Morgunblaðið - 06.12.1990, Síða 2

Morgunblaðið - 06.12.1990, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990 Verðbréfamarkaður VÍB stofnar nýja sjóði Sjóðir fyrir erlend verðbréf munu fylgja hlutabréfavísitölum VERÐBRÉFAMARKAÐUR íslandsbanka hf. hefur stofnað tvo verð- bréfasjóði, Sjóð 7 og Sjóð 10 sem fjárfesta munu í erlendum verð- bréfum. Erlendar eignir Sjóðs 7, Þýskalandssjóðs, munu fylgja hluta- bréfavísitölu í Frankfurt en eignir Sjóðs 10, Evrópusjóðs, munu fylgja hlutabréfavísitölu Evrópulanda utan Bretlands. Síðar munu bjóðast sjóðir sem fylgja hlutabréfavísitölum í London og í New York. VÍB hefur samið við Barbican Capital Management Ltd. sem er dótturfyrirtæki Landerbank í Austurríki, um daglegan rekstur sjóðanna. Þá hefur verið stofnað hlutafélagið Hlutabréfasjóður VÍB hf. sem mun fjárfesta í innlendum hlutabréfum og skuldabréfum. Hinir nýju verðbréfasjóðir nefn- ast vísitölusjóðir (Index Funds) þ.e. hlutabréfaeignin er tengd við vísi- tölu markaðs, að því er segir í frétt frá VÍB. Hlutabréfaeign vísitölu- sjóðs er höfð í sem líkustum hlutföll- Fyrirtæki 25 sóttu forvalsgögn Pósts og síma 25 AÐILAR sóttu forvalsgögn til Verk- og kerfisfræðistofunnar vegna fyrirhugaðrar heildartölvuvæðingar Pósts og síma sem sagt var frá í viðskiptablaðinu- fyrir stuttu. Verk- og kerfisfræðistofan sér um útboð vegna verksins og þurfa þeir aðilar sem áhuga hafa að senda inn upplýsingar þangað fyrir 17. desember. Síðari hluta desember verða upp- lýsingar um viðkomandi fyrirtæki skoðaðar og út frá þeim ákveðið hvaða aðilum verður gefínn kostur á að taka verkið að sér. Stefnt er að því að ljúka forvalinu 7. janúar og þá mun liggja fyrir hveijir vænt- anlegir þátttakendur í útboðinu verða. Endanleg kostnaðaráætlun ligg- ur ekki enn fyrir að sögn Daða Jónssonar hjá Verk- og kerfisfræði- stofunni, en verður væntanlega unnin í þessum mánuði. Samkvæmt forvalsgögnunum er verkið boðið út í áföngum og er gert ráð fyrir því að 1. áfangi verði boðinn út í lok janúar. Einmenningstölvur Myndræn framtíð! Skýrslutæknifélag íslands boðar til jðlaráðstefiiu að Höfða - Hótel Loftleiðum, föstudagmn 7. desember, 1990 klukkan 1300 Dagskró 13°°-1315 Skráning 1315-1330 Setning: Einmenningetölvur • myndræn framtíd HaUdór Kristjánsson, formaður Sl 1330-1355 Afkött: Eru einmenningetölvur etórtölvurt Hjálmtýr Guðmundsson, kerfisfirœðingur hjá IBM 1355-1420 Tölvunotkun: Einkatölvur hjá Odda PáU Bjömsson, tölvunarfrœðingur, Prentsmiðjunni Odda I42O-I445 Notendaumhverfi: Framtíd DOS tölva Stefán Hrafhkelsson, tölvuverkfrœðingur, TVl 1445-1615 Kaffi. 1615-1640 Netherfú Notendakönnun á neemetum Sveinbjöm Högnason, viðskiptafrœðingur, Eimskip 1640-16°5 Stýrikerfi: Syetem 7.0 - neeeta kynelóð etýrikerfa Ámi G. Jónsson, deildarstjóri, Apple-umboðinu 1605-1630 Framtið: Myndlíkingar, nýjung við frameetningu gagna Guðmundur Sverrisson, lœknir, Hjama hf 1630-1650 Umræóur um erindin 1650"18°° Ráðetefnuelit og jólafagnaður SÍ Bomar verða fram veitingar í boði félagsins og félögum Sl gefst færi á að skiptast á jólakveðjum f lok árangursrfks starfsárs. Ráðstefnustjóri: HaUdór Kristjánsson, formaður SÍ Þátttökugjald fyrir félaga SÍ er krónur 3.900,- en 4.700,- fyrir utanfélagsmenn. Þátttöku skal tilkynna í sfma 2 76 77 eigi síðar en fimmtudaginn 6. desember 1990. um og hlutabréf eru í viðkomandi hlutabréfavísitölu. Verðbreytingar í slíkum sjóðum eru því samstíga vísi- tölunni eða því sem næst. Meðal- skekkju er unnt að meta fyrirfram en hún ræðst af því hve hlutabréfa- flokkar sjóðsins erú margir í saman- burði við hlutabréfaflokka í viðkom- andi vísitölu. Fjárfestingarstefna vísitölusjóð- anna byggist á því að færa sér í nyt allar þær þær upplýsingar sem aðrir fjárfestar á markaðnum hafa samtals. Einn kostur við vísitölu- sjóði er því sá að þar kemur hlut- lægt mat manna hvergi við sögu við val hlutabréfa. Fyrirfram er búið að reikna út hve mörg prósent eigi að vera í fyrirtæki A, hve mörg í fyrirtæki B ci.s.frv. Samkvæmt upplýsingum VÍB eru tveir þriðju hlutabréfasjóða sem ekki eru vísi- tölubundnir að jafnaði með lakari ávöxtum en sem nemur vísitölunni og aðeins þriðjungur þeirra með betri ávöxtun. Þá er það næsta fátítt að einn tiltekinn hlutabréfa- sjóður beri hærri ávöxtun en sgm svarar til hækkun vísitölunnar í mörg tímabil í röð. Grundvöllur fjárfestingarkenn- inga að baki vísitölusjóða eru skrif prófessoranna Markowitz og Shar- pes sem nú í haust hlutu Nóbels- verðlaun fyrir framlag sitt til fræð- anna. Hlutabréfasjóður VÍB hf. var stofnaður í síðustu viku af íslands- banka og Verðbréfamarkaði ís- landsbanka. VÍB mun annast fram- kvæmdastjórn sjóðsins og sölu hlutabréfa. Stofnhlutafé er 20 millj- ónir en stjórn félagsins hefur heim- ild til að auka hlutafé í 500 milljón- ir. Megintilgangur sjóðsins er að gera viðskiptavinum VÍB og öðrum fjárfestum kleift að fjárfesta í hlutabréfum án þess að taka óþarf- lega mikla áhættu. Verðbréfamarkaður Morgunblaðið/Sigurður Jónsson. FRAMLEIÐSLA — Óskar Jónsson í Tjaldborg með kerrupo- kann og göngulegghlífar sem hann var að vinna við frágang á. Iðnaður Stærsta sumarhótelið fer ígegnum okkarhendur Tjaldborg á Hellu með tjaldviðgerðir og nýsaum Hellu. „VIÐ þjónum öllum helstu ferðaskrifstofunum með nýsaum og við- gerðir á tjöklum. Þetta er haustvinnan hjá okkur og hérna er unnið við hátt í þúsund þriggja manna tjöld. Það má segja að stærsta sumar- hótelið fari í gegnum hendurnar á okkur hérna,“ sagði Óskar Jóns- son, verkstjóri Tjaldborgar á Hellu. Fyrirtækið fékk nýlega það verk- efni að sauma 110 tjöld til fjalla- ferða næsta sumar. Auk tjaldanna framleiðir fyrirtækið svefnpoka, tjalddýnur, tjöld á tjaldvagna, legg- hlífar og bakpoka. Einnig er ýmis- legt framleitt fyrir hjálparsveitir svo sem sjúkratöskur. Nýjasta framleiðslan eru kerru- pokar fyrir börn sem þykja sérlega hentugir og hlýir. Á sýningu sem haldin var á Selfossi í sumar vöktu þessir pokar mikla athygli barna- fólks. Aðalsöluaðili Tjaldborgar er Skátavörubúðin og sportvöruversl- anir víða um land. Að staðaldri vinna 5-6 manns við framleiðsluna í Tjaldborg á Hellu. — Sig. Jóns. Lífeyrissjóðir semja við VÍB Bauð sjóðunum 7,35% raunávöxtun AÐILDARSJÓÐIR Sambands almennra lífeyrissjóða og Landssambands lífeyrissjóða keyptu sameiginlega skulda- bréf á verðbréfmarkaði fyrir 107 milljónir í nóvember. Sjóð- irnir óskuðu eftir tilboðum í þessa fjárhæð frá verðbréfafyr- AUK DAGATALIÐ í BJARTSÝNI 1991 Sendu bjartsýniskveðjur til erlendra viðskiptavina, tilbúnar í traustum póstumbúðum! Almenna útgáfan: ÍSLENSK BÓKADREIFING S. 68 68 62 Sérprentun fyrirtækja: AUKhf. Auglýsingastofa Kristínar S. 688 600 irtækjum og var ákveðið að taka tilboði frá Verðbréfamarkaði Islandsbanka sem bauð 7,35% raunávöxtun á þessa fjárhæð. Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Sambands almennra lífeyrissjóða, sagði í samtali við Morgunblaðið að ákveðið hefði verið að efna til sameiginlegra skuldabréfakaupa í desember eins og undanfarna mánuði. Frestur sjóðanna til að tilkynna um kaup rennur út þann 15. desember og kvaðst Hrafn eiga von á að keypt yrði fyrir um 100 milljónir. Þannig gætu sameiginleg kaup sjóðanna á verðbréfamarkaði numið um 400 milljónum á þessu ári. Hann sagð- ist hafa trú á að sjóðirnir héldu samstarfinu áfram á næsta ári en ákvörðun þar um verður tekin um áramótin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.