Alþýðublaðið - 31.01.1959, Qupperneq 4
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ást-
þórsson og Helgi Sæmundsson (áb). Fulltrúi ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmars-
son. Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. Auglýsingastjóri Pétur Péturs-
son. íiitstjórnarsímar: 14901 og 14902. Auglýsingasími: 14906. Afgreiöslu-
sími: 14900. A'Ösetur: Alþýðuhúsið. Prentsmiðja Alþýðubl. Hverfisg. 8—10.
Burt mcð framtölin!
VÆRI ekki dásamlegt að losna við framtölin
til skatts, allt erfiðið og áhyggjurnar. sem þau
valda? Þannig hugsa margir þessa dagana, þegar
mönnum er fyrirskipað að viðlögðum refsingum
að skila hinu opinbera nákvæmri skýrslu um
einkafjárhag sinn.
Sumurn finnst ábyrgðarleysi að láta sér detta
slíkt í hug. Við gerum kröfur til ríkis og bæjar, og
þær ekki litlar. Við heimtum sjúkrahús, trvgg-
ingar, öryggi og samgöngur. Við krefjumst raf-
magns. vatns og sorphreinsunar. Og krefjumst ráf-
standa straum af öllu slíku án skatta á einstaicl-
ingana?
Það er rétt, að ríki og bær verða að fá tekjur
og þær miklar. Hins vegar er alls ekki víst, að
tekjuskattar og útsvör séu rétta leiðin til að
i afla þeirra tekna. A þeim grundvelli eiga nú-
í tímamenn að hugsa um skattamálin. Er ckki
hægt að afla hinu opinbera nauðsynlegra tekna
á réttlátan hátt án þess að leggja á tekjur ein-
staklinganna og krefjast framtals af þeim?
Miklar líkur eru til þess, að við nútíma að-
stæður séu aðrar leiðir hentugri og réttlátari til
skattheimtu en tekjuskattar. Nú er hægt að baga
sölu og neyzlusköttum svo, að þeir komi niður
á þeim. sem hafa ráð á að veita sér gæði líísins,
en hinir efnaminni sleppi. Það er að skoðun súmra
oérfræðinga skynsamlegra síð iskattleggja fyrir-
tæki eftir útgjöldum þeirra en hreinum tekjum.
Þannig mætti lengi telja. Hér þarf grandvara end
urskoðun, sem byggist á hinum breyttu aðstæð-
um í þjóðfélaginu. Skattakerfi geta breytzt og eiga
að breytast með breyttum tímura.
Alþýðuflokkurinn tók af skarið um þessi mál
með því að flytja á alþingi tillögu um athugun
á afnámi tekjuskattsins, sem mundi verða fvrsta
skref í rétta átt. Nú er starfandi nefnd, sem
kannar það mál, og skilar hún vonandi áliti áður
en mörg ár líða.
Það væri gott að losna við framtölin, enn
bretra að afmá skattsvikin. Við verðum að leita
íýrra úrræða í þessum málum eins og öllum öðr-
um, og taka upp nýia hætti, ef þeir virðast örugg-
■ ega betri en hinir eldri.
áðaKundur .Hraunprýði', kvennadeiidar
Siysavðrnarféiapins í Hafnarfirði.
NÝLEGA hélt „Hraunprýöi“
I.\en;nadeild Slysavarnaíélags
í.slands í Hafnarfirði aðalfund
:-mn. Auk venjulegra fundar-
síarfa samþykkti deildin að
t/íefa 10 þúsund krónur til bygg-
ingar Slysavarnáhússins á
Grandagarði í Reykjavík. —
l unfremíur afhcntu konurnar
Sfysavarnafélaginu rúmlega 55
I úsund króna framlag frá árinu
1958 sem þær hafa aflað með
. ivommtunum, merkja- og kaffi
i- iJu og á ýmsan annan hátt.
Sýnir þessi dugnaður Hraun
prýðiskvenna ihve mikið er
l:segt að gera þar se mviljinn og
íórnfýsin ræður ríkjum. Stjórn
ceildarinnar skipa nú: Rann
ur Magnúsdóttir, gjaldk., Elín
Jósefsdóttir, ritari. Til vara
eru þær Sclveig Eyjólfsdóttir,
Hulda S. Helgadóttir og Ingi
björg Þorsteinsdttir. Meðstj.
eru þær Soffía Sigurðardóttir,
Sigurveig Guðmundsdóttir og
Marta Eiríksdóttir.
STÖRGJÖF.
Einnig hefur Slysavarnafé
laginu nýlega borists stórmynd
arteg, gjöf til björgunarskút.u
sjóðs Austurlands frá Slysa
varnadeildinni Hafdísi á Fá
skrúðsfirði. Gaf deildin kr. 25
þúsund að þessu sinni en áður
hafði deildin gefið 10 þúsund í
sama skyni. MikilL áhugi er með
al Austfirðinga fyrir þessu nauð
Framhald á 10. síðu.
vetg vigfusdottir form., Sigríð
31. jan. 1959 — Alþýðuhlaðið
Skyndiaftökurnar
á Kúbu liafa vakið andúð
flestra og menn hafa talið að
þær bentu til þess að liið
sama mundi gerast þar og í
öðrum Suður-Ameríkuríkjum
að afloknum stjórnarbylting-
um. Þessi gagnrýni á nokk-
urn rétt á sér. Það sem nú er
að gerast á Kúbu er hroða-
legt. En vert er að gera sér
ljóst hvað raunverulega hef-
ur gerzt.
Vopnfátækir og fámennir
uppreisnarmenn unnu sigur á
einræðisherra, sem byggði
vald sitt á lögreglu og pynd-
ingum. En blaðalesendur geta
auðveldlega ályktað eftir
skrifum heimsblaðanna, að
ógnaröldin á Kúbu hafi ekki
hafizt fyrr en með sigri Cast-
ros á hryðjuverkasveitum
Batista. Ekkert er fjær sanni.
Völd Baíista grundvölluðust
á hryðjuverlium og spillingu,
en ströng ritskoðun kom í veg
fyrir að umheimurinn fengi
sannar fregnir af því, sem
fram fór á eynni. Og upp-
Ijóstrunum ábyrgra ferða-
manna var ekki trúað. Fang-
elsi Batista voru yfirfyllt af
pólitískum föngum. . Ðaglega
birtust fréttir af andstæðing-
um stjórnarinnar, sem skotn-
ir voru er þeir reyndu að .
flýja land. Fjöldamargir fang
ar voru pyndaðir á hinn
hryllilegasta hátt áður en þeir
voru teknir af lífi. Þúsundir
limlestra líka hafa verið graf-
in upp úr fangelsisgörðunum
síðan Castro kom til valda.
Talið er, að yfir 20.000 manns
hafi verið myrtir af lögreglu-
mönnum Battista.
Innibyrgt hatur þjóðarinn-
ar á Battista og þjónum hans
fékk útrás þegar Castro hafði
sigrað.
Óvíst er að nokkur mann-
legur máttur hefði getað kom-
ið í veg fyrir skyndiaftökur
þegar liarðstjóranum var velt
af stóli. Castro hefur sjálfur
sagt að ef liann hefði elski
hafið. strax aftökur stríðs-
glæpamanna þá hefði lýður-
inn ærzt og tekið lögin í sín-
ar hendur.
Aftökurnar eru á engan
liátt afsakanlegar, en ef þær
hefðu ekki verið framkvæmd-
ar, má gera ráð fyrir að eitt-
hvað verra hefði komið í stað
inn.
Sterk þjóðernisalda geng-
Hanne
á h o r n i n
★ Límirnar hafa vorið
lag'ðar.
★ Þannig verður kosn-
ingabaráttan.
★ Ofund og afbrýðisemi
★ Eldur hagsmunabar
áttunnar að nýju,
★ Bréf frá skipaskoðun
arstjóri.
KOSNINGABARÁTTAN hófst
með útvarpsumræðunum á mið-
vikudagskvöldið. Emil Jónsson
og Gylfi Þ. Gíslason höfðu al-
gera sérstöðu í umræðunum. Það
hljóta menn að viðurkenna hvar
svo sem þeir standa í flokki.
Emil og Gylfi ræddu eingöngu
um málefnið, brýnasta mál ís-
lcnzks þjóðfélags nú. Hinir
ræðumennirnir tættu hvern ann
an í sig eftir öllurn kúnstarinn-
ar regium. — Línurnar voru
lagðar, og menn sjá af þeim
hvernig kosningabaráttan verð-
ur háð.
HATRIÐ OG AFBRÝÐISEM-
IN rriilli Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins munu
verða að skíðlogandi báli, en
kommúnistar munu leggja alla
áherzlu á, að espa starfshópa
þjóðarinnar hvern gegn öðrum,
spenna upp kröfupólitíkina,
kveikja eld hvar sem því verð-
ur við komið til þess að eyða því
sem eytt verður í hagsmúna-
streytunni og beita lygum og
blekkingum af mikilli ósvífni í
von um, að tortryggnin og öf-
undin milli stéttanna geti fleytt
flokki þeirra gegnum brimið.
ÞAÐ RÍÐUR LÍFI® Á fyrir
þjóðina, að hún geri sér grein
fyrir sjálfum málefnunum, láti
ekki vígorðin leiða sig afvega,
reyni að skoða málin eins og
þau liggja í raun og veru fyrir,
en ekki eins og hægt er að þau
séu eða muni verða eins ok kom-
múnistar lögðu alla áherzlu á
við umræðurnar. —■ Ef þjóðinni
tekst ekki að sjá í gegnum mold
viðrið, þá glatar ltún sjálfstæði
sínu. Þá sannar liún, að hún er
ekki fær um að stjórna sér sjálf.
ALÞÝÐUFLOKKURINN
stendur algerlega einhuga. Hann
hefur ekki í síðast liðin þrjátíu
ár, eða síðan árið 193Q, verið
eins einhuga og hann er nú. ■—
Þetta þarf að koma fram í á-
kveðnu og fórnfúsu starfi allra
þeirra, sem vilja frið í íslenzku
þjóðfélagi, sem vilja leggja hönd
á plóginn til þess að okkur tak-
ist að vernda þau lífskjör, sem
við höfum aflað okkur. Um það
er í raun og veru barizt nú —
og verður barizt næstu mánuði.
IIJÁLMAR R. BÁRÐARSON,
skipaskoðunarstjóri hefur skrif-
að mér eftirfarandi: „Vegna um-
mæla, sunnudag 25. þ.m. send
af ,,togarasjómanni“, vil ég leyfa
mér að fara þess á leit að þú
birtir eftirfarandi í pistli þín-
um: Ég vil þakka „togarasjó-
manni“ grein hans um björgun-
artæki í togur.um, sem birtist í
blaðinu í gær. Skipaskoöun rík-
isins skoðar búnað hvers skips
minnst einu sinni á ári, og er
þá allt fært í það lag, sem lög
ákveða. Auk þessarar árlegu
skoðunar eru framkvæmdar sér
stakar skoðanir þegar tækifæri
gefst. Starfslið skipaskoðunar
ríkisins er of fáliðaö til að fært
sé að skoða hvert skip í lrvert
skipti, sem það kemur í höfn.
Það er því brýn nauðsyn að sjó-
menn sjálfir sýni nokkurn áhuga
á málum þessum.
ur nú yfir Kúbu. Þjóðin er
einhuga, ekki sízt í hatri sínu.
á, Bandarílíjamönnum, sem
um langt slteið veittu Batt-
ista vopn og varning. En
Castro er, eins og allir stjórn-
endur Kúbu, háður BandaríkJ
unum. Þeir eru helztu við-
skiptavinir Kúbu, hafa lagt
stórfé í fyrirtæki þar og
ferðamannatekjur Kúbu eru
að mestu leyti frá bandarísk-
um ferðamönnum, og næst á
eftir sykurútflutningnum,
eru ferðamenn helzta tekju-
lind eyjarinnar.
Hausaveiður-
um á Borneo
að fœkka.
I
s
v
V
s
s
s
s
s
s
ANGT inni í frumskóg-S
um Borneo býr kynflokk-S
ur, scm Marut nefnist.^
Meðlimir hans eru á steinA
aldarstigi, lágvaxnir, veik-)
burða. Þeir eru einn af öi-A
fáunr kynflokkum heims,^
sem enn stunda hausa-^
veiðar.
Vísindamenn vita ekkiii
margt um þetta fólk, senR
býr í fjallahéruðum, erfR
iðum yfirferðar mitt í ein-S
hvcrjum þykkvasta frum-S
skógi jarðarinnar. LítiðS
sem ekkert er vitað um S
trúarbrögð eða siði þessA
ara manna annað en að
S
íS
þeir stunda hausaveiðar
einhverjum trúarlegmn til-:
gangi. Fyrsti maðurinn,^
sem komst á fund þeirra ^
var þ j óðf élagsf ræðlingur-, ^
inn Lloyd Davies við há-ý
skólann í Malaja. Rann-s
sóknir hans sýna, að á ár-S
unum 1953—1957 fækkaðis
meðlimum ættbálksins umS
23 af hundraði og í árslokS
1957 taldi Davies að þeix-S
væru ekki nema 18.000 að^
tölu. Barnsfæðingar cru af?
ar sjaldgæfar og Marut-^
arnir virðast ekki hafa^
neinar áhyggjur út af fram^
tíð ættbálksins. Næring-^
arskortur veldur því að^
Marutarnir eru mjög næm\
ir fyrir öllum sjúkdómum.S
Tveir vísindamenn, semS
um skeið dvöldust hjáS
þcim, komust að raun um,S
að sjúkdónmr veldur þvíS
að svo fá hörn fæðast rneð-S
al þeirra. Konurnar látaS
fóstrum er stutt er liðið á^
Allt)
meðgöngutímann.
bendir því til, að þessir^
frumstæðu hausaveiðarar,^
deyi út innan fárra ára. ^
SAMKVÆMT ÁKVÆÐUM
reglnanna ber skipstjóra skylda
til að hafa bátaæfingar minnst
annan hvern mánuð í fiskiskip-
um. Þegar skipaskoðun ríkisins
hefur orðið vör við, að æfingar
hafa ekki verið haldnar er oft-
ast fundið að því í eftirlitsbók-
inni. Þéssum aðfinnslum er oft-
ast svarað með því, að ekki sé
tími til slíkra æfinga í heima-
höfn, enda áhöfn þá aldrei um
borð í fiskiskipum.
ÉG GET ÞVl fyllilega tekiS
undir hvatningarorð „togarasjó-
Framhald á 10. síðu.