Morgunblaðið - 28.04.1991, Side 1

Morgunblaðið - 28.04.1991, Side 1
Feguröasamkeppni Islands GOTT AÐ 21 w , - TBA - ISifil SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1991 SUNNUPAGUR ffayiPEMiiMtfr BLAÐ SJUKDOMAR AISLANDI Lífsstíll eða fyrirbyggjandi bættir? eftir Margréti Þorvaldsdóttur A seinni árum hafa kransæðasjúkdómar verið körlum skæðir hér á landi sem í öðrum vest- rænum löndum. Sjúkdómar þessir hafa verið felldir undir svokallaða menningarsjúkdóma, þar sem þeir hafa oft verið tengdir mataræði og breyttum lífsháttum í nútímasamfélagi. Þegár ræix er um áhættuþætii kransæðasjúk- dóma hefur athyglin beinst að kólesteróli sem að einhveiju leyti er tengt mataræði (og erfð- um) og mikilli neyslu á fitu, harðfeiti eða dýra- fitu eins og finna má í smjöri, smjörlíki, mjólk- urafurðum og djúpsteikingarfeiti. Nú hefur komið í ljós að dánartíðni af völd- um kransæðasjúkdóma hefur lækkað hér á landi á allra síðustu árum og einn- ig í öðrum vestrænum löndum þar sem þessir sjúkdómar hafa verið algengastir og er talið að fækkunina megi rekja til forvarna. En á sama tíma hafa dauðs- föll af völdum kransæðasjúkdóma aukist í flestum Austur-Evrópulöndunum. Það kemur á óvart að aukning verður einnig í nokkrum Vestur-Evrópulöndum eins og á Spáni og í Grikk- landi, þar sem ætla má að neysla ómettaðri fitu hafí verið mun meiri en í Norður-Evrópu. Hér á landi fór að gæta aukningar á kransæðasjúkdómum upp úr 1950. Aukningin virðist hafa verið mest á árunum 1966-1970 og hélst síðan nánast óbreytt fram yfir 1980, er hún tók að lækka. Áhættuþættir Það er freistandi að leita skýringa á faraldrinum í breyttum lífsstíl og mataræði. Sennilega hefur lífs- stíllinn breyst hér meira en mataræðið á árunum 1960-1970. Á þessu tímabili urðu lífskjör almenn- ings betri, þó að laun væru ekki há var fjárhagur víða knappur og fólk vann myrkranna á milli við að koma sér þaki yfir höfuðið. Á þessu tímabili komu aflaleysis- og kreppuár sem án efa hafa verið streituvaldandi. Matargerð tók almennt ekki miklum breytingum fyrr en eftir 1980. Tilbreytingin hafði aðallega ver- ið fólgin í steikingu á kjöti og fiski í stað suðu. Steikingin þýddi harðsteikingu í miklu smjörlíki. Jurtasmjörlíki varð lausnarorðið, mikill áróður var rekin fyrir neyslu á jurtasmjörlíki. Smjörinu var hafnað. Síðar kom í ljós að ,jurtirnar“ í smjörlíkinu voru „forhertar" og engu betri en tólgin. Neysla á jurtasmjörlíki varð þó mun meiri en neysla á smjöri og tólg hafði nokkurn tíma verið. Smjörlíkið náði SJÁ BLS. 6. Þessi mynd er tekin af hjartanu framan frá og sýnir net bláaeáa, sJagtíiáa og háræód sem fóóra hjartaó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.