Morgunblaðið - 27.01.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 27.01.1991, Blaðsíða 31
morgunbiaðið FÓJLK í/FRfci > UM.'stmjjijA^ft^y. 31 in undir eróbiksalinn þannig að ég er eiginlega heimilislaus. Fyrst um sinn verð ég lítill drengur aftur og flyt heim til pabba og mömmu.“ En þetta hefur væntanlega kostað mikla vinnu? „Ég hef verið að vinna í þessu ásamt vinum og kunningjum á fullu í hálft ár og nánast myrkranna á milli' síðasta mánuðinn. Við höfum farið með puttana oftar en einu sinni í hverja einustu fertommu í húsinu. Maður sleppti æfingum al- gerlega og gaf sig alfarið í þetta. I nótt má heita að ég hafi sofið út í fyrsta skipti frá því að þetta hófst og var sá svefn þó aðeins fimm klukkustundir. Ég hef verið að láta eins til tveggja tíma svefn duga, jafnvel engan svefn innan um. Þetta er geggjun, en sem betur fer lokið. En þetta er þess virði. Þetta er fyrsta stöðin sem búin er svona tækjum sem opnuð er á Norðurlönd- um, stöðin er hluti af alþjóðlegri keðju sem heitir Gym ’80 og allir sem hingað hafa komið til þessa hafa farið ánægðir. Og hér geta allir aldurshópar æft hlið við hlið. Ég gæti setið andspænis henni ömmu á bekkjunum, þannig eru þau nú þessi nýju tæki. Og fólki fínnst hafa tekist vel til að fara bil beggja í umhverfi. Hlutar stöðvarinnar eru heimilislegir og þægilegir, en aðrir hlutar hafa á sér skemmtistaðablæ, eins og til dæmis móttakan.“ En hvað tekur nú við hjá þér, Jón Páll? „Eins og ég gat um áðan, hætti ég alfarið æfingum á meðan lokahnykkurirm var gerður. Ég kláraði allt sem ég átti og 20 kíló af sjálfum mér í ofanálag og mér var sárast um þau! Ég hef titil að veija, ég er „sterkasti maður heirns" og þarf að veija þann titil í árslok þannig að framundan hjá mér eru þrotlausar æfmgar. Ég þarf að ná fyrri styrk og helst gott betur,“ segir Jón Páll Sigmarsson. Skemmtinefndin, Stefán, Árni og Einar. SKEMMTANIR Við erum einir eftir „Þeir hafa sagt okkur á Hótel Sögu, að í eina tíð hafi þrjú böll ævinlega borið af öðrum að glæsileika og umgjörð allri. Pressubal- lið, stórkaupmannaballið og árshátíð Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Við erum einir eftir af þessum hópi og samkomurnar eru jafn glæsi- legar og fyrrum,“ segir Stefán Á. Magnússon formaður Skemmti- nefndar SVFR í samtali við Morgunblaðið, en hann hefur í óða önn verið að skipuleggja ball þessa árs ásamt félögum sínum í skemmti- nefndinni Árna Jóhannssyni og Einari Sigfússyni og þeim Halldóri Skaftasyni og Hafsteini Egilssyni hjá Sögu. Ballið er næstkomandi föstudagskvöld og er viðbúnaður mikill að vanda. steiktan nautahrygg sem verður skorinn á sjálfu sviðinu með þátttöku alls kokkaliðsins. Aðrir réttir eru laxasúpa, agúrkukrapi og nougat- frauð með perumauki. Þarna verður einnig söngkabarett, 35 mínútna at- riði með Agli Ólafssyni, Eddu Heiðr- únu Bachmann, Jóhanni Sigurðar- syni, Ásu Hín Svavarsdóttur og Jó- hanni G. Jóhannssyni. Þegar þau hafa lokið við sitt kemur Jóhannes Knstjánsson eftjrherma á sviðið og þar á eftir stjórnar Rósar Eggertsson bikarafhendingum fyrir stóra laxa veidda á vatnasvæðum félagsins. Einnig má nefna getraun sem kölluð er hátíðarfluga kvöldsins, vísubotna- keppni og happdrætti. Veislustjóri verður Sverrir Hermannsson banka- stjóri," segir Stefán. Stefán segir enn fremur að mikil vinna liggi að baki slíkrar veislu. Undirbúningur hefjist þegar í nóv- ember, skemmtinefndarmenn og sögumenn setjist þá á rökstóla og ákveði matseðil kvöldsins. Fyrirvar- inn er góður til að svigrúm sé til þess að nálgast allt það besta hrá- efni sem völ er á. Síðan hefst mót- taka borðapantana og niðurröðun og skipulagning borða. Þá þuríí að velja sérstök skemmtiatriði þar sem slíkt efni sem í gangi er á viðkomandi skemmtistöðum sé yfirleitt allt of langt fyrir félagsskap eins og SVFR sem væri með mýmargar uppákomur aðrar undir borðum. Hvað verður fólki sem sagt boðið upp á á föstudagskvöld? „Aðalréttur- inn er í sjálfu sér nokkurs konar skemmtiatriði. Um er að ræða heil- Fjölskylduverð: Laugardaga og sunnudaga kl. 11.00-15.00 11eikurfyrir2kr.300,- 1 leikurfyrir 3 kr. 400,- 11eikurfyrir4kr. 490,- 11eikurfyrir5 kr. 580,- 11eikurfyrir6 kr. 670,- Keilusalurinn, Öskjuhlíð, sími 621599. ÖÐRUVÍSI SUMAR Nú í sumar mun AFS á íslandi bjóða uppá skemmtilega og lærdómsríka sumardvöl fyrir ungt fólk á öllum aldri í eftirtöldum löndum: NÝJA SJÁLAND 2 mánaða enskunám og útivist, 16-18 ára. BANDARÍKIN 6 vikna enskunám og fjölskyldudvöl, 15-20 ára. JAMAICA 6 vikna enskunám og fjölskyldudvöl, 18-30 ára. ZIMBABWE 4ra vikna vinnu- og fræðsluferð, 18 ára og eldri. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 1991. Opið daglega milli kl. 14 og 17. Upplýsingar fást hjá AFS Á ÍSblNDI Alþjóöleg fræðsla og samskipti Laugavegi 59, 4. hæð, sími 91-25450, pósthólf 753, 121 Reykjavík. Óla M. ísakssyni t.h. og Ármanni Eggertssyni þykir félagsskap- urinn greinilega góður. HOFÐINGSSKAPUR Utbýtir milljónum til líknarstofnana Oli M. ísaksson varð 93 ára í gær, laugardag. Þegar hann varð níræður birtist hér í Morgun- blaðinu viðtal við kempuna og þar sagði hann frá lífshlaupi sínu, áratugirnir hjá Heklu, hrossin sem hann hafði ljjá sér í íbúðarhúsinu á Dyngjuvegi og svo ern var hann enn níræður að hann ók til og frá vinnu dag hvern. Hann var þá meira að segja nýbúinn að kaupa sér nýjan bíl. Auðvitað keypti hestamaðurinn gamli „Mitzubishi Colt“, en colt er enskt nafn á tryppi. En Oli hefur vakið á sér at- hygli síðustu misserin fyrir allt annað en hestamennsku og hraustleika í hárri elli. Hann hefur verið að gefa milljónir króna til hinna ýmsu líknarstofnana. Alls eru milljónirnar orðnar sex sem hann hefur látið af hendi rakna til Blindrafélagsins, Styrktarfé- lags lamaðra og fatlaðra og Sól- heima. í desember síðastliðnum fengu allar stofnanirnar hver sina milljón. Myndin sem hér fylgir var tek- in er Óli brá sér austur í Sólheima til að afhenda fúlguna. Vegna þessa hefur eitt herbergi í veg- legri visteiningu verið tileinkað Óla og eiginkonu hans heitinni, Unni Olafsdóttur listakonu, og er myndin tekin í herberginu og þar stendur Óli ásamt Ármanni Egg- ertssyni sem býr í herberginu. Það hefur helst verið að heyra á Óla að ástæðan fyrir því að hann er dreifandi þessum milljónum á milli stofnana sé sú að hann sé ekkert þurfandi, en það séu blind- ir, lamaðir, fatlaðir, vangefnir og" fleiri hins vegar og því sé pening- unum best varið með því að hjálpa slíku fólki. 40%—60% afsláttlir ^ IYJAR VORUI med 20% afslætti á meðan útsalan sténdur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.