Morgunblaðið - 27.01.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.01.1991, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C 22. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1991 PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS Ahafnir sjö íraskra her- þotna leita hælis í Iran Umhverfisspjöll íraka á Persaflóa auka þrýsting á bandamenn um að hefja landhernað Nikósíu, Riyadh. Reuter. íbúar í Sydney halda á lofti spjöldum og borðum með áletr- unum þar sem lýst er stuðningi við þátttöku Ástralíu í aðgerð- um fjölþjóðaherliðsins við Persaflóa. Á spjöldunum stend- ur m.a.: „Við vildum gefa kost á friðsamlegri lausn en Saddam neitaði," „Stöðvið Saddam, frelsið Kúveit" og „Ástralir vilja ekki kaupa sér frið.“ ÁHAFNIR sjö íraskra orrustuflugvéla flúðu í gær og lentu í íran og eru nú í haldi yfirvalda þar. Er þetta í fyrsta sinn, sem staðfestur er fjöldaflótti íraskra flugmanna eftir að átökin fyrir botni Persaf- lóa hófust. I fyrrinótt skutu Irakar tveimur Scud-eldflaugum á Riy- adh, höfuðborg Saudi-Arabíu, með þeim afleiðingum, að einn maður lést og 19 slösuðust þegar brak úr annarri flauginni eyðilagði sex hæða byggingu í borginni. Flugvélar bandamanna, einkum franskar Jagúar-þotur, gerðu í gær harðar árásir á stöðvar úrvalssveita íraska Lýðveldisvarðarins í Kúveit og Irak. Talið er, að vaxandi þrýstings gæti á bandamenn að hefja landhernaðinn sem fyrst. Sjö íraskar herþotur, í þremur hópum, flugu í gær inn yfir íran og fengu leyfi til að lenda á herflug- velli þar. Fórst ein vélanna í lend- ingu og tvær löskuðust nokkuð. Að sögn íranskra yfirvalda hafa flug- mennirnir verið yfirheyrðir en þau hafa einnig varað stjórnina í Bagdad og aðra stríðsaðila við að færa átökin yfir á íranskt land- svæði. Hafa áður farið fréttir um flótta íraskra hermanna til írans en flóttinn í gær þykir benda til upplausnar í íraska hernum, einkum flughernum. Tveimur íröskum Scud-eldflaug- um var skotið á Riyadh, höfuðborg Saudi-Arabiu, skömmu eftir níu í gærmorgun að þarlendum tíma og var þeim báðum grandað með Patriot-gagnflaugum. Önnur sprakk þó svo lágt yfir borginni, að brakið eyðilagði efstu hæðirnar í sex hæða byggingu. Vitað er að einn maður lést og 19 slösuðust, þar af 11 útlendingar, sem voru við störf í landipu. Þá skutu írakar sjö Scud-flaugum á Dhahran, höfuð- stöðvar bandamannahersins í Saudi-Arabíu, skömmu eftir mið- nætti aðfaranótt laugardags en þeim var öllum eytt með Patriot- gagnflaugum. Franskar Jagúar-þotur héldu í gær uppi miklum árásum á vélaher- fylki Lýðveldisvarðarins í suður- hluta Iraks og Kúveits. Miklar sprengingar kváðu einnig við í hafn- arborginni Basra. Landher banda- manna er stöðugt að færa sig nær Kúveit og landamærum Iraks og Saudi-Arabíu en fátt þykir benda til, að hann láti til skarar skríða á næstu dögum. Vaxandi þrýstings gætir þó á bandamenn að hefja landhernaðinn þar sem hætta sé á, að aðdáun sumra araba á Saddam Hussein muni aukast eftir því sem hann heldur stríðið lengur út. Umhverfishryðjuverk íraka, gífurleg olíumengun í Persaflóa og logandi olíulindir, gera það líka enn nauðsynlegra að hrekja þá frá Kúv- eit en ýmsir hernaðarsérfræðingar telja þó, að besti tíminn til landhern- aðar sé um miðjan febrúar. Sjá bls. 4 og 17. Reuter James Baker og Alexander Bessmertnykh ræðast við: Astandið í Eystrasaltsríkj- unum helsta umræðuefnið Washingfton. Reuter. FYRSTI fundur utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, James Bakers, og nýskipaðs utanríkis- Reuter Einkennisklæðin á eldinn Skæruliði úr röðum samtaka kólumbískra maóista, Byltingarflokks verkamanna, varpar einkennisklæðum sínum á eld við hátíðlega at- höfn í norðurhluta landsins í gær. Samtökin hafa samið frið við stjórnvöld og segjast munu starfa sem löglegur stjórnmálaflokkur „til að ná þjóðarsáttum og efla lýðræðið". Skæruliðarnir skútu loka- hrinu af rifflum sínum upp í loftið og síðan brutu margir þeirra vopnin í mél með sleggjum. ráðherra Sovétríkjanna, Alex- anders Bessmertnykhs, var fyrir- hugaður í gær í Washington. Ónafngreindur embættismaður sagði dagblaðinu New York Ti- mes að vegna ofbeldisaðgerð- anna gegn lýðræðis- og sjálfstæð- issinnum í Eystrasaltsríkjunum nú nýverið hygðist Baker til- kynna Bessmertnykh að Banda- ríkjamenn vildu fresta um óákveðinn tíma leiðtogafundin- um sem fyrirhugaður er í Moskvu 11.-13. febrúar nk. Marg- aret Tutwiler, talsmaður ut- anríkisráðuneytisins, sagði að utanríkisráðherrarnir tveir myndu fyrst og fremst ræða að- gerðir Moskvustjórnarinnar í Eystrasaltsríkjunum, en þær nefndi George Bush Bandaríkja- foseti fyrst sem ástæðu þess að fresta þyrfti leiðtogafundinum. Tutwiler sagði að Baker og Bessmertnykh myndu einnig ræða eftirlit með vígbúnaði, leiðtoga- fundinn og stuðning Sovétmanna við fjölþjóðaherliðið, sem beitt er gégn írökum. Samningamenn Bandaríkjanna og Sovétríkjanna hafa setið á fund- um alla vikuna og rætt START- samning (samkomulag um fækkun langdrægra kjarnorkuvopna) en þeim virðist ekkert hafa miðað í samkomulagsátt. Þeir hafa einnig reynt að ná lokasamkomulagi um framkvæmd nýs samnings um fækkun hefðbundinna vopna í Evr- ópu, sem undirritaður var í nóvemb- er sl. Menn greinir mjög á um hvort halöa eigi leiðtogafundinn eins og upphaflega var áætlað, fresta hon- um eða aflýsa. Dimitri Simes, bandarískur sérfræðingur í málefn- um Sovétríkjanna, sagði að við nú- verandi kringumstæður myndu hvorki Bush né Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi hagnast á leiðtoga- fundi og þess vegna bæri að fresta lionum. Simes sagði að Gorbatsjov yrði meiri óleikur en greiði gerðui með slíkum fundi, þar sem Bush færi að gagnrýna aðgerðir Rauða hersins í Eystrasaltsríkjunum, engii samningar væru tilbúnir til undir- skriftár og Bush byði enga efna- hagsaðstoð. Sumir eru þó á annarri skoðun. „Stórveldin hafa á síðustu fimm árum bætt samskipti sín stórkost- lega og það er rangt að líta á leið- togafundi sem einhvers konar verð- laun,“ sagði fyrrverandi aðstoðarut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, Rozanne Ridgway, sem hvatti tií þess að fundurinn yrði haldinn. Studentaleiðtogar hljóta fangelsisdóma í Kína Peking. Reuter. RÉTTARHÖLDUM yfir lýðræðisbaráttumönnum, þ.á m. kínverska stúdentaleiðtoganum Wang Dan, lauk í gær í Peking. Wang var dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir þátttöku sína í að- gerðunum vorið 1989 er krafist var umbóta í lýðræðisátt. Öpinbera fréttastofan Nýja Kína sagði að dómstóllinn hefði fundið Wang sekan um „alvarlega.glæpi" en hann fékk vægan dóm vegna þess að hann játaði sekt sína og gaf upplýsingar um aðra. Fimm aðrir félagar í lýðræðis- hreyfingunni voru dæmdir í fang- elsi. Ren Wanding, baráttumaður fyrir mannréttindum, hlaut lengsta fangelsisvist, sjö ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.