Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 5
MÖRGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
B 5
Erlent
SAS tapar nær 5 millj-
örðum á greiðslu-
stöðvun Contineutal
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
Skandinavíska flugfélagið
SAS tapar að minnsta kosti 500
milljónum danskra króna (um 4,8
í milljörðum ísl. kr.) á greiðslu-
stöðvun bandaríska flugfélagsins
Continental Airlines. Tapið
stafar af því að verðmæti hluta-
bréfaeignar SAS í bandaríska
flugfélaginu lækkar úr 600 í 100
milljónir danskra króna.
Pjármálastjóri SAS, Steffen
Harpoth, segir að hlutabréfaeignin
sé „ekki margra króna virði“ nú
um stundir. SAS á 17% heildarat-
kvæðamagnsins í Continental Air-
lines. Hefur forstjóri SAS, Jan
Carlzon, nú sent út tilkynningu um
að ákvörðun Coninental um að taka
upp samninga við lánardrottna sína
muni í engu hafa áhrif á samvinnu
flugfélaganna tveggja eða farþega
þeirra. Continental haldi áfram að
fljúga samkvæmt áætlun.
Continental hefur notfært sér
ákvæði í bandarískum lögum, sem
verndar félagið gagnvart lánar-
drottnum þess. Félagið hefur fengið
120 daga frest til fjárhagslegrar
endurskipulagningar. Á þeim tíma
ákveður dómstóll, hvaða lánar-
drottnar fá greiðslur.
Vandamál félagsins stafa meðal
annars af hækkun eldsneytis-
kosntnaðar að undanförnu. Á
síðustu fjórum mánuðum hefur
Continental orðið að greiða 230
milljónum dollara meira fyrir elds-
neyti en ráð var fyrir gert í rekstr-
aráætlun félagsins sem samin var
áður en Persaflóadeilan upphófst.
Maxi er í
Lúxen ekki
á Islandi
■ / VIÐSKIPTABLAÐINU
síðasta fimmtudag segir frá nýaf-
staðinni vörusýningu í Lúxemborg
þar sem tvö fyrirtæki í eigu Islend-
inga voru með sýningarbása. Ann-
að fyrirtækið var Maxi sem er
umboðsfyrirtæki í Lúxemborg í
eigu Halldóru Ásgeirsdóttur,
Jennýjar Matthíasdóttur og Sól-
veigar Stefánsdóttur. Fyrirtækið
er með umboð í Lúxemborg fyrir
sænsku snyrtivörumar frá Maija
Entrich sem seljast undir vöm-
merkinu Græna línan. Nokkurs
misskilnings hefur gætt síðan frétt-
in birtist og vildi Guðný Guðmunds-
dóttir sem rekur verslunina Grænu
línuna á Laugavegi 46, koma því
á framfæri að hún er enn með
einkaumboð fyrir þessar snyrtivör-
ur á íslandi.
AM.
UÓSRITUNARVÉLAR
NYR VALKOSTUR
★ Heimsþekkt framleiðsla
á lægra verði.
★ Sérþjálfaðir tæknimenn.
★ Lægra verð á rekstrarvörum
tryggir ódýrari Ijósrit
KOMIÐ SJAIÐ - SANNFÆRIST
NorskData á íslandi hf.
Dvergshöfða 27 - Sími 673711
Ertu á milli
f járf estinga ?
Kaup á ríkis-
víxlum er einn
besti millileikur-
inn sem þú
getur leikið ef þú átt handbært
fé til að fjárfesta fyrir á næst-
unni en vilt ávaxta það vel og
örugglega þangað til.
... .
þér kleift að skipu-
leggja nýja fjárfest-
ingu með fullkomnu
öryggi um að féð sé
til reiðu þegar á þarf að halda.
Auk þess gilda um þá mjög
hagstæð tekju- og eignarskatts-
ákvæði.
Þú færð ríkisvíxla í Þjónustu-
miðstöð ríkisverðbréfa, Hverfis-
götu 6, og í Seðlabanka íslands.
Einnig er hægt að panta þá í
gegnum síma, greiða með
C-gíróseðli og fá þá síðan senda
í ábyrgðarpósti.
Ríkisvíxlar bera mjög góða
forvexti eins og sést á töflunni.
Þá er hægt að fá fyrir hvaða
upphæð sem er en lágmarks-
fjárhæð þeirra er 500.000'kr.
Lánstíminn er frá 45 til 120
dagar eftir eigin vali, sem gerir
Lánstími / binditími
Ríkisvíxlar: 45-120 dagar
Ávöxtun á ári
10,59% -10,71%
RIKISSJOÐUR ISIANDS
Seölabanki Islands, Kalkofnsvegi 1, sími 91 - 69 96 00. Þjónustumiðstöö Ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, 2.hæö, sími 91 - 62 60 40.