Morgunblaðið - 28.04.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR SUNNUDAGUR
28. APRIL 1991
C 25
og talaði aldrei nema vel um aðra,
og gerði ekki aðrar kröfur en að
búa sínum sem mesta gleði og góð-
an tilgang með lífí sínu. Hafi
tengdamamma þakkir.
Gissiir Karl Vilhjálmsson
Nú er elsku amma Pála horfin
og hjá henni tekur við nýtt tilveru-
stig. Við söknum hennar mikið. Hún
var alltaf svo ljúf og ung í anda
og skildi best allra þarfir og þrár
unga fólksins. Það er skrítið að
segja frá því að fáir höfðu jafn
gaman af fótbolta og hún sleppti
ekki að horfa á knattspymu á laug-
ardögum svo og handbolta þegar
um landsleiki var að ræða. Þegar
við vorum litlir skiptumst við á að
sofa heima hver hjá öðrum um helg-
ar og var oft mikið um að vera hjá
okkur og vei hugsað um að hafa
nóg af öllu. Oft kom hún og bjó
um tíma og hugsaði um heimilið í
Smyrlahrauni þegar mamma og
pabbi fóru til útlanda og síðast var
það að hún og Smári Bjöm voru
hjá okkur í 3 vikur sl. sumar og
var það góður tími.
Við fórum líka oft í smá ferðalög
um helgar annaðhvort á einum eða
tveimur bílum með nesti og stund-
um veiðistengur og voru þetta alltaf
skemmtilegar og eftirminnilegar
ferðir. Sl. sumar fór hún sína
síðustu ferð til Sauðárkróks, sem
henni alla tíð þótti svo vænt um.
Hún heimsótti marga af vinum
sínum og var mjög ánægð er hún
kom suður.
Amma sagði að sér leiddist aldr-
ei, hún las mikið, horfði á sjónvarp
og svo hafði hún „Patta“, en hann
er lítill poodle-hundur sem henni
þótti afar vænt um og sagðist bara
tala við hann ef hún hefði engan
annan enda var hún mjög mikill
dýravinur.
Við vissum að amma var trúuð
kona þótt hún færi ekki oft til
kirkju. Hún var orðin þreytt kona
enda búin að ganga í gegnum mikla
og erfiða lífsreynslu og skildu
margir ekki hvernig hún gat komist
yfir þetta allt en svona var hún,
miðlaði öðrum miklu og bar sorgir
sínar í hljóði.
Hún hélt sínu fallega útliti og
villti um fyrir mörgum, jafnvel okk-
ur sem þekktum hana best, að hún
var orðin öldruð kona.
Megi amma Pála hvíla í friði.
Guð blessi hana.
Siggí, Smári og Villi.
Sterkt rautt koreskt C.A. Meyer
PANAX GINSENG
frá Natur Drogeriet
Danska metsöluginsengið loksins á íslandi.
Eykur þol og þrek, bætir einbeitingu og minni. Gott
gegn þreytu, taugaálagi, námserfiðleikum.
Blómaval, Yggdrasill, Höndin hf. Akureyri, apótek um
land allt.
Upplýsingar í síma 91-687844 á kvöldin og um helgar.
LÍFSKRAFTUR heildverslun.
bjuggu lengst af að Húsum, eða til
ársins 1958, er þau brugðu búi og
fluttu inn á Bíldudal. Á heimili
þeirra Ingibjargar og Ólafs í Selár-
dal höfðu margir sumardvöl eins
og títt er og var í sveitum, og þann-
ig var um mig, ég kom fyrst til
dvalar að Húsum árið 1949, þá 7
ára gamall og var þar sumarlangt
samfellt í átta sumur. Það var lær-
dómsríkt að koma í þetta samfélag
sem Selárdalur var. Þá var búið á
átta bæjum í Selárdal, rafmagn
ekki komið í dalinn, til upphitunar
var notaður mór og kol. Það var
aðdáunarvert hversu vel sveitungar
stóðu saman í blíðu og stríðu í þessu
litla samfélagi, og þarna naut sín
kunnátta Ingibjargar til að hjúkra
bæði mönnum og skepnum og var
ósjaldan leitað til hennar um að-
stoð, en ekki var alltaf hægt að
kalla til lækni.
Eins og áður hefur komið fram
bjuggu þau Ingibjörg og Ólafur á
Bíldudal eftir að þau hættu búskap
í Selárdal. Bæði stunduðu þau vinnu
í frystihúsi á þeim árum. í maí
1982 lést Ólafur og árið eftir, eða
í janúar 1983, fékk Ingibjörg inni
á Hrafnistu í Hafnarfirði og dvaldi
þar síðustu árin og líkaði henni vel
vistin þar.
Nú þegar Ingibjörg er kvödd
hinstu kveðju, leyfi ég mér að þakka
henni og Ólafi fyrir góðar samveru-
stundir á heimili þeirra í Selárdal
og ég veit að ég mæli fyrir munn
margra sem þar dvöldu um lengri
eða skemmri tíma.
Blessuð veri minning Ingibjargar
Þórðardóttur Waage.
Hjörtur Guðbjartsson
Ferðaskrifstofan ATLANTIK hefur ákveðið að bjóða
viðskiptavinum sínum ferðir til eyjarinnar MÖLTUI beinu
leiguflugi. Við höfum fundið gistiaðstöðu sem fellur að þörfum
íslendinga. Það er ST. GEORG S PARK COMPLEX, sem er
íbúða og hótelsamstæða á besta stað á Möltu, skammt frá
höfuðborginni Valletta. Þar er allt sem til Þarf til að gera fríið
ánægjulegt. Góður garður með sundlaugum. Innisundlaug og
jíkamsræktarstöð. Veitingastaðir og samkomusalir.
í næsta nágrenni eru veitingastaðir og verslanir.
Eyjabúar, sem allir tala ensku auk móðurmálsins, eru
vinsamlegir og greiðviknir. Allt er gert til að fólki líði sem best.
VERÐ:
Júni Júlí, ágúst,
sept.
4iíbúð 56.170 58.000
3 í íbúð 59.150 61.982
2 í ibúð 67.140 71.360
2 í stúdíó: 65.960 70.140
Barnaafsláttur: 2-llára: 17.500
H 12- 15ára: 13.000
Börn 0 - 2ja ára greiða: 6.000
BROTTFARARDAGAR:
29. maí 19. júní - 10. júli - 31. júlí 2 1 . ágúst - 3 vikur 3 vikur 3 vikur 3 vikur 3 vikur
Um er aft ræ&a takmarka&
sætaframboð.
National Tourism Organisation - Malta
MRMALT4
HALLVEIGARSTÍG 1 SlMAR 28388 - 28580
GIH