Morgunblaðið - 13.01.1991, Side 21

Morgunblaðið - 13.01.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLAR sunnudágur 13. JANUAR 1991 C 21 Greinin um hina nýju gerð af snjóblásara sem íslenskur bóndi liefur liannað. Tímaritið New Scandinavian Technolog’v: Fjöldi fyrirspurna til íslenskra hugvitsmanna NÝLEGA hófst útgáfa á tímarit- inu New Scandinavian Techno- logy en því er ætlað að vera vett- vangur fyrirtækja, rannsókna- raðila og annara á Norðurlönd- unum sem vilja kynna tækninýj- ungar og vörur sem eru árangur rannsóknar og þróunarvinnu. Þegar hefur borist fjöldi fyrir- spurna til íslenskra hugvits- manna vegna greina í tímaritinu. A Utgefendur tímaritsins eru tæknistofnanir á öllum Norð- urlöndunum auk Norræna Iðnaðar- sjóðsins. Fulltrúi íslands í útgáfu- nefnd er Emil Karlsson kynningar- stjóri Iðntæknistofnunar. Emil segir að blaðinu sé fyrst og fremst dreift til Evrópu en einnig í aðrar heim- sálfur. Þegar hafa fimm tölublöð komið út, upplag blaðsins er nú 30.000 eintök en áætlað er að að verði orðið 50.000 eintök innan tveggja ára. Blaðið er sent endur- gjaldlaust til valins hóps aðila auk þeirra sem óska eftir áskrift. „Árangurinn nú þegar fyrir okk- ur Íslendinga af þátttöku í þessu samstarfi lofar góðu,“ segir Emil. „Eg get nefnt sem dæmi að um 40 fyrirspurnir hafa borist erlendis frá til þeirra sem framleiddu sjávarnasl og einar 14 fyrirspurnir hafa borist bónda einum sem fundið hefur upp nýja gerð af snjóblásara. Raunar hefur sænskt fyrirtæki sýnt því áhuga að selja fyrir hann einka- leyfi á hugmynd ha,ns.“ í máli Emils kemur fram að þeir sem einkum eiga erindi í blaðið eru framleiðendur og aðrir aðilar sem óska eftir samböndum eða sam-' starfi erlendis frá, einkaleyfum eða umboðum. Enginn kostnaður fylgir því að fá umfjöllun í blaðið en ákvarðanir þar að lútandi eru tekn- ar af útgáfunefnd hveiju sinni. Dagblöð í Noregi: Hörð samkeppni á sunnudagsmarkaði STÆRSTU dagblöð Noregs heyja nú harða baráttu um lesendur á sunnudagsmarkaði þar í landi. Útgáfa sunnudagsblaða hafði legið niðri í Noregi um 70 ára skeið þar til s.l. haust er Dagbladet hóf sína útgáfu á sunnudagsblaði. Verdens Gang, stærsta blað Noregs, fylgdi í kjölfarið viku síðar og fyrir skömmu hóf Aftenposten þátt- töku í slagnum. Sunnudagsútgáfa Dagbladet er að verða mikill fjárhagsbaggi á blaðinu og stendur það nú engan veginn undir sér. í upphafi, fyrir fimm mánuðum, var það gefið út í um 170.000 eintökum er er nú fall- ið í um 100.000 eintök og tapið heldur áfram. Verdens Gang gefur sitt sunnudagsblað út í um 200.000 eintökum og er Aftenposten á svip- uðu róli með upplagsfjölda en út- gáfa þess er einkum ætluð áskrif- endum. Nokkur fjöldi héraðsblaða hóf einnig útgáfu sunnudagsblaða í kjölfar hinna stóru en þær útgáfur eru meir og minna reknar með tapi. Eitt þessara, blaða, Trondheimsa- visa hefur þegar lagt niður sína sunnudagsútgáfu. Þrátt fyrir brösuglega byrjun á þessum sunnudagsútgáfum eru út- gefendur enn bjartsýnir á að þessi blöð muni gefa af sér arð þegar fram í sækir. Þeir benda á að í 70 ár hafi Norðmenn ekki vanist því að lesa sunnudagsblöð og víst taki það nokkurn tíma að kenna þeim slíkt. Utvarps sparnaður Kanadíska ríkisútvarpið CBC (Canadian Broadcasting Corporation) hefur sagt upp tíunda hverjum starfsmanni — eða 1.200 alls. Ástæðurnar eru niðurskurður á ríkisútgjöldum og samdráttur í auglýsingum. Ætlunin er að spara 100 milljónir dollara, meðal annars með því að hætta vinnslu á sjón- varpsefni í 10 borgum, takmarka þingfréttir og draga úr útvarps- sendingum stöðvarinnar Radio Canada International til útlanda á stuttbylgju. Rcynsla okkar og Iraust viðsklplasamböiid koma farþegum okkar til góöa Við höfum á að skipa sérþjálfuðu starfsfólki, sem fylgist vel með þeim breytingum er verða í fargjaldaheiminum. Þannig tryggjum við ávallt hagstæðasta verðið fyrir viðskiptavini okk- ar hverju sinni. Viljir þú panta gistingu, bílaleigubíl eða skoðun- arferðir, þá sjá traustir umboðsmenn okkar víðs vegar um heim um að þú fáir örugga fyrsta flokks þjónustu alla leið. SUPERAPEXFARGJÖLD Bókist með 14 daga fyrirvara Glasgow....................23.420,- Amsterdam..................31.670,- London.....................32.170,- Osló.......................32.270,- Luxembourg.................31.670,- Frankfurt..................36.920,- París.....................32.640,- Kaupmadnahöfn.............33.650,- Gautaborg..................33.650,- Stokkhólmur...............39.490,- Helsinki..................42.900,- Tampere....................42.900,- New York..................46.490,- Orlando...................49.470,- PEXFARGJÖLD TIL EVRÖPU Köln......................39.550,- Hannover..................39.550,- Diisseldorf...............39.550,- Berlín....................40.530,- Stuttgart.................42.330,- Munchen...................44.250,- Brussel...................41.730,- Genf......................47.890,- Vín.......................49.210,- Búdapest..................50.990,- Salzburg..................45.860,- Prag......................52.040,- Malaga....................54.700,- Hamborg...................39.550,- Palma.....................49.960,- Tampere...................45.970,- SÉRFARGJÖLD SAS TIL EVRÓPU Zúrich 37.270,- Istanbul 34.990,- Aþena 44.640,- Róm 42.640,- Lissaþon 46.280,- Nice 44.390,- Barcelona 46.290,- pr. gengi 1.1.1991. SÉRFARGJQLD SAS TIL USA Flogið um Kaupmannahöfn New York..................61.890,- Chicago...................61.890,- Seattle...................65.930,- Los Angeles...............76.370,- SÉRFARGJÖLD FLUGLEIÐA OG SAS TIL FJARLJEGARI STAÐA Bangkok...................91.590,- Singapore.................99.110,- Tokyo....................107.620,- Peking...................107.620,- Ríó DeJanero.............110.740,- Sao Paulo................79.900,-’ * Gildir einungis í SAS flugi. Við bjóðum sérlega ódýrar ferðir til Flórída í vetur. Leitið nánari úpplýsinga á skrifstofunni. FLU6PASSARINNAN BANDARÍKJAKNNA Við minnum á hina ódýru flug- passa innan Bandaríkjanna með US AIR, DELTA, AMERICAN AIRLINES o.fl. INNANLANDSFAR6JÖLD VIÐ ALLRA HIEFI Við bendum sérstaklega á hin vinsælu afsláttarfargjöld: Græn Pexfargjöld Rauð Superapexfargjöld Hoppfargjöld Fjölskyldufargjöld Hópferðafargjöld Afsláttarfargjöld fyrir farþega í millilandaflugi Fargjöld fyrir eldri borgara Fargjöld fyrir öryrkja FERDASKRIFSTOFAN FLUGLEIDIR S4S Suðurgötu 7 S.624040

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.