Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
Utflutningsráð
Þróunarverkefninu
Ut-
flutningsaukning og
hagvöxtur lokið
Össur hf. hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir vel framsetta markaðsáætlun
Á fimmtudag í síðustu viku lauk þróunarverkefninu Útflutningsaukn-
ing og hagvöxtur sem staðið hefur yfir síðan í desember á síðasta
ári. Við það tækifæri var haldin brautskráningarhátíð í Hótel Lind
í Reykjavík. Þar fluttu m.a. Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra og Ingjaldur Hannibalsson framkvæmdastjóri Útflutningsráðs
og formaður stýrinefndar verkefnisins ávörp. Verkefnið var ætlað
litlum og meðaistórum fyrirtækjum í framleiðslu og þjónustu sem
áhuga hafa á að hefja útflutning eða auka takmarkaðan útflutning.
Átta fyrirtæki luku verkefninu og var þeim afhent viðurkenning
fyrir þátttökuna. Þá hlaut stoðtækjaverslunin Össur hf. sérstaka
viðurkenningu fyrir vel unna markaðsáætlun.
í ávarpi Ingjalds Hannibalssonar
var í stuttu máli rakin forsaga þess
að verkefnið var sett af stað, en
það er framkvæmt að írskri fyrir-
mynd. Útflutningsráð íslands stóð
að verkefninu ásamt Iðnlánasjóði
sem sá um fjármögnunina. Öll
framkvæmd var hins vegar í hönd-
um Markaðsskóla íslands sem er
samvinnustofnun Útflutningsráðs
og Stjórnunarfélags íslands. In-
gjaldur sagði í ávarpi sínu að írsk
fyrirtæki hefðu aukið hagnað sinn
og útflutning verulega eftir þátt-
töku í slíku verkefni og eins hefði
útflutningsmörkuðum þeirra fjölg-
að. Hann sagðist því hafa komist
að þeirri niðurstöðu að verkefni sem
þetta ætti mikið erindi til íslenskra
fyrirtækja. Verkefnið var samsett
úr námskeiðum, ráðgjöf, markaðs-
rannsóknum og kynnisferðum á
markaði og var tilgangurinn að
fræða þátttakendur um markaðs-
setningu og kenna þeim að nota
þá þekkingu á skipulegan hátt í
fyrirtækjum sínum til að hefja eða
auka útflutning og bæta með því
arðsemi rekstarins.
í upphafi árs 1989 var skipuð
stýrinefnd sem í sátu Ingjaldur
Hannibalsson, framkvæmdastjóri
Útflutningsráðs, Árni Sigfússon
framkvæmdastjóri Stjórnunarfé-
lags íslands og Þórður Valdimars-
son forstöðumaður vöi-uþróunar- og
markaðssviðs hjá Iðnlánasjóði.
Haukur Björnsson, forstöðumaður
Markaðsskóla íslands var skipaður
verkefnisstjóri. I maí sama ár sendi
Útflutningsráð bréf til banka, sjóða,
stofnana, samtaka og annarra þjón-
ustuaðila lítilla og meðalstórra fyr-
irtækja í framleiðslu og þjónustu,
kynnti fyrir þeim verkefnið og bauð
þeim að tilnefna fyrirtæki í það.
Alls var haft samband við um 100
fyrirtæki. Af þessum hundrað sóttu
25 fyrirtæki um aðild að verkefninu
og var níu fyrirtækjum gefinn kost-
ur á þátttöku. Átta þeirra luku verk-
á viðráðanlegu verði
Hver vill ekki hafa geislaprentara
út af fyrir sig? Verðið á LZR 650 gerir
biðraðir við sameiginlegan skrifstofu-
prentara óþarfar.
auðveldur í notkun
LZR 650 má stjórna beint frá
tölvunni með einföldum valmyndum sem
hægt er að kalla fram á skjáinn þótt verið sé
að vinna í öðru forriti.
fjölhæfur
LZR 650 tengist öllum algengum vél- og
hugbúnaði og prentar sex blaðsíður á
mínútu. Með aukabúnaði má til dæmis
fjölga leturgerðum og prenta beint á umslög.
VIÐURKENNING — Ingjaldur Hannibalsson afhendir hér
Tryggva Sveinbjörnssyni framkvæmdastjóra Össurar hf. sérstaka við-
urkenningu fyrir vel unna markaðsáætlun fyrirtækisins.
efninu síðasta fimmtudag, en loka-
þátturinn fólst í að gera ítarlegar
markaðsáætlanir og leggja fyrir þar
til skipaða dómnefnd.
Skipuleg og fagleg
vinnubrögð
Fyrirtækin átta eru lítil eða með-
alstór fyrirtæki sem að mati stýri-
nefndar höfðu útflutningshæfa vöru
eða þjónustu að bjóða. Þessi fyrir-
tæki eru Aries hf. sem sérhæfir sig
í gerð tölvuhugbúnaðar, Fínull hf.
sem vinnur fatnað úr angóraull,
Klaki sf. sem framleiðir fiskvinnslu-
kerfi, strandeldisstöðin Miklilax hf.,
Samey sem sérhæfir sig í sjálfstýri-
búnaði, hafbeitarstöðin Silfurlax
hf., fiskvinnslufyrirtækið Vogar hf.
og Össur hf. sem framleiðir stoð-
tæki og leggur megináherslu á tvær
vörutegundir sem hafa verið þróað-
ar hjá fyrirtækinu. Þær eru silicon-
hulsur til nota milli stúfs og gervi-
lims og gerviökklar.
Fyrir lokaathöfnina síðasta
fimmtudag kynntu þátttakendur í
verkefninu markaðsáætlanir sínar
sem þeir höfðu unnið að í tæpt ár.
Ingjaldur sagði að ánægjulegt hefði
verið að hlusta á kynningarnar því
þær hefði borið vitni um skipuleg
og fagleg vinnubrögð. Hann sagðist
vonast til þess að framhald yrði á
þessari vinnu og takast mætti sam-
starf við banka og sjóðakerfi um
ijármögnun fleiri verkefna af þessu
tagi. Áætlaður kostnaður við verk-
efnið var 9 milljónir, en þátttakend-
ur greiddu tæplega 25% af honum.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra flutti ávarp í braut-
skráningarhófinu og afhenti þátt:
takendum viðurkenningarskjal. í
ávarpi Steinsgríms kom fram að
hann er hlynntur því að áhersla sé
lögð á að efla útflutning lítilla og
meðalstórra fyrirtækja á íslandi.
Jlann hrósaði framtaki Útflutn-
ingsráðs og sagðist vonast til þess
að framhald yrði á þessari þróun.
I.CjUÐMUNDSSON 8.C0. hf
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN CX>91 - 24020 ÞVERHOITI 18
KAUPMENN,
KAUPFÉLÖG.
VÖNDUÐ
LEIKFÖNG Á
Æ.VINTÝRALEGU
VERÐI.