Morgunblaðið - 13.06.1991, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULIF FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991
B 13
■imnu.ii.MHj*
Þróunarverkefni Utflutn-
ingsráðs aftur af stað
ÚTFLUTNINGRÁÐ Islands í
samvinnu við íslandsbanka, Iðn-
lánasjóð og Markaðsskóla íslands
hefur farið af stað með þróunar-
verkefnið tJtflutningsaukning og
hagvöxtur með þátttöku níu fyr-
irtækja. Þetta verkefni er endur-
tekning á öðru sem lauk í nóvem-
ber á síðasta ári og þótti takast
mjög vel. Að sögn Hauks Björns-
sonar, hjá Útflutingsráði, var þá
ákveðið að ná fyrirtækjum sam-
an í nýtt verkefni og var fyrsti
vinnufundurinn haldinn í byrjun
þessa mánaðar.
Markmiðið með þróunai'verkefn-
inu er að innleiða vel skipulögð og
árangursrík vinnubrögð við mark-
aðssetningu í smáum og meðalstór-
um fyrirtækjum. Útflutningsráð
samdi í því skyni um afnotarétt af
verkefninu sem er vel þekkt í ýms-
um löndum Evrópu. Helsti fjár-
mögnunaraðili verkefnisins er að
þessu sinni_ íslandsbanki, en auk
hans fékk Útflutningsráð Iðnlána-
sjóð og Markaðsskóla íslands til
samstarfs varðandi fjármögnun og
framkvæmd.
Fyrirtækin sem taka þátt í verk-
efninu eru Bakkavör hf., Bláa-lónið
(baðhús), Borgarplast hf., Loðskinn
hf., Max hf., Miðlun hf., Nói-Síríus
hf., Tölvumiðlun hf. og Þörunga-
verksmiðjan hf. Verkefnið er sam-
VINKLAR A TRE
Þ.ÞORGBlMSSON&CO
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
Bestir i alþjóðlegum sportfatnaði
SÆVAR KARL &. SYNIR
Kringlunni, sími 689988
coddie
KJÖRBÚÐA-
VAGNAR
Eigum á lager eöa
útvegum meö stuttum
fyrirvara kjörbúöa-
vagna fyrir verslanir og
stórmarkaði. Stærðir:
60-210 lítra.
a * m
VERSLUNARTÆKNI HF,
VATNAGORÐUM 12 REYKJAVÍK SlMI 688078
sett úr mánaðarlegum vinnufund-
um, ráðgjöf, markaðsrannsóknum,
kynnisferðum á markaði -og mark-
aðsáætlunum. Áætlað er að því ljúki
í apríl á næsta ári.
Sérstök verkefnisstjórn mat
markaðsáætlanir þeirra fyrirtækja
sem tóku þátt í fyrsta verkefninu.
Að sögn Hauks voru menn ánægðir
með vinnubrögðin og mættu mörg
stærri fyrirtæki hér á landi telja sig
fullsæmd af þeim. „Það er kannski
fullsnemmt að tala um ákveðinn
árangur fyrirtækjanna í kjölfar
verkefnisins. Það mun taka eitt til
tvö ár að ná marktækum saman-
burði á starfsemi þeirra fyrir og
eftir þátttökuna. Þetta lítur þó mjög
vel út og enginn vafi á því að þátt-
taka í svona verkefnum hjálpar fyr-
irtækjum að ná markmiðum
sínum,“ sagði Haukur.
Fyrsti vinnufundur í 2. verkefni Útflutningsráðs, Útflutningsaukning
og hagvöxtur, var haldinn í byijun þessa mánaðar.
1
I
•8
HEWLETT
PACKARD
KYNNING
Júní ’91
I júní kynnum við nýjan geislaprentara frá Hewlett Packard,
LaserJet III Si. Hraðvirkari, ódýrari í rekstri og auk þess með
fínna duft sem eykur prentgæðin.
LaserJet III Si er fáanlegur með tenginu við Ethernet eða Tókahring.
Þanning tengdur er hann skilgreindur sem hver önnur útstöð og
gagnasendingar á hann því mjög hraðar.
Sjón er sögu ríkari. Við bjóðum þér að koma og kynnast honum
af eigin raun.
Við sýnum einnig hina frábæru LaserJet III og DeskJet 500.
Hewlett Packard prentarar fyrir alla. Hraðvirkir og vandvirkir - prentarar
sem aðrir framleiðendur reyna að líkja eftir.
ÖRTÖLVUTÆKNI
Tölvukaup hf. Skeifiiiini 17 sími: 687220 fax: 687260