Morgunblaðið - 02.07.1991, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.07.1991, Blaðsíða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRI■ KI»Jl.' 1)AGL'K 2. JÚLÍ 1991 KNATTSPYRNA / SHELLMÓTTÝS Valur og Stjaman með bestu liðin SHELLMÓTINU lauk í Vest- mannaeyjum á sunnudag. Hjá B-liðum léku Fylkir og Stjarnan til úrslita. Það var Stjörnuliðið sem sigraði, 2-0, var yfir 1-0 í leikhléi og bætti síðan einu marki við í síðari hálfleik. Það var Gunnar Darri Ólafsson sem skoraði bæði mörk Stjörnunn- ar. Hjá A-liðum léku Valur og ÍBK til úrslita og það voru Vals- menn sem sigruðu 1:0 og eru því Shell-móts meistarar A- liða. Það var Andri Guðmunds- son sem gerði sigurmark Vals í síðari hálfleik. Attunda knattspyrnumóti Týs, sem nú kallast Shell-mót, var haldið í síðustu viku. Meistarar ut- anhúss hjá A-liðum urðu Valsarar undir stjórn Gunn- Sigfús ars Baldurssonar en Gunnar hann kom einmitt Guömundsson með Fylkismönnum sknfar í fyrra sem þjalfan og þá sigruðu Fylkismenn þannig að Gunnar virðist vita hvað hann er að gera með liðin. Hjá B-liðum voru það Fylkismenn sem sigruðu. í innanhússmótinu stálu Frammar- ar senunni með besta mann mótsins í broddi fylkingar og sigruðu þeir Sigurinn kom okkur á óvart - sögðu Valsararnir Snorri Steinn Guð- jónsson og Andri ElvarGuðmundsson bæði hjá A- og B-liðum og léku geysilega vel. Dagskráin hjá krökkunum var geysiþétt og mikið að gerast frá morgni til kvölds. Farið var í báts- ferð kringum eyjuna, rútuferð var farin um eyjuna og einnig prófuðu krakkarnir að spranga. Síðan voru haldnar grillveislur og á föstudags- kvöldið var kvöldskemmtun í íþróttamiðstöðinni. Þar fóru menn í kappát og ýmislegt var sprellað. Eiríkur Fjalar mætti á svæðið og tók nokkur létt lög við góðar undir- tektir. Laugardagskvöldið fór í að krakkarnir reyndu með sér í hinum ýmsu þrautum svo sem að halda bolta á lofti, rekja knött milli keilna, hula, farið í limbó og reiptog sem ávallt hrífur þjálfara og fararstjóra með, ásamt ýmsum öðrum leikjum. Á sunnudagskvöld var svo lokahóf þar sem mikið var veitt af verðlaun- úm fyrir allt sem keppt var í og voru nokkrir ansi klökkir þegar þeir komu upp á stall og tóku við verðlaunum. Arnar Sigurðsson, UBK, varð markakóngur á mótinu, gerði 19 mörk en í fyrra gerði hann 5 mörk en annar af tveimur markahæstu mönnum í fýrra, Snorri Guðjónsson, sem gerði 19 þá, varð í öðru til þriðja sæti nú með 17 mörk. Morgunblaðiö/S.G.G. Frá úrslitaleik Vals og ÍBK í keppni A-liða. Valur sigraði með einu marki gegn engu og urðu Shellmótsmeistarar. Fylkir sigraði í boðhlaupi KEPPNI var líklegast hvergi jafn spennandi og í boðhlaupi á laugardagskvöldið því það þurfti að skoða hlaupið af myndbandi til að skera úr um sigurvegara og voru Fylkis- menn úrskurðaðir sigurvegar- ar. ú kepptu c-lið í fyrsta sinn á Shell-mótinu í Eyjum, hug- myndin kom frá Vikingum og mættu þeir með verðlaun með sér fyrir það mót. Það var Lárus Jakobsson sem átti hugmyndina að þessu móti sem nú var haldið í átt- unda sinn - fyrstu sjö skiptin und- ir nafninu Tommamót en nú hefur verið skipt um styrktaraðila og er það Skeljungur sem styrkir mótið og kallast það því Shell-mót. Lárus er ennþá á fullu í skipulagningu mótsins ásamt §ölda annarra sjálf- boðaliða frá Tý og er mótið orðið frægt fyrir góða skipulagningu og nákvæmar tímasetningar sem ávallt standast. Tommi sem áður rak Tomma- hamborgara er ekki alveg hættur afskiptum af þessu móti en hann gaf verðlaun á mótið og einnig bauð hann leikmönnum liðanna sem sigruðu úti og inni í knattspymu- mótinu út að borða á Hard Rock Café. Rúnar Júlíusson gaf öllum verð- launahöfum á móti tónsnældu með lögum hans og einnig fengu allir þátttakendur, rúmlega 700 talsins, viðurkenningarskjal með nafni sínu á til staðfestingar um þátttöku í mótinu. Við áttum ekki von á því í byrj- un að verða meistarar en þegar líða tók á mótið sáum við að við áttum möguleika á einu af efstu sætunum og okkur tókst að fara alla leið og vinna ÍBK. Við vorum soldið stressaðir fyrir leikinn, en við slökuðum á 40 mín. fyrir leik og við gleymdum stressinu fljótt enda var leikurinn svo jafn og spennandi. Framararnir voru með mjög gott lið en við unnum þá óvænt 4-1. Þá vantaði tvo góða leikmenn og þeir voru ekki í stuði í þeim leik,“ sögðu Snorri Steinn Guðjónsson og Andri Elvar Guðmundsson úr Val, eftir úrslitaleikinn sem þeim fannst hápunkturinn á mótinu. Landslið og pressulið voru valin á mótinu og léku þau á laugardags- kvöld. Pressan byijaði mjög vel og komst í 2-0 með mörkum frá Haf- þóri Theódórssyni Framara og Þórði Halldórssyni, Þór AK. En landsliðið gafst ekki upp, náði að jafna fyrir hlé og síðan var sigur- markið skorað í seinni hálfleik og unnu því 3-2 f þrælgóðum leik. Mörk landsliðisns gerðu Magnús Guðjónsson, KR, og besti maður mótsins, Daði Guðmundsson, Fram, gerði 2. Morgunblaðiö/S.G.G. Valur sigraöi í flokki A-liða eftir sigur á ÍBK í úrslitum. í liði Vals, sem er hér fyrir aftan ÍBK, léku þeir Gunn- ar Baldursson, Andri Guðmundsson, Snorri Steinn Guðjónsson, Steinar Guðmundsson, Elvar L. Guðjónsson, Kristinn Bjarnason, Olafur Jensson, Olafur H. Gíslason, Sigurður Eggertsson, Hörður Aðalsteinsson og Markús Máni Mikaelsson Lið IBK var skipað eftirtöldum: Ómar Jóhannsson, Georg Sigurðsson, Ólafur Ibsen, Hólmar Örn Rúnarsson, Sigurður Markús Grétarsson, Kristinn Ólafsson, Daníel Ó. Frímannsson, Haraldur Guðmundsson, Gunnar Öm Ástráðsson, Aðal- geir Pétursson og Sævar Gunnarsson. Morgunblaðið/S.G.G. Stjarnan sigraði I flokki B-liða eftir sigur á Fylki í úrslitaleik. Lið Stjörnunnar (efri röð f.v.) Öm Ólafson, þjálf- ari, Jónas K. Guðbrandsson, Tryggvi Sveinsson, Eiríkur Sigurðsson, Hilmar Geirsson, Axel Ásmundsson, Jón Björn Ámason, Ingi Þór Arnarson, Þórólfur Nielsen, Ari Páll Samúelsson, Gunnar Darri Ólafsson, Kristján Svan Kristjáns- son, Hólmgeir Flosason, Jón Bjami Pétursson og Einar Gunnar Guðmundsson, aðstoðarþjálfari. Lið Fylkis (neðri röð f.v.) Rúnar Geirmundsson, liðsstjóri, Gunnar Arnar Gunnarsson, Garðar Hauksson, Elís Rúnarsson, Vilhjálmur Gunnar Pétursson, Sigurður Logi Jóhannesson, Páll Amar Þorsteinsson, Árni Torfason, Kristján Andrésson, Mikael Marino Rivera, Andri Fannar Ottósson, Birkir Bjömsson og Hlynur Jóhannsson, þjálfari. Valsmennirnir Snorri Steinn Guð- jónsson og Andri Elvar Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.