Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 23

Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 23
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANUAR 1991 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Útlenzk viðhorf um gervihnetti OJtöð 2 hóf fyrir nokkrum dögum tilráunasendingar á fréttum oandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN. Áskrifendur stöðvarinnar ná þessum útsendingum. Þær eru hvorki textaðar né er íslenzk þýðing lesin með. Sverrir Hermannsson, þáverandi menntamálaráðherra, setti sérstakar reglur um þetta efni á sínum tíma. í 6. grein þeirrar reglugerðar segir m.a.: „Efni á erlendu máli, sem sýnt er í sjónvarpi, skal jafnan fylgja íslenzkt tal eða neðanmálstexti á íslenzku, eftir því, sem við á hverju sinni. Það skal þó ekki eiga við, þegar í hlut eiga erlendir söngtextar eða þegar dreift er viðstöðulaust um gervihnött og móttökustöð fréttum eða dagskrárefni, er sýnir atburði er gerast í sömu andrá. I síðastgreindu tilviki skal að jafnaði fylgja kynning eða endursögn þular." Þorvarður Elíasson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, upplýsti í samtali, sem birt- ist í Morgunblaðinu í gær, að sjón- varpsstöðin hefði ekki sótt um undan- þágu til útvarpsréttamefndar. Skýr- ingar hans á því, að svo var ekki gert eru eftirfarandi: „Eg held, að það sé skoðun okkar og sumra í útvarps- réttamefnd, að það sé ekki í samræmi við anda laganna, ef þau eru notuð til að stöðva svona fréttasendingar á þessum tímum. Ef andi laganna og reglugerðin stangist á, eigi reglugerð- in að víkja. Reglugerðin byggist á þeirri grein útvarpslaga, sem segir, að íslenzkt mál skuli verndað. Við teljum okkur ekki stofna íslenzku máli í neina hættu með þessari út- sendingu, sem er í tilraunaskyni og óvíst hvað henni verður lengi haldið áfram.“ Það er auðvitað ljóst, að með því að sækja ertki um undanþágu frá ákvæðum reglugerðarinnar hefur Stöð 2 gerzt brotleg við hana og er það eitt út af fyrir sig mjög ámælis- vert hjá fjölmiðlafyrirtæki, sem liggur ekki á gagnrýni á hendur öðrum aðil- um, sem ekfi fara að settum reglum eða eru taldir bijóta settar reglur. Skoðanir sjónvarpsstjórans á reglu- gerðinni og þeim rökum, sem liggja að baki henni skipta engu máli í þessu sambandi. Það er ékki hans að dæma um, hver sé andi laganna eða hvort reglugerðin gangi gegn þeim anda. Hitt kann að vera rétt hjá Þorvarði Elíassyni, að tilraunaútsendingar af þessu tagi, sem standa einungis í skamman tíma stofni einar út af fyr- ir sig íslenzkri tungu ekki í hættu. Hins vegar hafa þessar útsendingar orðið til þess að varpa skýru ljósi á þann vanda, sem smáþjóð á borð við okkur íslendinga stendur frammi fyr- ir og á eftir að magnast á næstu árum og hefur raunar oft verið gerður að umtalsefni í Morgunblaðinu. Við íslendingar stöndum annars vegar frammi fyrir því, að með slíkri dreifingu á útsendingum erlends gervihnattasjónvarps sem Stöð 2 framkvæmir nú komumst við í nánari snertingu við alþjóðaviðburði en hins vegar að slíkar sjónvarpssendingar, sem ná inn á nánast hvert heimili á landinu á erlendu máli eða erlendum málum geta haft og munu óhjákvæmi- lega hafa á löngum tíma afdrifaríkar afleiðingar fyrir íslenzka tungu og menningu. Þau erlendu menningaráhrif, sem streymt hafa inn í samfélag okkar um nokkurt árabil hafa þegar haft merkjanleg áhrif á íslenzka tungu og eiga eftir að hafa meiri áhrif á lífsvið- horf þjóðarinnar. Þessi áhrif koma fyrst og fremst frá enskumælandi þjóðum enda verða áhrif enskrar og amerískrar tungu á orðaröð og setn- ingaskipan í íslenzku máli stöðugt meiri. Hömlulausar gervihnattasend- ingar enskra og amerískra sjónvarps- stöðva inn á hvert heimili í landinu munu magna þessi áhrif mjög. Fari svo fram sem horfir er mikil hætta á því, að landsmenn tali jafn bjagaða íslenzku, þegar fram í sækir og sagt er, að sumir landsmanna hafi gert á niðurlægingarárum danska tímabils- ins. Fari svo, að útsendingum á gervi- hnattasjónvarpi verði haldið áfram til frambúðar mun það tvímælalaust hafa þau áhrif að draga mjög úr áhuga fólks á fréttaútsendingum íslenzku sjónvarpsstöðvanna beggja. Sterkasta vopn þeirra er íslenzk tunga, sem alþjóð skilur. En þess gætir áreiðanlega um þessar mundir, að fólk telur sig ekki þurfa jafn mik- ið á fréttasendingum þeirra að halda og áður. Þess vegna kunna sjónvarps- stöðvar, sem hafa milligöngu um slíkar erlendar útsendingar að vera að grafa sína eigin gröf eða skipta um hlutverk og verða eingöngu far- vegur fyrir erlent sjónvarp inn í landið. Sú litla reynsla, sem við höfum af gervihnattasjónvarpi sýnir okkar, að þær sjónvarpsstöðvar eru alls ekki alþjóðlegar eins og ætla mætti. CNN- stöðin segir frá atburðunum við Persaflóa nær eingöngu frá banda- rískum sjónarhóli og .brezka gervi- hnattasjónvarpið Sky segir frá sömu atburðum fyrst og fremst frá brezku sjónarhomi. Þetta sjónarhom er mjög þröngt hjá báðum stöðvunum. Á'hitt er að líta, að við getum ekki lokað okkur af frá umheiminum og viljum það ekki heldur. Framfarir í fjarskiptatækni hafa brotið niður öll landamæri og eiga áreiðanlega mik- inn þátt í þeim breytingum, sem orð- ið hafa í okkar heimshluta á síðustu misserum. En við þurfum að fara varlega. Það væru mikil mistök hjá Svavari Gests- syni, menntamálaráðherra, að bregð- ast við þessari þróun nú með því að hleypa þessum útsendingum hömlu- laust inn í landið. Nú þarf fólk að hafa fyrir því að ná í útsendingar gervihnattasjónvarps og leggja í tölu- verðan kostnað við það, Þá er það á valdi hverrar fjölskyldu að ákveða slíkt og það er hennar frjálsa val. Fái sjónvarpsstöðvamar tvær hins vegar leyfi til að dreifa þessum sendingum um land allt án nokkurrar fyrirst^iðu verður þess ekki langt að bíða, að þjóðin fylgist með heimsviðburðum í sjónvarpi nær eingöngu á erlendu máli. Við þurfum að skoða vandlega hvort betur muni gefast að skapa tæknilega eða fjárhagslega fyrirstöðu til þess að koma í veg fyrir, að erlent sjónvarp flæði um landið. • • Orlagadagar við Eystrasalt Bann við lausagöngu búfjár: Bændum á Hólsfjöllum boðin landgræðslustörf BÆNDUM á Hólsfjöllum hafa verið boðin störf við landgræðslu þar þegar væntanlegt bann við lausagöngu búfjár á Hólsfjöllum tekur gildi haustið 1992, og að sögn Nielsar Árna Lund, deildarstjóra í landbúnað- arráðuneytinu, verður jafnframt reynt að bæta þeim það Ijón sem þeir verða fyrir vegna bannsins. Fjórar jarðir á Hólsfjöllum eru nú I byggð, og eru tvær þeirra í eigu ríkisins. eftirJón Sigurðsson Við lifum nú mikla örlagadaga. Grimmdarverk Sovéthersins í Litháen vekja ugg um að hinar sögulegu sættir sem virtust vera að takast í Evrópu séu tálsýn. Sovétríkin hafí reynt að afneita sínu eðli sem ný- lenduveldi byggt á ógnarstjórn en án árangurs. í suðri vofir yfir hættan frá Persaflóabardaganum. Á þessum dægrum ræðst hvort stríð verður eða friður helst. Hin skelfilegu ofbeldisverk í Lithá- en síðustu daga minna okkur á mikil- vægi þess að efla hvarvetna lýðræðis- lega stjómarhætti. Liðsinni íslendinga Það vakti athygli alþjóðar að á örlagastundu sendi Landsbergis Lit- háensforseti orð til Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra, með beiðni um að íslendingar hefðu forgöngu um hjálp til litháísku þjóð- arinnar sem er í nauðum stödd. Þetta er ekki tilviljun. Islendingar voru fyrstir þjóða til þess að senda formlega stuðningsyfirlýsingu til Lit- háa í tilefni af sjálfstæðisyfirlýsingu þeirra í mars í fyrra. Allar götur síðan hefur íslenska ríkisstjómin fordæmt beitingu vopna- valds og stutt málstað Eystrasalts- ríkja í baráttu þeirra fyrir endurheimt sjálfstæðis á grundvelli lýðræðis. Við höfum jafnan minnt á að endurreisn Evrópu frjálsra og fullvalda þjóðríkja er ekki lokið fyrr en fengist hefur viðurkenning á réttmætum kröfum Eistlendinga, Letta og Litháa um sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt. Forsetar Alþingis minntu enn á þessi sjónarmið íslendinga í bréfi til litháska þingsins í lok nóvember sl. og á þetta var lögð áhersla í ályktun Alþingis rétt fyrir jólin þar sem ítrek- uð var óslitin viðurkenning íslendinga frá árinu 1922 á fullveldi Eystrasalts- ríkjanna þriggja. Ályktunin staðfesti að íslendingar em í fararbroddi þeirra ríkja sem styðja málstað Eistlands, Lettlands og Litháens í glímu þeirra við sov- éska bjöminn. Þessi einarðlega afstaða er enn ítrekuð í harðorðri ályktun Alþingis um fordæmingu á ofbeldisaðgerðum sovésks herliðs í Litháen sem sam- þykkt var 14. janúar 1991. Þar er þeirri skoðun enn lýst að engin lausn sé viðunandi á málefnum Eystrasalts- ríkja önnur en fullt og óskorað sjálf- stæði þeirra og skorað á þjóðir heims að veita ríkjunum stuðning í baráttu sinni. Frá því að Alþingi samþykkti í mars sl. stuðningsyfírlýsingu og ham- ingjuóskir til þjóðþings Litháa í til- efni af sjálfstæðisyfirlýsingu þeirra hefur ríkisstjórnin notað hvert tæki- færi til þess að sýna Eystrasaltsríkj- unum stuðning. Stöðugt samband og samvinna hefur verið við leiðtoga ríkjanna, einkum forystumenn Lit- háa. Stuðningur íslendinga hefur komnið fram með ýmsum hætti, m.a. á vettvangi Norðurlandaráðs, Atl- antshafsbandalagsins, Evrópuráðs- ins, Ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE), og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Á alþj óðavettvangi íslendingar hafa stutt málaleitan Eystrasaltsríkjanna um að þau sendi áheyrnarfulltrúa á þing Norðurland- aráðs og þeir hafa tekið dijúgan þátt í viðleitni Norðurlanda til að halda málefnum Eystrasaltsríkja á lofti, m.a. á vettvangi RÖSE. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, hefur talað máli Eystrasaltsríkja á utanríkisráðherrafundum Atlants- hafsbandalagsins. Eftir hernaðarað- gerðir Sovétstjórnarinnar í Vilnius sendi utanríkisráðherra auk þess starfsbræðrum sínum í Atlantshafs- bandalagsinu bréf þar sem hann hvatti þá til aðgerða. Á sérstökum utanríkisráðherrafundi Evrópuráðs- ins er haldinn var í Lissabon í mars á síðasta ári til að ræða samskiptin við ríkin í Mið- og Austur-Evrópu hélt Jón Baldvin Hannibalsson hlut Eystrasaltsríkjanna sérstaklega á loft. Um svipað leyti sendi hann bréf til Shevardnadse, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, þar sem hann hvatti Sovétríkin til þess að hefja viðræður við rétt kjörna fulltrúa Litháen án nokkurra fyrirfram skilyrða. Málefni Eystrasaltsríkja hafa oft komið til umræðu á vettvangi RÖSE og í ávarpi utanríkisráðherra á ráð- herrafundi þeirrar samkomu um mannréttindamál í Kaupmannahöfn fjallaði hann einmitt um réttmætar kröfur Eystrasaltsríkja til viðurkenn- ingar á sjálfstæði sínu. Fulltrúar íslensku utanríkisþjónustunnar á RÖSE-fundunum í Vín hafa unnið mikið að því að afla stuðnings við óskir Eystrasaltsríkja um beina aðild að RÖSE-ferlinu. í ræðum sínum á allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna í september og utanríkisráðherra- fundi RÖSE í New York 1. og 2. október lýsti Jón Baldvin Hannibals- son yfir fullum stuðningi íslands við aðild Eystrasaltsríkjanna að RÖSE. Steingrímur Hermannsson forsætis- Jón Sigurðsson „En endurreisn Evrópu frjálsra þjóðríkja er ekki lokið. Næsta skref- ið verður að vera al- menn viðurkenning á réttmætum kröfum Eystrasaltsríkjanna um sjálfstæði og sjálfs- ákvörðunarrétt.“ ráðherra talaði máli þeirra á leiðtoga- fundi RÖSE í París 20. nóvember sl. og ísland og Danmörk stóðil fyrir blaðamannafundi utanríkisráðherra Eistlands, Lettlands og Litháen í sambandi við fundahaldið þar. Gagnkvæmar heimsóknir í júlí sl. tók utanríkisráðherra á móti Endel Littma ráðherra í stjóm Eistlands og í ágústmánuði tók hann á móti Rasmunas Bodanas ráðgjafa forseta Litháen. í ágúst bauð svo Steingrímur Hermannsson Lands- bergis, forseta Litháen, í heimsókn til Islands sem varð af í október. Eins og fram hefur komið hitti Lands- bergis að máli flesta forystumenn íslenskra stjórnmála um málefni þjóð- arinnar og annarra Eystrasaltsríkja. Hjörleifur Guttormsson, alþingis- maður, heimsótti Eistland í júlí 1990 pg átti viðræður við stjórnmálamenn. í september 1990 fór Þorsteinn Páls- son, formaður Sjálfstæðisflokksins, til Eistlands og Litháen í boði þar- lendra stjórnvalda, hitti ýmsa frammámenn þjóðanna og ávarpaði litháska þingið. Þann 20. desember sl. var haldinn í Kaupmannahöfn sameiginlegur fundur utanríkisráðherra Norður- landanna fímm og Eystrasaltsríkj- anna þriggja í tilefni af opnun upplýs- ingaskrifstofu Eystrasaltsríkja í Kaupmannahöfn. Það var sérstakt ánægjuefni að á þeim fundi var hægt að greina frá einróma samþykkt Al- þingis íslendinga og afhenda fulltrú- um Eystrasaltsríkja ályktunina. Endurreisn frjálsrar Evrópu Við höfum að undanförnu upplifað umsköpun Evrópu sem í kjölfar seinni heimsstyijaldar skiptist í tvær fylk- ingar, gráar fyrir járnum. Mikilvægt spor til þess að lækna sárin eftir hild- arleik stríðsins var stigið með sameig- inlegu Þýskalandi. En endurreisn Evrópu frjálsra þjóðríkja er ekki lok- ið. Næsta skrefið verður að vera al- menn viðurkenning á réttmætum kröfum Eystrasaltsríkjanna um sjálf- stæði og sjálfsákvörðunarrétt. Kúgun og ofbeldisverkum Sovét- hersins í Litháen verður að linna. Það er mikilvægt að sú samstaða sem náðst hefur á íslandi milli allra stjóm- málaflokka um einarðlegan stuðning við málstað frelsis og lýðræðis í Eystrasaltsríkjunum haldist og verði kynnt á alþjóðavettvangi hvar sem rödd íslands heyrist. Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, hefur ákveðið að fara til fundar við formenn jafnaðar- flokka Eystrasaltsríkja, ásamt öðrum formönnum jafnaðarflokka á Norð- urlöndum, í Helsjnki í þessari viku og að heimsækja Eystrasaltslöndin þijú í framhaldi af þeim fundi, fái hann til þess vegabréfsáritun. Þessi för er gott dæmi um áhrifaríkan stuðning við sjálfstæðisbaráttu þjóð- anna þriggja við Eystrasalt. • Höfundur eriðnaðar- og viðskiptaráðherra. „Það verður reynt að verða við kröfum bændanna um að kaupa af þeim þær eignir sem beinlínis hafa verið notaðar við sauðfjárrækt, og reynt verður að verða þeim innan handar sem hugsanlega kjósa að flytjast á brott. Það er alveg ljóst að eitthvað verður að koma til móts við þessa menn, en verið er að ræða hvernig það geti orðið á sem réttlátastan og einfaldastan Páll Svavarsson, mjólkurbússtjóri á Blönduósi, sagði að framleiðslan þar væri nú að komast í eðlilegt horf á nýjan leik. „Stór hluti bænda hér lenti í erfiðleikum vegna raf- magnsleysisins, en við þessar breyttu aðstæður í fjósi geldast kýrnar upp og nytin í þeim minnk- ar. Síðan var eitthvað um það að júgurbólga fylgdi í kjölfarið, en það er nánast um garð gengið nú. í þeim hátt. Það hefur verið unnið að þeirri stefnumörkun hjá Landgræðslunni að þetta skuli vera búfjárlaust svæði, og bændur á Hóls^öllum hafa sýnt fullan skilning á málinu. Opinberir aðilar lögðu á sínum tíma mikla áherslu á að byggja upp á Hólsfjöllum og mennn fóru þar í dýrar framkvæmdir, sem útilokað er annað en þeir fái bætt fyrir,“ sagði Níels Ámi Lund. tilfellum þurfti að henda allri mjólk úr kúnum á meðan þær voru með- höndlaðar, þannig að þar varð tölu- vert tjón. Eg gæti ímyndað mér að um 15 þúsund lítrar af mjólk hafi farið í súginn hér á svæðinu á með- an þetta ástand varði,“ sagði Páll. Snorri Evertsson, mjólkurbús- stjóri á Sauðárkróki, sagði raf- magnsleysið hafa haft talsverða örð- ugleika í för með sér fyrir kúabænd- Bragi Benediktsson, bóndi í Grímstungu, sagði að skoðanir bænda á friðun Hólsfjalla væru eitt- hvað skiptar, en sjálfur væri hann því fylgjandi að friða svæðið og hann væri reiðubúinn til að taka að sér það starf við uppgræðslu sem Landgræðslan hefði boðið. Hann sagði að sumsstaðar væri land á Hólsfjöllum mjög sterkt gróðurfars- lega séð, en annarsstaðar væri það mjög lélegt. „Spumingin er hvort vinsa hefði átt þetta lélega land úr og girða það af þvers og kmss, en það tel ég að hefði orðið glórulaust og kosta margfalt á við það sem stefnt er að,“ sagði hann. ur í Skagafirði, og þá aðallega vegna þess að þeir hafi átt í erfiðleikum með að mjólka og kæla mjólkina, en ekki hefði verið mikið um júgur- bólgu í kúnum. „Það varð töluverður samdráttur í innleggi á meðan á þessu stóð og menn mjólkuðu niður, en við urðum einnig að henda svolitlu magni. Sennilega hafa tugir þúsunda lítra * farið forgörðum bæði vegna þess að nyt minnkaði í kúnum og talsvert fór niður við mjaltir. Þrátt fyrir það er útlit fyrir að aukning verði á inn- leggi hér miðað við janúarmánuð í fyrra, en þá var það um 570 þúsund lítrar,“ sagði hann. Afleiðingar óveðursins á Norðurlandi: Mjólkurframleiðsla minnk- aði vegna rafmagnsleysis MJÓLKURFRAMLEIÐSLA i Húnavatnssýslum og Skagafirði dróst nokkuð saman af völdum rafmagnsleysisins í óveðrinu i byrjun mánaðar- ins. Tugir þúsunda lítra fóru forgörðum í Skagafirði, bæði vegna þess að nyt féll í kúm og hella þurfti niður mjólk, og í Húnavatnssýslum varð nálægt 10% samdráttur í framleiðslu hjá mörgum bændum. Þar varð júgurbólgu víða vart í kjölfar rafmagnsleysisins. Stöðvun blasir við rækjuvinnslu við óbreytt rekstrarskilyrði eftir Lárus Jónsson Markaðsverð á skelflettri frystri rækju hefur hríðfallið undanfarna mánuði og horfur eru ekki bjartar í næstu framtíð um bata, þótt gera verði ráð fyrir að úr rætist þegar til lengri tíma er litið. Þá hefur það einnig gerst samtímis að greiðslum til framleiðenda af innstæðu rækju- manna í Verðjöfnunarsjóði hefur verið hætt, þar sem þær voru gengnar til þurrðar. Rækjuvinnslan hefur því verið rekin með stórfélldu tapi eða rúmlega 18% af tekjum að mati Þjóðhagsstofnunar miðað við skilyrði í október sl. Á hinn bóginn eru rækjustofnarnir sterkir bæði á grunn- og djúpslóð, öfugt við aðra fiskistofna í hafinu um- hverfis landið og kvóti á úthafs- rækju hefur verið aukinn úr 23.000 tonnum á síðasta ári í 28.000 tonn í ár. Mikilvægi rækjuvinnslunnar - Framleiðsla 4 til 5 milljarðar Stórfelldur taprekstur og yfirvof- andi stöðvun rækjuvinnslunnar við óbreytt rekstrarskilyrði er mikið alvörumál ef haft er í huga hversu mikilvæg þessi grein sjávarútvegs- ins er orðin í þjóðarbúskapnum. Ætla má a rækjuafli á síðstliðnu ári hafi orðið um 30.000 tonn og er þá átt við bæði úthafsrækju og innfjarðarrækju. Það er aukning um 3.000 tonn frá því á árinu 1989. Líklegt er að framleiðsla pillaðrar rækju á árinu 1990 hafi orðið um 8.500 tonn. Þótt markaðsverð hafi lækkað verulega undanfarna mán- uði, feins og áður segir, má gera ráð fyrir að verðmæti framleiðslu pill- aðrar rækju, verði á bilinu 4 til 5 milljarðar króna á yfirstandandi ári, ef hægt er að auka veiðar á árinu eins og stefnt e'r að um 5.000 tonn og forðast stöðvun þannig að veiðar og vinnsla geti gengið snurðulaust. Aukið framboð samkeppnis- þjóða aðalástæða verðfallsins Meðalmarkaðsverð á pillaðri rækju í vor var núverandi gengi um 540 krónur CIF á útflutt kg, en má heita mjög gott að fá 435 kr. fyrir kílóið að meðaltali og miklu minna fyrír smárækjuna. Þessi verðlækkun jafngildir tæplega 20%. Á meðfylgjandi mynd má sjá þróun- ina í markaðsverðinu síðan á miðju ári 1989: SJÁ LÍNURIT Án efa stafar verðfall á pillaðri frysti rækju af auknu framboði í Evrópu, sem er nánast eini markað- ur Norðurlandaþjóða fyrir þessa vöru, einkum eftir fall dollarans gagnvart Evrópumyntum. Þessa aukningu framboðs er ekki síst að rekja til meiri framleiðslu Norð- manna en verið hefur undanfarin ár, en þeir eru ásamt Grænlending- um og öðrum Norðurlandaþjóðum mestu framleiðendur skelflettrar kaldsjávarrækju í heiminum. Gera má ráð fyrir að við íslendingar Lárus Jónsson „Best væri augljóslega að ná samkomulagi í Verðlagsráði um nýja tilhögun á flokkun og verðlagningu allrar rækju, þannig að verð yrði mjög mismunandi eftir stærð.“ höfum framleitt um 20% af pillaðri rækju á Norðurlöndum á árinu 1990. Ástæða er til að ætla að Kanadamenn hafi selt umtalsvert magn í fyrra af kaldsjávarrækju á Evrópumarkaði þannig að fram- leiðsla okkar íslendinga er innan við 20% af heildarframboðinu á þessum mikilvæga markaði. Mark- aðshlutdeild íslendinga er því ekki slík að framboð frá okkur sé mikils ráðandi fyrir verðmyndun, þótt það sé vissulega umtalsvert. Það er því aukið framboð frá öðrum Norður- landaþjóðum og Kanada, sem ráðið hefur mestu um verðlækkun á pill- aðri rækju á Evrópumarkaði og einnig hefur lágt verð á hlýsjávar- rækju, sem er í harðri samkeppni við kaldsjávarrækju á þessum markaði að líkindum haft veruleg áhrif. Tekjur rækjuvinnslunnar hafa minnkað um nálægt 33% frá síðastliðnu vori Á árunum 1986 og 1987 var markaðsverð á skelflettri frystri rækju mjög hátt. Þá greiddu rækju- menn í Verðjöfnunarsjóð fiskiðnað- arins háar fjárhæðir. Vegna lækk- unar markaðsverðs hafa síðan verið greiddar verðbætur af þessum inn- stæðum skv. lögum um Verðjöfnun- arsjóð. Þessar verðbætur reyndust í febrúar-maí sl. vor 14% sem bætt- ust við útflutningsverðið, eða um 75 kr. á kg að meðaltali. Nú eru þessar innstæður tæmdar og stöðv- un þessara greiðslna kom nánast á sama tíma og verð lækkaði. Frá því í maí sl. vor hafa því rekstrarskil- yrði rækjuvinnslu í landinu versnað svo einfalt dærrú sé tekið, eins og MARKAÐSVERÐ Á PILLAÐRI RÆKJU CIF VERÐ GPB/LBS £3 - £2.5 - £2 - £í.& - £í £0.5 - - 6 7 ö 9 101112 13345 6789 101112 1 I 89 I 90 1911 Mánuöir fram kemur á eftirfarandi yfirliti. Þetta þýðir að rækjuvinnslan býr nú við um 33% minni tekjur af hverju framleiddu kg að meðaltali en á síðastliðnu vori. Rekstrarskilyrði rækjuvinnslu Maí’90 Des. ’90 Mis. Kr.kg Kr.kg Markaðsverð CIF 540 435 -115 Verðjöfnun 75 0 -75 Lækkun tekna á útflutt kg -180 -33% Hráefnisverð í engu samræmi við markaðsverð afurða Þjóðhagsstofnun tók út rekstur rækjuvinnslunnar miðað við skilyrði í október á síðastliðnu ári. Niður- staðan var sú að vinnslan reyndist rekin með 18,2% tapi að mati stofn- unarinnar á þeim tíma. Ástæða er til að ætla að þetta tap sé í raun mun meira í byijun þessa árs, eins og ofangreindar tölur benda til. Um það skal þó ekki fjölyrt. Á hinn bóginn er athyglisvert að skv. fyrr- greindum framreikningi Þjóðhags- stofnunar er hráefniskostnaður 74% af útflutningstekjum rækjuvinnsl- unnar. Eðlilegt hlutfall hráefnis- kostnaðar miðað við markaðsverð CIF ætti á hinn bóginn að vera nálægt 55% ef reksturinn ætti að vera í sæmilegu jafnvægi. Það er því alveg ljóst að það verð sem vinnslan greiðir fyrir hráefni er allt of hátt og því miður í engu sam- ræmi við markaðsverð afurðanna um þessar mundir. ^ Stöðvast þessi mikilvæga framleiðslugi'ein? Núgildandi verð á rækju upp úr sjó er því einfaldlega allt of hátt. Þetta á alveg sérstaklega við um smáa rækju sem selst sem unnin afurð nánast á hálfvirði miðað við stærri flokkana. Því miður hefur það tíðkast að úthafsrækja hefur / framkvæmd gengið óflokkuð kaupum og sölum. Fyrir hana hefur auk heldur oftast verið greitt umfram Verðlagsráðs- verð. Þetta þýðir að menn fá í mörgum tilvikum ekkert meira fyr- ir að sækja stóra úthafsrækju og færa að landi en smáa. Kvóti af úthafsrækju, sem nemur 28.000 tonnum yrði mun verðmætari í heild fyrir sjómenn, útvegsmenn, fram- leiðendur og þjóðarbúið ef menn sækjast fyrst og fremst eftir stærstu rækjunni. Með slíku fyrir- komulagi yrði afurðaverðmæti auk- ið og skilyrði bætt til þess að halda uppi verði á stærstu og verðmæt- ustu rækjunni. Núverandi vinnubrögðum í við- skiptum milli seljenda og kaupenda á rækju þarf því að breyta. Hvetja til þess að sækja sem verðmætastan afla að landi til vinnslu og útflutn- ings. Best væri augljóslega að ná samkomulagi í Verðlagsráði um nýja tilhögun á flokkun og verð- lagningu allrar rækju, þannig að verð yrði mjög mismunandi eftir stærð. í framkvæmdinni verða framleiðendur, kaupendur rækjunn- ar, að axla sín slrinn. Skeíjalaus samkeppni um hráefni hefur att þeim út í þá óhæfu að kaupa hráefn- ið án tillits til raunverulegs verð- mætis þess. Þessu verður að linna. Ef ekki þegar svo árar sem nú þá T hvenær? Þetta er málefni, sem leysa þarf innari greinarinnar. Vandinn er sá að veiðar og vinnsla þurfa að skipta með sér afleiðingum markaðsáfalla, eins og menn gera kröfu til að skipta með sér tekjum af búhnykk vegna hækkunar á markaðsverði afurða. Það þarf að markaðstengja verð á hráefnijafnt þegar markaðs- verð lækkar og þegar verð hækkar. Við ríkjandi aðstæður er eðlilegt að ríkisvaldið ætlist til þess að for- ráðamenn veiða og vinnslu leggi fram sinn skerf til lausnar þessa vanda. Hitt er augljóslega verulegt áhyggjuefni að fyrrgreind sveifla í rekstrarskilyrðum rækjuvinnslunn- < ar er svo mikil og snögg, vegna þess að verðjöfnunargreiðslum hef- ur verið hætt á sama tíma og mark- aðsverðið fellur svo mjög sem raun ber vitni. Því er hætt við að við þennan vanda i heild verði ekki ráðið að fullu innan greinarinnar. Því er auðvitað takmörk sett hversu mikið er unnt að lækka í einni svip- an hráefnisverð á rækju, sem felur í sér lækkun tekna útgerðarmanna og sjómanna. Því verður að horfast í augu við að þörf kunni að vera á sérstökum ráðstöfunum af hálfu ríkisvaldsins til þess að draga úr v þessum áföllum þannig að komið verði í veg fyrir það stórfellda slys, sem hlytist af stöðvun svo mikil- vægrar atvinnugreinar, sem veiðar og vinnsla rækju vissulega er orðin. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.