Morgunblaðið - 07.10.1990, Síða 36
36 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1990
BAKÞANKAR
Af hveiju eru
engar mynd-
ir eftir konur
í Louvre-
safninu?
Það er dálitið skemmtilegt hvað
sakleysislegar spurningar eins
og þessi geta velt þungu hlassi.
Forsaga málsins verður að fylgja.
Við vorum stödd um borð í tveggja
hæða rútu og
rúntuðum um
Parisarborg. Ég
var fararstjórinn
og mér leið eins og
stoltri unga-
mömmu með far-
þegana mína á
fyrsta degi, þær
eftir Heigu Lúllu og Oldu úr
Thorberg húsinu mínu,
hann Jónda minn og Vigni sem
siðar varð aðstoðárfararstjóri,
Önnu frænku mína, elskulegu apó-
tekarahjónin austan af fjörðum og
alla hina.
Venjulega er farinn sami rúntur-
inn í svona skoðunarferð um borg-
ina og fararstjórar koma sér upp
ákveðnum „frösum" á ákveðnum
stöðum. Þegar búið er að aka hjá
Eiffelturninum er komið að siðasta
vígi Frakka i siðari heimsstyrjöld-
inni, þ.e herskólanum og þá er ekið
að Invalid höllinni, þar sem áður
var sjúkrahús fyrir særða her-
menn. Það er þá sem ekið er fram
hjá Rodin höggmyndasafninu og
þar í garðinum sést hin fræga stytta
„Hugsuðurinn". Og þar sem ég er
gamansöm að endemum, lika sem
fararstjóri, þá segi ég eftirfarandi
frasa þarna: „og hér á hægri hönd
má sjá „Hugsuðinn", enn að hugsa
sitt" og svo bæti ég við; „ég hef nú
reyndar aldrei skilið af hveiju þetta
er stytta af karlmanni!! Ho, ho,
hooo"!! Venjulegakemurþarnagóð-
ur hlátur . . . og það brást heldur
ekki í þetta sinn.
Nema hvað, nokkrum dögum
síðar kemur apótekarinn að austan
að máli við mig og segir mér að
hann og frúin séu búin að fara og
skoða Louvre safnið og bætir við,
„að það hafi slegið sig að engar
myndir var þar að finna eftir kon-
ur“ og það vottaði fyrir strákslegu
glotti. Mér var bæði ljúft og skylt
að svara þessu og gaf almenn svör
sem fararstjóri á að hafa í handrað-
anum um alla mögulega og ómögu-
lega hluti. Jú, jú, konur máluðu
líka myndir. reyndar í minna mæli
en karlarafskiljanlegum ástæðum,
þær væru t.d. að finna í kjöllurum
safna þar sem myndir þeirra
standa í röðum því karlar ráða
hvaða myndir hanga uppi á veggj-
um, koriur máluðu einnig undir
dulnefni karlmanna og svona fleira
„smálegt" tíndi ég til í fljótheitum.
Þessi svör mín féllu í góðan jarðveg.
Næst síðasta daginn fórum við
til Versala. í þá ferð fengum við
franskan fararstjóra, unga og
glæsilega stúlku méð sítt og mikið
hár. Hún var afskaplega vel að sér
í hinni flóknu og merku sögu Ver-
sala. Hún teymdi okkur um hallar-
salina og hélt langar ræður um
teppi, húsgögn, byltingu, kónga og
drottningar og m.a. staldraði hún
við málverk af Mariu-Antoinette og
sagði það málað af Elisabetu vin-
konu Mariu, sem hafi verið hirð-
málari í Versölum. Þegar út var
komið leitaði ég apótekarann uppi
til að fá staðfestingu á svari mínu
forðum en þá hafði hann misst af
þessari frásögn. Til að bæta úr þvi
bið ég fararstjórann að endurtaka
það sem hún sagði um Elisabetu
hirðmálara þvi einn farþeganna
hafi misst af þeim hluta og sá hafi
einmitt spurt mig: „Af hveiju eru
engin málverk eftir konur í Louvre
safninu?" Sú franska fuðraði upp
við þessa bón. hvessti á mig augun
og úr svip hennar mátti lesa að
þetta ætti ég nú að vita! Þannig
fengum við langan og ítarlegan fyr-
irlestur um stöðu kvenna í Frakk-
landi sem entist alla leiðina heim.
Hún var ekki síður vel að sér þar
stúlkan! Jú. franskar konu hefðu
verið þrælar langt fram á þessa öld
og höfðu ekki aðgang að mennta-
skólum, listaskólum og háskólum.
Þær fengu ekki kosningarétt fyrr
en eftir seinni helmsstyrjöldina og
eru þvi nýkomnar til áhrifa í
franska stjórnkerfinu ... Ég sá
hvernig Austfjarðaþokan þrengdi
sér smám saman inn í rútuna og
endanum lét ég mig hverfa líka!
GLÆSIBÆ-SlMI 82966
GOODYBAR
6EFUR
ÖRYGGI
GOOD^YEAR
HEKLA.
Laugavegi 170 -174 Sir
HF
Simi 695500
Njóttu þess besta
-útilokaðu regnið, rokið og kuldann
íslensk veörátta er ekkert
lamb að leika við. Þess vegna
nýtum við hverja þá tækni sem
léttir okkur sambúðina við veðrið.
LEXAN ylplastið er nýjung
sem gjörbreytir möguleikum okkar
til þess að njóta þess besta sem
íslensk veðrátta hefur að bjóða
- íslensku birtunnar.
LEXAN ylplastið er hægt að nota
hvar sem hægt er að hugsa sér að Ijósið
fái að skína, t.d. í garðstofur, yfir
sundlaugar, yfirbyggingu gatna, yfir
húsagarð, anddyri og húshluta.
Möguleikarnir eru óþrjótandi.
LEXAN ylplast
Flytur ekki eld. Er viðurkennt
af Brunamálastofnun.
Mjög hátt brotþol. DIN 52290.
Beygist kalt.
Meiri hitaeinangrun en gengur
og gerist.
Hluti innrauðra geisla ná í gegn.
GENERAL ELECTRIC PLASTICS
LEXAN ylplast
- velur það besta úr veðrinu.
SINDRI
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 62 72 22
1
Ht»&NÚ