Morgunblaðið - 27.01.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.01.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/.SMA &UNN.l/PAG}JR 27. JANÚAR 1991 25 ATVINNU V /( ’:/ YSINGAR Gjaldkeri á kassa Gjaldkeri óskastá kassa í byggingavöruversl- un. Um er að ræða hálfsdagsstarf og er vinnutími frá kl. 13.00. Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf þurfa að berast auglýsingadeild Mbl. fyrir kl. 17.00 miðvikudaginn 30. janúar merktar: „Kassi - 100“. © Ríkisútvarpið auglýsir laust til umsóknar starf fréttamanns í innlendum fréttum á frétta- stofu útvarpsins. Háskólamenntun og/eða reynsla ífrétta- og blaðamannsku er æskileg. Umsóknarfrestur er til 29. janúar nk. Umsóknum ber að skila til Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1, á eyðublöðum sem þar fást. RÍKISÚTVARPIÐ Heilsugæslustöðin á Hólmavík Staða heilsugæslulæknis á Hólmavík er laus til umsóknar nú þegar. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar. Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu- blöðum. Nánari upplýsingar gefur Elísabet í símum 95-13395 eða 95-13132. Stjórn Heilsugæslustöðvarinnar. Rennismiður Traust fyrirtæki í verklegum framkvæmdum óskar að ráða rennismið sem fyrst. Framtíðarstarf á litlu renniverkstæði, sem rekið er í tengslum við bifreiða- og vélaverk- stæði fyrirtækisins. Vinnustaður er á góðum stað í Reykjavík og aðstæður eins og best verður á kosið. Umsóknareyðublöð á staðnum. Nánari upplýsingar veitir Adolf Ólason í síma 679595 fyrir 2. febrúar nk. RÁÐGARÐURHí STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88 Framtíðarstörf Óskum eftir að ráða sem fyrst gott fólk í eftirfarandi framtíðarstörf: ★ Framkvæmdastjóri tréiðnaðarfyrirtækis. ★ Framkvæmdastjóri verslunarfyrirtækis. ★ Bókari hjá lífeyrissjóði. ★ Afgreiðslumaður, bílavarahlutir. ★ Vélvirki, þungavinnuvélaviðgerðir. ★ Afgreiðslugjaldkeri, tölvuvinna. ★ Næturvarsla, eldri mann. ★ Sölumaður, húsgögn 50% starf e.h. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-15. SWfSÞMUSM n/f Nóatúni 17 105 Reykjavík Sími: 621315 Atvinnumiðlun • Firmasala • Rekstrarráögjöf 12! Atvinnurekendur! Munið Vinnumiðlun Kópavogs í Fannborg 4. Síminn er 45700. Vinnumiðlun Kópavogs. Prentsmiðjustjóri Prentsmiðja í borginni vill ráða prentsmiðju- stjóra til starfa. Ráðningartími ersamkomulag. Leitað er að metnaðarfullum starfsmanni, sem hefur góða stjórnunarreynslu og þekk- ingu á sem flestum sviðum prenttækninnar og er tilbúinn að takast á við krefjandi og sjálfstætt starf. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar til 3. febrúar. C\ TfíNT IÓNSSON RÁÐCJQF & RÁÐN 1 N CARÞJ ÚN U STA TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22 Smiður - laghentur maður Ós húseiningar hf. óskar eftir að ráða smið eða laghentan mann til smíða og viðhalds- starfa. Frekari upplýsingar gefur verkstjóri í röradeild í síma 651444. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu fyrirtækisins. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi miðvikudaginn 30. janúar. I!! Útideild í Kópavogi óskar eftir að ráða starfsmann í hálft stöðu- gildi. Starfið er fjölbreytt með sveigjanlegum vinnutíma, aðallega á kvöldin og um helgar. Reynsla og/eða menntun skilyrði. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar nk. Umsóknareyðublöð iiggja frammi í afgreiðslu Félagsmálastofnunar Kópvogs. Nánari upplýsingar veitir unglingafulltrúi í síma 45700. Félagsmálastofnun Kópavogs, Fannborg 4. Mikligarður, Garðabæ Starfsfólk óskast í Miklagarð í Garðabæ vantar fólk til afgreiðslustarfa á kassa. Tvö heilsdagsstörf. Nánari upplýsingar um þessi störf fást hjá Starfsmannaþjónustu Sambandsins, Sam- bandshúsinu, Kirkjusandi, eða hjá verslunar- stjóra. Prentsmiður Morgunblaðið, framleiðsludeild, vill ráða prentsmið til starfa við umbrot. Starfið er laust strax. Vaktavinna. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eingöngu veittar á skrifstofu Guðna Jóns- sonar, Tjarnargötu 14. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar nk. Guðni Tónsson RAÐCJÓF &RÁÐNINCARLJÓNUSTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Laus staða Ritari óskast til starfa í sjávarútvegsráðu- neytinu. Umsækjandi þarf að hafa góða vélritunar- og íslenskukunnáttu og æskileg er þekking á ritvinnslukerfinu Word Perfect. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist ráðuneytinu á Skúlagötu 4, fyrir 8. febrúar nk. Sjávarútvegsráðuneytið, 23. janúar 1991. Þurfum að ráða nokkra sölumenn í spenn- andi og krefjandi verkefni. Um er að ræða vinnu á skrifstofutíma, einnig kvöld- og helg- arvinna. Miklir tekjumöguleikar. Upplýsingar í dag, sunnudag, milli kl. 13.00 og 17.00 í síma 670677. Einnig á skrifstofutíma 28. jan.-1. feb. í síma 12923 og 28787. Sölustjóri. ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Lausar stöður Hjúkrunarfræðinga vantar nú þegar, eða eftir nánara samkomulagi á allar vaktir ,á handlækningadeild 2B og 3B. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á fastar kvöldvakatir á 2B. Sjúkraliða vantar á fastar næturvaktir (aðrar vaktir koma til greina) á handlækningadeild 2B. Nánari upplýsingar veitir Björg J. Snorradótt- ir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 604300. Skattstofa Reykjanesumdæmis Á skattstofu Reykjanesumdæmis er laus til umsóknar staða við skatteftirlit. Starfið felst einkum í athugun á bókhaldi og eftirliti með skilum á virðisaukaskatti og staðgreiðslu. Umsækjendur þurfa annað hvort að hafa lokið prófi í viðskiptafræðum eða hafa trausta þekkingu og reynslu af bókhaldi og gerð ársreikninga. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, óskast sendar skattstjóra Reykjanesumdæmis, Suðurgötu 14, Hafnar- firði, fyrir 8. febrúar nk. Nánari upplýsingar eru veittarísíma 51788. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. IÐUNN Sölustörf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.