Morgunblaðið - 07.10.1990, Side 35
Otl
MOKGUNBli
r ? i' *>*•% s
„Það var kannski eins gott að við kynntumst ekki í menntaskóla — þá hefði eflaust ýmislegt verið
brallað," sagði dr. Adenauer og Ólafur hló.
Það fór afar vel á með þeim Ólafi
Thors og dr. Konrad Adenauer.
Hér eru þeir við útsýnisskífuna
á Þingvölluin.
SÍMTALID...
ER VIÐ HUGO ÞÓRISSON SÁLFRÆÐING
Kennum foreldrum,
kennum þeim ekki um
626632
Halló!
- Er þetta hjá Samskiptum,
fræðslu og ráðgjöf?
Já.
- Góðandaginn,þettaerBrynja
Tomer blaðamaður á Morgunblað-
inu, við hvern tala ég?
Hugo heitir hann Þórisson.
- Þið hafið verið að auglýsa
námskeið fyrir foreldra um sam-
skipti þeirra við afkvæmi sín. Eru
foreldrar hættir að geta alið upp
börnin sín án þess að fá fyrirmæli
um aðferðirnar hjá sálfræðingum
eða öðrum sérfræðingum?
Það er ekki raunhæft að bera
saman uppeldi á börnum núna og
fyrir 50 árum. Þjóðféiagið hefur
mikið breyst á þeim tíma og for-
eldrar búa að mörgu leyti við erfið-
ari aðstæður en afar okkar og
ömmur. Nú eru börn til dæmis
mikið ein heima og ef vandamál
koma upp hjá börnum eða ungling-
um hefur foreldrum verið kennt
um, þeim hefur hins vegar ekki
verið kennt. Nú er aftur á móti
verið að fræða fólk, kenna því.
- Hvað er kennt á námskeiðun-
um hjá ykkur?
Við fræðum fólk í fyrsta lagi um
þarfir barna og hvemig má koma
á móts við þær, þannig að bæta
megi samskiptin. Við kennum að-
ferðir til að hjálpa
börnum að bera
ábyrgð á eigin lífi,
bendum á hvernig
best sé að bregðast
við ef börn gera
eitthvað sem for-
eldrar eru ósáttir
við, og hvernig
hægt er að leysa
ágreining á þann
hátt að bæði barn
og foreldri standi
uppi sem sigurveg-
arar.
- Bjóðið þið
uppá annars konar
námskeið líka?
Já. Við erum með annað nám-
skeið núna sem heitir Ákveðni:
mannleg samskipti, og er fyrir ai-
menning. Svo höfum við haldið
mörg helgarnámskeið fyrir ýmsar
starfsstéttir, bæði um innri sam-
skipti og þjónustu. Lengri nám-
skeiðin eru alls 30 stundir sem
skiptast niður á 10 vikur, þijár
klukkustundir í senn. Á þeim er
miðað að því að kenna fólki aðferð-
ir til að skilja sjálft sig og aðra,
og vera öruggari í mannlegum
samskiptum.
- Hvað kostar svo fróðleikur-
inn?
Verðið er misjafnt eftir nám-
skeiðum, en foreldranámskeiðið,
sem er í 24 klukkustundir, kostar
14.500 krónur. í verðinu eru innif-
alin námsgögn, þar á meðal bók
sem kostar 2.600 krónur út úr
búð. Við erum með kynningarverð
á samskiptanámskeiðinu, þar kost-
ar 30 tíma námskeið núna 13.800'
krónur.
- Verður allt þetta námskeiða-
hald sem er í gangi í þjóðfélaginu
núna ekki bara tii þess að auka
þörfina enn frekar á námskeiðum,
framhaldsnámskeiðum og fram-
haldsnámskeiðum á framhalds-
námskeiðunum?
Það er náttúrulega ævilangt
garantí á þessum námskeiðum, fólk
býr að þessu alla ævi. Við erum
ekki með neins kon-
ar framhaldsnám-
skeið, en þeir sem
hafa einu sinni ver-
ið á námskeiði hjá
okkur geta komið
aftur ef þeir vilja
og nánast því frítt.
- Sem ger-
Hugo Þórisson
blessuð.
Um þúsund kall.
- Já, já. Það er
nefnilega það.
Þakka þér kærlega
fyrir upplýsingam-
ar og vertu blessað-
ur.
Ekkert að þakka,
Bjarni Guðmundsson, blaðafulllrúi ríkisstjórnarinnar (lengst til
hægri), segir sögu þjóðarinnar á Þingvölluin. Maðurinn í Ijósa frakk-
anum, örlítið fjær, er Sverrir Þórðarson, blaðamaður Morgunblaðs-
ins.
Þessi mynd birist
á forsíðu
Fálkans að lokinni
fegurðarsamkeppninni
Elín Sæbjörnsdóttir við vinnu sína
í dag.
börn og nú eru barnabörn komin
til sögunnar. Elín segir að í dag sé
hún sátt og ánægð með lífið og til-
veruna. Hún lítur á fegurðarsam-
keppnina fyrir tæpum fjörutíu árum
sem skemmtilegt hliðarspor í lífi
sínu. Allavega varð keppnin til þess
að hún komst utan til Kaupmanna-
hafnar án þess að þurfa að kosta
miklu til þess.
Ein af fyrstu fegurðardrottn-
ingunum hérlendis var Elín
Sæbjörnsdóttir sem valin var
ungfrú Reykjavík 1951, þá 19
ára gömul. Um sumarið þetta
ár var hún að vinna í fatabúð-
inni Gefjun þar sem útsendar-
ar Fegrunarfélag Reykjavík-
ur komu auga á hana og báðu
hana um að vera með í keppn-
inni en þetta félag stóð að
fyrstu fegurðarsamkeppnun-
um hérlendis. Hún sló til en
segir að hún hafi séð mjög
eftir því enda búin að gefa
ömmu sinni loforð um að taka
ekki þátt í keppni af þessu
tagi. En hvar ætli Elín ali
manninn í dag?
HVAR
ERU ÞAU
NÚ?
Hvar eruþau ttú? Elín
Scebjömsdóttir
fegurdardrottning Reykjavtkur
1951
Vinnur
á tann-
læknastofu
Elín Sæbjörnsdóttir mun vinna í
vetur á tannlæknastofu eigin-
manns síns Guðmundar Árnasonar
en þar hefur hún oft tekið til hend-
inni áður. Að öðru leyti sér hún um
heimili þeirra hjóna eins og verið
hefur frá því hún lauk stúdents-
prófi frá MR árið 1952.
„Eg var í fimmta bekk MR þegar
keppnin fór fram og ég man að ég
var staurblönk en langaði utan. Því
fór ég í keppnina því það var utan-
landsferð í verðlaun. Þetta var eins
og happadrætti fyrir mig,“ segir
Elín. “Fjölskylda mín tók þessu
hinsvegar mjög illa enda hafði ég
gleymt loforði mínu um að gera
svona ekki.“
Verðiaunin sem Elín vann voru
ferð til Kaupmannahafnar. Hún
dvaldi þar um 2ja vikna skeið í
góðu yfirlæti en hafnaði því að
koma þar fram sem ungfrú
Reykjavík.
Að loknu stúdentsprófi skráði
Elín sig í læknisfræði í Háskól-
ann.„Bæði pabbi og afi voru læknar
og ég ætlaði að fylgja þessari hefð
í fjölskyldunni. En á þessum tíma
voru engin námslán komin til sög-
unnar, ég þar að auki gift og börn-
in farin að koma til sögunnar þann-
ig að ég ákvað að helga mig frekar
heimilinu," segir Elín. Hún starfaði
síðan um 8 ára skeið í Útvegsbank-
anum eftir MR en hefur síðan aðal-
lega séð um heimili þeirra hjóna
ásamt því að aðstoða mann sinn á
tannlæknastofunni á seinni árum.
Þau Guðmundur eignuðust þijú