Morgunblaðið - 25.04.1991, Side 2

Morgunblaðið - 25.04.1991, Side 2
2 G MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF 'ÆBfflMfcifif 25.'ÁPRÍL' iðéi Fyrirtæki Eigiðfé OLÍS einn oghálf- ur milljarður REKSTUR Olíuverslunar íslands hf. gekk vel á síðasta ári og var hagnaður eftir skatta í árslok rúmar 95 miiyónir króna. Eigið fé fyrirtækisins var 1.514,4 millj- ónir króna og þar af var heildar- hlutafé 665,2 milljónir. Rekstrartekjur fyrirtækisins voru alls 4.953,7 milljónir króna, en rekstrargjöld 4.734 milljónir. Fjármagnsgjöld í árslok voru 99,9 milljónir króna og reiknaðir skattar 24,6 milljónir. Hlutafall eigin fjár Oiíuverslun- arinnar í lok síðasta árs var 40,36% og veltufjárhlutfall var 1,22. Aðal- fundur félagsins fer fram á morg- un, föstudaginn 26. apríl. kOHL GKS hf„ Hesthálsi 2-4 110 Reykjavík. Sími 91-672110 iiest heimili landsins! SKRIFBORÐSSTÓLAR í MIKLU ÚRVALI (noxos S E R I A N 1200 BW6 Kr. 22.000 1200 BW8 Kr. 23.000,- 1200BW10 m/örmum Kr. 31.000,- VANDAÐIR STÓLAR Á HAGSTÆÐU VERÐI GAMLA KOMPANÍIÐ KRISTJÁN SIGGEIRSSON Morgunblaðið/RAX SAMSTARF — I vikunni var undirritaður samningur milli Intersport í Danmörku og Sportval/Inn- tak. Á myndinni eru frá vinstri Kjartan Guðmundsson, Ejil Juul Nielsen og Guðmundur Kjartansson. Fyrirtæki Sportval ísamvinnu við verslunarkeðjuna Intersport NÝLEGA voru undirritaðir samningar milli Sportvals/Inn- taks og Intersport í Danmörku Fyrirtæki Hagnaður Hampiðjunn- ar um 40 milljónir HREINN hagnaður Hampiðjunn- ar hf. var á síðasta ári 40,2 millj- ónir króna. Hagnaður af reglu- legri starfsemi nam hins vegar 12,6 milljónum. Við þá tölu bæt- ist hagnaður af sölu fasteigna og gengishagnaður umfram verðlagsbreytingar að upphæð 25,2 milljónir króna. Árið áður nam gengistap 3,7 milljónum. í ársskýrslu Hampiðjunnar kemur fram að á síðasta ári voru 20 milljónir dregnar frá og lagðar í sérstakan afskriftasjóð til að mæta tapi útistandandi skulda. Ársreikningur Hampiðjunnar fyrir árið 1990 var í fyrsta skipti samstæðureikningur Hampiðjunnar og dótturfyrirtækisins Balmar Fios í Portúgal. Rekstrartekjur fyrirtæk- ins voru skv. reikningnum 777,3 milljónir króna samanborið við 706.7 árið áður. Miðað við bygging- arvísitölu sem á sama tíma hækk- aði um 19% dróst salan saman um 8%. Rekstrargjöld voru 741,6 millj- ónir og vextir af iangtímalánum námu 23 milljónum. Eigið fé skv. efnahagsreikningi nam í árslok 542,6 milljónum króna. Heildareignir Hampiðjunnar voru 1.411.7 milljónir og var eiginfjár- hlutfall þannig 38,4%. Á síðasta ári bauð Hampiðjan út nýtt hlutafé að nafnverði 20 milljónir króna og var það allt selt á genginu 1,55. Eftir útboðið og 25% jöfnun hlutafjár á síðasta ári var hlutafé fyrirtækisins alls 295 milljónir króna af eigin fé. Hlut- hafar í árslok voru 269 og fjölgaði úr 211 frá árinu áður. Áskriftarsíminn et 69 11 22 um inngöngu verslunarinnar Sportvals í Kringlunni í alþjóð- legu verslunarkeðjuna Inter- sport. Samningar tókust um samstarf við Intersport í Dan- mörku um sameiginleg innkaup með um 100 íþróttavöruverslun- um í Danmörku. Intersport íþróttavöruverslan- akeðjan er sú stærsta sinnar teg- undar í heiminum í dag eftir því sem Guðmundur Kjartansson hjá Sportval sagði í samtali við Morg- unblaðið. Tæplega 4.000 verslanir eru í þessari alþjóðlegu verslanak- eðju og felst samstarf þeirra í sameiginlegum innkaupúm, aug- lýsingum, innkaupum á rekstar- vörum o.fl. Guðmundur. sagði að þessi al- þjóðlega verslunarkeðja væri ekki rekin með það markmið fyrir aug- um að hámarka hagnað, heldur væri takmarkið að þær verslanir sem væru aðilar að Intersport nytu magninnkaupanna í lægra vöruverði. Intersport lætur fram- leiða mikið undir eigin vörumerkj- um sem eru Etirel, Techno, Pro, On line og Rombo. Að auki kaup- ir Intersport beint frá stórum íþróttavöruframleiðendum, Adid- as, Reebok, Salomon, Atomic, Nike, Puma o.fl. Til. þess að öðlast inngöngu í Intersport þurfa fyrirtæki að upp- fylla ýmis skilyrði jafnhliða því að leggja fram talsverða tjármuni. Að sögn Guðmundar er Sportval í Kringlunni nokkurs konar auka- aðíli að Intersport samtökunum vegna tengingunnar í gegnum Int- ersport í Danmörku. „Við komum þannig inn bakdyramegin, en njót- um sömu kjara og aðrir meðlimir þannig að þetta ætti að skila sér í lægra vöruverði," sagði Guð- mundur. Veitingahús Guffi tekur Arnarhól á leigu VEITIN GASTAÐURINN Arnarhóll var úrskurðaður gjaldþrota fyrir nokkru og hefur nýr eigandi, Pétur Kjartansson, leigt Guðvarði Gíslasyni, betur þekktum sem Guffa á Gauki á Stöng, og eiginkonu hans Guðlaugu Halldórsdóttur rekstur húss- ins. Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á innréttingum að sögn Guðvarðar og áætlar hann að opna staðinn að nýju 25. maí nk. sem skemmtistað án matsölu. Guðvarður segir að hugmynd- in sé að endurvekja gamla nafn hússins, Ingólfskaffi. „Við ætl- um að opna þetta sem einn skemmtistað. Á efri hæðinni þar sem Arnarhóll var verður píanó- bar, en niðri verður áfram diskð- tek." Þá segist hann ennfremur ætla að brydda upp a ýmsum nýjungum eins og t.d. að bjóða upp á kampavín, snittur og konfekt ásamt því að ganga sjálfur um staðinn og bjóða gest- um upp á rósir, flögur, kjúkl- ingavængi. Fyrirtæki * Arsvelta Goða hf. áætluð um 3,5 milljarðar Búvömdeild Sambandsins velti röskum 3,8 milljörðum og jók markaðs- hlutdeild sína FYRSTI aðalfundur Goða hf. var haldinn fyrr í þessum mánuði. Þar var lögð fram rekstraráætlun félagsins fyrir yfirstandandi ár sem er fyrsta starfsár hlutafélagsins. Það var stofnað 11. desember sl. en yfirtók rekstur Búvörudeildar Sambandsins um áramótin. Áætluð velta ársins 1991 er 3,508 milljónir sem skipar Goða hf. meðal 20-30 stærstu fyrirtækja landsins samkvæmt lista Frjálsrar verslunar. Síðasti ársfundur Búvörudeildar Sambandsins var haldinn í sama mund og þar kom m.a. fram að velta deildarinnar á sl. ári var 3,878 milljónir sem er 23% aukning frá fyrra ári, eða um 16% raunveltu- aukning milli ára. Rekstur deildar- innar skilaði hagnaði eins og undan- farin ár. Kindakjötssala innanlands var 2,907 tonn og jókst um 15% frá 1989 á sama tíma og heildarsala kindakjöts í landinu stóð í stað. Búvörudeildin hefur þannig aukið markaðshlutdeild sína umtalsvert. Kjötsala deildarinnar í heild jókst um 13% meðan heildarkjötsalan í landinu stóð nokkurn veginn í stað. Búvörudeildin flutti út á sl. ári alls 2,030 tonn af dilkakjöti sem aukning frá árinu 1989 og umtal- svert meira en gert er ráð fyrir á þessu og næstu árum vegna ákvæða búvörusamnings. Flutt voru út 65 tonn af hrossakjöti sem mjög gott verð fékkst fyrir í Japan, að því er fram kemur í fréttatilkynningu, og 130 tonn af sviðum voru flutt út, eingöngu til Færeyja, sem segir í fréttatilkynningunni að telja verði mikilvægasta útflutningsmarkað ísléhdinga fyrir kjöt. 1:1 ■ ‘j •1 Búvörudeildin hefur einnig flutt út æðardún í mörg ár og árið 1990 var fluttur út æðardúnn að andvirði um 100 milljónir króna. Mikilvæg- asti markaðurinn þar er Þýskaland. Með breytingu búvörudeildar í Goða hf. verður hlutfé félagsins 300 milljónir og skiptist þannig að Sam- bandið á 50%, Kf. Héraðsbúa 6%, Kf. V-Húnvetninga á 5,6%, Sölufé- lag A-Húnvetninga á 5,2%, Kf. Skagfirðinga á 4,9%, Kf. A-Skaft- fellinga 4,4%, Kf. Borgfirðinga á 4,4% og aðrir alls 15% en hluthafar eru alls 26. Stjórnarformaður ér Jörundur Ragnarsson, varaformaður Guðjón B. Ólafsson, og aðrir stjórnarmenn Sigrún Magnúsdóttir, Guðsteinn Einarsson og Þorsteinn Sveinsson en framkvæmdástjóri er Arni S. Jóharirissön.'' .................

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.