Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990 Flug Gunnar Björgvinsson keypti 18 þotur ogfórífrí „ÉG HEF minnkað við mig og einbeiti mér nú að flugvélaviðskiptun- um,“ sagði Gunnar Björgvinsson, flugvélakaupmaður, þegar Morgun- blaðið heimsótti hann nýlega á skrifstofu hans í Liechtenstein. „Það er ekki gott að vera í of mörgu. Þá getur maður ekki fylgst nógu vel með hveiju og einu og það getur verið hættulegt.“ Sérstaklega þegar maður'vill gera góða samn- inga, til dæmis um kaup á 18 Lock- heed-júmbóvélum eins og Gunnar gerði í fyrra í félagi við einn Aust- urríkismann. „Ég hafði verið í sam- bandi við Cathai Pacific flugfélagið í Hong Kong í nokkurn tíma þegar það kom upp að það vildi selja allan Lockheed-flotann. Það voru fleiri vélar en ég hafði hugsað mér en við gátum klofið þetta með fjár- mögnun frá American Express Bank. — Ætli maður þurfi ekki að hafa visst hugmyndaflug, eða vera nógu vitlaus, til að standa í svona viðskiptum," sagði Gunnar, sem tók sér gott frí í Nizza og Karíbahafi eftir þessi kaup. Gunnar stofnaði einn fyrirtækið Pacifíc Asset Co. í Liechtenstein, þar sem hann á lögheimili, til að standa að samningnum við Cathai. Hann og félagi hans, sem Gunnar sagði að væri óþarfi að nefna, fengu 8 vélanna strax en gerðu framtíðar- kaupsamning um 10. Þeir seldu American Express-bankanum 4 vél- anna og nýju fyrirtæki nokkurra einstaklinga úr þessari viðskipta- grein hinar 4 en Cathai tók allar á leigu og mun væntanlega halda Lockheed-vélunum, sem eru svipað- ar og DC-10-10, þangað til fyrir- tækið fær Airbus-30-vélarnar sem það hefur fest kaup á afhentar 1994-1995. Gunnar sagði að flugvélar gætu verið góð fjárfesting. „Vextir, eða leigan af vélunum, eru góðir og það er enn víða hægt að afskrifa þær UJX BWI LUXEMBOURG BALTIMORE GOT UAK GAUTABORG NARSSARSSUAK GLA FRA GLASGOW FRANKFURT Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir KAMPAKATUR — Gunnar með samninginn að kaupum á 18 Lockheed júmbóþotum. „Pappírsvinnan er álíka mikil hvort sem um fáeinar eða 18 vélar er að ræða,“ sagði hann. á skömmum tíma og fá þannig góðan skattafrádrátt.“ Fjöldaafsláttur á flugvélum Gunnar sagði að það væru um 20 til 30 fyrirtæki í heiminum sem stunda sams konar viðskipti og hann. Stærstu aðilarnir kaupa yfír- leitt nýjar vélar og leigja þær út. Það komu því ekki mjög margir til greina þegar Cathai vildi selja allar Lockheed-vélarnar sínar í einu. „Það er auðvitað kostur að kaupa svona stóran pakka því þannig fæst betra verð og pappírsvinnan er ekki miklu meiri en þegar um fáeinar vélar er að ræða,“ sagði Gunnár. „American Express-bankinn fær ákveðna prósentu af ágóðanum sem við fáum við ændursölu vélanna til viðbótar við vextina sem við greið- um af láninu sem hann veitti okk- ur. Við teljum að ágóðinn af þessum viðskiptum verði góður í lokin. Ann- ars myndum við varla standa í þeim.“ „Þú ætlast ekki til að ég svari því,“ sagði Gunnar, þegar hann var spurður hversu háa prósentu hann fær af hverri flugvélasölu. Lock- heed-vélarnar eru nokkrum milljón- um dollara ódýrari en notaðar DC- 10-30 en þær kosta á milii 35 og 40 milljóna dollara (1,8—2,1 millj- arða ÍSK). Gunnar keypti tvær slíkar af Swissair í fyrrasumar í nafni Menzana-fyrirtækisins, sem hefur þrjá hluthafa en hann á bróð- urhlutann í, og hefur þegar selt þær Northwest-flugfélaginu í Banda- ríkjunum. Það fær þær afhentar 1991. Og nú vantar ekkert nema nöfnin undir samning um kaup hans á DC-10 af Balair, dótturfyrirtæki Swissair, sem verður afhent 1992. Eftir góðu árin... Gunnar á hlut í 7 vélum sem SAS, Aviaco og Northwest eru með á leigu en annars hefur hann beint kröftum sínum inn á eina braut, eins og fyrr segir. Höfuðstöðvar CPH AMS KAUPMANNAHÖFN AMSTERDAM INNFLUTNINGUR Sími: 690101 Fax: 690464 UTFLUTNINGUR Simi: 672824 Fax: 672355 Ferðaþjónusta Flugleiðir seija á fót velvildarklúbb Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, verður heiðursfélagi ÞÚ HEFUR HEIMINN í HENDI ÞÉR MEÐ FLUGLEIÐIR hafa sett á stofn svokallaðan velvildarklúbb, Ice- landair Business Club, fyrir við- skiptavini sem ferðast oft með félaginu. Klúbbfélagar eiga kost á sérstakri fyrirgreiðslu og af- slætti af verði ýmiss konar þjón- ustu. Þeim er þannig gert léttara um vik með að bóka gistingu eða bílaleigubíl með stuttum fyrir- vara og fá t.d. forgang á biðlistum hjá Flugleiðum. Innganga í klúbb- inn er háð því skilyrði að farþeg- ar hafi ferðast a.m.k. 5 sinnum á Saga Class rými á 12 mánaða tímabili eða 15 sinnum á afsláttar- fargjöldum. Ennfremur gefst far- þegum sem ferðast hafa 45 sinn- um innanlands kostur á þátttöku. Ásdís Ásgeirsdóttir, sem hefur umsjón með klúbbnum, segir að klúbbar á borð við Icelandair Busi- ness Club, séu til hjá flestum flugfé- lögum. Markmiðið sé að veita bestu viðskiptavinunum betri þjónustu t.d. þeim sem ferðist mikið vegna vinnu sinnar. Klúbbfélagar hafa aðgang að biðstofum í flugstöðvum á áfangastöðum Flugleiða og fá sér- staka heimild fyrir yfirvigt. Þeir fá handbók með nöfnum hótela og bíla- leiga sem veita afslátt og betri þjón- ustu en ella en auk þess munu sölu- skrifstofur félagsins erlendis veita ýmsa fyrirgreiðslu. Gerðir hafa verið samningar um afslætti og önnur fríðindi við 10 hótel innanlands og 17 hótel á helstu áfangastöðum Flugleiða erlendis. Tvær erlendar bílaleigur veita afslátt auk Bílaleigu Flugleiða. Jafnframt gefst klúbbfé- lögum kostur á akstri frá höfuðborg- arsvæðinu til Keflavíkur án endur- gjalds og Bílageymslan í Njarðvík býður þeim afslátt af verði á þjón- ustu. hans eru Transreco-fyrirtækið þar sem hann og einkaritari hans starfa í tveimur rúmgóðum herbergjum, steinsnar frá aðalgötunni í Vaduz. Hann sagðist nú vera aðaleigandi 6 eða 7 fyrirtækja en 4 þeirra væru vlrk. Hann var með fingurna í fleiru þegar Morgunblaðið talaði við hann fyrir fimm árum, þótt hann vildi þá sem minnst um viðskipti sín segja. Hann seldi nýlega sinn hlut í Air Export sem rak flugskýli á flugvellinum í Brussel og verslar með flugvélavarahluti. „Ég dró mig út úr því eftir að við seldum Sab- ena-flugfélaginu flugskýlið með góðum ágóða og fluttum þjón- ustuna til Sviss og Bandaríkjanna," sagði Gunnar. „Eg held að ég hafi gert þetta á góðum tíma því það er mikil óvissa á flugmarkaðnum framundan. Árin eftir 1983 voru góð og upp- sveifla í þessum viðskiptum en nú er komið að leiðréttingu og það má búast við niðursveiflu. Flugfé- lögin hafa endurnýjað flotana og það er orðið erfitt að finna notend- ur fyrir gamlar vélar. Óvissan í Mið-Austurlöndum hafa haft sin áhrif. Fargjöld hafa hækkað í kjöl- far hækkana á eldsneyti og það má búast við að farþegum fækki þar af leiðandi. Auk þess sem efna- hagsástandið í Bandáríkjunum er slæmt og ferðalög eru eitt af því fyrsta sem fólk hættir að leyfa sér þegar það þarf að herða ólina," sagði Gunnar. Hann sagði að nýleg ákvörðun Bandaríkjastjórnar að banna inn- flutning á þotum sem fara yfír ákveðið hámarks hávaðastig, en það er megnið af vélum sem eru í notkun í dag, myndi hafa sín áhrif á flugvélaviðskipti. „Ákvörðunin var tekin yfír eina helgi. Hún kom svo flatt upp á alla að það tekur tíma að jafná sig og átta sig á hvað hún mun hafa í för með sér,“ sagði Gunnar. „Markaðurinn með þessar vélar mun þrengjast veru- lega en það var vitað að innflutning- ur á þeim til Evrópu yrði bannaður um þessi áramót. Bandaríkjamenn ákváðu að grípa til sömu ráðstafana til að hindra að þeir sætu uppi með gamlar vélar sem aðrir vildu ekki eins og gerðist síðast þegar nýjar hámarkshávaðareglur voru settar." Engin fjárumsvif á íslandi, enn sem komið er Gunnar hefur hagnast vel á við- skiptum sínum og það lá því beint við að Arnarflugsmenn hefðu sam- band við hann þegar þá skorti fé í fyrirtækið. En Gunnar hafði ekki áhuga á að fjárfesta í Arnarflugi ÞIÓNUSTUKLÚBBUR — Ásdís Ásgeirsdóttir, hefur um- sjón með Icelandair Business Club. Með klúbbnum hyggjast Flugleiðir veita sínum bestu við- skiptavinum betri þjónustu með ýmiss konar fríðindum og af- sláttarkjörum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.