Morgunblaðið - 21.02.1991, Qupperneq 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
Greiðslukort
Hefjum sókn frá
traustum grunni
— segir Örn Petersen, yfirmaður þróunarsviðs Diners Club í Dan-
• mörku, sem hyggst auka útbreiðslu kortanna hér á landi
ÖRN Petersen var í byrjun síðastliðins árs ráðinn til Diners Club
greiðslukortafyrirtækisins í Danmðrku sem yfirmaður þróunarsviðs
og markaðsstjóri Norður-Atlantshafssvæðis. Hann var valinn úr hópi
hátt á þriðja hundrað umsækjenda en þar vóg án efa baggamuninn
starfreynsla hans hjá VISA ísiandi og Samkorti þar sem hann gengdi
starfi markaðsstjóra um árabil. Diners greiðslukortið er ekki ýkja
þekkt hér á Iandi en korthafar munu þó vera um eitt þúsund talsins.
Ferðaskrifstofan Atlantik var umboðsaðili fyrir kortið hér á landi þar
til á síðasta ári en nýverið tók verðbréfafyrirtækið Handsal við umboð-
inu. Þá hafa einnig náðst samningar við Islandsbanka um að annast
móttöku sölunótna og umsókna vegna Diners.
Öm hóf störf hjá VISA íslandi í
ársbyrjun 1985 sem márkaðsstjóri
fyrirtækisins. „Það var á þessum
uppgangstíma þegar menn náðu
varla að líta um öxl og allt bókstaf-
lega gekk upp,“ segir hann. „Á þeim
rúmlega þremur árum sem ég starf-
aði hjá VISA þrefaldaðist í senn velta
og fjöldi korthafa sem var meira en
við höfðum þorað að vona. Starfið
gaf mér góða reynslu á þessum tíma
þar sem við fórum aðrar leiðir í
greiðslukortanotkun en þekktist er-
lendis. Teknar voru upp boðgreiðslur
og raðgreiðslur sem vöktu athygli
víða um heim.
Árið 1988 skapaðist millibils-
ástand hjá mér þegar ég tók að mér
að markaðssetja skafmiðahappdrætti
fyrir Skáksamband íslands og Hand-
knattleikssamband íslands í launa-
lausu leyfi frá VISA. Það gekk ekki
upp og er betur gleymt. Eftir það
ævintýri hóaði Halldór Guðbjamar-
son, núverandi bankastjóri Lands-
bankans, í mig til að markaðssetja
Samkort. Ég vann að því í hartnær
eitt ár að koma Samkortum á lag-
gimar. Kortið hafði alla burði til
þess að ná fótfestu á markaðnum
og veita VISA og Eurocard harða
samkeppni. En stoðimar brugðust,
bakhjarlar félagsins höfðu við ýmis
innri vandamál að etja sem bitnaði
á markaðssetningu og sölu kortsins.
Einn daginn sat ég á kaffístofunni
í Norræna húsinu og var að fletta
dönsku blaði þegar ég rakst á at-
vinnuauglýsingu frá Diners Club í
Danmörku. Ég fór beint í símann,
kynnti mig og sagist vera á leiðinni.
Ég notaði síðustu aurana mína til
að kaupa farseðil til Danmerkur og
mætti galvaskur í viðtal. Málin þró-
uðust síðan þannig að ég fékk stöð-
una en síðar kom í Ijós að ég var
einn af 270 umsækjendum um hana.
Þeir litu svo á að ég hefði reynslu í
þessari grein og þekkti viðfangsefn-
ið. í öðru lagi töldu þeir að maður
sem legði leið sína alla leið frá Is-
landi út í algjöra óvissu hlyti a6
nenna að vinna. Á einum og hálfum
mánuði gengum við frá okkar hús-
næði heima, settum búslóðina í gám
og útveguðum okkur húsnæði hér.“
Starfið fólgið í útbreiðslu
og framtíðarskipulagningu
Starf Amar hjá Diners er fólgið í
útbreiðslu og framtíðarskipulagn-
ingu þ.e. áætlanagerð og að finna
nýja notkunarmöguleika fyrir kortið
í Danmörku. „Ég er nokkum veginn
að nýta míha kunnáttu og reynslu
frá íslandi við að færa Diners meira
inn á innanlandsmarkaðinn og mark-
aðinn fyrir daglegar vörur. Danir
nota mest peninga, ávísanir og debet-
kort við dagleg innkaup. Viðfangs-
efni mitt er að færa kortið meira inn
á þetta svið, sérstaklega núna þegar
ferðalög era í lágmarki. Einnig gegni
ég stöðu markaðsstjóra fyrir Norður-
Atlantshafssvæðið sem er ísland,
Grænland og Færeyjar. Starf mitt
hefur falist í því síðustu mánuðina
að gera ísland að sérstöku svæði.
Enginn þekkir betur en íslendingur
að starfsemi undir dönskum hatti á
íslandi gengur ekki.“
Ferðaskrifstofan Atlantik hafði
umboðið fyrir Diners hér á landi frá
árinu 1984 þar til á síðasta ári. Nú
hefur Diners náð samkomulagi við
Handsal hf. um að taka að sér um-
boðið. Örn var spurður hver væri
helsta ástæðan fyrir þessári breyt-
ingu. „Á síðasta ári urðu menn sam-
mála um það að aðili innan ferðageir-
ans gæti ekki einbeitt sér að greiðslu-
kortum sérstaklega eftir að ferða-
skrifstofurnar tóku upp samvinnu við
VISA um Farkort. Við höfum því
verið að leita að óháðum umboðs-
manni. Það er komið í höfn núna
með samningnum við Handsal og
íslandsbanka; Um eitt þúsund kort-
hafar eru á íslandi en ekkert hefur
verið gert til að fjölga þeim. Við telj-
um okkur hafa möguleika á því. Din-
ers hefur upp á ýmislegt að bjóða
sem VISA og Eurocard hafa ekki
og það liggur beinast við að segja
að við komum á réttu augnabliki inn
á markaðinn. Visa og Eurocard hafa
nú samvinnu á ýmsum sviðum t.d. í
try ggi ngam ál u m. “
Fyrirtækjakort uppistaðan
hjá Diners
Diners hefur ekki í hyggju að
höfða til neyslumarkaðarins hér á
landi þannig að kortið er t.d. ekki
ætlað til notkunar í stórmörkuðum
eða við fastar greiðslur heimilishalds-
ins. Öm segir kortið eingöngu ætlað
þeim sem mikið þurfa að ferðast
starfs síns vegna eða taka á móti
viðskiptavinum. „Fyrirtækjakort er
uppistaðan hjá Diners og ýmis hlunn-
indi eru veitt starfsmönnum á við-
skiptaferðalögum. Það má nefna t.d.
að úttektarheimild er ótakmörkuð.
Svo fremi sem Diners hefur sam-
þykkt umsækjandann og hann staðið
í skilum með sínar mánaðarlegu
greiðslur verður honum ekki synjað
um úttektir. Korthafi á ekki á hættu
að vera stöðvaður erlendis þótt hann
sé búinn að eyða umfram tiltekin
mörk eða ekki næst í þann aðila sem
veitir heimild. Þá veitir Diners kort-
höfum sínum 24 tíma persónulega
þjónusta alla daga ársins.
Meðal annarra fríðinda má nefna
DINERS — Örn Petersen var valinn úr hópi um 270 umsækj-
enda til að gegna stöðu yfirmanns þróunarsviðs Diners Club í Dan-
mörku jafnframt því sem hann er nú markaðsstjóri fyrir íslands,
Færeyjar og Grænland.
tryggingu gegn töfum sem virkar
meðan á töf stendur. Ef fari seinkar
um fjóra tíma eða meira hvort sem
það stafar af veðri eða öðra, þá greið-
ir Diners veitingar og. gistingu fyrir
korthafann. Ef farangur tefst geta
menn strax keypt sér þau föt og
aðrar nauðsynjar sem þeir þurfa á
að halda. Önnur tryggingafélög eða
kortafyrirtæki haga sér öðruvísi og
treysta sér ekki til að tryggja veður-
far. Þetta þýðir að viðskiptamaður
sem er á ferðalagi hvor sem er til
London, Vestmannaeyja eða ísa-
fjarðar fær bætur ef flugvélinni
seinkar um 4 tíma eða meira. Fyrir
þá sem mikið ferðast erlendis er um
langan greiðslufrest að ræða. Að
meðaltali er greiðslufresturinn 50
dagar vegna þess að úttektir eru
ekki sendar gegnum gervihnetti
heldur á milli aðildarfélaganna.
Færslur hjá stærstu greiðslukorta-
fyrirtækjunum fara mun hraðar á
milli landa.
Söluaðilar Diners Club greiða
örlitlu hærri þóknun af móttöku kort-
anna en annarra korta en fá uppgjör
sent vikulega. Söluaðilar Diners Club
á Islandi eru nú 1.600 talsins."
Korthöfum gefst kostur á
skyndiláni
Öm segist hafa innleitt eina nýj-
ung í Danmörku sem hann hafi lengi
gælt við hér. Hún felur í sér að kort-
hafar sem hafa áunnið sér traust hjá
Diners geta dreift mánaðarlegri út-
tekt að fjárhæð 250 þúsund íslenskar
krónur á allt að 12 mánuði. Greiða
þarf 13,9% vexti en lánið hefur ekki
áhrif á eðlilega notkun kortsins á
tímabilinu. Hér er því um nokkurs
konar skyndilán að ræða. „Á íslandi
hefðu fyrirtækin farið í beina sam-
keppi við eigendur sína sem eru
bankarnir. Diners er hins vegar
einkafyrirtæki í eigu SAS og því
komst þessi hugmynd á koppinn og
verður stöðugt vinsælli. Ég er einnig
stoltur af samningi Diners við dönsku
jámbrautirnar (DSB). Opinber fyrir-
tæki hafa ekki litið við greiðslukort-
um til þessa en mér tókst ná samn-
ingi við járnbrautimar sem er
stærsta opinbera fyrirtækið. Diners
er eina kortið sem fyrirtækið tekur
við. Samningurinn vakti mikla at-
hygli hér og það má líkja þessu við
að hafa náð samkomulagi við ÁTVR
á íslandi. í því sambandi má nefna
að greiðslukort þykja sjálfsögð á
bensínstöðum og í vínbúðum í Dan-
mörku en matvörumarkaðir taka
hins vegar ekki við kortum. Meðal
verkefna minna er að koma kortun-
um inn í stórmarkaðina og þeim ár-
angri ætla ég mér að ná á þessu
ári. Áskorunarverkefni eiga nefni-
lega vel við mig og ég legg metnað
minn í að ná árangri. Reynslan hefur
þó kennt mér að líta jafnan um öxl
og gefa mér tíma til umhugsunar
um stefnu og markmið. Þróun
greiðslukortamála á íslandi vekur
athygli hjá greiðslukortafyrirtækjum
um allan heim og að sjálfsögðu nýti
ég mér sumt gott úr því búi. Ef til
vill er þróunin gengin út í öfgar og
ekkert pláss lengur fyrir óvæntu út-
gjöldin á kortum sökum ýmissa
fastra greiðslna. Þetta endar jafnvel
ekki fyrr en korthöfum stendur til
boða að semja um útför sína á ráð-
greiðslum. En að öllu gamni slepptu
hafa forráðamenn Diners Club skiln-
ing á og bera virðingu fyrir íslenska
markaðnum. Grundvallaratriðið er
að hefja sókn frá traustum granni
og ég er mjög ánægður með að hann
skuli nú vera reistur á ekki lakari
fyrirtækjum en íslandsbanka og
Handsali hf.“
Mini-gröfurnar frá Komatsu eru á gúmmíbeltum og henta því vel til
verka á blautu og viðkvæmu landi.
Hreyfanleg bóma auðveldar t.d. skurðgröft við húsveggi og samsíða vélinni.
Vélarnar eru m.a. búnar tveimur skóflum, upphituðu húsi, lögnum fram á bómu og stjórntækjum
fyrir aukabúnað.
Komatsu mini-gröfurnar eru til í ýmsum stærðum, frá 500 kg upp í 4.5 tn, á góðu verði og
með góðum greiðslukjörum. Komatsu PC05 (1.4 tn) er á sérstaklega góðu verði,
kr. (.700.000 án V.S.K.
•HKOM
MINI-GRÖFUR
MAGNAÐAR
VINNUVÉLAR
Komdu og prófaðu sýningarvélina okkar í Toyota-húsinu Nýbýlavegi 8 eða hafðu
samband við sölumenn í síma 44144, þeirgefa allar upplýsingar um
Komatsu mini-gröfurnar.
•H KOMATSU