Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991 C 9 —r.....—t'T .t, - íu i rT".1'! > ■'T f' 1 ' 'W"Tr------------------------------------------ ‘'Á r alltaf hægt að ná augnaráði hans í bakaleiðinni eftir Austurstræti. Svo fylgdi hann manni kannski heim,“ segir Ágústa. „Svo voru menntaskólaböllin. Bókabúð Ey- mundsen var auðvitað hluti af okk- ar lífi. Þangað fór maður til að sníkja aur hjá pabba. Búðin var í miðjum bænum og þar hittust allir. Unga fólkið í bænum var þar eins og heima hjá sér. Allir stúdentar voru þar í krít og pabbi rukkaði þá lítið eða ekki. Ég var á skrifstof- unni og skrifaði þetta inn. Seinna fann ég bókina og sá að lítið hafði verið borgað. Þó var einn, sem seinna varð bankastjóri, rukkaður um skuldina og sagði bara: Þetta er fyrnt!“ Á sunnudogum stóð alltaf uppdekkað borð heima á Túngötu, því allir komu við í kaffisopa þegar þeir fóru í göngutúr. Þar flæddi fólk út og inn, fullorðnir og börn. Á þeim árum komu allir öllum við. Ekki á þann hátt að þeir væru að bera á torg sín leyndustu mál. En ef eitthvað bjátaði á hjá einhveijum, þá kom öllum það við.“ Meðan við erum að tala um gömlu Reykjavík segir Ágústa mér að á 75 ára afmæli hennar í fyrra, hafí þau Pétur maður hennar farið að líta til baka, til þeirra daga þeg- ar þau dönsuðu saman á Borginni. Aage Lorange spilaði þar og þekkti alla. Þegar hann sá þau koma inn byijaði hann alltaf á laginu „Night and Day“. Ágústa leitaði uppi heim- ilisfang Aage Lorange og skrifaði á kort þar sem hún þakkaði honum fyrir hlutdeild hans í æsku hennar. Svo fóru þau Pétur á Borgina í síð- degiskaffi og minntust gömlu góðu daganna. Þannig fagnaði hún af- mælinu sínu. List eða listiðn Kunsthaandværkerskolen, sem var til húsa í Kaupmannahöfn í gamla Friðriksspítalanum þar sem Jónas Hallgrímsson dó, var skipt í deildir. Þar var hægt að velja um silfursmíði, keramikgerð, arkitekt- úr, tauþrykk og svo var þar auglýs- ingadeild, sem Ágústa var í. „Mik- ill styrr stóð um deildina þegar ég kom þar, tekist á um tvær stefn- ur,“ segir Ágústa. „Skólastjórinn var alltaf að brýna okkur á því í auglýsingadeildinni að við værum handverksmenn, skyldum ekki ímynda okkur að við værum lista- menn. En forstöðumaður deildar- innar var listamaður. Landflótta gyðingur frá Þýskalandi eins og svo margir á þeim árum. Hann var á allt annarri skoðun. Og átökin voru Thors og Jón Þorláksson að leggja mjög hart að honum áður en hann tók embættið að sér.„Fyrir okkur var það áfall, okkur fannst að hann hefði verið hrifinn frá okkur síðustu árin sem hann lifði. Þijú síðustu árin var hann mjög veikur, með lungnakrabba og bijósklos í baki, og hann var störfum hlaðinn fyrir með bókabúðina og félagsstörf margvísleg svo ekki var á bætandi." Þegar Ágústa var búin að vera í Kaupmannahöfn í 2 ár komu fleiri íslendingar þangað til náms, Hall- dór bróðir hennar Pétursson, Atli Már Árnason, Ásgeir Júlíusson, Jörundur Pálsson og Stefán Jónsson og innrituðust í auglýsingadeildina. Tveir þeir síðarnefndu fóru síðar í nám í arkitektúr. Hin héldu áfram og urðu frumkvöðlarnir í auglýs- ingagerð á íslandi. Sjálf tók hún til við hönnunarvinnu þegar hún kom heim, hafði fyrst aðstöðu í Eymundsonarhúsinu hjá pabba sínum. Hún fór aftur utan og við heimkomuna 1938 settu þau Halld- ór bróðir hennar Pétursson upp auglýsingastofu í húsi langömmu hennar Ágústu Svendsen j Aðal- stræti 12. Ráku þau þessa auglýs- og Ágústu Pétursdóttur í mynda- efnið. En blaðið varð aldrei nema hugmýndin ein. „Við höfðum næg verkefni í fag- inu,“ segir Ágústa. „Á þeim árum varð maður að handteikna hvern staf nema settan texta, enda lærð- um við margvíslegt letur í skólan- um. Ég sá um daginn auglýsingu frá Stálhúsgögnum sem ég kannað- ist við og sá þá að enn er í notkun firmanafnið sem ég gerði fyrir þá 1936 og kostaði 15 krónur. Én gallinn var sá að við kunnum ekk- ert að verðleggja vinnuna eða yfir- leitt að reka auglýsingastofu. Það tilheyrði ekki náminu í skólanum." Ágústa var gift í Danmörku og hafði komið heim 1938 til að fæða elsta son sinn, en fór svö ekki aftur út vegna stn'ðshættunnar. 1944 giftist hún Pétri Snæland, eignaðist börn og var með stórt heimili, svo hún hætti öðrum störfum um hríð. En byijaði aftur þegar strákarnir voru orðnir nógu stórir, eins og hún segir. Þá var einmitt verið að aug- lýsa samkeppni um merki Náttúru- verndarráðs og þótt annað merki yrði fýrir valinu, má sjá að frum- drögin að kortum og veggspjaldi Landverndar má rekja til þessara tillagna. En hún sigraði í sam- keppni um merki Landsvirkjunar. Síðan kveðst hún hafa unnið heima og tekið öðru hveiju þátt í slíkum samkeppnum um merki og frí- merki. I Túngötunni var hún seinni árin búin að koma sér fyrir með vinnu sína í bílskúrnum, sem Hall- dór bróðir hénnar hafði áður fyrir vinnustofu. Árið 1961 byijaði hún á hausa- veiðunum, eins og hún orðar það. „Upphafið voru_ fiðrildaóróar sem ég gerði,“ segir Ágústa. „Við vorum að borða kinnar og strákurinn minn lyfti upp beini úr þorskhausi og sagði: Sjáðu! Ég sá að þetta voru eins og fíðrildavængir. Síðan leiddi það út í kríurnar, sem líka eru unn- ar úr beinum úr þorskhausum. Jú, þetta er ógurlega mikið verk, eink- um að sjóða hausana. Maður kemur með hrúguna heim, sýður og hend- ir svo öllu nema bara 5 litlum fisk- beinum, sem verða að einu fiðrildi og einni kríu, ef vel tekst til. En það er gaman hve víða kríurnar hafa farið. Laxveiðimenn sem koma til landsins sjá fallegar kríur sitja á steini og langar til þess að fá þær Á skrifstofu Landverndar þegar kort og veggmynd Ágústu komu út og henni var þakkað fyrir framlagið. Á myndinni eru frá vinstri: María H. Haraldsdóttir, starfsmaður á skrifstofunni, Ágústa Snæland, Svanhildur Skaftadóttir, framkvæmdastjóri Landverndar og Auður Sveinsdóttir, formaður samtakanna. með sér heim til minja.“ Fjörulall- arnir hennar Ágústu urðu þannig til að hún kom í fjörunni auga á steina með formi sem vöktu upp einhveija mynd. Hún keypti í Bandaríkjunum lítil augu og fór að leita að réttu formunum. Segir að ekki sé auðhlaupið að því að finna réttu steinana. Ékki eru þetta einu frumlegu listiðnaðarmunirnir henn- ar. Til dæmis bjó hún til skemmti- legar brúður. Eina þeirra, sem hún kallaði Selmu, lét hún sitja í stól við gluggann í stofunni þegar þau fóru í sumarbústaðinn, svo fólk sýndist vera í húsinu. „Þá sagði ég einhvern tíma í gamni að nú ætlaði ég að fara að búa til og selja inn- brotsfælur. Mætti til dæmis útbúa brúðurnar eins og lík á gólfinu, svo að innbrotsþjófar legðu á flótta ef þeir kæmu inn. Já, það er rétt, - hugmyndirnar buna út um augun og eyrun á mér. Verra að koma þeim öllum í framkvæmd," segir Ágústa kímin. Dauðinn hluti lífsins Það fer ekki á milli mála að Ágústa Snæland er ekki í vandræð- um með að drepa tímann og kann að njóta hverrar stundar. Þá minnist ég bréfs frá henni fyrir nokkrum árum í tilefni skrifa um dauð- ann og bagalega feimni fólks og hefðbundið bann við að tala um þann óumf- lýjanlega þátt lífsins. Ágústa hafði tekið undir að slík þögn væri skaðleg. Hún er enn sama sinnis, segir dauðann ekki vera annað en hluta lífsins sem hún hræðist ekki. Ég spyr hana hvort hún sé trúuð og eigi örugga von í fram- haldslífi. „Já, ég er trúuð, held að það sé hluti af þessari náttúrutilfinningu minni og ég er sannfærð um framhald lífsins,“ segir hún.„Snemma gerði ég mér ljóst að við gætum ekki bara verið hold og nein. Veit að svo er ekki. Maður þarf að næra sál- ina ekki síður en líkam- ann til þess að komast heill í gegnum lífið. Gam- alt fólk þarf eins og aðrir að hugsa um það sem framundan er. Líka dauð- ann. Tala um og bera saman reynslu okkar af lífinu og hugmyndir um það sem við tekur. Ég er viss um að flest okkar hafa beig af umskiftunum og viljum fá að tala um þau. En komumst ekki upp með það. Það er þaggað niður í manni eða snúið út úr. Ég hræðist ekki dauðann, heldur hver aðdragandinn muni verða fyrir mig og mína.“ Ágústa segist stundum þurfa að búa til ljóð til þess að láta krystallast það sem hún skynjar og er að hugsa um. Og hún sýnir mér ljóð, sem hún gerði nýlega og nefn- ir Til Dauðans. Segir að svona hugsi hún til hans: Ágústa Snæland í stofunni sinni. milli þeirra. Sjálf hefi ég alltaf litið á mig sem listiðnaðarmann. Mér fínnst útilokað að segja: Ég er lista- maður! Það getur maður þó stund- um orðið án þess að ætla sér það eða gera kröfu til þess. Kannski stafar þetta viðhorf af uppeldinu. Pabbi var alltaf að segja okkur að vera ekki með neitt yfirlæti." Þegar við skjótum hér inn í að faðir henn- ar hafi þó verið frammámaður í bænum og síðar borgarstjóri á ár- unum 1935r40, svarar Ágústa um hæl að það hafi hann verið gegn vilja sínum, enda þurftu þeir Ólafur Morgunblaðið/Sverrir ingastofu þar til Halldór fór til framhaldsnáms í Bandaríkjunum 1941. Fyrsta bókakápan sem Ágústa hannaði var á Beijabókina eftir dr. Gunnlaug Claessen og hún útbjó jólabókabækling fyrir Eymund- sonarverslun, sem faðir hennar átti. Einnig var hún fengin til þess að teikna jólakort og jólamerki. Þá vann hún að útlitshönnun á nýju kvennablaði, sem þeir Gunnar Thor- oddsen og Skúli Jóhannsson ætluðu að hleypa af stokkunum og höfðu ráðið Helgu Kalman í textaskrifin Þrjár kríur á skeri. Þessar fínlegu kríur hennar Ágústu, sem hún byijaði að vinna úr þorskhausabeinum fyrir 30 árum, eru víðþekktarj Morgunblaðið/Svemr Fjörusteina ummyndar Agústa af hugvitssemi í skemmtilega og oft hugljúfa „fjörulalla". Lát mig teyga lífið sjáift af ljúfum vörum þínum. Finna þér í faðmi ferðum Ijúka mínum. Heimi ljóss ég heilsa hinn með trega kveð. Rökkurslóð ég rakti rís nú skir af beð. „Annars vildi ég skilja við þetta líf líkt og hún nafna nn'n og lang- amma gerði,“ segir Ágústa og við ljúkum samtalinu á þeim orðum. „Hún vann þar til hún lagðist bana- leguna. Sat í bakherbergi búðar sinnar í Aðalstræti og saumaði slifsi við peysuföt. Yrði hún þreydt hall- aði hún sér í stólnum, lagði skúfínn á skotthúfunni yfir augurt og fékk sér smáblund. Þegar hún dó hafði hún ráðstafað öllu jarðnesku góssi sínu, meira að segja rúminu sem hún dó í.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.