stemmning og mér fínnst
hún minna mig skemmtilega á að
ég er íslendingur.
Bjarni
Felixson
íþrótta-
fréttamað-
ur.
Eg er með sögu skruddur á nátt-
borðinu hjá mér, heilmikinn
doðrant á ensku með frétta-ann-
álum frá síðustu aldamótum til
1989. Svo hef ég verið að lesa
bækurnar um Reykjavík — sögu-
stað við Sund, sem mér finnast afar
fróðlegar og skemmtilegar. Ég er
áhugamaður um sögu og les lítið
af skáldsögum, nema þá sögulegar
skáldsögur og stundum reifara.
ÚR MYNDAS AFNINU
ÓlafurK. Magnússon
Aldnir öðlingar áferð
Ioktóber 1954 hafði dr. Konrad
Adenauer, kanslari Vestur-
Þýskalands, viðdvöl hér á landi á
leið sinni vestur um
haf. Hann var þá farinn
að nálgast áttrætt en
bar aldurinn vel og var
til þess tekið hversu
hress hann var til sálar
og líkama.
Ólafur Thors var þá
forsætisráðherra og
einnig kominn af léttasta skeiði, en
þeim þótti svipa saman um margt,
dr. Adenauer og Ólafi, enda fór
afar vel á með þeim. Dr. Adenauer
hafði meðal annars á orði að honum
þætti verst hversu seint á lífsleið-
inni hann kynntist Ólafi. Þýski
kanslarinn lét vel af dvöl sinni hér,
en hann hafði sérstaklega óskað
eftir því að heimsækja Þingvelli,
þar sem fyrsta þjóðþing Vestur-
Evrópu var grundvalj-
að. I kveðjuræðu sinni
minntist hann sérstak-
lega hinnar áhrifaríku
dvalar sinnar að Þing-
völlum. Þar var skýrð
fyrir honum saga
íslensku þjóðarinnar.
Sú saga var, sagði Ade-
nauer, sem betur fer ekki saga
styijalda heldur frásögn af menn-
ingu þjóðarinnar, lífsanda hennar
og bókmenntum. Hann kvaðst hafa
heyrt ýmislegt áður um sögu ís-
lands, en það hefði verið sérstaklega
áhrifamikið að hlýða á hana á þess-
um stað.
í Þingvallabæ færði dr. Adenauer Ólafi Thors, forsætisráðherra, að
gjöf styttu af rómverska guðinum Vulcanus. Maðurinn með gleraug-
un, við hlið ráðherranna, er dr. W. Hallstein, aðstoðar-utanríkisráð-
herra Vestur- Þýskalands.
PLATAN
ÁFÓNINUM
HeiðarÁst
valdsson
danskenn-
ari
Vegna starfs míns hlusta ég á
tónlist allan daginn. Núna eru
Hip-hopp og Soca-dansar vinsælir
og það er sú tónlist sem ég heyri
mest. Þegar ég kem heim til mín
set ég aldrei plötu á fóninn og
kveiki ekki einu sinni á útvarpinu!
Ragnhildur
Gísladóttir
tónlistar-
maöur
Núna var ég að hlusta á nýjustu
plötuna með Prince, „Grafitti
bridge", annars hlusta ég mest á
rapp-tónlist þessa dagana en hún
finnst mér alveg æðisleg.
MYNDIN
ÍTÆKINU
Kolbrún
Halldórs-
dóttir leik-
ari með
meiru.
Myndbands tækið er mikið notað
á mínu heimili og undanfarið
hef ég mest horft á danskt kennslu-
efni. Maðurinn minn kennir nefni-
lega dönsku og notar danskar
myndir meðal annars í kennslunni.
Ég sá síðast myndina um Palla sig-
urvegara, en síðasta myndin sem
ég leigði var„Forbidden planet" sem
mér fannst stórkostleg.
Steinunn
Þórarins-
dóttir
myndlistar-
maður.
Það er langt síðan ég horfði
síðast á myndband, en það var
myndin „Dad“ með Jack Lemmon
í aðalhlutverki sem ég sá síðast.
Þetta þótti mér falleg mynd um
samskipti föður og sonar.