Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 24
24 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991 LEIKLIST/i/^r á ab kenna leiklist í skólum? Leiklistin sem hluti afmenntastefnu eftir Hlín Agnorsdóttur MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur nýlega sent frá sér plagg, þar sem fram koma hugmyndir um menntastefnu í íslenska skóla- kerfinu fram til aldamóta. I henni er m.a. gert ráð fyrir að verk- og listgreinakennsla i grunnskólanum aukist að mun og verði 'A hluti af allri námsskránni. Þessar greinar hafa löngum átt undir högg að sækja i skólakerfinu, þar eð nægilegur skilningur hefur ekki verið fyrir hendi hjá yfirmönnum skólamála á gildi þeirra fyrir áframhaldandi þroska og námsgetu hvers einstaklings. Þessi mikilvægi þáttur í skóla- og uppeldismálum okkar hefur verið stórlega vanræktur. Okkur hefur skort vilja, fjármagn og fólk til að hrinda raunverulegri list- og verkgreina kennslu í framkvæmd með einhverjum glæsibrag. Allir þeir sem kynnst hafa iðk- un listgreina á borð við tón- list, myndlist og leiklist vita hvers hún krefst af viðkomandi einstakl- ingi, ef einhver veruleg rækt er við hana lögð og þá jafnframt þeirri gleði, sem hafa má áf henni. Einstakl- . ingurinn fær út- rás fyrir skap- andi tjáningu og hugsun, hann verður sjálfur þátttakandi í ferli sem færir hon- um aukið sjálfstraust og ómetanr lega lífsfyllihgu. Við endurtekn- ingu skapandi æfingar eflist sjálfsagi, einbeiting og úthald, sem kemur mörgum einstaklingi síðar að góðum notum, þegar fengist er við úrlausnir erfiðari og flóknari viðfangsefna og þá ekki aðeins innan viðkomandi list- greinar, heldur í öllu öðru námi. Skólakerfi okkar hefur lagt ofuráherslu á bóknám,' en ekki hugað nógu vel að hinum skap- andi þætti. Blindur er bóklaus maður, segir máltækið, en hins ber þó að gæta, að stundum hefur einhliða bóknámsstaglið drepið sjálfsprottinn lestraráhuga nem- andans. Best af öllu væri ef heil- brigð og fijó víxlverkun hlytist milli bóknáms og hinna skapandi námsgreina. Bóknámið eitt og sér dugir flestum skammt, ef ekki fylgir getan til að tjá sig munn- lega, skriflega eða með öðrum hætti um innihald þess, sem num- ið er af bók. Af öllum listgreinunum skipar leiklistin lægstu virðingarstöðuna innan skólakerfísins. Ein af ástæðunum er ef til vill sú að leik- listin er list augnabjiksins, hún er að vissu leyti óhöndlanleg, er aðeins til í huga þess sem sem skapar og hins, sem tekur við. Hún er lifandi tjáning tilfinninga, hugsana, kennda og orða, hún fæðist og deyr í líkamlegri tján- ingu hvers og eins. Hún verður oft til úr engu að því er virðist, en segir oft allt og ekkert, hún bara er. Það er erfitt að mæla hana, taka próf í henni, gera vís- indlega úttekt á innihaldi hennar. Þessvegna á hún ef til vill erfítt uppdráttar innan skólakerfisins. Skólamönnum finnst hún ekki nógu merkileg. I Kennaraháskóla íslands hefur um árabil verið byggð upp kennsla og þjálfun væntanlegra tón- og myndmenntakennara, en öll kennsla í leiklist hefur verið af skornum skammti og handahófs- kennd. Þannig hafa kennaranem- ar á undanförnum 10-20 árum fengið að kynnast ýmsum leið- beinendum og námskeiðum í því sem kallað er „leikræn tjáning", en ‘ í raun aldrei fengið nokkra undirstöðuþekkingu í leikiist, sem er þó forsenda þess að hin svokall- aða „leikræna tjáning“ hafí eitt- hvert gildi fyrir kennaranemann. Það er enn hlálegra til þess að hugsa að leiklist skuli ekki vera skyldunámsgrein í jafn mikilvægu námi og Kennaraháskóli býður upp á, þar sem allt veltur á hæfni kennarans til að tjá sjálfan sig og hrinda aðferðum sínum í kennslunni í framkvæmd með nemendum sínum. Enn dapur- legra er þó til þess að hugsa að kennsla í framburði og framsögn móðunnálsins sé ekki á náms- skránni. Yfir 90% af starfi kenn- arans felst þó í munnlegri tján- ingu. Kennarinn er sá sem skipu- leggur nán* og starf nemenda sinna, miðlar og matreiðir þekk- ingu ofan í þá, virkjar þá og hvet- ur í átökunum við námsgréinarn- ar. Það má með sanni líkja starfi kennarans við starf leikstjórans í leikhúsinu. Að vísu er tilgangur- inn og markmiðin mismunandi - leikstjórinn stefnir oftast að list- rænum ár- angri með sínum leik- hópi á meðan kennarinn leitast við að uppfylla upp- eldis- og- kennslufræð- ileg markmið sem honum eru sett í námsskrá. Og hér kom- um við ein- mitt að þeim stað þar sem menntun og starf leikar- ans og kenn- arans skarast hvað mest. I áður- nefndu plaggi um mennta- stefnu er gert ráð fyrir að kennarar beiti í aukn- um mæli aðferðum leiklistar í kennslu og kenni m.a. leiklist. Á Norðurlöndum, Bretlandseyjum og í Bandaríkjunum og jafnvel víðar hefur verið til sérstakt nám á háskólastigi (Drama in Educat- ion) fyrir kennara .allra aldurs- hópa, sem vilja sérhæfa sig í að nota leiklist til kennslu, bæði sem aðferð og tækni, en líka sem skap- andi listtjáningu, listarinnar vegna. Hér á landi er engin slík námsbraut til, þótt oft hafi verið rætt um að koma henni á fót, m.a. í tengslum við námið í Leik- listarskóla Islands. Þetta hefur m.a. leitt til þess að bæði leikarar og kennarar hafa tekið að sér leik- listarkennslu víðsvegar um þjóð- félagið, bæði í skólum og stofnun- um, án þess að hafa fengið nokkra leiðsögn við kennsluna’ aðra en þá sem lýtur að þeirra sérlega fagi. Markmiðin með hinni al- mennu leiklistarkennslu eru hvergi nægilega vel skilgreind og meðan svo er heldur leiklistin áfram að skipa lágan sess innan menntakerfisins. Að öllu þessu þarf að hyggja, áður en lagt er af stað með nýja menntastefnu, þar sem auka á þátt leiklistar. LEIKLISTARNAMSKEIÐ Spuni, leikur, slökun, radd- og talþjálfun. Námskeiðið hefst 19. janúar. Kennt verður laugar- daga og sunnudaga tvo tíma í senn. Leiðbeinendur Olöf Sverrisdóttir og Alda Arnardóttir leikkonur. Nánari upplýsingar og skráning í símum 67941 2 og 676707. KARATEDEILD FJOLNIS Ný byrjendanámskeið hafin. Innritun í síma 672085 og í íþróttahúsi Fjölnis, Viðarhöfða 4. Þjálfarar: Eva Gabrielson 1. dan. Robert Howerth 3. dan. Gojukai Karate Sýning á gojukai karate í íþróttahúsi Fjölnis sunnudaginn 13. janúar kl. 16.00. ALLIR VELKOMNIR. í Kaupmannahöf n FÆST í BLAOASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI „Kjarvalssafn komst á laggirnar með stórgjöf listamannsins, en... MYNDLIST/Ilvaö þarfab breytast í listheiminum ? Fram til aldamóta Allar helstu völur landsins hafa nú þegar sagt landsmönnum fyr- ir um hvað muni gerast á nýbyrjuðu ári, og enn aðrir spákarlar hafa lagt línurnar um alþjóðamálin, og því er til lítils að bæta í dallinn, sem geymir allar þessar forspár. En það má líta lengra fram í tímann og benda á ýmislegt sem þarf að lagfæra, til þess að myndlistarlífið á íslandi nái á næsta áratug að dafna og efl- ast, og megni að hrífa fleiri landsmenn og gera þá hreykna af myndlist samtímans. Þetta er nauðsynlegt til að tryggja sjálf- stætt menningarlíf hér á landi á komandi umbrotatímum, jafn- fr-amt því sem myndlistin er mun öflugra tæki til að auka hróður landans út á við en einstaka fótboltastrákar eða formúlufegurðar- dísir geta nokkru sinni orðið. eftir Eirík Þorlóksson Algengast er að formála af þessu tagi fylgi langur listi af kröfugerðum á hendur fjárveit- ingavaldinu; þar með væri gefið í skyn, að ef forsjáin væri alger, þá hyrfu öll vand- amái eins og dögg fyrir sólu, og myndlistin mundi blómstra sem aldrei fyrr. Slík einföldun er ós- amboðin hugs- andi fólki, því hvergi í samtím- anum er að finna beint samhengi milli peninga og blómstrandi menningar. Hið opinbera hefur vissulega hlutverki að gegna,,og verður það rætt síðar. En það þurfa fleiri þættir að koma til, s.s. hvað varðar hlutverk listasafna og sýningarstaða, viðhorf myndlistar- • manna til listunnenda, almenna listmenntun í þjóðfélaginu, og við- horf atvinnuiífsins tii myndlistar. Er rétt að líta nánar á nokkra af þessum þáttum. Sýningarstaðir fyrir myndlist eru ef til vill nægilega margir á höfuðborgarsvæðinu, en þeim þarf að fjölga út um landið; og þeir sem fyrir eru geta tæpast talist nægi- lega öflugir. Flestir þeirra eru ein- ungis húsnæði, sem listamenn geta fengið leigt undir sýningar, en slíkt pakkhúshlutverk dugir ekki til lengdar. Fyrir aldamót þurfa íslensk gallerí að eflast að metnaði, og taka að sér svipað hlutverk og þekkt listhús erlendis gegna við kynningu einstakra list- amanna. Þau þurfa að styðja vel við bakið á listafólkinu, og jafnvel gera í því skyni sölu- og vinnusam- iuga við þá sem þau kjósa að veðja á, eins og þekkist erlendis; þar með væri ákveðin ábyrgð á fram- gangi myndlistarinnar komin á herðar listhúsanna, sem ekki er þar í dag. Listasöfn hér á landi þurfa að eflast til muna frá því sem nú er. Þó að þar hafi átt sér stað nokkur vakning síðustu ár, eru þau enn fyrst og fremst geymslu- og sýn- ingarstaðir; fræðileg störf, varð- veisla listmuna og heimildaskrán- ing hafa setið á hakanum. Þó menn finni ef til vill ekki mikið fyrir því nú, verður þetta aðgæslu- leysi í framtíðinni talið meiri hátt- ar menningarslys, ef ekki verður brugðist skjótt við, vegna þess að heimildir glatast á hveiju ári. Sem dæmi um það sem á vantar má nefna dæmi af handahófi: Safn Ásgríms Jónssonar hefur verið í vörslu ríkisins um áratuga skeið; væri ekki eðlilegt að heildarskrá yfir verk listamannsins væri komin út á þess vegum? Kjarvalssafn komst á laggirnar fyrir um tveim- ur áratugum með gjöf listamanns- ins til Reykjavíkurborgar; hefði ekki verið sjálfsagt að eitt fyrsta verk þess safns hefði verið að birta a.m.k. áfangaskýrslu um þau lista- verk sem fólust í gjöfínni? — Þann- ig liggja mikilvæg verkefni óunnin víða á akri íslenskrar listasögu, og það hlýtur að verða eitt af hlut- verkum safnanna að takast á við þau, eða gera öðrum það kleift. Listamenn þurfa að temja sér betri siði; til að efla áhuga á mynd- list enn frekar og til að aðstoða allan almenning við að njóta þess sem þeir hafa skapað, þurfa lista- menn að tileinka sér nokkuð sem íslendingar hreykja sér oft af að kunna ekki, þ.e. kurteisi. Það gengur ekki til lengdar að fleygja mislélegum fjölrituðum blöðum í sýningargesti og telja að þar með sé upplýsingaskyldu listamanna fullnægt. Listamenn eiga að sjá sóma sinn í að gefa listunnendum nokkrar heimildir um feril sinn, listsköpun og listhugsun; eins kon- ar vegakort um víddir verka sinna. Að birta aðeins einfalda nafnáskrá og segja að listin eigi að skýra sig sjálf er eins og að segja fólki að læra erlend tungumál án orða- bóka. Slíkt vekur engann áhuga. Þessu þurfa listamenn að breyta til að kynna sig og list sína betur, og hér hafa samtök listamanna ef til vill hlutverki að gegna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.