Morgunblaðið - 27.01.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.01.1991, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT .MíJM&MEXéÍÐ i'suiíNííDAÖiíi'áz. Álfhildur Ólafsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra: Viðhorf margra til land- búnaðar yfirborðskennd ÁLFHILDUR Ólafsdóttir hætti störfum sem aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra um síðustu áramót, en þá snéri hún sér alfarið að búskaþ á Akri í Vopnafirði, þar sem hún og sambýlis- maður hennar, Björn Halldórsson, búa félagsbúi ásamt foreldr- um hans og bróður. Áifhildur var aðstoðarmaður landbúnaðar- ráðherra í rúmlega tvö ár, og segir hún viðhorf sín til íslensks landbúnaðar ekki hafa breyst neitt á þpim tíma, enda hafi hún þekkt það vel til áður vegna starfa sinna sem ráðunautur, bænda- skólakennari og bóndi. - '■*. „Viðhorf mín til landbúnaðar- ins sem slíks hafa ekki breyst, en vissulega styrktist andúð mín á fullvirðisréttarkerfinu,“ sagði Álfhildur. „Ég komst hins vegar ennþá betur að því en áður í starfi mínu sem aðstoðarmaður ráðherra hve mjög viðhorf margra til landbúnaðarins eru yfirborðskennd. Þá er ég ekki að tala um viðhorf almennings, held- ur fólk sem ætti að hafa víðsýni og skynsemi til að skilja sam- hengi hlutanna, eins og til dæmis stjórnmálamenn, en það rak ég mig oft á að vantaði alveg gjör- samlega. Þetta fólk hefur ekki sett sig inn í hlutina og gerir sér ekki grein fýrir einföldustu grundvallarstaðreyndum land- búnaðar og náttúrufræði, en kannski er þetta fyrst og fremst vegna tengslaleysis fólks við nátt- úruna. Dæmi um þetta er öll þvælan um innflutning á landbún- aðarvörum, og einnig ýmislegt sem menn hafa látið orð um falla varðandi nýjan búvörusamning. Hver heilvita maður ætti að gera sér grein fyrir því að breytingar á öllu þurfa sinn undirbúnings- tíma, og þó ég gagnrýni núver- andi fullvirðisréttarkerfi þá finnst mér samt augljóst að það er ekk- ert sem menn breyta á skömmum tíma. Sannleikurinn er sá að þessi mál eru bæði erfið og flókin, og því miður erum við þarna að fást við aðstæður, sem ekki er til nein góð lausn á.“ Álfhildur sagðist halda að land- búnaðarkerfið í heild ætti að geta verið mun skilvirkara en það er í dag, og ætti það sérstaklega við það sem kalla mætti þekkingar- hluta þess. Rannsóknir og leið- beiningarstarf mætti bæta mjög mikið, og þar stæði kannski mest upp á bændastéttina að taka sig saman í andlitinu varðandi sitt eigið félagskerfi, sem aftur væri hluti af rannsókna- og leiðbein- ingarkerfinu. „Á þessu sviði mætti kerfið gjarnan hrista dálítið upp í sjálfu sér, en þarna er víða ofboðsleg tregða. Jafnvel þeir sem hafa áhuga á að breyta hlutunum standa ekki í því. Kannski er það vegna þess að menn eru upptekn- ir af svo mörgum hlutum, en einn- ig er það vegna þess að ýmsir aðilar reyna stöðugt að spyrna við fótum. í þessu sambandi á ég kannski ekki fyrst og fremst við bændastéttina, heldur starfs- menn stofnana og stjómkerfisins. Það verða óumflýjanlega tals- verðar breytingar í íslenskum landbúnaði á komandi árum, en ógnarlegasta breytingin sem við stöndum frammi fyrir held ég þó að sé fólksflóttinn til suðvestur- homsins. Kannski verður hann svo mikill að hann standi fyrst og fremst í vegi fyrir breytingum í sveitunum, þannig að þeir sem ekki komast fyrir í hefðbundnu búgreinunum fari þaðan. Ég held þó alltaf að vissu marki í þá trú að megnið af sveitafólkinu vilji ekki fara suður, þannig að ef menn sjái einhveija aðra mögu- leika þá muni meirihlutinn not- færa sér þá. Hjá því fólki sem uppalið er í sv.eit þurrkast sú lífsreynsla í fæstum tilfellum nokkurn tíma út, og því held ég að það blundi alltaf í mönnum að kunna kannski ekki fullkom- lega við sig á malbikinu,“ sagði hún. Gífurleg völd bankakerfisins Álfhildur sagðist ekki sjá eftir þeim tíma sem hún eyddi í land- búnaðarráðuneytinu, og í raun og vem væri hún mjög ánægð með að hafa fengið að kynnast málunum frá því sjónarhomi, en starf hennar hefði verið erilsamt og á margan hátt mjög skemmti- legt. Henni hefði þó staðið ógn af því að komast að hve gífurleg völd bankakerfið í landinu hefði, en mest hefði hún orðið þess vör þegar unnið hafi verið að því að finna lausn á vanda loðdýrarækt- arinnar, og einnig í sambandi við þann fjölda fólks sem leitað hefði til ráðherra þegar í nauðir hefði rekið. „Manni óaði oft á tíðum við því að sjá hvernig bankakerfið var búið að fara með fólk. Vissu- lega þurfa bankamir að gæta hagsmuna þeirra, sem leggja til peninga til að lána öðrum, en ég vil kalla það siðleysi oft á tíðum hvemig fólki hafa verið lánaðir peningar án þess að nokkur fjár- málaaðstoð hafi verið veitt í tengslum við lánveitingamar. Bankarnir ganga síðan af hörku að mönnum þegar skuldimar em innheimtar, en auðvitað var vaxtaokrið búið að valda því að enginn grundvöllur var til að menn gætu staðið undir lánunum. Þá þráuðust bankarnir alltaf við þeim aðgerðum, sem unnið var að í sambandi við loðdýraræktina, Álfhildur Ólafsdóttir en alltaf endaði það á því að bank- arnir stæðu stífir þegar menn þóttust vera búnir að finna leiðir til að leysa vandann, og ríkið og stofnanir væru búnar að gera hitt og þetta í því sambandi." Álfhildur er fædd og uppalin í Gerði í Hörgárdal. Hún flutti til Vopnafjarðar árið 1984 og hóf þá störf sem ráðunautur hjá bún- aðarsambandi Austurlands, en áður hafði hún verið kennari við bændaskólann á Hólum í þijú ár. Þá starfaði hún í þijú ár sem ráðunautur hjá Sambandi íslenskra loðdýraræktenda áður en hún varð aðstoðarmaður land- búnaðarráðherra. Á Akri býr hún með kýr, kindur og minka, en kúabúið er undirstaða búrekstrar- ins að hennar sögn. „Þetta era .þijár fjölskyldur sem standa að búinu, og það er ekki stórt ef menn vilja taka það í því samhengi. Ég hef þó engin áform um að sinna öðram störfum en búskapnum, enda líður mér svo dæmalaust vel við hann, en þó er aldrei að vita hvað maður gerir þegar ég verð búin að hvíla mig eftir dvölina í Reykjavík. Þetta er kannski spurning um forgangsröðun á því í hvað maður eyðir tíma sínum, en ég komst að þeirri niðurstöðu að ég vildi helst eyða honum í að vera hérna heima og vinna við búið, og það er ákvörðun sem ég sé ekki eftir að hafa tekið,“ sagði hún. Fljótsdalur: Virkjunar- framkvæmdir kynntar fyrir heimamönnum Geitagerði, I’ijót.sdal. ALMENNUR sveitarfundur var haldinn hér með frammámönnum Landsvirkjunar síðastliðið föstu- dagskvöld, og var það fyrsti al- menni kynningarfundurinn varð- andi Fljótsdalsvirkjun þar sem gerð var grein fyrir allri tilhögun og undirbúningi virkjunarinnar. Hún er nú á útboðsstigi og verða tilboðsgögn opnuð síðar í vetur, en alls eru verksamningar 14 tals- ins. Framkvæmdir tengjast þó ákvarðanatöku um byggingu ál- vers á íslandi. Á fundinum var lýst öllum fyrir- huguðum framkvæmdum, svo sem stíflugerð inni á Eyjabökkum og gerð hennar með tilliti til öryggis, en það atriði varð nokkuð umræðu- efni á fundinum. Frá Eyjabakkalóni, sem verður um 44 ferkílómetrar, verður vatnið leitt eftir jarðgöngum um 28 km leið að aflvélum virkjunar- innar. Þær verða um eitt þúsund metra inni í fjallinu utanvert í Norð- urdal í Fljótsdal, eða nánar til tekið undir Teigshúsbjargi, en nýtanleg fallhæð verður nær 600 metram. Flutningslína er fyrirhuguð úr Fljóts- dal um Fljótsdalsheiði yfir Jpkulsá á Dal og norður í Svartárkot og þaðan í Búrfell. Vegna hinna miklu þunga- flutninga sem ekki eiga sér hliðstæðu hérlendis þarf að styrkja vegakerfíð frá því sem nú er. Ekki er enn ákveð- ið hvor íeiðin upp með Lagarfljóti frá Egilsstöðum verður valin, en þó virð- ist austurleiðin álitlegri. Þá þarf og að brúa Jökulsá um Hrafnkelsstaði. Kostnaðaráætlun við heildarfram- kvæmdir vegna virkjunarinnar er 19,5 milljarðar króna sem skiptist á íjögur ár, en verkinu á að verða lok- ið síðast á árinu 1994. Samningar við heimaaðila eru að hefjast varð- andi bætur vegna ýmiss konar rösk- unar samfara virkjunarframkvæmd- um. Að vísu hefur um nokkurt skeið verið unnið að undirbúningi þeirra, til dæmis hvað varðar eignarrétt á landi og landamerki. Kemur þar margt til sem gerir málið flókið og koma fleiri en eitt ráðuneyti þar við sögu. G.V.Þ. Þróunaraðstoð Islendinga: Tífalda þarf framlagíð til að standa við skuldbindingar ÞRÓUNARAÐSTOÐ og hjálparstarf í þróunarlöndunum hefur verið nokkuð til umræðu hér á landi upp á síðkastið, en ljóst er að mörgum þykir framlag íslendinga til þeirra mála vera heldur lítilmótlegt. A síðasta ári nam opinbert framlag til þróunarmála aðeins 0,07% af þjóðarframleiðslu, en samkvæmt samþykkt Sam- einuðu þjóðanna hefur ísland hins vegar skuldbundið sig til að verja 0,7%-af þjóðarframleiðslu til aðstoðar í þróunarríkjunum. Árið 1985 samþykkti Alþingi að auka framlög til þróunaraðstoð- ar jafnt og þétt þar til þessu marki yrði náð árið 1992, en á þeim árum sem liðin eru frá samþykktinni hefur nánast engin aukning orðið á framlögum, og því ljóst að takmarkinu verður tæpast náð á tilsettum tíma. Skömmu fyrir sfðustu jól skip- aði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra nefnd til að gera tillögur um framtíðarskipan þró- unaraðstoðar íslendinga, en nefndin á að taka mið af samþykkt Al- þingis frá 1985, og gera tillögur um hvernig ná megi því markmiði sem þá var sett. Ér nefndinni meðal annars falið að kanna mög- uleika á þjóðaratkvæðagreiðslu um sérstakt framlag almennings til þróunaraðstoðar, en þeirri hug- mynd varpaði forsætisráðherra fram eftir að hann sótti ráðstefnu Barnahjálpar • Sameinuðu þjóð- anna síðastliðið haust. Sérstakur starfshópur á vegum utanrík- is- og fjáfmála- ráðherra fór í haust yfír fjárhagslegar skuld- bindingar og fjárþörf vegna þró- unaraðstoðar og þróunarsam- vinnu íslendinga, og lagði hann skýrslu fyrir fjárveitinganefnd Alþingis í bytjun nóvember. í skýrslunni var meðal annars bent á að íslenskir aðilar hefðu lítil áhrif á það hvemig framlögum þeirra til alþjóðlegra stofnana er varið, en hins vegar réðu íslend- ingar miklu um hvernig fjárveit- ingum til Þróunarsamvinnustofn- unar íslands og Jarðhitaskólans er varið. Á það er bent í skýrsl- unni að yfir 70% af framlögum til þessara stofnana er varið til að greiða íslenskum aðilum eða greiða kostnað sem fellur til hér á landi, en í fæstum tilfellum sé um bein fjárframlög til erlendra aðila að ræða. Þannig geti fjár- veitingar til þessara stofnana skapað atvinnutækifæri hér á landi og verkefni fyrir íslensk fyr- 1 irtæki, þó aðalmarkmiðið sé að- stoð við þróunarríki. Samkvæmt upplýsingum Bjöms Dagbjartssonar, forstjóra Þróunarsamvinnustofnunar Is- lands, hækka fjárframlög til stofnunarinnar um 20 milljónir króna á milli áranna 1990 og 1991, eða úr 75 milljónum í 95 milljónir, en í ijárhagsáætlun var reiknað með að 143 milljónir þyrfti til þeirra verkefna sem gert var ráð fyrir að sinna á þessu ári. Öll verkefni stofnunarinnar voru svo til með galtóma sjóði um síðustu áramót, og segir Björn að enn sem fyrr verði ekkert fé á þessu ári til að undirbúa ný verk- efni. Að sögn Björns einskorðast starfsemi ÞSSI nú að mestu við Namibíu, Malawi og Grænhöfða- eyjar, og á síðasta ári einkenndist hún mjög af upphafi þróunarsam- starfsins milli Islands og Namibíu um fiskirannsóknir við strendur landsins. Stofnunin tók að sér að reka rannsóknaskip í eigu Namib- íu og manna það yfirmönnum, en til þeirra starfa voru ráðnir 12 menn af 130 umsækjendum, og héldu þeir utan í haust. Stefna ÞSSÍ í starfseminni í Malawi hefur verið mörkuð fyrir næstu ár með því að stofnunin gerðist aðili að verkefni Alþjóða- bankans og Norræna þróunar- sjóðsins um endurbætur í fiskveið- um og fiskiðnaði þar í landi. Mun stofnunin taka að sér að kosta og stjórna rannsóknaþættinum að meira eða minna leyti, og tekur ÞSSÍ þátt í þessu verkefni með 500 þúsund bandaríkjadölum á næstu fimm árum. Sagði Björn að hugmyndin væri að byggja rannsóknabát á þessu ári, en smíði hans verður fljótlega boðin út hér á landi, og mun ÞSSÍ veija til þess 13 milljónum króna, en Norræni þróunarsjóðurinn leggur til afganginn af verði bátsins. Síðastliðið haust var undirritað- ur nýr fímm ára rammasamningur um þróunarsamvinnu íslands og Grænhöfðaeyja. Engar meiri- háttrar ákvarðanir um verkefni hafa þó verið teknar vegna óvissu- ástands sem ríkt hefur á Græn- höfðaeyjum, en fyrstu frjálsu kosningamar þar ’fóru fram nú í byijun janúar. Bjöm sagði að á síðasta ári hefði starfsemi ÞSSÍ á Grænhöfðaeyjum að mestu verið bundin við fiskifræðilega ráðgjöf og aðstoð við að halda áfram dragnótaveiðum, ferskfisksölu og öðra sem búið hafi verið að koma af stað á fyrri starfsárum ÞSSI á eyjunum. Þá hafi verið hafin að- stoð við smábátaútgerð með nýju verkefni ÞSSÍ, þegar plastbátur- inn Ullur, sem smíðaður var í Hafnarfirði, kom til eyjanna í ágúst, en útgerð hans hefur geng- ið allvel. BAKSVIÐ eftir Hall Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.