Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 33
toORGUKBLÁÐID VELVAKAmVmMM il: ‘j'aNöar' 'i'99'1
T5 38
Tompa á barnaballi á Húsavík ásamt Michael og tveimur barna-
börnum hans.
á Hólsfjöllum og þurfti nú að taka
af honum tvær tær. Þetta gerði lækn-
irinn í þessum vistarverum og það
heppnaðist allt vel. Slíkt þætti ekki
boðlegt nú til dags. Eftir ársdvöl á
Þórshöfn keypti ég hálfbyggt hus,
sem á hvíldu 2.000 kr. í sparisjóðn-
um, hitt borgaði ég og fullgerði hú-
sið.“
— Skuldir hafa ekki íþyngt þér
um dagana?
„Nei, ég hefi ávallt hagað fjármál-
um mínum eftir getu og ekki lifað
um efni fram eins og mér virðast
ýmsir nú gera með þessum kortum
og með því að framkvæma á stund-
inni það sem þeim dettur í hug án
þess að athuga fjárhagsliðina og
getu.“
— Hvemig líður dagurinn?
„Eg hefi nóg að gera, þá ég er
frískur. Ég les dálítið og svo fer ég
niður á verkstæði mitt, þar sem ég
fæst við útskurð en útskurður hefur
verið mitt tómstundastarf frá því að
ég var 14 ára. Ég hefi alltaf verið
mikið fyrir smíðar þó lífsstarfíð væri
annað. Ég fékk áhuga fyrir út-
skurði, þegar ég sá hann hjá Sigurði
í Skógum og Helga á Hafursstöðum.
En þeir lærðu þetta hjá móður þinni,
(Lovísu Sigurðardóttur) sem þá var
læknisfrú á Kópaskeri, svo segja má
að hún hafi flutt þessa listgrein inn
í héraðið. Svo þegar konan mín veikt-
ist og þurfti að fara á Kristneshæli,
dvaldi ég um tíma á Akureyri og
fékk tilsögn hjá Geir Þormar út-
skurðarmeistara á Akureyri."
— Það er mikið til eftir þig.
„Já, það eru margir hlutirnir sem
ég hefi gert og þeir eru komnir vítt
og breitt um landið og til útlanda.
Þetta hefur aldrei verið mín atvinna,
heldur tómstundavinna, sem veitir
mér mikla ánægju nú í ellinni og
styttir mér stundimar, ekki síst síðan
ég missti konuna. Fyrst eftir að ég
kom til Húsavíkur fengu kvenfélögin
mig til að halda námskeið í útskurði
og fór ég víða og kynntist góðu fólki.
Ég vona bara að ég haldi hand-
styrknum sem lengst," segir Sigurð-
ur að lokum þegar þessu spjalli lauk
Morgunbiaðið/Silli
Sigurður Jakobsson við útskurð
hjá hefilbekknum.
Þetta hefur aldrei verið
mín atvinna, heldur tóm-
stundavinna, sem veitir
mér mikla ánægju nú í
ellinni og styttir mér
stundirnar, ekki síst
síðan ég missti konuna.
við hefilbekkinn hans á neðri hæð
Miðgarðs 1 á Húsavík.
í fyrsta skipti á
barnaball, sjötug
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
kem á barnaball með syni mínum sem
er 52ja ára gamall, en bamabömin
eru á barnaballsaldri, og með þeim
er ég hér,“ segir sjötug ungversk
móðir, Tompa Sándomé, sem nú er
stödd á Húsavík hjá syni sínum,
Michael, sem þar hefur búið í 34 ár
og unir sér vel.
Mikki Ungveiji er hann ávallt kall-
aður, en með íslenskum borgararétti
fékk hann nafnið Michael Þórðarson
og er giftur Aðalbjörgu Birgisdóttur.
Hafa þau eignast 3 börn og 4 barna-
börn og ávallt búið á Húsavík.
Michael kom með ungversku
flóttamönnunum til landsins 1956
og sámlagaðist fljótt íslenskum stað-
háttum, lærði málið og hefur fengist
við hin ýmsu störf og er harðdugleg-
ur til vinnu. „Það var ástandið í
landinu, sem gerði það að ég flúði
land, þó ég hafi ávallt sterkar taugar
til míns eldra föðurlands og hafi
heimsótt það oft nú síðustu árin. Ég
hefi oft viljað fá móður mína í heim-
sókn, en það er nú í fyrsta skipti að
hún lætur af því verða og mun dvelja
hér í minnst tvo mánuði. Hún er
orðin ekkja, en foreídrar mínir
bjuggu í smábæ, sem heitir Ónod og
fengust þar við búskap sem fór
minnfcandi eftir að þau komust á
eftirlaun.
Þetta er fyrsta flugferð móður
minnar í fyrsta skipti sem hún kem-
ur á barnaball, en slíkar samkomur
eru ekki haldnar í Ungverjalandi.
Ég fór nú út fyrir jólin til að sækja
hana og henni fannst gott að fljúga.
Síðan komum við akandi frá
Keflavíkurflugvelli, og þá leist henni
svona miður vel á allar þessar beygj-
ur, sem eru fleiri á íslenskum vegum
en ungverskum, og svo fannst henni
nóg um rokið og renninginn sem við
mættum í Hvalfirði. Annars líst henni
vel á land og.þjóð við þau litlu kynni
sem hún hefur að því haft.
Ég geri ráð fyrir að fylgja henni
aftur heim, en hún er glöð yfir því
að hafa séð hve vel ég bý og hjá
I góðu fólki, og er ánægð yfir að hafa
lagt í þetta langa ferðalag, sem hún
var í upphafi treg til,“ segir Mikki
Ungverji að lokum.
Fréttaritari.
Nú duga engar blekkingar lengur
Kæri Velvakandi.
Mig langar að biðja þig fyrir
nokkrar línur sem oft áður,
með þökk fyrir aðstoð af þessu tagi
oftáður.
Ég heyrði auglýst eftir sjálfboða-
liðum, til eflingar friði í heiminum,
mér er það lítt skiljanlegt hvernig
það má gerast úr því sem komið er,
þegar Sameinuðu þjóðirnar eru bún-
ar að samþykkja að heyja stríð við
íraka án nokkurra skilyrða. Friður
verður aldrei saminn með stríði og
ógnunum, heldur samningum.
Víst er það svo að það er nauðsyn-
legt að stöðva landvinningastefnu
íraka, en þar kemur fleira til, því
það eru margir, sem standa í land-
vinningum og auðvitað þarf að
stöðva það allt, ef sú hugsun á að
vera trúverðug, og þar dugir enginn
tvlskinnungur.
Við vitum að um alla Afríku, víða
um Suður-Ameríku og Rússland,
einnig á hernumdum svæðum gyð-
inga í Gasa og Jördan, standa land-
vinningastríð, og þúsundir manna,
ungra og gamalla, alsaklausra, eru
drepnir daglega án þess að Samein-
uðu þjóðimar geri nokkuð til að
stemma stigu við þeirri þróun. Enda
eru stórveldin, Rússland, Frakkland,
England, Bandaríkin og aðrir þeir,
sem hafa möguleika að beita neitun-
arvaldi, reiðubúnir að nota sér þá
aðstöðu sína hvenær sem er, og á
meðan málin standa þannig, sé ég
engan möguleika til að stöðva þetta
bijálæði.
En ef einhver hugsanleg leið er
til, þá er ekki seinna vænna að hefj-
ast handa, og þá heiti ég á alla þá,
sem mega sín nokkurs, að taka sam-
an höndum og gera eitthvað raun-
hæft og þá dugar ekkert hálfkák,
það dugar ekki að stöðva íraka eina,
það verður að stöðva þá alla, og
engum má haldast uppi með að troða
á lýðrétti nokkurs annars, því með
ofbeldi verður aldrei unninn friður.
Öll veröldin stendur á öndinni yfir
þeim áformum, sem Bandaríkin hafa
hvað eftir annað og ítrekað yfirlýst
að þeir munu hrinda í framkvæmd,
ef Irakar fara ekki skilyrðislaust frá
Kúvæt, en ljá þó alls ekki máls á
þeirri sjálfsögðu kröfu, ekki bara
Iraka, heidur allra vitiborinna manna
um heim allan, að einnig fari ísraels-
menn skilyrðislaust frá herteknu
svæðunum og það án nokkurrar taf-'
ar og þeir hætti þar með að myrða
konur og böm svo sem þeir hafa
gert að undanförnu.
Einnig legg ég til að við veitum
þeim þjóðum, sem standa í borgara-
stríði og öðrum átökum enga aðstoð
fyrr en þær hafa útkljáð sín mál, og
þá án tillits til hvað þjóðin heitir eða
hvar hún stendur í pólitík.
Kannski er þessi tillaga of seint
til komin, því ef til styijaldar kemur,
þá er ekki víst að við þurfum að
hafa svo miklar áhyggjur af fram-
tíðinni, hún verður engin eftir að
kjamavopnum verður beitt í þessum
stríðandi löndum. Það verður gjö-
reyðing um allan heim. Hundruð
ferkílómetra verða eyðingunni að
bráð strax í fyrstu atrennu, oggeisla-
virkt ryk fer upp í háloftin og berst
með loftstraumum umhverfis alla
jörðina og veldur sjúkdómum og
dauða um allan heim.
Jafnvel þó ekki yrði um kjarna-
sprengjur að ræða nema á tiltölulega
litlu svæði til að byija með, þá yrði
að öllum líkindum svarað með fleiri
kjarnasprengjum á móti, og þá sjá
allir hvaða afleiðingar það múndi
hafa.
Ef eitthvað á að gerast, sem að
gagni mætti koma, þá verður það
að vera í fullri alvöru og af fullri
hreinskilni, því nú duga engar blekk-
ingar lengur né lygar, það hefur
verið, stundað allt of lengi, og menn
trúa því ekki lengur.
Jón Þ. Haraldsson
DAGSKINNA
LEÐURIÐJUNNAR
inniheldurdagbók, minnisblöð,
símanúmerablöð og ýmsar upplýs-
ingar. A-5-vinnubókarblöð
Fæst hjá Leðuriðju Atson,
Hverfisgötu 52,
Bókahöllinni Glæsibæ,
Bókabúð Máls og menningar
Síðumúla og Laugavegi 18.
Sendum í póstkröfu
Leðuriðjan Atson,
Hverfisgötu 52, s. 91-21458.
mn - mu
Tvíbreið efni ó kr. 200,-,
300,- og 400,- pr. meter
Oúmii- og herrabúóin,
Laugavegi 55
STÓLPA
DAGSKRÁ:
• Nýja gluggakerfið og handbókin.
• Nýjungar í STÓLPA.
• Farið yfir öll kerfin.
• Ársuppgjör og afstemmingar.
• STÓLPI sem stjórntæki.
• STÓLPI keyrir 0S/2 og Windows.
• Framtlðarpróun.
NÁMSKEIDIÐ VERÐUR HALDIÐ:
Reykjavfk 15. janúar kl. 9-16:30
Akureyri 17. janúar kl. 9-17:00
Húsavlk 18. janúar kl. 13-17:00
Reykjavík 22. janúar kl. 9-16:30
Egilsstaðir 23. janúar kl. 13-18:00
Borgarnes 29. janúar kl. 13-'18:00
Reykjavfk 5. febrúar kl. 9-16:30
Sauðárkrókur 8. febrúar kl. 13-17:00
Þátttaka er án endurgjalds fyrir notendur með viðhalds- og
þjónustusamning. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til eftirtalinna
■ sölu- og þjónustuaðila:
Borgarnes: Eyjólfur Torfi Geirsson S. 93-71117
Ólafsvík: Viðskiptaþjónustan sf. S. 93-61490
Sauðárkrókur: Stuðull sf. S. 95-36676
Akureyri: Tölvuvinnslan J.J. S. 96-22794
Húsavlk: Radfóstofa SBG. S. 96-41453
Egilsstaðir: Viöskiptaþj. Traust S. 97-11095
Höfn: Ásgeir Ágústsson S. 97-81779
Bkerfisþróun hf.
SKEIFUNNI 17, 108 REYKJAVÍK
Símar: 68 80 55 - 68 74 66