Morgunblaðið - 25.04.1991, Side 14

Morgunblaðið - 25.04.1991, Side 14
Jr4 G MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/fllVIlINULÍr. .IÍIMMTOBAtíUR 25. APRÍL 1991 Sjónarhorn Sköpun atvinnutækifæra sem þjóðaríþrótt eftir Jón Erlendsson Atvinnumál eru sívaxandi tilefni manna hvar sem er í heiminum til umfjöllunar,_ athugunar og áhyggna. Á undanförnum árum ■,hefur orðið gríðarlegur vöxtur í hverskyns athugunum, rannsókn- um og aðgerðum erlendis til að bæta atvinnuástand og samkeppn- ishæfni fyrirtækja og þjóða. Þessar athuganir hafa leitt margt nýtt í ljós sem breytt hefur fyrri niðurstöðum og hugmyndum manna. Áður var talið unnt að skýra VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF DAGBÓK Fundir APRÍL ■ AÐALFUNDUR Granda hf. verður haldinn föstudaginn 26. apríl nk. í húsakynnum Granda við Norðurgarð og hefst hann kl. 17.00. ■ AÐALFUNDUR Lagnafé- lags íslands verður haldinn föstudaginn 26. apríl nk. í húsakynnum Héðins hf. Selja- vegi 2. Á dagskrá er erindi Helga Hjálmarssonar arki- j tekts sem nefnist Samskipti arkitekta og lagnahönnuða. Síðan eru á dagskrá venjuleg aðalfundarstörf og veitt verður viðurkenning fyrir lagnaverk. Að loknum aðalfundi býður Héðinn hf. upp á veitingar. ■ AÐALFUNDUR OIÍu- verslunar Islands hf. verður haldinn föstudaginn 24. apríl nk. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundastörf. Fundurinn hefst kl. 16.00 og verður hald- inn í Súlnasal Hótel Sögu. ■ AÐALFUNDUR Hluta- bréfasjóðsins hf. verður hald- inn mánudaginn 29. apríl nk. Á dagskrá eru venjuleg aðal- fundarstörf. Fundurinn hefst kl. 17.00 og verður haldinn í Ársal á Hótel Sögu. ■ AÐALFUNDUR Útgerð- arfélags Akureyringa verður haldinn föstudaginn 3. maí nk. Á dagskrá eru venjuleg aðal- fundarstörf og lagabreytingar. Fundurinn hefst kl. 16.00 og verður haldinn í matsal húss útgerðarfélagsins á Akureyri. Ráðstefnur ■ HÁSKÓLI íslands gengst fyrir 2ja daga ráðstefnu undir yfirskriftinni Horft til fram- tíðar: Tölvur í söfnum dagana 26.-27. apríl nk.. Ráðstefnan verður haldin í Odda við Suð- urgötu. Fyrirlesarar sem eru bókaverðir og upplýsinga- fræðingar frá Reykjavík og af landsbyggðinni, munu fjalla um notkun tölva á bókasöfn- um og öðrum upplýsinga- stofnunum, lýsa reynslu sinni á því sviði og Tjalla um hvaða kostir eru fyrir hendi við tölvu- væðingu, aðferðir við val á kerfum og greiningu á þörfum. í tengslum við ráðstefnuna verður einnig sýning á tölvu- búnaði, forritum og kerfum sem eru í notkun í bókasöfnum eða geta nýst slíkum söfnum, auk kynningar á tölvubókum og tímaritum. Þátttöku skal tilkynna til Rannsóknarstöðv- ar í bókasafna- og upplýs- ingamálum-' við Háskóla Is- lands. misjafnan efnahagslegan árangur þjóða með fábreyttum útskýring- um, s.s. ódýru vinnuafli, eigin nátt- úruauðlindum, greiðum sam- göngum o.fl. Þessar einföldu skýringar hafa nú vikið fyrir öðrum sem leggja megináherslu á staðbundið framtak einstaklinga og hópa (e. Local En- trepreneurship, Collective E.), greiðan aðgang að nýrri þekkingu og upplýsingum (t.d. með tengingu menntastofnana og atvinnulífs), nálægð við markaði, skilningi á markaðsþörfum og sívirka nýsköp- un í smáu sem stóru með þátttöku allra (e. Constant Innovation). Framfarir og gróska ríkja á þeim landsvæðum og í þeim fyrirtækjum þar sem stjórnendur, leiðtogar og starfsfólk er síupptekið við að bæta framleiðslu, þjónustu, vinnubrögð auk þess sem það eykur í sífellu þekkingu sína. Efnahagslegar framfarir byggjast öðru fremur á jákvæðu hugarfari í garð þeirra sem ná árangri í atvinnulífi og tilraunum alls þorra manna til slíks hins sama. Þar sem á hinn bóginn ríkir öf- und í garð þeirra sem ná árangri og allur almenningur er athafna- og hugmyndalítill en síupptekinn við aðfínnslur gagnvart þeim sem reyna sig við nýjar hugmyndir verða litlar framfarir. Einu gildir þótt allar ytri aðstæð- ur séu í lagi ef áherslan í menning- Reynsla Saga-film á erlendum markaði Saga-fílm hefur talsverða reynslu af að selja auglýsingaþjón- ustu erlendis. Fyrirtækið hefur rek- ið söluskrifstofu og framleiðsludeild fyrir sjónvarpsauglýsingar í Kaup- mannahöfn frá 1988 í samvinnu við finnskt kvikmyndafyrirtæki. Jón Þór Hannesson sagði reynsl- una vera þá að best gengi að selja heildarþjónustu leikstjóra og kvik- myndagerðarmanna. Hver Ieikstjóri hefði sinn stíl og það væri þessi stíll sem auglýsingastofur leituðu eftir. Sagði hann að Ágúst Baldurs- son, sem einnig stofnaði fyrirtækið í Kaupmannahöfn með Saga-fílm, væri nú orðinn eftirsóttur leikstjóri sjónvarpsauglýsinga víða á Norð- urlöndunum. Starfsemi Saga-film nær til allra Norðurlandanna. Það hefur hins vegar háð fyrirtækinu að offjárfest- ing Dana í tæk.níbúnaði hefur leitt til lækkandi verðs á tæknilegri úr- vinnslu. Það er því ekki lengur hag- kvæmt fyrir Saga-fílm að reka framleiðsludeild í Kaupmannahöfn. Upphafleg ástæða þess að fyrirtæk- ið sótti á þessi mið var að fá betri nýtingu á tækjabúnaði hér heima. Jón Þór sagði að lítil reynsla væri yfirleitt á Norðurlöndum af gerð sjónvarpsauglýsinga, því aug- lýsingar hefðu til skamms tíma ver- „Hvað myndir þú, lesandi góður, segja um búhyggju bónda sem segðiþér á miðju sumri að hann væri að „bíða eftir kartöfluupp- skeru hausts- ins, en hefði að vísu engu sáð um vorið“?“ unni er ekki á sívirka nýsköpun og sívirkt framtak sem iðju sem allir eiga að taka til hendinni við hver á sínum forsendum. Hið menningar- lega andrúmsloft hefur miklu meiri áhrif á efnahagslegar framfarir en vextir og vísitala! Þetta getur hver sæmilega glöggur og reyndur maður séð. Þrátt fyrir að svo sé hefur þar vart verið fyrr en á allra síðustu árum að þessi skilningur virðist vera að ið bannaðar í sjónvarpi, nema í Finnlandi. Saga-fílm hefði því víð- ast hvar verið vel tekið, þó fínna hafi mátt vantrú á því að íslenskt fyrirtæki gæti gert góðar sjón- varpsauglýsingar. Állar þær sjónvarpsauglýsingar og kynningarmyndir sem Saga-fílm hefur gert fyrir erlenda aðiia hafa verið eftir handriti hinna útlendu aðila. Jón Þór sagði að mjög góð þekking á siðum og venjum í hveiju landi væri nauðsynleg til að hægt væri að standa í auglýsingagerð. Það sem hefði áhrif í einu landi virkaði ekki í öðru og svo framvegis. , Flugleiðir skipta við staðarmenn í hverju landi Pétur J. Eiríksson sagði reynsla F'lugleiða sýndi að ekki gengi að gera allar auglýsingar fyrir Flug- leiðir í einu landi og þýða þær síðan yfír á viðkomandi tungumál. Þar skipti hið þjóðfélagslega umhverfi svo miklu máli. Því yrði að skipta við staðbundnar auglýsingastofur. Pétur sagði að Flugleiðir reyndu að skapa ákveðinn grunnramma til að myndin af félaginu yrði svipuð í hverju landi. Sagðist hann efast um að íslenskar auglýsingastofur ættu erindi sem slíkar á erlenda grund vegna félagslega þáttarins. Pétur benti jafnframt á að alþjóð- legar auglýsingastofur, sem hafa ná undirtökunum í atvinnumálaum- ræðunni erlendis. Hér á landi eru menn enn að beijast um í þröngum heimi örfárra hagfræðilegra hug- taka sem tröllríða allri umfjöllun og takmarka útsýn á viðfangsefnið í heild sinni. Skekkja því áherslur og spilla árangri. Nýjar áherslur þýða eflingu staðbundins framtaks Fjöldi höfunda hefur íjallað um þessi mál á undanförnum árum. Nefna má t.d. fræga höfunda og fræðimenn eins og Peter Drucker, Tom Peters og M. Porter. Sú mikla vakning sem er í atvinnumálum í Evrópu um þessar mundir dregur mjög dám af þessum nýju áherslum en hún beinist öðru fremur að því að efla staðbundið framtak og frumkvæði (e. Local Initative). Þessi nýi skilningur hefur vikið til hliðar að nokkru einhliða áhersla endurbætur á almennu efnahags- umhverfi, á samgöngubætur og ýmislegt annað sem áhersla hefur einkum verið á. Reynslan sýnir nefnilega að í einu og sama landinu og einu og sama almenna efnahags- umhverfinu verður staðbundin gróska afar misjöfn. Og skýring- anna er að leita í fólkinu, menning- unni og þeim framfaraanda sem ríkir á hveijum stað. Mannlegiþátt- urinn þ.e. nýsköpunarhneigð, tæki- færaleit, framtak og áhugi á að útibú í mörgum löndum, reiddu sig ætíð á krafta innfæddra á hveijum stað. Flugleiðir skipta til að mynda við franska. auglýsingastofu, Publicis, í New York, en starfsmenn eru bandarískir. íslenskar auglýsingastofur samkeppnishæfar? Pétur J. Eiríksson taldi íslenskar auglýsingastofur koma ágætlega út í samanburði við erlendar á mörgum sviðum. Til dæmis sagði hann að íslenskar auglýsingastofur seldu þjónustu sína á talsvert lægra verði en auglýsingastofur á Norð- urlöndunum og í Mið-Evrópu. Sól- veig Olafsdóttir, framkvæmdastjóri SÍA, skaut því að fundarmönnum í tilefni af þessum orðum Péturs, að samkvæmt nýjustu upplýsingum væri þjónusta auglýsingastofa ann- ars staðar á Norðurlöndum seld á 100 til 150% hærra verði en hér. Þjónusta bandarískra auglýs- ingastofa er hinsvegar ódýrari en hér á landi, sagði Pétur, og þar er þess mjög vel gætt að fara ekki fram úr kostnaðaráætlunum. Pétur sagði að tengsl markaðs- ráðgjafa á erlendum auglýsinga- stofum við viðskiptavininn væri oft nánari en hér tíðkast. Hann sagði hina erlendu markaðsráðgjafa oft eiga frumkvæði í markaðsmálum viðskiptavinanna. íslenskar auglýsingastofur bera hins vegar af hvað handverk snert- ir, sagði Pétur. Hér eru miklar kröf- ur gerðar um útlit auglýsinga og meiri metnaður í þeim efnum en víðast annars staðar. Spyija mætti hvort þar leyndust útflutningsmöguleikar. efla eigin lífsbjörg erþað sem mestu skiptir. Og hvað er augljósara ef að er gáð? Hvers virði eru t.d. góðar sam- göngur og aðrar forsendur ef fram- tak, sköpunargáfu og þekkingu skortir? Hér er á hinn bóginn komið að þáttum sem fáir virðast telja þess eðlis að á þá megi hafa áhrif. Eng- ar langtímaáætlanir eru til í dag um eflingu staðbundins framtaks, þekkingar á atvinnulífi og aðgang að upplýsingum og þekkingu. Þó gætu slíkar áætlanir vafalítið skilað miklu meiri árangri fyrir hveija krónu sem til þeirra væri varið en fæst t.d. með óhemjudýrum sam- göngubótum. Er ekki kominn tími til þess að menn snúi sér rakleitt að kjarna atvinnueflingarinnar þ.e. eflingar fólksins sjálfs og geri um það langtímaáætlanir og kosti til þess verulegu fé? Ástandið hérlendis Flestum ber saman um að íslend- ingar séu vel menntaðir, atorku- samir og framtakssamir í því sem þeir fá áhuga á samanborið við margar aðrar þjóðir (t.d. Skand- inava). Meðan fólki frá öðrum lönd- um fallast oft hendur þegar það mætir óvæntum erfiðleikum þá er það mál manna að íslendingar ráð- ist oftast ótrauðir til atlögu við vandamálin og leysi þau tiltöluiega óháð starfsskyldum og fyrri reynslu. Hver einasti maður sem þekkir til atvinnulífs veit hvaða þýðingu það hefur að hafa starfs- fólk sem býr yfir frumkvæði og áræði til að leysa þau vandamál sem upp koma í stað þess að sitja með hendur í skauti. Slíkt þýðir fram- leiðslu sem getur haldið áfram til- tölulega órofín þrátt fyrir ýmsar Fyrirtækjanet til að takast á við stærri verkefni Kristján Jóhannsson hagfræð- ingur hjá Vinnuveitendasamband- inu sagði ráðstefnugestum frá fyrir- tækjanetum, en það er samstarfs- form fýrirtækja sem hefur verið að þróast víða í Evrópu undanfarin ár. Þekktasta dæmið um vel heppnað fyrirtækjanet er ítalska Benetton keðjan. Benetton er net 400 pijóna- og saumastofa sem eru sjálfstæðar en vinna saman að markaðsfærslu vörunnar. Kristján sagði að fyrirtækjanet- inu væri ætlað að auðvelda minni fyrirtækjum samstarf, þannig að þau héldu sjálfstæði sínu að mestu en hefðu sameiginlegan styrk til að keppa við stærri fyrirtæki. Fyrirtækin skuldbinda sig til samstarfs á ákveðnum sviðum, en geta jafnvel verið keppinautar á öðrum. ítarlegir samstarfssamning- ar eru gerðir og mikil vinna lögð í undirbúning. Sagði Kristján að Danir ynnu af fullum krafti að þró- un fyrirtækjaneta þar í landi, eink- um í iðnaði. Á síðasta ári voru 550 fyrirtækjanet komin á laggirnar í Danmörku, með að meðaltali 5 fyr- irtæki í hveiju neti. Aðspurður sagði Kristján að fyr- ir íslensk fyrirtæki á borð við aug- lýsingastofur væri vafalítið hag- kvæmt að stofna fyrirtækjanet um útflutningsverkefni. Vinnuveitendasambandið vinnur nú að undirbúningi ráðstefnu um fyrirtækjanet í samvinnu við fleiri aðila. Þessi ráðstefna verður haldin á Holiday Inn 29. maí næstkom- andi. Auglýsingar Eiga íslenskar auglýsingastofur möguleika á erlendum mörkuðum ? Á ráðstefnu Sambands íslenskra auglýsingastofa, SÍA, kom fram að ýmis ljón eru í veginum þó þjónusta íslensku stofanna sé ódýrari en víðast annars staðar Eiga íslenskar auglýsingastofur vaxtarmöguleika með verkefnum fyrir erlenda aðila eða með því að opna eins konar útibú á erlendri grund? Þessari spurningu var varpað fram á ráðstefnu sem SIA, Samband íslenskra auglýsingastofa, hélt að ioknum aðalfundi þess nýlega. Þeir Kristján Jóhannsson hagfræðingur hjá Vinnuveitenda- sambandi íslands, Jón Þór Hannesson hjá Saga-film og Pétur J. Eiríksson framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða ræddu þessa möguleika.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.