Morgunblaðið - 13.01.1991, Síða 22

Morgunblaðið - 13.01.1991, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991 2é c MFyrir aðdðendur myndar- innar um Batman má geta þess að kvikmyndarisinn Wamer Bros. er með a.m.k. tvær framhaldsmyndir í undirbúningi eftir því sem fréttir herma. Fyrirtækið býður eftir því að leikstjór- inn Tim Burton gefi grænt ljós á framhaldið en málið er að Wamer er einnig með „Beetlejuice 2“ í undirbún- ingi og Burton er líka ómiss- andi í hana svo nú er það bara spurningin hvað leik- stjórinn vill gera næst. .Það er spennandi spuraing fyrir bókhaldara því þijár fyrstu bíómyndimar hans hafa hal- að inn næstum 400 milljón dollara í Bandaríkjunum ein- ■Sá ungi og efnilegi leikari Ethan Hawke (Bekkjar- félagið) fer með aðalhlut- verkið í nýjustu mynd Rand- al Kleisers sem byggir á skáldsögu Jack London og rist í Alaska. MarUyn Monroe lauk aldrei við myndina „Some- thing’s Gotta Give“ undir leikstjóm George Cukors. Hún og Dean Martin höfðu leikið í myndinni í nokkrar vikur þegar Monroe var rek- in. Skömmu seinna lést hún. Filmubútamir frá upptök- unum hafa endmm og sinn- um verið sýndir á hátíðum tengdum Monroe en nú má sjá mikið af þeim í heimilda- myndinni „Marilyn: Some- thing’s Gotta Give“, sem unnin er að hluta uppúr heil- um sex tímum af fílmu frá upptökum myndarinnar, sem fundust nýverið í geymslum , 20th Century Fox! Val Kilmer og Joanne Whalley-Kilmer í myndinni Dreptu mig aftur. Dreptu mig aftur Imyndinni Dreptu mig aftur eða „Kill Me Aga in“ leikur Val Kilmer eink- aspæjara á hraðri nið- urleið sem tekur að sér undarlegt mál fyrir vara- samt kvendi (Joanna Whalley-Kilmer); hún vill að hann drepi sig. En bara í plati. Þetta er söguþráðurinn í enn einni afurðinni frá Sigur- jóni Sighvatssyni og Propaganda Films, einka- spæjarasaga í film noir- stílnum, sem segir frá hvemig viðskipti spæjar- ans við voðakvendið þró- ast og vindur upp á sig. Hún er í slíkri klípu að eina leiðin úr henni er að sviðsetja lát sitt, nema hvað hún segir spæjaran- um fráleitt alla söguna, aðeins að kærastinn henn- ar vilji hana feiga. Myndin verður sýnd í Laugarás- bíói á næstunni. . Leikstjóri er 'John Dahl og er hann einnig hand- ritshöfundur ásamt David W. Warfield. Dreptu mig aftur er ekki fyrsta spæj- aramyndin frá Propag- anda, á undan hafa komið „P.I. Private Investigati- ons“ og sú sem var betri, „The Blue Iguana.“ Leik- aralistinn hefur þó ekki verið jafn gimilegur og í þessari þriðju þar sem hjónakomin Val („Top Gun“, „Willow") og Jo- anne („Scandal“, „Willow”) fara með aðalhlutverkin. Siguijón og félagi hans Steve Golin hjá Propag- anda em framleiðendur ásamt þriðja manni, sem er handritshöfundurinn Warfield. ENN í VIETNAM Hasarleik- stjórinn knái, John Milius, hefur safnað saman ágætis leikaraliði enn eina Víetnam- myndina. Heitirþessi nýj- asta „Flight of the Intrud- er“. Með aðalhlutverkin fara Danny Glover, Willem Dafoe og Brad Johnson, sem einhveijir þekkja kannski úr Spielberg-mynd inni Alltaf („Always") en þessir heið ursmenn leika flugmenn í fremstu víglínu. Framleiðandi er Mace Neu- feld er framleiddi einnig kald- astríðsþrillerinn Leitin að Rauða Glover, Johnson og Dafoe í “Flight of the Intruder”. október. Með aðalkvenhlut- verkið fer Rosanna Arquette. Þær ætla að verða langlífar Víetnam- myndirnar vestra. Fjöldi þeirra er orðinn óskaplegur og þessi hefur varla mikið nýtt fram að færa; ef Milius víkur ekki af sporinu býður myndin uppá sprengingar og has- ar afþreyingarinnar en varla merki- legar ígrundanir um stríðið og menn- ina sem það háðu. Myndin er framsýnd vestra í þessum mánuði en hana átti að frumsýna síðasta sumar. Lengi lifir í gömlum glæðum Bíómyndimar úr seinni heimsstyijöldinni era langt í frá úreltar ef marka má Hollywood því nú er ein stór og mikil í framleiðslu þar vestra með Michael Douglas og Melanie Griffith í aðalhlutverkunum. Myndin heitir „Shining Through" og er leikstýrt af David Seltzer. Aðrir leikar- ar í myndinni eru Liam Neeson og John Gielgud. Sagan er af gamla skólan- um og segir frá ástum og njósnum í Þýskalandi nasis- mans. Griffith leikur konu sem kynnist meistaranjósn- aranum Douglas en þegar hann vill ekki meira með h'ana hafa ákveður hún að gerast njósnari sjálf og verður bamfóstra hjá hátt- settum foringja í þýska hernum (Neeson), sem vinnur við atómsprengjuna. Það líður ekki á löngu þar til Griffith verður mik- ilvægasti njósnari seinni heimsstyijaldarinnar og bjargar nokkrum gyðingum í leiðinni. Debra Winger átti að leika hlutverkið hennar en þá var myndin í bígerð hjá Columbia-fyrirtækinu. Seinna tók 20th Century Fox við myndinni og breytti hlutverkaskipaninni. Mynd- in var tekin í London og í Berlín. Michael Douglas; meistar- anjósnari. KVIKMYNDIR /Styrkjaþœr trúna á framhaldslífib? Draugar í banastuði Það er segin saga í Hollywood að ef einhver fær góða hugmynd, fá hana allir. Myndir um sama efni vilja gjarna koma úr verksmiðjunni í kippum. Þannig kemur ekki aðeins ein mynd um tvíbura sama árið heldur fjórar eða fimm. Þannig kemur ekki aðeins ein líkamsskiptingamynd heldur fimm eða sex. Og þannig kemur ekki Draugamyndir eða mynd- ir sem fjalla um fram- haldslíf vora mest einkenn- andí fyrir nýliðið ár. Flestar þeirra hafa þegar verið sýnd- mm^mmmmmmm ar hér á landi, sum- ar era enn í fram- leiðslu. Tvær þeirra hafa notið eftir Amold Indriðosor mikilla vin- sælda bæði hér og erlendis, Á mörkum lífs og dauða og Draugar, og gera það að verkum að áhuginn á þessari tegund mynda vex enn á meðal framleiðenda í Holly- Wood. A.m.k. fjórar myndir með draugalegu ívafi eru nú í framleiðslu vestra: Hús- draugurinn („Ghost in the House“); Draugalestin („Ghost Train“); Svefnvagn- inn („The Sleeping Car“) og Upprisni hermaðurinn („The Resurrected Soldier"). Draugamyndir og myndir um framhaldslífið era langt í frá nýtt fyrirbæri. „Heaven Can Wait“ er kannski þekkt- asta afturgöngumyndin í seinni tíð. Af öðrum má nefna „A Matter of Life and Death“ eða „Stairway to Heaven“ með David Niven og „A Guy Named Joe“, sem Steven Spielberg reyndar endurgerði semAlltaf(„Álwa- ys“) með Richard Dreyfuss í hlutverki flugmanns sem snýr aftur til jarðar eftir dauða sinn og fylgist með því hvernig unnustu hans reiðir af. Alltaf var ein af a.m.k. fimm afturgöngumyndum sem sýndar voru hér á landi á síðasta ári. Hinar voru Hjartaskipti („Heart Conditi- on“), ágæt grínspennumynd með Denzel Washington (draugurinn) og Bob Hoskins sem fengið hafði hjartað úr Denzel grætt í sig; Pabbi draugur („Ghost Dad“), sér- lega vitleysisleg grínmynd í leikstjórn Sidney Poitiers þar sem Bill Cosby lést, varð draugur og lifnaöi við undir lokin en henni hefur vegnað verst af draugamyndunum; Á mörkum lífs og dauða („Flatliners"), vísindaþriller um hóp læknanema sem ger- ir tilraunir á sjálfum sér til að kanna dauðann og loks Draugar, sem fullkomnaði formúluna í rómantískri gamanspennumynd undir léikstjórn Jerry Zuckers. „Ég býst við að áhorf- endum eigi alltaf eftir að líkja við svona lagað æfintýri," sagði hann nýlega og hittir senni- lega naglann á höfuð- ið. „Flestir vilja halda að lífið eftir dauðann sé björt og fögur fant- asía og ég held aðmynd eins og Draugar styrki þá trú.“ Aðdráttaraflið sem draugamyndirnar hafa byggst í og með á n.k. hughreystingu og sjálf- sagt styrkja þæt trúna á framhaldslífið á sinn ein- feldningslega hátt; bjartir ljósgeislar og fiðluleikur virð- ist nægja. Þetta eru hreinar afþreyingarmyndir en þær gefa að minnsta kosti mögu- leika á framhaldslífi. og ýta Richðrd Dreyfuss, efri mynd, í myndinni Alltaf; framhaldslífið býður upp á ótvírætt aðdráttarafl. Á mörkum lífs og dauða; tilraunir með endalokin? sjálfsagt undir fyrirfram mótaðar skoðanir þeirra, sem á annað bprð trúa. En það er jafnljóst að enn á eftir að koma mynd um framhaldslíf- ið, sem snertir við efasemdarmanninum. IBIO Það verður margt spennandi að hafa í bíóunum í Reykjavík á komandi mánuðum ef marka má allar þær at- hyglisverðu framsýn- ingar sem boðið var uppá í Bandaríkjunum um jól- in. Myndimar að vestan koma orðið nokkurra mánaðá gamlar hingað þótt bið geti verið á ein- staka stórmynd. Grín- myndimar Aleinn heima, sem sló sýningarmetið um jólin vestra, og Þrír menn og líti! dama hafa þegar-verið frumsýndar hér og nú er bara að bíða eftir titlum eins og Guðfaðirinn III, „Dances With Wolves“ með Kevin Costner, Alice eftir Wo- ody Allen, Bálköstur hé- gómans eftir Brian De Palma, „The Rookie" eftir og með Clint East- wood, Græna kortið eftir PeterWeir, „Kindergart- en Cop“ með Schwarz1 enegger, „Awakenings" með Robin Williams og Robert De Níro, „The Sheltering Sky“ eftir Bernardo Bertolucci, „Come See the Para- dise“ eftir Alan Parker, Rússlandsdeildin með Sean Connery og Mic- helle Pfeiffer, „The Fi- eld“ eftir Jím Sheridan (Vinstri fóturinnk^Ha- vana með Robert Red- ford, „Edward Scissor- hands“ eftir Tim Burton og loks Eymd eftir Rob Reiner.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.