Morgunblaðið - 02.07.1991, Síða 7

Morgunblaðið - 02.07.1991, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1991 B 7 Sigurður Björgvinsson Fæddur: 22. mars 1959. Atvinna: Deildarstjóri hjá Samkaupum i Keflavík. Leikir: 230 í 1. deild og annað eins með meistaraflokki ÍBK og KR á öðrum vígstöðvum s.s. vináttuleikir, bikarkeppni, Litla bikarkeppnin og Reykjavíkurmót. Mörk í 1. deild: 22 fyrir leik KR og Stjömunnar í gærkvöldi. Landsleikir: 3 A, 1 U-21, 9 U-18, 3 U-16 (fyrirliði). Helsti árangur: Fimm sinnum í úrslitum bikarkeppni KSÍ og meistari í 2. deild 1981. Helstu viðurkenningar: Knattspyrnumaður KR 1990, Knattspyrnu- maður IBK 1978 og 1987, Handknattleiksmaður Suðurnesja 1987. Sanngjam sigur þrált fyrir vafasamt mark KA gerði góða ferð í Hafnarfjörð. FH í slæmri stöðu KA gerði góða ferð í Hafnar- fjörðinn þar sem liðið vann heillum horfið FH-lið 2:0 með mörkum á lokamínútu fyrri og síðari háifleiks. og það er slæmt fyrir lið að fá orð á sig fyrir ruddaskap eins og því miður vill gerast hjá sumum liðum.“ Efni í ágætis dómara Knattspyrnan á allan hug Sig- urðar. Hann segist hafa reynt að verja frístundum í veiði og aðra útiveru, en það sé ekki tími fyrir annað en fótbolta. Æfingar og leik- ir hafa forgang, en þegar stund gefst til fer hann í dómarabúning- inn.^ „Ég hef mikinn áhuga á dóm- gæslu og tel mig efni í ágætis dóm- ara. Ég hef dæmt í 12 ár, aðallega í yngri flokkunum og eins í neðri deildunum. Mér finnst sérstaklega gaman að dæma erfiða leiki og úrslitaleikurinn í Litlu bikarkeppn- inni í vor er minnisstæður. Þá varð ég að senda vin minn Kristján Finn- bogason út af með rautt spjald, en við því var ekkert að gera.“ Kristján, markvörður Skaga- manna, tekur undir þau orð. „Ég missti stjórn á mér og dómurinn var réttlátur. Þetta er eini leikurinn minn, sem Siggi hefur dæmt, en hann stóð sig vel og á eflaust góða framtíð fyrir sér sem dómari." FH var sterkari aðilinn í fyrri hálfleikinn en leikmönnum liðs- ins gekk illa að koma boltanum til framlínumannanna Harðar og Andra Marteinsson- Frosti ar. Oft á tíðum brá Eiðsson fynr þokkalegu spili sknfar á miðjunni en hvor- ugu liðinu tókst að nýta sér færin þar til á síðustu mínútu hálfleiksins er KA skoraði fyrsta mark leiksins. Svo virtist sem að bæði Vandas og Sverrir væru rangstæðir, en Guðmundur Jónsson línuvörður lyftí ekki flaggi sínu til merkis um rangstöðu og Vandas skoraði af öryggi. Leikmenn FH mótmæltu markinu en það hafði ekkert upp á sig og Sveinn Sveins- son dæmdi markið gilt eftir að hafa ráðfært sig við Guðmund línuvörð. Guðmundur Hilmarsson, aftasti maður FH-varnarinnar var mjög óhress með markið. „Þeir voru báð- ir 4-5 metrum fyrir innan vörnina þegar sendingin kom og greinilega rangstæðir. Við ætluðum ekki að láta markið hafa áhrif á okkur, en við brotnuðum niður við markið,“ sagði Guðmundur Hilmarsson, aft- asti maður FH-varnarinnar. I síðari hálfleiknum voru leik- menn KA mun aðgangsharðari við FH-markið og liðið fékk fjölmörg góð tækifæri til að auka muninn. Orn Viðar Arnason komst einn inn- fyrir vörn FH, utarlega í vítateign- um eftir góða sendingu Ormars en skot hans fór í hliðarnetið. Mark- spyrna Stefáns mistókst og Pavel Vandas komst í gott skotfæri en knötturinn fór beint í fang Stefáns. Páll Gíslason átti stuttu síðar skot í þverslá FH-marksins. En heima- menn hresstust á síðustu tuttugu mínútunum, Andri Marteinsson færði sig aftar á völlinn og Pálmi Jónsson fór úr bakvarðarstöðunni í sína gömlu stöðu sem fremsti mað- ur. Heldur meiri broddur var í sókn- arlotum FH eftir það og FH-ingar fengu þokkaleg færi. Varnarmönn- um KA tókst að loka fyrir skot Dervic á markteig, Pálmi, var ná- lægt því að jafna er skot hans fór rétt framhjá en færi gestanna voru þó bæði fleiri og opnari. Erlingur Kristjánsson átti góðan skalla að markinu sem Stefán varði niður við stöng og tvívegis í hálfleiknum hirti Stefán knöttinn af tám sóknar- manna KA. En það var KA sem átti síðasta orðið í leiknum með marki á loka- mínútunni og ekki er hægt að segja annað en að sigurinn hafi verið fyllilega verðskuldaður. Steingrímur Birgisson og Erling- ur Kristjánsson voru sterkustu hlekkirnir í vel skipulagðri vörn KA sem náði að halda hinum hættulegu sóknarmönnum FH niðri í leiknum. Þá voru Einar Einarsson og Ormarr sterkir á miðjunni. KA-liðið lék mun markvissari knattspyrnu í leiknum og sigur liðsins hefði orðið mun stærri ef ekki hefði komið til góð markvarsla Stefáns í marki FH. „Sjálfstraustið er að koma hjá okkur eftir slaka byijun og okkur vantar aðeins smáneista til að fara aftur uppá við. Við héldum boltan- um vel í síðari hálfleik, sköpuðum okkur fullt af færum og erum á réttri leið,“ sagði Ormarr Örlygs- löndal u íuga á í Litlu erfíður í hann isson. Morgunblaöið/Bjarni Izudin Dervic, Júgóslavinn í liði FH, á fleygigerð í átt að marki KA á sunnu- d'aginn. Þar er Ormarr Örlygsson, þjálfari norðanmanna, sem gerir tilraun til að stöðva hann. son, þjálfari og leikmaður KA við Morgunblaðið eftir leikinn. Barátta um fall „Við höfðum boltann um 60-70% af leiktímanum en þeir voru skyn- samari og sköpuðu sér fleiri færi. Heppnin hefur ekki verið okkur hliðholl í sumar og ef við förum ekki að hugsa okkar gang og leika betur þá er ljóst að við komum til með að berjast um fallið," sagði Andri Marteinsson. FH-liðið náði oft upp þokkalegu spili en miðjumenn liðsins héldu boltanum of lengi á miðju vallarins í stað þess að hefja strax sóknarlot- ur. Þær sóknir sem FH fékk voru flestar brotnar á bak aftur af sterk- um varnarmönnum KA sem höfðu mikla yfirburði í skallaboltum. Oa tU Einar Einarsson átti ■ I sendingu innfyrir vörn FH þar sem Pavel Vandas var á auðum sjó, nokkrum metr- um fyrir framan öftustu varnar- menn FH. Vandas lék boltanum inn í vítateiginn og skoi'aði með föstu skoti. Mikil rangstöðulykt var af markinu en Sveinn Sveinsson dæmdi markið gilt eftir að hafa ráðfært sig við Guðmund Jónsson, línuvörð. Om<2 Sverrir Sverrisson ■ mm skoraði markið á lok- aminútunni með skoti rétt utan markteigs eftir fallega sóknar- lotu KA. ÍÞRÚmR FOLK ■ ANTONY Karl Gregory kom inná sem varamaður hjá Val gegn Víði á sunnudag. Hann hafði verið veikur, fékk vírus og háan hita og var frá í hálfan mánuð. Hann missti 5 kíló vegna veikinda sinna. ■ ÖRN Torfason lék ekki með Val gegn Víði á sunnudag vegna þess að hann fór úr axlarlið á æf- ingu á fimmtudag. ■ SVEINN Sveinsson dómari hafði í nógu að snúast á leik FH og KA í Kaplakrikanum. Eftir að hafa flautað til leikhlés hljóp hann til og stöðvaði Viðar Halldórsson, varaformann knattspyrnudeildar FH sem hlaupið hafði inná völlinn. Sveinn hindraði Viðar í því að komast í námunda við Guðmund Jónsson línuvörð. Viðar sagði eftir leikinn að ætlun hans hafði aðeins verið að tala við Guðmund en Við- ar, eins og reyndar margir aðrir stuðningsmenn FH, voru reiðir yfir því að línuvörðurinn skyldi ekki hafa veifað rangstöðu á Pavel Vandas er hann skoraði fyrra mark KA. ■ AÐEINS 170 áhorfendur sáu leik FH og KA að Kaplakrika og eru það fæstu áhorfendurnir að 1. deildarleik það sem af er sumars. Fyrra „metið“ var sett á leik Stjörn- unnar og Víðis í 4. umferð en 230 áhorfendur sáu þann leik. KNATTSPYRNA / SAMSKIPADEILDIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.