Morgunblaðið - 21.02.1991, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
B 3
Utflutningsráð
Utanríkisviðskipti ekki einka-
mál þeirra sem að þeim starfa
SAMDRÁTTUR i útflutningi,
vaxandi skuldir þjóðarinnar og
rangar fjárfestingar liðinna ára
voru meðal áhyggjuefna Magn-
Aðalfundur
Umsvif VÍB
tvöfölduðust
MIKILL vöxtur var á starfsemi
Verðbréfamarkaðar Islands-
banka (VÍB) á síðastliðnu ári. Á
aðalfundi félagsins kom fram að
rekstrartekjur og hagnaður tvö-
faldaðist milli ára og sama er að
segja um rekstrarkostnað. Tvö-
földunin nær einnig til húsnæðis
og nokkurn veginn til starfs-
manna. Velta, mæld sem saman-
lögð kaup og sala á verðbréfa,
óx hins vegar úr 6 milljörðum
árið 1989 í nærri 18 inilljarða.
Hagnaður VÍB á síðasta ári nam
40,7 millj. en var 19,5 millj. árið
1989. Rekstrartekjur námu 212
millj. en voru 108 millj. árið 1989.
Eigið fé í árslok var 140,5 millj.
Sigurður B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði á aðalfundi
VÍB að þóknun á verðbréfamarkaði
væri óðum að lækka frá því sem
áður.var, og ætti það bæði við um
sölulaun og umsjónarlaun vegna
verðbréfasjóða. Hann sagði lægri
þóknun beina afleiðingu af harðari
samkeppni. Meðan hagnaður fyrir-
tækisins héldist þannig að ávöxtun
eigin fjár þess væri viðunandi hefði
því aukin samkeppni jafnframt leitt
til aukinnar framleiðni hjá fyrirtæk-
inu og yrði það að teljast af hinu
góða.
úsar Gunnarssonar, formanns
stjórnar Útflutningsráðs Islands,
í ræðu á aðalfundi ráðsins á
þriðjudag. Með auknu frelsi í
alþjóðasamskiptum væri hætt við
fjármagns- og atgervisflótta frá
Islandi ef ekki tækist að tryggja
hér viðundandi rekstrarskilyrði
fyrir atvinnulífið. Árið 1991 yrði
á ýmsan hátt örlagaríkt fyrir
íslensku þjóðina, því á næstu
mánuðum þyrfti að marka stefn-
una varðandi þróun þjóðfélags-
ins næstu 10 ár.
Meirihluti aðalfundarins var
helgaður íslenskum útflutningsmál-
um og framtíðarþróun Útflutn-
ingsráðs. Márten Lindstáhl, fram-
kvæmdastjóri hjá sænska útflutn-
ingsráðinu, flutti erindi um vel
heppnað samstarf ráðsins við sænsk
stjórnvöld þar sem aðilarnir skiptu
með sér verkum á hagkvæman hátt.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs ís-
lands fjallaði um utanríkisviðskipti
á íslandi og mikilvægi aukningar
almennrar útflutningshæfni. Hann
sagði eina meginástæðu þess að
íslendingar hefðu dregist aftur úr
öðrum OECD löndum varðandi
landsframleiðslu á mann á síðasta
áratug, vera þá að við hefðum ekki
lagt nægilega áherslu á utanríkis-
viðskipti. Greina mætti breytingar
í atvinnumynstri annarra OECD
þjóða í átt að útflutningi, á meðan
að atvinnumynstur íslendinga héld-
ist óbreytt.
Evrópskt gæðaeftirlitskerfi var
umtalsefni Björn Friðfinnssonar,
ráðuneytisstjóra Viðskipta- og iðn-
aðarráðuneytis. Hann fjallaði um
viðurkenningar, vottanir og pró-
fanir og sagði að íslendingar ættu
Meðan þessu fer fram er í nýútko-
minni þjóðhagsspá Þjóðhagsstofn-
unar vakin athygli á að í lánsfjará-
ætlun fyrir yfirstandandi ár sé mið-
að við að lánsþörf opinberra aðila
verði að langmestu leyti mætt með
innlendum lántökum, eins og gert
var á sl. ári. „Hér er um að ræða
23 milljarða króna, sem svara til
um 6,3% af landsframleiðslu. Seðla-
banki íslands hefur gert ráð fyrir
að nýr peningalegur sparnaður geti
numið allt að 38 milljörðum á þessu
ári. Lantökuáform opinberra aðila
á innlendum markaði svara því til
60% af peningalegum sparnaði árs-
ins, samanborið við 40% í fyrra.
Þessi lántökuáform draga úr líkum
á lækkun raunvaxta, eins og að er
stefnt, og kunna jafnvel að leiða til
hækkunar þeirra,“ segir í þessari
þjóðhagsspá frá 14. febrúar sl.
Við sama tón kveður í frétta-
bréfi Verðbréfaviðskipta Samvinnu-
bankans þar sem beinlínis er sagt
að gríðarleg lánsþörf opinberra að-
ila á innlendum fjármagnsmarkaði
á síðustu misserum eigi stærstan
' þáttinn í því að raunvextir eru hér
jafnháir og raun ber.vitni. Þar kem-
ur einnig fram að innlend fjáröflun
opinberra aðila hafi numið tæplega
15 milljörðum króna nettó á sl. árí
en það svarar til 4,5% af landsfram-
leiðslu. Þá áætlaði Seðlabankinn
ekkert val, nauðsynlegt væri að
koma hér upp gæðastöðlum sem
tryggðu okkur samkeppnishæfi á
mörkuðum Vestur-Evrópu.
Friðrik Pálsson, framkvæmda-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, ræddi m.a. um mikilvægi
þess að fyrirtæki störfuðu saman í
útflutningi og minntist á hlutverk
Úí þar að lútandi. Hann sagði að
útflutningur væri öllum íslending-
um mikilvægur vegna smæðar
heimamarkaðar okkar og því væri
það ekki einkamál hvernig til tæ-
kist hjá þeim sem störfuðu að ut-
annkisviðskiptum.
Olafur Ólafsson, forstjóri Ála-
foss, sagði að mikið vantaði á að
útflutningur íslendinga hefði aukist
í sama mæli og hjá öðrum Vestur-
Evrópuþjóðum síðasta áratug.
Hann varpaði fram þeirri spurningu
hvort efnahagsstefna þessara ára
hefði bitnað jafnt á öllum atvinnu-
greinum og sagði að miðað við þau
skilyrði sem útflutningsiðnaður
hefði búið við síðustu ár væri í raun
furðulegt að hann væri enn við lýði.
Morgunblaðið/KGA
ÚTFLUTNINGSRÁÐIÐ — Aðalfundur Útflutningsráðs
íslands var haldinn á Hótel Sögu síðasta þriðjudag.
Ný stjórn Útflutningsráðs
Sú breyting var gerð á stjórnarskip-
an ÚI, að stjórnarmönnum var
fjölgað úr 8 í 10. Þrír eru tilnefnd-
ir af Samtökum atvinnurekanda í
sjávarútvegi; Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sölusambands
íslenskra fiskframleiðanda, Friðrik
Pálsson, framkvæmdastjóri Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna og
Guðmundur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri. Ólafur Ólafsson, for-
stjóri Álafoss, Rafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Norðurstjörn-
unnar hf. og Þórleifur Jónsson frá
Landssambandi iðnaðarmanna voru
tilnefndir frá Félagi íslenskra iðn-
rekanda og Landssambandi iðnað-
armanna. Sigurður Helgason, for-
stjóri Flugleiða var tilnefndur af
Ferðamálaráði, Verslunarráð til-
nefndi Harald Haraldsson, forstjóra
Andra, Utanríkisráðuneyti tilnefndi
Þorstein Ingólfsson, ráðuneytis-
stjóra og Sveinn Jónsson, verkfræð-
ingur, var tilnefndur af Samgöngu-
málaráðuneyti.
%0 i —s 1. K1 @ 1. % £ ® ©
Fjármál
Raun vaxtalækkun
— er boltinn hjá ríkis-
sijórn eða bönkum?
FORSÆTISRÁÐHERRA Steingrimur Hermannsson knúði á það á
ríkisstjórnarfundi sl. þriðjudag að raunvextir yrðu lækkaðir með
því að settur yrði þrýstingur á banka um vaxtalækkun en ellegar
yrði beitt ákvæðu seðlabankalaga til að ná niður vöxtunum. A þess-
um ríkisstjórnarfundir var forsætisráðherra og Jóni Sigurðssyni
viðskiptaráðherra falið að kanna málið frekari.
tnD
®
-f
hreinan þjóðhagslegan sparnað um
7,2% af landsframleiðslu. „ Áform
um innlendar lántökur opinberra
aðila á innlendum fjármagnsmark-
aði eru ennþá stórtækari á þessu
ári. Svonefnd hrein lánsfjárþörf
opinberra aðila (innanlands) stefnir
nú í um 23 milljarða króna (frum-
varp til lánsfjárlaga er nú til um-
ræðu á Alþingi), eða 6,3% af lands-
framleiðslu. Svona stórtæk áform
um innlenda lán sfjárþörf opinberra
aðila hindrar að ríkissjóður geti
lækkað þá vexti sem hann býður
nú. Og ef ríkissjóður lækkar ekki
vexti af ríkisskuldabréfum geta
aðrir innlendir vextir ekki lækkað
að marki. Þetta stafar af því að nú
þegar er minni munur á vöxtum
ríkisskuldabréfa og þeim vöxtum
sem öðrum lántakendum bjóðast en
gengur og gerist og eðlilegt getur
talist,“ segir í fréttabréfinu og enn-
fremur:
„En hvernig á að lækka raun-
vexti? Lykillinn að lækkun þeirra
er hjá fjármálaráðherra og ríkis-
stjórninni. Mikilvægast er að draga
úr þeim lánsfjáráformum á innlend-
um fjármagnsmarkaði sem nú eru
uppi, bæði vegna hallans á ríkissstj-
,óði og fyrirhugaðrar aukningar á
lánveitingum til húsnæðismála. Ta-
kist þetta skapast forsendur fyrir
lækkun raunvaxta."
©
ÐID
®
Sala hmarks
52 MILLJÓNIR
KRÓNA í JANÚAR
HMARK
III I I \IIUI I Wl \KK \IH UINN III
Sala hlutabréfa hjá HMARKI
var 52,3 milljónir í janúar,
sem er fimmfalt meiri sala en í janúar 1990. í
töflunni hér aö neöan eru birtar tölur yfir sölu
hlutabréfa í ákveönum fyrirtækjum.
Þessi mikla sala í janúar gefur til kynna aö fram-
boö hlutabréfa er líklega meira en oft áöur á
þessum árstíma. Hinsvegar hefur eftirspurn einnig
veriö mikil og hefur verö hlutabréfa hækkað um
• 2,4% frá áramótum skv. HMARKS vísitölunni.
HMARKSVÍSITALAN 21.2.1991: 727 STIG • HÆKKUN FRÁ ÁRAMÓTUM: 2,4%
GENGI H1.UTABREFA 21. FEBRUAR 1991
KAUPGENGI SÖLUGENGI BREYTING FRÁ ÁRAM. SÖLUGENGI INNRA VIRÐI V/H HLUTFALL BREYTING ÁRIÐ 1990 VELTAJAN. ÍÞÚS.KR.
ÁrmaVinsfell hf 2,35 2,45 0,0% 170% 7,6 Nýtt á skrá 4.920
Hf. Eimskipafélag íslands 5,72 6,00 2,6% 150% 15,9 +85% 4.740
Flugleiöir hf 2,47 2,57 1,6% 102% 10,9 +101% 1.178
Hampiöjan hf 1,76 1,84 2,2% 104% 13,6 +35% 14.560
Hlutabréfasjóöur VÍB hf 0,96 1,01 1,0% .101% Nýtt á skrá 6.400
Hlutabréfasjóöurinn hf 1,77 1,85 0,5% 107% +42% 8.763
íslandsbanki hf 1,47 1,54 7,7% J 185% 25,9 +31% 0
Eignarh.fél. Alþýðub. hf 1,40 1,47 1,4% 117% 8,6 +28% 0
Eignarh.fél. lönaöarb. hf 1,96 2,05 3,5% 117% 9,8 +43% 2.039
Eignarh.fél. Versl.b. hf 1,36 1,43 0,0% 104% 7,7 +23% 4.695
Grandi hf 2,30 2,40 4,3% 159% 15,1 +48% 561
Olíufélagiö hf 6,00 6,30 0,0% 115% 22,6 +141% 195
Oliuverslun (slands hf 2,18 2,28 8,6% 109% 21,2 Nýtt á skrá 3.604
Sjóvá - Almennar hf 6,80 7,14 3,8% 372% 25,0 +109% 0
Skagstrendingur hf 4,20 4,41 5,0% 83% 10,3 +73% 0
Skeljungur hf 6,40 6,70 0,0% 116% 36,3 +52% 0
Tollvörugeymslan hf 1,10 1,15 2,7% 123% 25,4 +28% 0
Úlgeröarfélag Akureyringa hf 3,62 3,80 5,6% 178% 13,6 Nýtt á skrá 647
®
Itna
Kaupgengi er margfeldisstuöull á nafnverö, aö lokinru ákvöröun um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Áskilinn er róttur til aö takmarka þá fjárhæö sem keypt er fyrir. Innra viröi i árslok 1990.
Hlutabréfamarkaðurinn hf hefur afgreiöslur' aö
Skólavörðustíg 12 og hjá VÍB í Ármúla 13a.
Verið velkomin.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a. Reykjavik, $imi: 68 15 30.
HMARK-afgreidsla, Skólavöröustíg 12. Reykjavik. Simi: 2 16 77.
&
L
&
*
!
B
©
cs
* * 4* '© ®' J '% j
s. £3 -i. f 2 OOjL ifiíi 1
ö ■ K 1 t ro w |