Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 1
HLUTABRÉF: Sérfræðingar segja jafnvægi vera að komast á markaðinn?/6
FLUG: Gunnar Björgvinsson kaupir þotur eins og aðrir kaupa bíla/8
VIDSKIPn/JaVINNUUF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
BLAÐ
B
Hlutabréfamarkaður
Hlutabréf að nafnvirði 33
milljónir í UA á markað
Hagnaður 160 milljónir fyrstu 9 mánuði ársins
AKUREYRARBÆR hefur ákveðið að fela Utgerðarfélagi Akur-
eyringa að annast sölu á hlutabréfum sem bærinn keypti í nýaf-
stöðnu hlutafjárútboði fyrirtækisins. Boðið var út nýtt hlutafé að
nafnvirði 50 milljónir króna en þar af nam hlutur bæjarins 33
miHjónum króna. Sala bréfanna hefst á mánudag og ákvað stjórn
Utgerðarfélagsins á fundi sínum í gær að selja þau í áskrift. Kaup-
endur mun fá vikufrest til skrifa sig fyrir hlutafé en hámarkskaup
eru 1 milljón króna. Verði um umframeftirspurn að ræða mun
hlutur hvers og eins skerðast hlutfallslega sem því nemur. Gengi
bréfanna hefur verið ákveðið 3,6.
Samkvæmt uppgjöri fyrir fyrstu
9 mánuði ársins var hagnaður
Útgerðarfélagsins um 160 milljón-
ir króna sem er mun betri afkoma
en á síðasta ári þegar hagnaður
tímabilsins nam um 92 milljónum.
Þessi bati í afkomu stafar einkum
af lækkun fjármagnskostnaðar en
nettó fjármagnstekjur námu 4
milljónum á tímabilinu samanborið
við 155 milljóna fjármagnsgjöld á
sama tíma í fyrra-,
Rekstrartekjur Útgerðarfélags-
ins fyrstu 9 mánuði ársins vora
um 1.450 milljónir og rekstrargjöld
1.160 milljónir. Rekstrarhagnaður,
þ.e. hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði, var því 290 milljónir
króna en var 344 milljónir á sama
tímabili 1989. Lækkun rekstrar-
hagnaðar stafar m.a. af því að
greiðslur úr verðjöfnunarsjóði sjáv-
arútvegsins 1989 námu 36 milljón-
um á tímabilinu en á árinu 1990
hefur verið greidd 1 milljón í verð-
jöfnunarsjóð á tímabilinu. Gengi
dollarans hefur einnig lækkað á
þessu ári og haft óhagstæð áhrif
á rekstrartekjur. Þá hefur fyrir-
tækið þurft að kaupa aflakvóta á
þessu ári til að vega upp á móti
skerðingu á úthlutuðum kvóta und-
anfarin ár en hann hefur minnkað
um 2.800 tonn frá árinu 1988._
Gunnar Ragnars, forstjóri Út-
gerðarfélags Akureyringa, segir
lækkun fjármagnskostnaðar m.a.
stafa af bættri eiginijárstöðu.
„Greiðslur fyrir afurðirnar hafa
verið hraðari þ.e. greiðslufrestur
hefur verið styttri frá því við af-
skipum vörunni þangað til við fáum
hana greidda. Þetta hefur gert það
að verkum að við höfum ekki þurft
að taka afurðalán í sama mæli og
áður og sparað okkur þarafleiðandi
allmikla vexti. Skuldir okkar sem
að hluta til eru í erlendri mynt
hafa jafnvel lækkað vegna gengis-
breytinga. Beinn vaxtakostnaður
er einnig talsvert lægri.“
Endanlegur hagnaður Útgerðar-
félagsins fyrstu 9 mánuði ársins
jókst um 68 milljónir króna miðað
við sama tíma í fyrra. Arðsemi
eigin fjár nam á tímabilinu 14%
samanborið við 12% í fyrra. Eigið
fé nam i lok september um 1.141
milljón króna og eiginfjárhlutfall
var 41% samanborið við 36% á
sama tíma í fyrra.
Að sögn Gunnars stefnir í að
afli skipanna á þessu ári verði á
bilinu 22-23 þúsund tonn og fram-
leiðslan í frystihúsinu 6.400-6.500
tonn, saltfiskframleiðsla tæplega
500 tonn og framleiðsla skreiðar-
hausa tæplega 250 tonn. Heildar-
afli á síðasta ári varð rúmlega 22
þúsund tonn og framleiðsla frystra
afurða 6.900 tonn. Framleiðsla
frystitogarans Sléttbaks var 2.350
tonn, saltfiskframleiðsla rúmlega
600 tonn og skreiðarframleiðsla
tæplega 200 tonn. „Við höfum
nokkuð haldið sjó þrátt fyrir kvóta-
skerðinguna síðastliðin tvö ár og
hefðum náð svipaðri framleiðslu
og í fyrra ef ekki hefðu verið ein-
dæma léleg aflabrögð frá því i
september,“ sagði Gunnar Ragn-
ars.
50 - FRAMFÆRSLUViV
40- 30- 20- 10- Mánaðarbreyting /i reiknuö til árs Spá '** l. Seðla- T. bankans A
11 1 W|/ Þriggja mán. breyting 4
12 mán' br^n9 7
1 1
J’88 A O J’f i9 Á j Ó J’ 90 A J O J’91 A J O J'92
[ LÁNSKJARAVÍSITALA
50 I Mánaðarbreytíng reiknuð til árs Spá Seðlabankans
TÚ — Þriggja mán. breyting
30-
12 mán. breyting
10-
J’89
J’90
w
J’92
MbUGÓt
SEÐLAÐANKINN hefur gert nýja veröbólguspá fyrir næsta
ár þar sem gert er ráö fyrir aö hækkun framfærsluvísitölu veröi
aöeins 6,1% frá upphafi til loka næsta árs. Þá er reiknaö með aö
lánskjaravísitala hækki um 7,7% á sama tímabili. Þegar spáin var
gerö var oröiö Ijóst hverjar launabreytingar yröu á næstu
mánuöum. Gert er ráð fyrir einhverjum áhrifum af hugsanlegri
benstnveröshækkun (janúar. Vegna launabreytinganna (
desember er því spáö aö verðbólguhraöi á mæiikvarða lánskjara-
vísitölunar veröi 9,7% f febrúar. Lánskjaravfsitaian miöaö viö
þriggja mánaða hækkun á ársgrundvelli mun sýna enn meiri
verðbólgu (ágúst og september samkvæmt spánni vegna launa-
breytinga í júlí. Línuritin hér aö ofan sýna þróun framfærslu- og
lánskjaravtsitölu frá 1988 og spá Seðlabankans fyrir næsta ár.
HLUTABRÉF
VIÐ KAUPUM:
Hlutabréf í neöangreindum félögum eru keypt og seld gegn staðgreiðslu
hjá Landsbréfum h.f. og umboðsmönnum Landsbréfa um allt land.
6/12 6/12
• Sölugengi/
Félag Kaupgcngl Sölugengi Innra vlröl
Ehf. Alþýöubankans 1.35 1.42 113%
Eimskipafélag Islands 5.47 5.70 170%
Flugleiðir 2.27 2.45 118%
Grandi 2.19 2.30 165%
Hampiöjan 1.69 1.78 112%
Ehf. lönaðarbankans 1.81 1.89 105%
íslenski hlutabrófasjóöurinn 1.04 1.08 102%
Olluverzlun íslands 2.02 2.10 94%
Olíufólagið 6.29 6.55 128%
Sjóvá-Almennar 5.76 6.00 326%
Skagstrendingur 4.00 4.20 78%
Skeljungur 6.38 6.65 110%
Tollvörugeymslan 1.05 1.10 93%
Útgerðarfólag Akureyringa 3.14 3.30 139%
Ehf. Verslunarbankans 1.33 1.39 98%
< * Áskilinn er róttur til aö takmarka þá upphæö, sen? keypt er fyrir.
un
.q Kaup- og sölugengi er sýnt miðað við nafnverð að lokinni útgáfu jöfnunarhlutabrófa.
oð Miðað er viö innra virði 31.12.1989.
VIÐ SELJUM HLUIABRÉF í
EFTIRTÖLDUM FÉLÖGUM:
Eimskipafélag íslands hf. Flugleiðir hf.
Hlutabréfasjóðurinn hf.
íslenski hlutabréfasjóðurinn hf.
li
LANDSBRÉF HLF
Landsbankinn stendur meö okkur '
Suðurlandsbraut 24,108 Reykjavík, sími 91-606080
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.