Morgunblaðið - 17.01.1991, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 17.01.1991, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991 __i______□______1-______ . _____Lj_■ . ■ . ■ — Ekki sam- komulag um kjördag TILLAGA Steingríms Hermanns- sonar forsætisráðherra um að kjördagur verði ákveðinn 11. maí í vor hefur ekki verið samþykkt og er enn til umfjöllunar hjá þing- flokkunum. „Ég er búinn að halda einn fund um þetta efni með for- mönnum þingflokkanna og mun halda annan nú á næstunni," sagði forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. Steingrímur sagði að fram hefðu komið skoðanir i þá veru að kjósa ætti fyrr, þar sem kjörtímabilinu lýkur hinn 25. apríl næstkomandi. „Ef kosningunum verður flýtt þarf að ijúfa þing fyrr en áætlað er og þá er ég hræddur um að það verði ansi mörg mál sem ekki tekst að afgreiða," sagði forsætisráðherra, en stefnt er að því að ljúka þinginu um miðjan marsmánuð. Steingrímur sagði að ef menn stæðu fast á því að kjósa yrði áður en kjörtímabilinu lyki formlega yrði að færa kosning- arnar fram til 20. apríl, sem hann taldi vera æði snemmt. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf- stæðisflokksins sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann væri þeirrar skoðunar að stjórnarskráin mælti svo fyrir að kjörtímabilið væri fjögur ár og því yrði að kjósa innan þeirra tímamarka. „Það er einfald- lega vegna þessa ákvæðis í stjórnar- skránni sem ég tel að það eigi að kjósa þann 20. apríl en ekki 11. maí, en alls ekki vegna þess að ég telji þann dag á nokkurn hátt heppi- legri kjördag," sagði Þorsteinn. r----------7i 166 móttöku- diskar bættust við í fyrra ÁRIÐ 1990 veitti samgöngu- ráðuneytið 166 leyfi fyrir jarð- stöðvum, eða mótttökudiskum fyrir eríendar sjónvarpsstöðv- ar. Árið 1989 voru 79 slík leyfi veitt þannig að fjölgunin á milli ára er mikil. Lang stærstur hluti þeirra sem fengu leyfi fyrir móttökudiskum á síðsta ári eru einstaklingar. Tólf fyrirtæki eða húsfélög fengu leyfi en 154 einstaklingar. Árið 1989 voru það 66 einstaklingar sem settu upp hjá sér móttökudiska en 13 fyrirtæki og húsfélög. Einstaklingar greiða 5.000 krónur fyrir leyfið og gildir það í tíu ár en fyriræki og húsfélög greiða 6.000 fyrir samskonar leyfi. Borgarráð: Gjaldskylda í stöðu- mæla stytt BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu Þróunarfélags Reykjavíkur um að gjaldskylda stöðumæla verði styttur um eina klukkustund og verði fram- vegis frá kl. 10 til kl. 16 á al- mennum verslunartíma fram til næstu áramóta. Jafnframt var lögð fram tillaga frá félaginu um að Austurstræti verði opnað fyrir bílaumferð í 6 mánuði frá febrúar næstkomandi. í greinargerð með tilögunni seg- ir, að fyrirhugaðar séu miklar framkvæmdir við Vonarstræti sem torveldi umferð um miðborgina. Auk þess hefur yfirgnæfandi meirihluti hagsmunaaðila í mið- bænum eindregið óskað eftir opn- un Austurstrætis til reynslu í ákveðin tíma. SNARSALA r,---------- -r20%_ VAR2^000t- Núie^pp^ EM 258 SA*sYO ORBYLGJUOFN Í25%- CEP 6022 _ 20" SJÓNVARP ;_2A0/0 .96V SÍMI MEÐ SIMSVARA -=-20% VHR 5100 VIDEOTÆKI ^20%__ yARJTfíJjOOr^-— NÚ 61j200r— VHR 5700 HI-FI VIDEOTÆKI IS7039VT 28" • BLAUPUNKT SJÓNVARPSTÆKI CEP 2572 X20°/o 25“ SJÓNVARP EX190 ígfgT VAR 23.400, NúTÍl72Ó. 1X490 toyota SAUMAVEL SYSTEM X500 SAtíYO h-25% VAR 42.500,- NÚ 31.875,- HLJÓM- TÆKJA- STÆÐA án geislaspilara BOSCH HANDVERKFÆRI GERIÐ GÓÐ KAUP Gunnar Asgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.