Morgunblaðið - 17.01.1991, Síða 20

Morgunblaðið - 17.01.1991, Síða 20
20 MORGUNBLAÐlÐ FIMMTUDAGUR ÍT. JÁNÚAR 1991 PERSAFLOADEILAN: Bandaríkja- memi íjölga sí- fellt í liði sínu írakar æfa árásarflug að næturlagi Washington. Daily Telegraph. ÍRAKAR og fjölþjóðlega liðið, sem stefnt er gegn þeim, hafa hald- ið áfram að styrkja viðbúnað sinn við botn Persaflóa af fullum krafti undanfarna daga. Saddam Hussein íraksforseti hefur fjölgað skriðdrekum um 200 og hefur nú alls 4.200 til reiðu og hermönnum um 5.000 frá því á fimmtudag í síðustu viku. Einnig hefur hann fjölgað brynvörðum liðsflutningabilum og fallbyssum. Bandaríkja- menn hafa nú um 415.000 hermenn á svæðinu og búist er við að fjöldi þeirra verði kominn upp í nær 450.000 í lok mánaðarins en aðrir andstæðingar Saddams hafa samanlagt um 265.000 manna lið. Viðbúnaður Bandaríkjaflota er hinn mesti frá því í heimsstyrjöld- inni síðari. Fjögur bandarísk flugvélamóð- urskip eru á Rauðahafinu, hið fímmta er á siglingu á sjálfum Persaflóanum og sjötta skipið á Arabíuflóa. Öll skipin eru það ná- lægt átakasvæðinu að flugvélar þeirra geta tekið þátt í árásum á Iraka og skipunum fylgja flota- deildir með orrustuskipum. Enn er verið að skipa upp bandarískum skriðdrekum í Saudi-Arabíu en Pete Williams, talsmaður varnar- málaráðuneytisins, lagði áherslu á að hægt yrði að framfylgja fyrir- varalaust sérhverri skipun George Bush forseta um árás. Williams sagði að íraski herinn í Kúveit virtist ennþá leggja megin- áhersluna á að treysta vamimar en hershöfðingjamir gætu einnig hafið árás með skömmum fyrir- vara. íraski flugherinn hefur að undanförnu tekið upp aðferðir vest- rænna flugheija við æfingar á ár- ásarferðum að næturlagi og lág- flugi spengjuflugvéla. Framvarða- sveitir íraka keppast við að afla birgða og varahluta af ótta við að sprengjuflugmönnum bandamönn- um takist að hindra birgðaflutn- inga. írakar eru taldir hafa fjölgað mjög tundurduflum við strönd Kúv- eits. Bandaríski fiugherinn hefur gripið til þess óvenjulega ráðs að senda tvær sérsmíðaðar tilrauna- flugvélar af Boeing- 707 gerð, er eiga að annast könnunarflug, á vettvang þótt framleiðendur vél- anna hafí ekki fyllilega lokið hönn- un og smíði þeirra. Vélamar eru nefndar Joint Stars og geta „séð“ hluti handan sjóndeildarhringsins og þannig aflað nákvæmra upplýs- 4jt Herstyrkurinn við botn Persnflón ^ írak 17 545.000 Flugmóburskip Herskip Hermenn Skriddrekar Samtals 6 189 733.476 2.510 2.200 4.047 Argentína 2 Astralia 3 Bahrain 2.300 Bandaríkin 6 102 425.000 1.200 2.200 3.500 Bangladesh 2.000 Belgia 3 Bretland H 34.000 170 72 Búlgaría 276* Danmörk 1 Egyptaland 40.000 Frakkland 11 13.500 40 80 Grikkland 1 Holland 3 ítalia 3 8 Kanada 1.700 12 Marokkó 5.000 Niger 500 Noregur 1 Nýja Sjóland 2* Oman 4 25.500 ' 63 Pakistan 5.000 Pólland 2* S.A.F. 15 40.000 200 80 Sódi-Arabía 8 118.000 550 180 Senegal 500 Sovétrikin 2* Spónn 3 Sýrland 15.000 300 Tékkóslóvakía 200* Tyrkland 9 5.000 50 50 Aá: íkki hofo ollir tihækir hermenn ájo ó Arobíuskogo, semhérewupp toldir, em verið kvodér til hndomæro Kúveit. Þyriur etu innifoldar ítöhm um fíugvéhr. Stjomo merkir oð viðkomondi toki ekkiþótt 1 hemoði. inga um viðbúnað og liðsflutninga andstæðinganna allt að 200 km að baki framvarðasveitum þeirra. Gefí Bush forseti skipun um að hefja hemaðaraðgerðir mun hann afhenda hana Dick Cheney vamar- málaráðherra er síðan kemur henni á framfæri við Colin Powell, for- séta herráðsins. Samtímis munu embættismenn Hvíta hússins skýra leiðtogum annarra ríkja í bandalag- inu gegn Saddam frá ákvörðun Bush. Powell mun senda hershöfð- ingjunum bandaríska liðsins við Persaflóa fyrirmæli um aðgerðir. Viðbrögð í Evrópulöndum: Reuter B-52 sprengjuþotur til Miðausturlanda Meira en tuttugu bandarískar sprengjuþotur af gerðinni B-52 hafa verið sendar til Miðausturlanda, að því er bandaríska sjónvarpið NBC skýrði frá í gær. Ekki var upplýst til hvaða ríkis þær voru sendar. Hver B-52-þota getur borið tólf stýriflaugar og nokkrar þeirra geta flogið allt að 16.100 km án þess þurfa að bæta við sig eldsneyti en aðrar allt að 12.000 km. Danmörk: Mótmæli í mörgum borg*- um og beðið fyrir friði París, Amsterdam, Milnchen, London. Reuter. ANDI dapurleika og uppgjafar ríkti víða í Evrópulöndum í gær er vonir um friðsamlega lausn á Persaflóadeilunni urðu nánast að engu þegar frestur Sameinuðu þjóðanna rann út án þess að Saddam Hus- sein íraksforseti drægi her sinn frá Kúveit. Kirkjur voru opnar langt fram á þriðjudagskvöld í mörgum iöndum og Jóhannes Páll II páfi baðst fyrir í einkakapellu sinni í Páfagarði. Hópar fólks efndu sums staðar til mótmæla gegn stríði. Hundruð mótmælenda söfnuðust saman við byggingu franska þingsins þar sem fram fóru umræður um beit- ingu hervalds gegn Saddam en fjöl- mennt lögreglulið kom í veg fyrir að fólkið ryddist inn. Óeirðalögregla gætti bandaríska sendiráðsins við Bjóða lækna og neyð- argögn til átakasvæða Kaupmannahðfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. UFFE Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, lagði í gær fram frumvarp um að Danir byðu fram læknisaðstoð ef til átaka kemur við Persaflóa, bæði með því að senda þangað hjúkrunarfólk og gögn og eins með því að flytja særða til Danmerkur. Frumvarpið á að afgreiða með forgangshraða nú á allra næstu dögum. Meðan sem mest bar á árásum ast hafa verið framin til að safna og sprengjutilræðum arabískra hryðjuverkamanna fyrir nokkrum árum var Danmörk ekki undanskil- in. Starfsemi hryðjuverkahópa í Danmörku hefur verið ofarlega á baugi hér undanfarna mánuði því sem stendur fara fram umfangs- mikil réttarhöld yfir hópi Dana sem ákærður er fyrir morð á lögreglu- manni og fyrir nokkur rán sem virð- fé handa palestínskum hryðjuverka- mönnum. Sú deild dönsku lögregl- unnar sem fæst við hryðjuverk læt- ur ekki upþi hver viðbúnaðurinn sé nú, þegar búist er við að írakar eða hópar araba iáti sér hugsanlega ekki nægja átök við Persaflóa held- ur beini skeytum sínum víðar. Undanfarna daga hafa verið haldnir fjöldafundir víðs vegar um Danmörku vegna yfirvofandi átaka við Persaflóa. Þar hafa komið fram ýmis sjónarmið. Því er ýmist haldið fram að stríðið hafi hafíst 2. ágúst og yfirvofandi árás bandamanna sé ekki upphaf heldur seinbúið svar. Þá greinir menn á um hvort skoða eigi árás þeirra sem vörn fyrir og stuðning við sjálfsákvörðunarrétt þjóða eða tryggingu fyrir aðgangi að ódýrri olíu. Inn í þetta fléttast svo vangaveltur um hver eigi að draga sig hvaðan; Rússar frá Lithá- ep, Bandaríkjamenn frá Persaflóa eða írakar frá Kúveit. Place de la Concorde. Ötti við hryðju- verk araba í tengslum við stríðsátök hefur valdið því að sala á haglabyss- um og veiðibyssum hefur stóraukist í landinu. Einn byssusalinn sagði fólk ekki treysta lögreglunni til að gæta öryggis borgaranna. Aðrir sögðu að of umfangsmiklar og æs- ingakenndar sjónvarpsfréttir ásamt trúgirni almennings væru orsökin. öryggisgæsla var stórefld við Heathrow-flugvöll í London af hræðslu við hermdarverkamenn og tóku vopnaðir hermenn þátt í gæsl- unni. * Jóhannes Páll páfi sendi frá sér friðarhvatningu til íraka og Banda- ríkjamanna er frestur SÞ var að renna út. Hann bað íraka að „sýna., hugrekki" með því að stíga skref í friðarátt og varaði Bandaríkjamenn við því að styrjöld gæti haft í för með sér „nýtt og jafnvel verra órétt- læti.“ Beðist var fyrir í kirkju heilags Páls í London fram á nótt og and- stæðingar stríðs söfnuðust saman á Trafalgar-torgi þar sem þeir héldu á kertum og sungu friðarsöngva. Við skrifstofu Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands, í Bonn var komið fyrir skilti með áletruninni: „Sendið stjórnmálamenn til eyði- merkurinnar, ekki hermenn.“ Mót- mælagöngur voru í Hamborg, Berlín, Köln og Frankfurt. Lögregla var kölluð út til að fjarlægja mótmælend- ur sem safnast höfðu saman við aðal- stöðvar Bandaríkjahers í Berlín. Mótmæli voru einnig við hlið Rhein- 4‘ . ..t ú ' á ; -w"- ‘i ■.;-> ^ , | líl'Á. — ■ v% Ém "**?*''** im ihí ?. imú v2 **■ HSL #9,>í' Reuter Þúsundir andstæðinga styrjaldar við Persaflóa halda á borðum með slagorðum á torginu Place de la Concorde í París í gær. Um 50 vinstrisinnaðar hreyfing- ar stóðu saman að mótmælunum. Main herstöðvarinnar bandarísku en fjöldi bándarískra hermanna hefur verið sendur þaðan til Saudi-Arabíu. Afstaða fjölmiðla skiptist mjög í tvö horn. Sumir hvöttu til þess að lengur yrði látið á það reyna hvort hægt væri að finna stjómmálalega lausn eða viðskiptaþvinganir kæmu Saddam á kné en aðrir mæltu með snöggu áhlaupi á íraska herinn. Bresk blöð voru mörg herská en tónninn í frönsku blöðunum var dap- urlegri. Sjúkrahús í Bretlandi, Þýskalandi og Grikklandi hafa fengið skipun um að búa sig undir að taka við særðum hermönnum frá Persaf- lóa. Verð á olíu til húshitunar hækkaði í Þýskalandi og víðar vegna hamst- urs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.