Morgunblaðið - 21.02.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 21.02.1991, Síða 1
I A T FfÁRMÁL: Hækkandi raunvextir í kjölfar aukinnar eftirspurnar eftir lánsfé/6 SAMKEPPNI: Hverjar veröa athyglisverðustu auglýsingar ársins?/8/9 VIÐSKIPn ÆVINNUIÍr D PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991 BLAÐ Eignaleiga Hagnaður Glitnis 32,5 milljónir í fyrra Viðræður við erlenda aðila í gangi um sölu á Holiday Inn HAGNAÐUR Glitnis hf. var 32,5 milljónir á siðastliðnu ári eftir reiknaðan tekjuskatt sem nam rómum 22 milljónum. Staða eigna- leigusamninga í árslok nam tæpum 2,6 milljörðum og hafði eignin dregist saman um 403 milljónir frá fyrra ári. Þannig reyndust ný útlán minni en nam endurgreiðslum vegna eldri samninga en einnig hafði gengisfall dollars áhrif til lækkunar samninga. Þetta kom fram á aðalfundi Glitnis sem haldinn var síðastliðinn þriðju- dag. „Minni fjárfesting í atvinnulíf- inu þriðja árið í röð leiddi óhjá- kvæmilega til þess að eftirspurn eftir fjármagni til fjárfestinga var í lágmarki á árinu,“ sagði Kristján Óskarsson, framkvæmdastjóri Glitnis, í samtali við Morgunblað- ið. „Slíkt ástand hefur töluverð áhrif á efnahagsreikning eigna- leigufyrirtækja þar sem þau gera að jafnaði samninga til tiltölulega skamms tíma. Undir lok síðasta árs og það sem af er þessu ári hefur eftirspurn hins vegar verið meiri en á sama tíma árið á und- an.“ Heildareignir Glitnis námu í árslok 3.384 milljónum saman- borið við 3.546 milljónir árið áður. Eigið fé samkvæmt efnahags- reikningi nam 218 milljónum. Víkjandi lán eigenda námu auk þess 225 milljónum en voru 234 milljónir í ársbytjun. Víkjandi lán og eigið fé nemur nú 13,1% af heildaríjármagni en samkvæmt lögum um eignaleigufyrirtæki þarf þetta hlutfall að vera 10%. Á síðasta ári voru lagðar 20 milljón- ir króna á afskriftarreikning til að búa fyrirtækið betur undir að mæta tapi á útlánum í fram- tíðinni. Kröfur að íjárhæð 17,5 milljónir voru afskrifaðar sem tap- aðar. í lok árs var búið að leggja 127 milljónir króna fyrir til að mæta hugsanlegu tapi í fram- tíðinni eða 4,9% af samningseign. Sambærilegt hlutfall var í ársbyij- un 4,1%. Starfsemi Glitnis er bæði fjár- mögnuð með innlendu og erlendu lánsfé. Félagið hefur lánssamn- inga við Den Norske Bank sem námu 1.215 milljónum í árslok 1990. Einnig hefur félagið láns- samning við sex banka undir for- ystu Manufacturers Hanover Norge A/S sem nam 666 milljón- um. Útistandandi skuldabréf á innlendum verðbréfamarkaði námu 908 milljónum. Auk íjármögnunarleigu og kaupleigu býður Glitnir nú nýtt fjármögnunarform sem kallast greiðslusamningur. Þetta form er talið hentugt við fjármögnun smærri fjárfestinga í vélum og tækjum þegar óskað er eftir stutt- um endurgreiðslutíma. Á samn- ingstímanum er tækið eign Glitnis en greiðandinn hefur kauprétt í lok tímans fyrir verð sem ákveðið var í upphafi eða rétt til að skila því til fyrirtækisins. Glitnir og Iðnaðarbankinn leystu til sín Hótel Holiday Inn árið 1989 eftir gjaldþrot hótelsins og hefur það verið boðið til sölu bæði innanlands og utan. Nokkrir aðilar hafa sýnt hótelinu áhuga að undanförnu, að sögn Kristjáns Óskarssonar. Hann sagði að við- ræður stæðu nú yfir við erlenda aðila um hugsanleg kaup á hótel- inu en of snemmt væri að segja til um hvort samningar næðust. (milljónir kr.) 11.200 17.000 D 1.500 LANDBÚNAÐUR □ 1.000 AOrar vörur Útflutningur sjávarafurða (miiijónir kr.) E3 1.700 NIÐURLAQT □ 1.300 HERT D 52Ö Annað Útflutningur iðnaðarvara (miiijónirkr.) maE I 2.700 1.400 TÆKNIVÖRURf. SJÁVARÚTV. l 1.000 LOÐSÚTUÐ SKINN CHD900 ULLARVÖRUR m 500 KÍSILQÚR SME3 1.400 o 9.600 CP & |§ CO^ 10 helstu Jin ÚJFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS áætlar að gjaldeyristekjpr Islendinga hafi numíð um t?5 milljórðum á siðasta ári. Gjatdeyris- tekjur vegna þjónustu á árinu liggja ekki endanlega fyrir en þó er gert ráð fyrir að þær verði ekki minni en 34 milljarðar. A myndinni hér að ofan sést skipting gjaldeyristekna og skipting vöruút- vs::; flutnings á helstu vöruflokka og lönd. Vöruútflutningurinn ein- kenndist af mikilli verðmætaaukningu sjávarafurða en samdrætti í idnaðarvörum vegna minni álútflutnings. Af nýjum útflutningsvörum má nefna neyslúvatn sem fyrst var flutt út fyrir alvöru á siðasta ári og nemur verðmætið háit í 50 milljónum króna Alls voru fluttar út drykkjarvörur fyrir rúinar 150 milljónir. Þýskaland er nú annað mikilvægasta landið hvað varðar vöruútflutning og Frakkland skýst upp í fjórða sætið úr því sjötta. Japan fellur hins vegar um eitt sæti, úr fjórða^sætinu í það fimmta 1 " er þjónusta sem gerir fjárrhólastjórum, gjaldkerum og landsbankans sendimönnum fyrirtækja lífið léttara. Með því að tengja tölvu fyrirtækisins við BOÐLÍNUNA opnar fyrirtækið í raun sína eigin bankaafgreiðslu sem opin er frá kl. 8:00-19:00 alla virka daga. Með BOÐLÍNUNNI er hægt að millifæra af eigin reikningi á hvaða reikning sem er í hvaða banka sem er, og greiða þannig t.d. alla gíróseðla, víxla, skuldabréf og laun án þess að fara í banka. Jafnframt á fyrirtækið aðgang að fjölbreyttum upplýsingum um stöðu sína í bankanum og ýmiskonar annarri þjónustu. Hugaðu strax að BOÐLÍNU Landsbankans og mánaðamótin verða léttari. Allar nánari upplýs- LðnCÍSbSnkÍ Mk íslands ingarfást í bæklingi sem liggurframmi í næsta Landsbanka. ÁHJB Bankiallralandsmanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.