Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 9
Almenna auglýsingastofan hf
MOKGUNBLAÐLÐ FIMMTUDAGUR 17.: JANÚAR 1991
REKSTA {{V5r|íí
fyrif tölvur og prentara
Eigum fyrirliggjandi á lager prentborða í flestar .
tegundir prentara, þ.á.m. IBM, STAR, FACIT, Silver Reed,
Message Consept o.fl. o.fl.
TÆKNIVAL
SKEIFUNNI 17 • 108 R. • S. 681665/687175
9,
[Stríð, friður
ogherskáir
ritstjórar
Deilt um strfðið
Fresturinn sem Sameinuðu þjóðirnar gáfu
Saddam Hussein til að kalla herafla sinn á
brott frá Kúveit er útrunninn. Hermennirnir
við Persaflóa og heimurinn allur bíður nú eft-
ir því sem gerist næst. Vangavelturnar eru
óendanlegar og skoðanirnar jafnmargar og
mennirnir sem láta þær í Ijós. í Staksteinum
í dag er staldrað við sjónarmið sem hafa kom-
ið fram í umræðum hér á landi.
Vandræði Þjóð-
viljans
Þjóðviljinn á í tölu-
verðum vandræðum með
að fóta sig í afstöðu sinni
til atburðanna við Persa-
flóa. Ef til vill er það
vegna ágreinings innan
Alþýðubandalagsins um
málið, en flokkurinn á
aðild að ríkisstjóm, þar
sem utanríkisráðherrann
segist styðja heilshugar
áform þeirra sem liafa
forystu um það á vett-
vangi Sameinuðu þjóð-
anna að koma írökum á
brott frá Kúveit og beita
til þess valdi, ef ekki er
annarra kosta völ. Þá
hefur Þjóðviljinn ekki
sömu leiðsögn og áður,
þegar marxistar um
heim allan tóku höndum
saman.
Á miðvikudag í siðustu
viku birtist forystugrein
í Þjóðviljanum undir yfir-
skriftinni: Strið, friður
og herskáir ritstjórar.
Þar er spjótunum sér-
staklega beint að Dag-
blaðinu-Vísi (DV) og
blaðið gagm-ýnt fyrir að
birta forystugrein, þar
sem „hæðst var mjög að
framtaki friðarsinna, og
var þeim margsinnis líkt
við þá sem fyrir stríð
vildu friðmælast við Hitl-
er...“ Siðau segir í Þjóð-
viljanum:
„Óþarft er þetta hjal
og fáránlegt. Þeir sem
mæla með þolinmæði í
samningagerð í þessu
máli sem öðrum háska-
legum, þeir hafa að sjálf-
sögðu engan áhuga á að
gera greiða grimmum
Iiarðstjóra á borð við
Saddam Hussein. Þeir
minna hinsvegar á aimað
■sem miklu varðar að
nútímastrið er líklegt til
að verða feiknarlega
blóðugt, og að slíkt stríð
er háð með aðferðum
sem bitna grimmilegar á
óbreyttum borgurum
sárasaklausum en herj-
unum sjálfum."
Síðan þessi orð birtust
í Þjóðviþ’anum hefur
Saddam Hussein hafnað
öllum tilmælum um að
draga herafla sinn til
baka og virt tilboð um
samninga að vettugi.
Innrás hans í Kúveit,
upphaf stríðsins, hefrn-
bitnað grimmilega á
sárasaklausum borgur-
um í Kúveit eins og
skýrsla Amnesty Inter-
national sýnir best.
„Nytsamir sak-
leysingjar
í forystugrein DV á
þriðjudag er þessari
gagnrýni Þjóðviljans
svarað á þennan hátt:
„Friðardúfur og nyt-
samir sakleysingjar á
Vesturlöndum hafa
stuðlað að sannfæríngu
Saddams Hussein íraks-
forseta um, að hann kom-
ist upp með að innlima
Kúvæt. Hann heldur, að
Vesturlandabúar séu svo
aðframkomnir " friðar-
sinnar, að þeir þoli ekki
að sjá stríð.
Á svipaðan hátt töfðu
friðardúfur og nytsamir
sakleysingjar endalok
kalda striðsins um heilan
áratug eða svo. Þótt Sov-
étríkin hafi fyrir löngu
verið komin efnahags-
lega að fótum fram,
héldu ráðamenn þeirra,
að þeir gætu splundrað
vamarsamvinnu Vestur-
landa..
Friðardúfur og nyt-
samir sakleysingjar á
Vesturlöndum hafa vald-
ið skaða með því að koma
inn þjá Saddam Hussein,
að bandamenn hafi ekki
innri mátt til að hefja
gagnsókn. Hið sama hafa
gert afdankaðir stjóm-
málamenn, sem hafa ver-
ið i pílagrímsferðum til
Bagdad.
Sem betur fer bendir
allt til þess, að friðardúf-
ur og nytsamir sakleys-
ingjar geti ekki stöðvað
réttmæta og tímabæra
gagnsókn bandamanna
við Persaflóa."
„Friðaraðgerð-
ir“
í forystugrein Tímans
í gær er sagt, að „drengi-
legur fyrirvari" hafi ver-
ið á boðuðu striði við ír-
aka. Þá segir einnig:
„Þess er m.ö.o. vænst að
hinn frjálsi heimur hafi
vald á fyrirhuguðum
friðaraðgerðum á Arab-
íuskaga og grennd, hvort
sem friðurinn (brottför
Iraka frá Kúveit) verður
til fyrir réttlátt stríð eða
samninga á síðustu
stundu, sem einstöku
stjónunálamaður hins
fijálsa heims er að gera
sér vonir um. En hvað
sem verður, þegar
siðustu sandkomin reirna
úr stundaglasi Persaflóa-
deilunnar, hefur greini-
lega lítið breyst um þann
fyrirboða válegra tiðinda.
i millirikjamálum sem
ákvörðun sovéthers felur
í sér að bæla niður frels-
iskröfur Litháa með her-
valdi."
Þessi orð Tímans
verða ekki túlkuð á ann-
an veg en þann, að blaðið
telji réttmætt að fara
með her á hendur Sadd-
am Ilussein.
Fyrirmynd
Frakka?
Því er haldið stíft á
loft, að afskipti íslend-
inga af málefnum
Eystrasaltslanda ráði
miklu um framvindu
mála þar. Hinu hefur
ekki verið hampað, að
afskipti íslenskra stjórn-
valda af deilunum við
Persaflóa hafi haft al-
þjóðleg áhrif. Steingrím-
ur Hermannsson forsæt-
isráðherra virðist þó
telja, að hlutur íslands
kunni að vera einhver
þar. I samtali við Morg-
unblaðið í gær sagði
hann, að Frakkar hefðu
á síðustu klukkustundun-
um áður en frestur Sam-
einuðu þjóðanna rann út
lagt fram „samskonar til-
lögu“ og ríkissljórn sín
og bætti Steingrímur
síðan við: „Ég er ekki að
segja að hugmyndin hafi
komið frá okkur en
Bandaríkin og Bretar
hafa hafnað henni.“
Þetta orðalag verður
ekki misskilið — forsætis-
ráðherra vill koma þeirri
hugmynd á framfæri, að
kannski hafi Francois
Mitterrand á lokastundu
áttað sig á snjallræði,
sem fælist í tillögu
islensku ríkisstjórnarinn-
ar.
Það er margt óvænt
sem kemur í (jós, þegar
að er gáð. Svo sem kumi-
ugt er hefur Steingrimur
Hermannsson einkum
haft samstarf við Yasser
Arafat, leiðtoga PLO, um
málefni Mið-Austurlanda
en Arafat styður Saddam
llussein eindregið og er
manna ákafastur í að til
stríðsátaka komi við
Persaflóann.
Láttu sparifé þitt bera góðan
arð á öruggan og einfaldan hátt.
Sparifjáreigendur þurfa ekki lengur að hugsa sig um tvisvar þegar
þeir velta fyrir sér ávöxtunarleiðum sem í boði eru. Ef þeir kjósa að vita af
sparifé sínu í tryggum höndum og góðri ávöxtun og njóta jafnframt
kunnáttu sérfræðinga í verðbréfaviðskiptum, festa þeir kaup á
Einingabréfum Kaupþings.
1 Gengi Einingabréfa 17. janúar 1991. I
1 Einingabréf 1 5,292
Einingabréf 2 2,865
1 Einingabréf 3 3,479
i Skammtímabréf 1,776
Við bjóðum nú þrjár tegundir Einingabréfa:
Einingabréf 1 - fjárfest í verðtryggðum skuldabréfum, tryggðum með
fasteignaveði.
Einingabréf 2 - fjárfest í spariskírteinum ríkissjóðs, bankatryggðum
skuldabréfum og öðrum sambærilegum-verðbréfum.
^ Einingabréf 3 - fjárfest í óverðtryggðum skuldabréfum, skammtímakröfum
og öðrum verðbréfum sem gefa hæstu mögulega ávöxtun.
Hafðu strax samband við sérfræðinga okkar.
Þú getur treyst á Einingabréf Kaupþings.