Morgunblaðið - 16.10.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.10.1990, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD 1990 ÞRIDJUDAGUR 16. OKTOBER BLAD Douglas Shouse til liðsviðÍR Bandaríkjamaðurinn Douglas Shouse kom til landsins í gærmorgun og mætti á fyrstu æf- ingu sína hjá úrvalsdeildarliði ÍR í gærkvöldi, en hann mun leika með liðinu í vetur. IR-ingar hafa tapað tveimur fyrstu leikjunum, en gera sér auknar vonir með Shouse í liðinu. Shouse, sem er 28 ára og 185 sm á hæð, hefur leikið í Suður-Ameríku undanfarin ár. Hann fór frá Brasilíu að loknu keppnistímabilinu fyrir fjórum mánuðum og reyndi fyrir sér í Austurríki, en annar maður var valinn í hans stað og því hélt hann fyrir skömmu til Bandaríkjanna á ný. Að sögn Björns Leóssonar hjá körfuknattleiks- deild ÍR er Shouse bakvörður með gífurlegan stökk- kraft, „en hann getur spilað allar stöður og okkur er sagt að hann sé mikill troðari.“ Tveir bræður hans hafa leikið með íslenskum liðum; Danny með Njarðvík og Ármanni og Darrell með Fram. ÍR-ingar voru síðastir úrvalsdeildarliða til að fá ' erlendan leikmann í sínar raðir. Næsti leikur í deild- inni er á dagskrá á fimmtudaginn; liðið fær þá nýliða Snæfells í heimsókn í íþróttahús Seljaskóla. ■ Einn leikur verður í úrvalsdeildinni í kvöld: UMFG og Valur mætast í Grindavík kl. 20. ■■■ w m w Fjonr i framboði til vara- forseta? ÍÞRÓTTAÞING verður haldið í Kópavogi um næstu helgi. Svo gæti farið að fjórir yrðu í kjöri til varaforseta íþróttasam- bandsins; Hannes Þ. Sigurðs- son núverandi varaforseti, Ell- ert B. Schram, Guðmundur Kr. Jónsson og Júlíus Hafstein. Tveir þeir síðastöldu hafa þeg- ar ákveðið að bjóða sig fram. Hannes vildi í gær ekki segja til um hvort hann gæfi kost á sér til endurkjörs. „Ég hef ekki gefið neinar yfirlýsingar þar að lút- andi og geri það ekki nú. Það er ekki tímabært ennþá," sagði hann við Morgunblaðið. Það mun því ekki koma í ljós fyrr en á þinginu hvað Hannes gerir. Guðmundur Kr. Jónsson, bæjar- fulltrúi á Selfossi og framkvæmda- stjórnarmaður ÍSÍ, er hins vegar ákveðinn í að bjóða sig fram, sem fyrr segir. „Aðalástæðan er sú að skorað var á mig af mínum félög- um, sem vilja að ég bjóði mig fram í meiri ábyrgðarstöðu. Ég skorast ekki undan því,“ sagði Guðmundur við Morgunblaðið í gær, en hann var kjörinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ á síðasta íþróttaþingi, á Egilsstöð- um fyrir tveimur árum. Fyrir helgi barst honum skrifleg áskorun frá stjóm HSK um að gefa kost á sér í embætti varaforseta ÍSÍ. Þá er öruggt að Júlíus Hafstein, borgarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundaráðs, og fyrrverandi formaður íþróttabandalags Reykjavíkur og Handknattleiks- sambandsins, verður í kjöri. „Ég mun gefa kost á mér,“ sagði Júlíus í gærkvöldi. „Til mín hafa leitað forystumenn úr íþróttafélögum og sérsamböndum íþróttahreyfingar- innar, ásamt ýmsum einstaklingum innan hreyfíngarinnar, og hvatt mig eindregið til að gefa kost á mér til þessara starfa. Ég hef ákveðið að verða við þeirri áskorun," sagði hann. Ellert B. Schram, ritstjóri, fýrr- um formaður Knattspyrnusam- bandsins og núverandi heiðursform- aður þess, og stjómarmaður í knatt- spymusambandi Evrópu, staðfesti að hann hefði verið beðinn að gefa kost á sér, en sagði ákvörðun sína ekki liggja fyrir. „Það er mikill þrýstingur á mig um að gefa kost á mér. Ég er að athuga minn gang,“ sagði Ellert í gær. Landslið íslands varð í öðru sæti í sveitakeppninni Morgunblaöiö/Sverrir Haukar sigruðu IMjarðvíkinga, í Hafnarfirði í gærkvöldi, 76:74, í úrvalsdeildinni í körfuknat- leik. Þrír aðrir leikir fóru fram um helgina; ÍBK lagði Þór á Akureyri, KR vann Snæfell í Laugar- dalshöll og Tindastóll sigraði lið Grindavíkur, í fyrsta skipti, á Sauðárkrókri. Á myndinni beijast Hreiðar Hreiðarsson, Njarðvíkingur, og Haukamaðurinn Sveinn Steinsson, um knöttinn í gærkvöidi. ■ Leikir helgarinnar / B7 Islendingar unnu Skota örugglega, 3:1, í sveita- keppninni. Ólafur Hreinsson vann andstæðing sinn, 6:0 og Gunnar Ingi Halldórsson vann 6:1 og Siguijón Gunnsteinsson gerði jafntefli. íslendingam- ir byijuðu illa á móti Norður-Imm. Konráð Stefáns- son og Ómar Ivarsson töpuðu báðir glímum sínum, 0:6. Grétar Halidórsson sigraði andstæðing sinn 6:4. Halldór Svavarsson tapaði fjórðu glímunni, 2:6, þar sem hann snerti andstæðing sinn of mikið og staðan því orðin 3:1 fyrir N-íra og sigurinn í höfn. Gunnar Ingi Halldórsson vann síðan fimmtu glímuna ömgglega, 6:1. Norður-írar unnu síðan Skota, 4:1, og stóðu uppi sem sigurvegarar. ísland hafnaði í örðu og Skotland í þriðja. Gunnar Ingi Halldórsson sigraði í opna flokknum, vann alla andstæðinga sína og tapaði reyndar ekki neinni glímu í keppninni. Árangur Gunnars er mjög góður. Hann vann fyrst Jeffrey Hillis frá N-írlandi, 6:4, þá Edward Trainor frá Skotlandi, 6:3 og síðan Jim Green, N-írlandi, í úrslitum, 5:3. Jim Green varð í þriðja sæti og Edward Trainor í þriðja. ÍSLENDINGAR höfn- uðu í öðru sæti i landskeppni íkarate sem fram fór hér á landi um helgina með þátttöku íslands, N- Irlands og Skotlands. Þetta var í f immta skipti sem þessi keppni er haldin og náðu íslendingar nú besta árangri sínum. Gunnar Ingi Halldórs- son sigraði í opnum flokki og verður það að teljast góður ár- angur. GunnarIngi KARATE / LANDSKEPPNI Gunnar Ingi sigraði í opnum flokki KORFUKNATTLEIKUR KNATTSPYRNA: AGUST MAR JONSSON HÆTTUR VEGNA MEIÐSLA / B8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.