Morgunblaðið - 02.07.1991, Page 4

Morgunblaðið - 02.07.1991, Page 4
ð a 4 B II .s >iu&Aqui.oiHcifflTTOM aiqMavTOOHOM MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1991 KNATTSPYRNA / SAMSKIPADEILDIN Fram á framabraut Fjórði sigurleikur meistaranna í röð. Víkingur ekki sigrað heima í liðlega ár Kristján Jónsson spyrnir frá marki Fram í síðari há!fleiknum; er Víkingar sóttu af miklum krafti. Guðmundur Steinsson, fyrrum félagi hans, bíður átekta og í baksýn er Þorvaldur Örl- ygsson. Morgunblaðið/KGA FRAMARAR héldu uppteknum hætti á sunnudagskvöld, héldu sigurgöngunni áfram og unnu Víkinga 2:0 í Stjörnugróf. Þetta var fjórði sigurleikur meistar- anna í röð og verður ekki annað sagt en stöðubreytingarnar í seinni hálfleik gegn KA fyrir rúmum hálfum mánuði hafi skilað sínu og borið tilætlaðan árangur, hvað sem öllum húf- um líður. Stigin þrjú á Víking- svellinum héngu samt á blá- þræði, en eins og gegn KA inn- siglaði Jón Erling Ragnarsson sigurinn á síðustu stundu — gerði annað mark sitt, þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Víkingar léku ágæt- lega á köflum og voru nálægt því að jaf na undir lokin, en þeim gengur hins vegar bölv- anlega að sigra á heimavellin- um, sigruðu þar síðast 29. júní í fyrra! Gestirnir byijuðu vel, náðu strax undirtökunum og upp- skáru fljótlega mark. Þeir réðu ferð- inni í fyrri hálfleik og dreifðu vel spilinu án þess samt Steinþór að ógna verulega, Guðbjartsson en liðin fengu sitt skrifar marktækifærið hvort. Eftir hlé voru heimamenn mun ákveðnari. Þeir sóttu stíft einum færri undir lokin og lögðu allt kapp á að jafna, fengu nokkur hálffæri, en Framarar áttu síðasta orðið. Víti-ekki víti? Darraðardansinn var í algleym- ingi síðustu mínútumar og jöfnun- armarkið virtist liggja í loftinu. Ávallt skapaðist hætta, þegar Guð- mundur Steinsson fékk boitann inni í vítateig gestanna, en Framarar sluppu fyrir horn. Hann vildi fá víta- spymu á þessum tíma, sagði að Birkir Kristinsson, markvörður Fram, hefði fellt sig. „Það var ekki mikil harka í leikn- um, en þeir voru í bakinu á mér í tvígang og Birkir var ekki með hendurnar á boltanum heldur á öxlunum á mér.“ Það getur vel verið,“ sagði Birkir við Morgunblað- ið, „en hann bakkaði á mig og ég datt fram á við.“ „Þetta var ekki víti,“ sagði Bragi Bergmann, dóm- ari. „Hins vegar hafði Guðmundur reynt að físka víti tvisvar skömmu áður og slíkur leikaraskapur getur komið mönnum í koll, þegar um vafaatriði er að ræða. En ég hefði dæmt víti ef það hefði verið rétt.“ Átta gul og eitt rautt Leikurinn virkaði ekki grófur, en engu að síður voru gefin átta gul spjöld og eitt rautt. „Sjö af gulu spjöldunum voru fyrir grófan leik,“ sagði dómarinn og varðandi brott- reksturinn hafði hann þetta að segja: „Þeir vora að kýtast inni í teig og þegar þeir hlupu í burtu sparkaði Ríkharður aftan í Hörð, sem aftur krækti í Ríkharð. Þetta voru ásetningsbrot, hjá báðum, en Hörður hafði fengið gult spjald áður og því var brottreksturinn óumflýj- anlegur." Margir leikir hafa verið prúð- mannlega leiknir, en Ieikmenn í sumum leikjum að undanförnu hafa fengið orð í eyra fyrir grófan leik. Sökin er ekki eingöngu þeirra, dóm- ararnir verða líka að gæta sín að vera ekki of ákafir. Spurningin er hvort ekki sé farsælla að veita mönnum tiltal áður en gripið er til spjalda og víst er að sumar áminnin- garnar að þessu sinni orkuðu tvímælis. Til að mynda var óréttlátt að gefa Guðmundi Inga gult spjald fyrir að sparka boltanum í átt að brotstað eftir að samherji hans Jón Erling Ragnarsson gerði bæði mörkin gegn Fram og hefur því gert íjögur mörk í deildinni í sumar. hafði gerst brotlegur; samstuð Harðar Theódórssonar og Ríkharðs Daðasonar virtist sárasaklaust. Að sama skapi sluppu menn við skrekk- inn. Þorvaldur Örlygsson var full harður strax í byrjun; Tomi Bosniak var heppinn, þegar Guðmundur Ingi fékk spjaldið; Hörður Theódórsson slapp vel í byrjun seinni hálfleiks; Þorsteinn Þorsteinsson „bað“ nokkrum sinnum um spjald en fékk ekki. „Fór út í vitleysu hjá okkur“ Framarar léku vel í fyrri hálfleik, en þeir slökuðu á eftir hlé, þó skemmtileg tilþrif hafi oft sést inni á milli. Þorvaldur lék sennilega besta leik sinn með Fram og var úti um .allt í fyrri hálfleik, Steinar var ógnandi á kantinum, Jón Erling var réttur maður á réttum stað og Pétur var yfirvegaður í frívarðar- stöðunni. „Eg er ánægður með stigin, en Oa ^ Jón Erling Ragn- ■ I arsson gerði glæsi- legt mark með skalla af stuttu færi á 6. mínútu. Steinar Guð- geirsson lék á tvo mótherja í tvígang út við hægri hornfána og sendi síðan boltann beint á Jón Erling. 0aO Jón Erling skoraði ■ Sm með viðstöðulausu skoti af stuttu færi upp í þakne- tið á 90. mínútu eftir góða send- ingu frá Steinari, sem óð upp hægri kantinn oggaf síðan fyrir. ekkert annað,“ sagði Pétur Ormslev. „Fyrri hálfleikurinn var í lagi, en síðan fór þetta út í vitleysu hjá okkur. Þá áttum við erfitt með að spila, því þeir komu framar á völlinn. Það var taugaveiklun í þessu hjá okkur — þetta var raglað- ur leikur af okkar hálfu." „Það var kominn tími á tvö mörk,“ sagði Jón Erling, sem gerði síðast tvö mörk í leik gegn Djurgárden í Evrópukeppninni sl. haust. „Þetta þróaðist út í mikla hörku, menn gáfu sig 100% í leikinn og þá gleymdist að spila fótbolta, en spjöldin vora of mörg.“ Helgi sem herforingi Helgi Björgvinsson lék sem her- foringi í vörn Víkings, vann boltann hvað eftir annað og spilið byrjaði gjarnan hjá honum, en stoppaði hjá miðjumönnunum. Hörður barðist vel og lék sennilega besta leik sinn í sumar, en var óheppinn að fá rauða spjaldið. Þá var Guðmundur ógnandi frammi. „Við spiluðum vel og gerðum allt nema skora,“ sagði Guðmundur Steinsson. „Við spiluðum illa í 15 mínútur í fyrri hálfleik, en tókum okkur á og áttum skilið að jafna,“ sagði Helgi Björgvinsson. „Brott- reksturinn var vafasamur, en það er eins og við höfum fengið slæmt orð á okkur og því virðist, sem við fáum spjöld í tíma og ótíma.“ Staðan / B6 Gottaðveraá sigurbraut á ný - sagði Ingi Björn Albertsson eftir sigur Vals „ÞAÐ er gott að vera kominn á sigurbraut aftur. Þetta var mikil- vægur sigur fyrir okkur því Víðismenn eru erfiðir heim að sækja og mérfinnst að staða þeirra í deildinni gefi ekki rétta mynd af getu liðsins. Við bökkuðum eftilviil full mikið á köflum til að halda fengnum hlut sem var ákaflega eðlilegt í stöðunni," sagði Ingi Björn Albertsson þjálfari Vals eftir að lið hans hafði sigrað Víði 3:1 í Garðinum á sunnudagskvöldið 3:1. skrifarfrá Keflavik Víðismenn léku einn sinn bestá leik í langan tíma að þessu sinni, en eins og svo oft áður virt- ist þá ávallt skorta herslumuninn á allat' sínar sókna- Björn raðgerðir. Eftir Blöndal þessi úrslit er útlitið því allt annað en gott hjá þeim Garð- búum sem hafa aðeins hlotið 2 stig úr 7 leikjum og sitja einir á botni deildarinnar. Sóknir Vals hættulegri Valsmenn sóttu mun meira i upphafi og það var ekki fyrr en að þeir höfðu náð forystunni að Víðis- menn fóru að sækja af einhverri alvöra. Þeim gekk þó illa að finna smugur á Valsvörninni þar sem þeir Bjarni Sigurðsson markvörur og Sævar Jónsson léku eins og her- foringjar. Sóknir Vals voru hins vegar mun hættulegri og þeir Gunn- laugur Einarsson og Þórður Boga- son fengur báðir gullin tækifæri til að skora áður en Baldur Bragason skoraði annað markið. Vonarglæta Smá vonarglæta kviknaði hjá Víðismönnum í upphafi síðari hálf- leiks þegar þeir náðu að minnka muninn á fyrstu mínútunni. En sú dýrð stóð ekki lengi því Valsmenn skoruðu sitt þriðja mark 5 mínútum síðar og tveggja marka munur var of mikið fyrir Víðismenn að þessu sinni. Oa Æ Steinar Adolfsson ■ I skoraði af miklu ör- yggi úr vftaspymu sem dæmd var á Víðismenn eftir að Steinar Ingimundarson hafði brotið á Þórði Bogasyni innan vítateigs. Oa Baldur Bragason ■ Sám lék upp að marki Víðis vinstra megin og sendi boltann af öryggi í homið fjær framhjá Gísla Heiðarssyni markverði Víðis sem ekki kom við neinum vörnum. 1:2 Grétar Einarsson náði að minnka mun- inn eftir hornspymu með .failegu marki. Steinar lngimundarson tók hornspyrnu, sendi stutta sendingu á Guðjón Guðmunds- son sem vann einvígi við Vals- mann og sendi inn í vítateig. Þar tók annar Víðismaður bolt- ann og sendi hann áfram á stöngina fjær þar sem Grétar var vel staðsettur og hann skor- aði öragglega. 1aO Ágúst Gylfason átti ■ w fast skot að marki Víðis frá vinstri, Gísli markvörð- ur náði að verja, en hélt ekki boltanum sem barst til Jóns Grétars Jónssonar og hann skoraði öragglega af stuttu færi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.