Morgunblaðið - 28.04.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.04.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. AERÍL 1991 C 15 sex til átta milljónir íslenskra króna. Landbúnaður er helsti atvinnu- vegurinn og setti Carol upp pening- asvip þegar hún sagði frá bændum landsins. Skildist okkur að budda þeirra væri þung í vasa. Ferðaþjón- usta er önnur helsta atvinnugreinin, „þótt aldrei sjáist ferðamaður" eins og einn írinn sagði seinna, og h átækniiðnaður kemur þar á eftir. Kaupmaðurinn í gamla daga sigldu menn skút- unum sínum inn í Cork. Áin Lee rennur eftir borginni sem er á suð- urströndinni, næststærsta borg ír- lands, og við mynni hennar stendur Blackrock-kastali. Borgin er ákaf- lega skemmtileg, byggð á hæðum og á einni þeirra stendur háskólinn þrjú hundruð ára gamall og minnir á Oxfordháskólann. Borgin er yfir- full af gamaldags krám og litlum skrýtnum búðum og þama hefði ég getað fengið alfatnað á mig og mína fyrir helminginn af því sem hann kostar heima. í einni búðinni hitti ég Paddy, hávaxinn eldri mann sem rekur verslun með gömlum og nýjum hlut- um í bland, en veit ekki sjálfur hvað er nýtt og hvað gamalt. — Ér þetta gömul kaffikvörn? spurði ég og benti á rykfallinn kassa. „Ha? Gömul?“ sagði hann og blés af henni, ,já, já, allt voða gamalt, hvaðan kemur þú?“ — Frá íslandi. „Vinur minn sem fór til Islands sagði að konurnar drykkju viský eins og svampar.“ — Það er haugalygi. „Nei, það er alveg satt. En hvaða mál talið þið?“ — íslensku, en langar ykkur ekki að halda í írskuna ykkar? „Jú, eitt sinn töluðum við írsku. En það fór í taugarnar á Englend- ingum og þeir skám tunguna úr þeim sem það gerðu.“ Mig grunaði að Paddy Cashell væri nú eitthvað að ýkja, en smám saman komst ég að því að þótt langt sé um liðið síðan írar endurheimtu sjálfstæði sitt frá Englendingum, hafa þeir engu gleymt. I átta hundr- uð ár máttu þeir lúta yfirstjórn þeirra, eða allt til ársins 1921. Bæði enska og írska, eða gelíska, eru opinber mál á Irlandi, en þó eru ekki nema 150 þúsund manns sem enn tala gelísku, flest eldra fólk sem býr á eyjum undan vesturströnd- inni. Gelar komu til írlands á 4. öld fyrir Krist og stofnuðu mörg smá konungdæmi. Á 5. öld f.Kr. vom flestir írar orðnir kristnir og á ír- landi urðu fjölmörg klaustur og menningarsetur til. Víkingamir heijuðu á landið á 9. og 10. öld og geta íslendingar þakkað þeim írska blóðið sitt af O-flokki og sennilega málgleðina líka. írar vom sífellt að gera uppreisn- ir gegn Bretum, allt fram á 20. öld, og hvað eftir annað geisuðu blóðugar styijaldir þegar þeir börð- ust gegn yfirráðum þeirra, svo og fyrir kaþólskri trú sinni. írar voru leiguliðar í eigin landi en aldrei var um neina hlýðni að ræða af þeirra hálfu gagnvart Bret- um. Þeir hefðu betur farið að eins og við íslendingar þegar Danir sendu okkur maðkað rnjöl, tekið því með þögn og rölugangi. Þá hefðu þeir kannski ekki misst tungu sína, bæði 5 eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Ströndin Algengasta karlmannsnafnið á írlandi er Paddy, og það var Paddy Mulcahy sem brunaði með okkur milli þorpa í litlu rútunni sinni og sagði okkur sögu landsins. Hann ók auðvitað vinstra megin og í hveiju þorpi fékk ég taugaáfall því mér fannst hann alltaf vaða á móti umferðinni. Annars er miklu minni umferð á írlandi en íslandi, kannski ferðast þeir meira með lestum eða eru ekki með bíladellu eins og við. Þorpsbúar tíndust á krárnar, ungir menn og stúlkur, gamlir menn með hunda og konur með börn í burðarrúmum. Stúlkurnar eru líka með þessa höku, laglegar og lausar við stresshrukkuna. Paddy Mulcahy í Cork: MXSÆ EKKl DM TRÍM4L FLESTIR írar eru kaþólskir eða um 95% þeirra, og svo er einnig rnn Paddy Mulcahy. Þegar hann var drengur bjó hann skammt frá kirkju mótmælenda sem var ekki heppilegt, því ef þeir strákarnir voru að leika sér í götunni urðu þeir að gæta þess að líta aldrei inn í kirkjuna þá arna. Það þótti hin mesta synd og kallaði á skriftir þjá klerki. Samband kaþólskra og mótmæl- enda á írlandi hefur breyst mikið síðan ég var drengur," segir Paddy, „Við störfum nú samán i hinu mesta bróðemi og hér í Cork til dæmis tökum við kaþólikkar þátt í viðgerðarkostnaði á kirkju mótmælenda sem er ein hin feg- ursta í bænum.“ Paddy er fæddur og uppalinn í Cork, giftur, þriggja bama faðir og fer í kirkju á hveijum laugar- degi klukkan sex. Síðustu sjö árin hefur hann unnið hjá írskri ferða- skrifstofu sem fararstjóri. Paddy er manna fróðastur um lancl og sögu írlands og sameining írska lýðveldisins og Norður-írlands er ingana i eigin þágu en varpar af ofarlega í huga hans eins og flestra og til sprengjum í Lundúnaborg íra. svo að menn trúi að þeir séu að „Útlendingar álíta oft að írar beijast fyrir málstaðinn. eigi í eilífum trúarbragðastyijöld- Flestir af þessum 200 mönnum um, en deilumar á Norður-lrlandi írska lýðveldishersins eru kaþól- snúast aðeins að hluta um trúmál. skir, en kirkjan hefur fyrir löngu í raun em það aðeins um 200 úthýst þeim. írar hafa margbeðið manns sem valda óeirðunum í Belf- Bandaríkjamenn að láta af þessum ast og að baki aðgerðum þeirra peningasendingum, en þeir ekki em fjárhagslegir hagsmunir en sinnt því. IRA er rekinn eins og ekki hugsjón um sameinað írland,“ mafían, það er mikil illska íþessum segir Paddy. mönnum og við írar líðum fyrir Upphaflega var þaö þannig að það þegar IRA varpar sprengjum mótmælendur og Bretar bjuggu á á saklausa borgara. Norður-írlandi og áttu kaþólikkar Það kostar bresku þjóðina 800 þar erfíttt uppdráttar, meðal ann- milljónir punda á ári að halda úti ars í sambandi við vinnu. Þegar Norður-írlandi. Þeir fæm á morg- Martin Luther King fór að beijast un ef þeir gætu, en svo lengi sem fyrir jafnrétti í lok sjöunda áratug- fólkið vill breska stjóm þá verða arins í Bandaríkjunum hófu kaþó- þeir áfram. Á Norður-írlandi er likkar á írlandi að beijast fyrir allt ódýrara, bæði daglegar nauð- rétti sínum. synjar og félagsleg þjónusta og í Bandaríkjunum eru um 45 því ekki furða þótt Norður-írar milljónir manna af írsku bergi vilji hafa Breta áfram. brotnir og menn úr þeim hópi Ég vil sameinað írland ef meiri- senda Qámiagn til IRA í þeirri trú hlutinn vill það, en ég hef ekki þá að verið sé að beijast fyrir samein- trú að kynslóð mín eigi eftir að uðu írlandi. IRA notar síðan pen- lifa þann dag.“ i Við þutum fram hjá tæmm ám og grænum golfvöllum og ég hugs- aði með mér að eins gott væri að hleypa ekki íslenskum golfsjúkling- um hingað, hvað þá heldur laxveiði- mönnum, maður fengi þá ekki til baka aftur. Ströndin er ákaflega rómantísk og kallar á ýmsar hugrenningar. Ég mundi strax eftir bíómynd þar sem ungur írskur kennari varð hrif- inn af póstafgreiðslustúlku þorps- ins, einrænni og dularfullri og svo stóðu þau saman á ströndinni með hafgoluna í þykku hárinu og tárin í augunum. Mig minnir að þau hafi gifst í lokin. Allavega hætti hún á pósthúsinu. Þetta dramatíska andrúmsloft við suðurströndina hafði þó sína skýringu. Fyrir nær 150 árum stóðu írar á þessum stað og horfðu á eftir ættingjum sínum sigla yfir hafið. Hungursneyð af völdum kart- öflumyglu á árunum 1846 til 1851 varð til þess að fjórar milljónir íra fluttust til Bandaríkjanna og Kanada. Fyrir landflóttann höfðu íbúar verið 6,5 milljónir. Það var því kartöflum að þakka að Kennedyættin náði völdum vest- an hafs en ekki á írlandi. En Paddy sagði okkur, að við höfnina í Cobh og á svæðinu í kring hefðu stöðug harmakvein heyrst þegar mæður og feður sáu á eftir sonum og dætr- um ti! Vesturheims. Staðurinn er nefndur „Harmastaður" og enn ér loftið þar magnað. Maður segir að minnsta kosti ekki mikið þama, ein- hverra hluta vegna. Þorpið Fyrir tuttugu árum kom ungur Frakki frá Bretagneskaga til þorgs- ins Baltimore á suðvesturströnd ír- lands og ætlaði að dvelja þar í einn. dag. Hann er ekki enn farinn. Hvað olli seinagangi Youen Jacob er ekki alveg vitað, en hann opnaði fransk- an veitingastað í þorpinu sem nú' er rómaður fyrir sjávarrétti og góð frönsk vín. Youen bauð íslensku sölumönn- unum upp á glas af víni og meðan við stóðum þarna gónandi í allar áttir og hummandi yfír húsnæðinu spurði ein úr hópnum hvort hann spilaði kannski á píanóið fyrir mat- argesti? Youen sagðist stundum gera það en þá aðallega við jarðafarir. „Ég skaut nefnilega píanóleikarann," sagði hann grafalvarlegur. Eg trúði auðvitað manninum og smeygði mér út, en komst að því síðar að setning sem þessi er dæmi- gerð á írlandi. Útlendingar halda að alltaf sé verið að skjóta menn á írlandi, og því skyldu þeir ekki stríða þeim örlítið? Ég held að hljóðin í Baltimore hafi dáleitt Youen hinn franska. Fáir voru á ferli eftir hádegi á þess- um laugardegi, flestir sennilega fleygt sér eftir miðdagsmatinn og vindurinn af hafinu lék óáreittur á hljóðfæri sín. Ein aðalgata með hlöðnum steinveggjum lá eftir þorp- inu, kastalarústir voru á lítilli hæð og kirkja neðar við sjóinn. Gömlu krárnar við höfnina voru opnar og við eina skútuna stóð kona sem reyndi að hemja pils sitt í blæstrin- um. Þögn ríkti í þorpinu, en skyndi- lega fór allt af stað. Kaðlar slógust í möstrin, kráarskilti skelltust, gluggahlerar hriktu og krákur flugu gargandi upp. Mér varð ekki um sel og hljóp upp í þorpið. Gamall Lassýhundur sem legið hafði á kirkjuþrepinu brölti á lappir og lúsaðist á eftir mér. Haldið að hann ætti að hlaupa eins og hinir. Þremur mönnum mætti ég á þessu rölti um þorpið, gömlum manni með hund, garðyrkjumanni og ungum pilti í köflóttum jakka, og allir heilsuðu þeir mér að fyrra bragði. Mér leið eins og frænku þeirra að vestan. Um kaffíleytið fóru þorpsbúar að tínast á krárnar, ungir menn og stúlkur, gamlir menn með hunda, konur með börn í burðarrúmum, og nokkrir sumarhúsaeigendur sem sögðu okkur endilega að koma með íslendinga til þorpsins. Maður not- aði auðvitað hvert tækifæri til að auglýsa ísland og hélt ég stuttan fyrirlestur um skyldleika þjóðanna með tilliti til blóðflokka. Horfðu þá hinir grænklæddu írar á fyrirlesar- ann, brostu þessu írska hökubrosi og sögðu „Welcome sister“. Mikið voru mennirnir huggulegir. Svo vorum við kvödd með handabandi. Kastalinn Ungar stúlkur heima höfðu sagt mér að írar væru laglegir, einkum strákarnir í írsku hljómsveitinni U2. Ekki rakst maður á þá kappa en eitthvað er nú rétt í þessu með útlit- ið. Það fallegasta við Ira eru aug- un, „írsku augun mjúku“ eins og írska skáldið George Moore segir einhvers staðar. Einkennandi er líka lítill munnur og framstæð haka sem gerir þá eitthvað svo uppreisnar- gjarna í framan. Stúlkurnar eru líka með þessa höku, laglegar og lausar við stresshrukkuna sem algeng er á þreyttum dætrum Austurstrætis, enda skildist mér á öllu að írskir karlmenn væru einstaklega góðir við kvenfólkið. Á írlandi hafa margir herragarð- ar verið gerðir að hótelum og kast- alar að veitingastöðum. Við borðuð- um dýrindis máltíð í einum kast- alanum eitt kvöldið, „Black Rock Castle", og það var sama sagan þar og annars staðar, menn heimilisleg- ir og skrafhreifir. Kastalaeigandinn sjálfur Thomast McCarty gekk milli gesta og spurði okkur meðal annars hvernig okkur fyndist lambakjötið? Við sögðum honum auðvitað að við á íslandi værum með besta lambakjöt í heimi, en hann hélt nú ekki, vildi ekki hlusta á slíkt bull og hótaði að henda okkur í dýfliss- una ef við segðum ekki að írar væru með besta kjötið. Þótti okkur þetta fyndið mjög og hlógum hátt, en gamanið kárnaði þegar hann sendi Tony þjóninn sinn í gömlum riddaraherklæðum til að handtaka okkur. Hann sagði okkur hins vegar eitt og annað um írsku fjölskylduna og m.a. það að hún væri í fyrsta sæti hjá írum. „Fjölskyldutengsl eru gíf- urlega sterk og það er sagt að írski karlmaðurinn yfirgefi aldrei móður sína,“ sagði hann. Ég sagðist auðvitað sáröfunda írsku eiginkonurnar, en ekki var þetta allt búið því McCarty hélt áfram og sagði: „Menntun kvenna er á háu stigi hér á írlandi, en þótt þær verði vísindamenn, læknar eða lögfræðingar þá hætta þær oftast að vinna úti þegar þær eignast böm. Það er enginn sem biður þær um það, þær viljá þetta sjálfar." Þá vildum við ekki ræða meira um konur, en snerum okkur að kránum sem virðast áberandi í írsku samfélagi og eru oft sjö í 250 manna þorpi. Hann sagði að írar færu ekki á krárnar til að drekka Guinnesbjórinn sinn eingöngu, heldur til að spjalla við náungann. „Við þurfum að rækta vini og ná- granna ekki síður en fjölskylduna," sagði McCarty kastalaeigandi og kvaddi okkur svo með handabandi þegar við fóram. Eftir því sem Paddy bílstjórinn okkar sagði þá þykir það ekkert tiltökumál þótt menn bregði sér á krána eftir kirkjuferð og skildist mér að trúin væri hluti af daglega lífinu en ekki svona spari eins og hjá okkur íslendingum. Það sem virðist skipta Irann mestu máli er sem sagt fjölskyldan, trúin, Guinn- esbjórinn og pólitíkin. Þótt rómantísku sveitavegirnir, og græni og himinblái liturinn sitji lengi í auganu eftir ferð til írlands, þá era írsku augun og sálin sem þau spegla miklu þaulsætnari í hug- anum. Því miður sá ég aðeins einn rauð- hærðan Ira, blaðasalann í Cork, þennan sem laug mig fulla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.