Morgunblaðið - 28.04.1991, Síða 20

Morgunblaðið - 28.04.1991, Síða 20
30 C MORGUNBLAÐIÐ MEMIMIMGARSTRAUMAR SyNyUDAQUR 28. APRÍL 1991 ■ Ný mynd eftir spennu- sögu Tom Clancys er í burðarliðnum og eins og í Rauðum október fer Alec Baldwin með eitt aðalhlut- verkið. „Patriot Game“ heitir sagan og segir frá til- raun írska lýðveldishersins til að höggva skörð í bresku konungsfjölskylduna. I Ungur drengur að nafni Brandon Lee hefur gert stórsamning við hasar- myndaframleiðandann Mario Kassar hjá Carolco. Brandon er algerlega ófrægur og þó. Pabbi hans var Bruce Lee og nú hefur sonurinn fetað í fótspor hans með sparkmyndinni „Showdown in Little Tokyo“. Sá sænski Dolph Lundgren leikur gegn hon- um. ■ Þá er uppi orðrómur um að Mel Gibson og Julia Roberts muni leika saman í bíómynd innan tíðar. Talað er um að hún verði vestri í stíl „Butch Cassidy and the Sundance Kid“. ■ Grínarinn góði Jim Abrahams úr ZAZ-genginu (Zucker, Abrahams, Zuc- ker) er kominn af stað með enn eina satíruna en í þetta sinn tekur hann fyrir flug- hetjumyndir í stíl við „Top Gun“ og þá sem sýnd er í Háskólabíói núna, Flug- sveitina. Myndin hans heit- ir „Hot Shots! An Import- ant Movie“ en með aðal- hlutverkin í henni fara Charlie Sheen og Jon Cry- er. Kathleen Turner; dæminu snúið við. Spæjarinn Turner Ef þú sérð Ijóshærða dúkku á einkaspæjarastofu í bíómyndunum er hún örugglega að biðja karlhetjuna ásjár. Kathleen Turner ætlar að snúa dæminu við í næstu mynd sinni, „Fully Loaded“. Ihenni ieikur hún einka- spæjarann V.I. Wars- hawski og hún er sannkail- aður harðhaus myndarinn- ar. Persóna Tumers er byggð á sakamálasögum Söru Paretsky en sögu- hetja hennar er kvenkyns spæjari. Segist Tumer lengi hafa leitað að einum slíkum að til að leika í bíó- mynd. „Af öllum þeim kvenkyns spæjurum sem ég hef lesið um er Wars- hawski athyglisverðust, hún hefur besta gildismat- ið. Hún er spurð að því hvað kosti að ráða hana og hún segir: Réttan mál- stað.“ í myndinni rannsak- ar Warshawski morðið á föður 13 ára stúlku sem hún vingast við. Leikstjóri er Jeff Kanew sem gert hefur vægast sagt slappar gamanmyndir í gegnum tíðina („Revenge of the Nerds“, „Troop Be- verly Hills“). Það er því ekki að furða þótt hann segist hafa viljað fást við eitthvað bitastæðara. Franskar Víet- nammyndir Frakkar hafa snúið aftur til Víetnams núna 37 árum eftir að herir þeirra fóru þaðan. I þetta sinn eru þeir komnir til að gera bíómyndir en ekki færri en þrjár franskar Víetnammyndir eru í framleiðslu þessa dagana. Umfangsmest og dýrust þessara þriggja er „Dien Bien Phu“. Það er önnur dýrasta bíómynd sem Frakkar hafa gert, kostar tæpa tvo milljarða króna, og segir frá umsátrinu við Dien Bien Phu sem stóð í 55 daga og markaði endalok veru Frakka í Indókína. Leikstjóri er Pierre Schoendoerffer en myndin er fyrsta bíómyndin frá vesturlöndum sem tekin er í Víetnam. Þá er leikstjórinn Jean- Jacques Annaud (Leitin að eldinum) að vinna við bíóútg- áfu verðlaunabókar Margue- rite Duras, „L’Amant", en tökur á henni hófust í janúar síðastliðnum. Framleiðandi er Claude Berri. Það er ást- arsaga sem gerist í Víetnam og það er þriðja Víetnam- myndin einnig. Hún heitir einfaldlega Indókína og er með Catherine Deneuve í aðalhlutverki. Leikstjóri er Régis Wargnier. Myndin verður tekin í Víetnam og Malaysíu. Aftur til Víetnam; Chat- erine Denueve. 8.000 á Uppvakninga Um átta þúsund manns hafa séð bandarísku bíómyndina Uppvakninga í Síjörnubíói að sögn bíóstjórans Karls Schiöth, en hún hefur nú verið sýnd í fjórar vikur. Sagði Karl í stuttu sam- tali að hann hefði búist við að hún gerði betur en þetta og bætti við að flest- ir áhorfendurnir væru full- orðið fólk, unglingarnir Uppvakningar; fullorðið fólk í miklum meirihluta. KVIKMYNDIR— hefðu ekki látið sjá sig. Uppvakningar er sannsög- ulegt drama um sjúklinga sem vakna af áratugalöng- um dásvefni. Með aðalhlut- verkin í myndinni fara Rob- in Williams og Robert De Niro. Karl sagði að gaman- myndin á Barmi örvænt- ingar hefði gengið betur en hann hefði átt von á. Alls hafa nú séð hana um 9.000 manns og samtals hafa um 16.000 manns séð gamanmyndina Pottorma í pabbaleit 2 með John Tra- volta. Hljóðkerfið í báðum söl- um Stjörnubíós hefur nú verið endurnýjað. Bíó- myndin um rokkgoðið Jim Morrison eftir Oliver Stone með Val Kilmer í aðalhlut- verki, byijar þann 3. maí nk. að sögn Karls en á eft- ir henni koma „Avalon" eftir Barry Levinson og gamanmyndin „L.A. Story“ Hverjar voru athyglisverdastar á vikunum? Annállfjögurra vikna Úr frönsku myndinni „Korczak"; endar í von. ÞAÐ hefur sjálfsagt farið framhjá alltof mörgum að undanfarinn mánuð eða svo hefur talsvert öflug kvikmyndahátíð staðið yfir í Reykjavík með finnskum, dönskum, svissneskum og frönskum myndum. í hópnum var m.a. nýbökuð óskarsverðlaunamynd en líka margar fleiri góðar. Haldnar voru fjórar kvik- myndavikur í röð hver á eftir annarri. Þær byrjuðu með Finnum en lauk með Frökkum í vikunni. Þar birt- ist úrval mynda frá hverju landi fyrir sig og var •sériega áhugavert eflir ftmald að sjá við Indrldason hvað kvik- myndagerðarmenn eru að fást úti í Evrópu, en það býðst ekki á hveijum degi í þessum mæli. Alls voru sýndar á þriðja tug mynda samanlagt. Finnsku bræðurnir Aki og Mika Karismauki voru mest áberandi á finnsku vikunni og var æði forvitnilegt að sjá samanlagt fjórar myndir frá þeim. Þar bar hæst verð- launamyndina Ariel en skemmtilegastar voru þó Leningradkábojarnir halda til Ameríku og Ég réði mér leigumorðingja. Sú fyrri var skælbroslegt ferðalag verstu rokksveitar heimsins í hjarta rokklandsins en hin um mis- heppnaða skrifstofublók í London sem réð leigumorð- ingja til að drepa sig. Báðar voru þetta frábærlega kynd- ugar og kómískar myndir. Þá kom dönsk kvik- myndavika sem sýndi að Danir eru mest uppteknir af og gera best einkar næmar og þekkilegar myndir um hversdagslegt fólk í hvers- dagslegum kreppum lífsins. I myndum þeirra er einhver sérstakur danskur blús, ljúfsár og indæll, þær voru allar mjög vandlega gerðar og ekki síst sérlega vel leikn- ar. Af þeim sem ég sá voru bestar Nútímakonan um tvær vinkonur í Kaup- mannahöfn og ísbjarnadans um áhrif skilnaðar á ungan dreng, en Háskólabíó keypti reyndar þá mynd til sýninga. Á svissnesku vikunni kom besta mynd þessarar óform- legu hátíðar en það var óskarsverðlaunamyndin Vonarferð eftir Xavier Koll- er. Hún sagði raunasögu tyrkneskrar fjölskyldu sem missir allt á smyglaraleið yfir til fyrirheitna landsins, Sviss, og að iokum eina barnið sem þau gátu komist með að heiman. Koller fann ekki í þessari hrikalegu sögu ódýrt melódrama heldur nísti mann inn að beini með blá- kaldri og raunsærri frásögn í nk. heimildarmyndastíl af ferðalagi fólksins, svikunum og harðræðinu og loks lam- andi sorginni. Onnur mynd sem bar af á svissnesku vik- unni var Hæðareldur eftir gest vikunnar, Fredi M. Murer, um systkini sem verða elskendur í einangrun á bóndabýli hátt uppi í sviss- nesku fjöllunum. Og loks var það franska vikan en þar bar hæst nýj- ustu mynd pólska leikstjór- ans Andrzej Wajda, Korc- zak, sem gerð var í samvinnu Frakka, Þjóðveija og Pól- verja. Hún er svart-hvít og rekur sanna sögu rithöfund- arins fræga Janusz Korczak sem lést í fangabúðum nas- ista í Treblinka árið 1942 ásamt hópi 200 munaðar- leysingja sem hann hafði undir sinni umsjón. Þetta efni er í raun of hryililegt til að orð fái því lýst en Wajda kaus að enda mynd- ina í von. Það kemur fram að Korczak hafi látið lífið ásamt börnunum í búðunum en í myndinni lætur Wajda síðasta vagninn losna frá lestinni á leið í útrýminguna og útúr honum hlaupa börn- in í frelsið. Endir þessi, sem kemur kökk í hálsinn, er mjög umdeildur reyndar. Wajda hefur verið gagn- rýndur fyrir að veita falska von en það getur varla verið því hann tekur skýrt fram hver raunveruleg örlög biðu barnanna. Það voru margar fleiri ágætismyndir á hinum dýr- mætu viicum en þessar voru helstar og vil ég að lokum þakka hlutaðeigandi fyrir að gefa kost á að sjá þær. ÍBÍÓ Alls eru sýndar ellefu barnamyndir um helgar í bíóunum í Reykjavík en þar af eru fímm teiknimyndir. Þetta er dágott úrval en af teiknimyndunum er óhætt að mæla sér- staklega með Litlu haf- meyjunni fyrir börnin en húr. er frábærlega gerð eftir ævintýri H.C. Ándersens. Þá er líka gaman að teiknimynd- inni Allir hundar fara til himna. Tvær ævintýramynd- ir standa bömum til boða. Önnur er Gustur um vináttu hests og arabadrengs en hin Ævintýraeyjan sem kannski höfðar frekar til eldri krakka. Þá má minna á að ennþá er íslenska barna- og fjöt- skyldumyndin Pappírs- Pési sýnd í Regnbogan- um og Aleinn heima er enn sýnd um helgar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.