Morgunblaðið - 27.08.1991, Side 7
6 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1991
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1991
B 7
j KAR U RS LltALE! KU RMM !XJ
Vorum ákveðnir
íaðjafna metin
- sagði ÓlafurJóhannesson, þjálfari FH
ÍÞléWR
FOLK
I FH-INGAR fengu alls 8 horn-
spyrnur í leiknum á móti 6 hjá
Val. FH fékk alls 10 aukaspyrnur
skammt utan vítateig Vals þannig
að hætta skapaðist, en Valsmenn
enga.
■ HALLSTEINN Arnarson kom
gagngert frá Bandaríkjunum til
að leika með FH í bikarúrslitaleikn-
um. Hann er við nám í Kaliforníu
þar sem hann leikur einnig með
skólaliðinu.
■ GUNNAR Gunnarsson, Val,
var yngsti leikmaðurinn í bikarúr-
slitaleiknum, 19 ára. Magni Blönd-
al, Val og Ólafur Jóhannesson,
FH, votu elstir, 34 ára.
■ PÁLMI Jónsson úr FH var leik-
hæsti leikmaður úrslitaleiksins, var
að leika sinn 341. leik fyrir FH.
Magni Blöndal, Val, kemur næstur
með 289 leiki fyrir Val.
■ ARNALDUR Loftsson lenti í
samstuði við Magnús Pálsson þeg-
ar 3 mínútur voru eftir af framleng-
ingunni og fékk við það skurð í
neðri vörina. Hann fór útaf og
Valsmenn léku því einum færri það
sem eftir var.
■ VALSMÖNNUM leist ekki á
veðrið þegar þeir risu úr rekkju í
Grindavík á sunnudagsmorguninn.
Rok ög ausandi rigning blasti við
þeim. Þegar til Reykjavíkur kom
var veðrið heldur betra og voru leik-
menn því óskaplega fegnir.
■ FH-INGAR létu vel af dvöldinni
á Hótel Örk fyrir leikinn. Vals-
menn voru einnig mjög ánægðir
með Bláa lónið, en þeir fóru þang-
að til að undirbúa sig sem best fyr-
ir átökin.
■ ÞETTA var sigur gjaldke-
ranna, sagði ónefndur stuðnings-
maður Vals eftir leikinn. Á blaða-
mannafundi fyrir heigina þar sem
leikurinn var kynntur var verið að
gantast með það hvort ekki væri
rétt að skrifa undir samning um
að fyrri leikurinn færi 1:1 og fá því
tvo leiki.
■ ÞETTA er í þriðja sinn sem
þarf tvo leiki til að knýja fram bik-
arúrslit. I hinum tveimur sigraði
það lið sem náði að jafna í /yrri
úrslitaleiknum. 1969 jafnaði ÍBA,
1:1, gegn IA og vann síðan 3:2 í
aukaleik. í fyrra jafnaði Valur gegn
KR og síðan vann Valur í víta-
spyrnukeppni í aukaleik.
Olafur Jóhannesson þjálfari og
leikmaður FH sagði að úrslitin
hafi verði sanngjörn. „Ég held að
þetta hafi verið sanngjörn úrslit
miðað við gang leiksins. Við ætluð-
um okkur að vinna, en þeir eru
með geysisterka vörn. Við vorum
ákveðnir í að jafna metin eftir að
þeir skoruðu. Þetta var mjög erfiður
leikur því völlurinn var blautur og
þungur. Leikurinn opnaðist eftir
fyrri hálfleikinn og þá fóru leik-
menn að taka meiri áhættu énda
þreytan farin að segja til sín“.
Um síðari leikinn sagði hann:
„Það verður ekki minni barátta í
síðari leiknum á miðvikudaginn.
Við gefum allt í þann leik því við
ætlum okkur bikarinn,“ sagði Ólaf-
ur.
„Svekktur"
„Ég er svekktur yfir því að við
náðum ekki að klára dæmið í þess-
um leik,“ sagði Ólafur Kristjánsson,
fyrirliði FH. „Við vorum sterkari
ef á heildina er litið og fengum
mörg góð færi. Liðið sýndi mikinn
„karakter" að ná að jafna og eftir
það höfðum við frumkvæðið.
Síðari leikurinn verður erfiður.
Við vitum nú hverning er að leika
svona bikarúrslitaleik og það kemur
til með að hjálpa okkur í síðari leikn-
um. Ég hlakka til að mæta Val
aftur,“ sagði fyrirliðinn.
„Taugaspenna"
„Það er slæmt að hafa ekki náð
að klára þetta," sagði Andri Mar-
teinsson. „Þetta er fyrsti stórleikur-
inn hjá mér síðan í fjórða flokki og
því mikil taugaspenna. Það er gam-
an að leika fyrir svona marga áhorf-
endur og stuðningsmenn FH stóðu
sig vel. Leikurinn var mjög erfiður
og minnti helst á leikinn_ gegn
Dundee i Evrópukeppninni. Ég var
orðinn mjög kaldur í framlengin-
unni. Við erum ákveðnir í að klára
þetta á miðvikudaginn sama hvern-
ig veðrið verður."
„Erfitl"
„Þetta var mjög erfiður leikur
en að sama skapi mjög gaman að
geta tekið þátt í honum,“ sagði
Hallsteinn Arnarson, sem kom
gagngert frá Bandaríkjunum til að
leika bikarúrslitaleikinn. „Ég átti
upphaflega að fara út aftur á þriðju-
dag [í dag] en ég reyni allt til að
fá að klára dæmið með FH á mið-
vikudag.“
„Lengi að finna mig“
„Ég var mjög lengi að fínna mig
í þessum leik enda í strangri gæslu.
Það losnaði aðeins um mig eftir
fyrri hálfleikinn,“ sagði Hörður
Magnússon, sem gerði eina mark
FH.
„Þetta var góður leikur. Við vor-
um betri í fyrri hálfleik en þeir í
seinni. Við vorum svo miklu betri
í framlenginunni og áttum að klára
þetta þá. Síðari leikurinn leggst vel
í mig og við komum þá grimmir til
leiks."
Um markið sagði Hörður: „Fyrir-
gjöfin var góð og ég tók sénsinn
og hitti boltann vel og stýrði honum
upp í þaknetið með vinstri.“ Þetta
var sjötta mark Harðar í bikar-
keppnimri og hefur hann skorað í
öllum bikarleikjum FH.
Om 4 Valsemnn vom fyrri til að skora og það gerðu þeir á 69.
■ | mínútu. Einar Páll Tómasson tók markspymu og spymti
langt fram þar sem Baldur Bragason náði knettinum. Hann komst inn
fyrir vamarmenn FH og ætlaði að leika á Stefán Arnarson markvörð
en Stefán felldi hann. Boltinn barst til Gunnars Más Mássonar sem
brást ekki bogalistin og skoraði af öryggi við mikinn fögnuð fylgis-
manna Vals.
1m 4 Hafnfirðingar jöfnuðu á 85. mínútu. FH-ingar byggðu upp
■ I fallega sókn. Hallsteinn Amarson sendi boltan laglega upp
að endamörkum hægra megin á Hlyn Eiríksson sem gaf fyrir markið,
yfir Bjarna Sigurðsson markvörð og Amald Loftsson bakvörð. Við
markteigshominu fjær var Hörður Magnússon réttur maður á réttum
stað og lagði knöttinn laglega upp í þaknetið með vinstra fæti.
Morgunblaðið/Bjarni
Glæsileg tilþrif. Bjami Sigurðsson ver hér skot úr aukaspyrnu frá Ólafi H. Kristjánssyni á annari mínútu.
Jafntefli. Bjami Sigurðsson horfir á eftir knettinum í netið ásamt Arnaldi Loftssyni. Markakóngurinn Hörður Magnússon er ekki eins súr á svipínn og Valsmennirnir.
Hámeikur í bikamum!
Valsmenn klaufaren að sama skapi heppnir íframlengingunni
FJÖRUGUM úrslitaleik FH og Vals í bikarkeppninni á sunnudaginn lauk með jafntefli 1:1 eftirfram-
lengingu. Það er því aðeins hálfleikur í bikarnum, síðari hálfleikurinn verður leikinn annað kvöld.
Valsmenn voru fyrri til að skora og fengu tvö mjög góð færi skömmu síðar til að gera út um leikinn,
en tókst ekki. FH-ingar gáfust hins vegar ekki upp og jöfnuðu og áttu síðan nokkur góð færi ífram-
lengingunni sem ekki nýttust. Sanngjörn úrslit þegar á heildina er litið, Valsmenn sterkari í venjuleg-
um leiktíma en FH-ingar í framlengingunni. Leikmenn beggja liða voru þó svekktir fyrir að geta
ekki gert út um leikinn þvífærin voru til staðar. Gjaldkerar félagnna voru hins vegar ekki eins
óhressir og leikmenn því bikarúrslitaleikur gefur vel í aðra hönd. Leikið var við erfiðar aðstæður,
hvasst var og Laugardalsvöllurinn blautur og háll. Engu að síður gekk leikmönnum vel að hemja
knöttinn og leikurinn var hinn fjörugusti og spennan var svo sannarlega til staðar.
Valsmenn geta sjálfum sér um
kennt að hafa ekki gert út um
leikinn í venjulegum leiktíma. Þeir
fengu færin til þess eftir að þeir
náðu forustu í leikn-
um en tókst ekki að
nýta þau. FH-ingar
gáfust ekki upp þrátt
fyrir markið og færin
góðu sem nýttust ekki. Þeir gáfu
ekkert eftir, börðust vel og uppskári
eftir því fimm mínútum fyrir leikslok
þegar Hörður Magnússon jafnaði.
Færi í upphafi
Leikurinn var varla byijaður þegar
FH-ingar fengu fyrsta marktæki-
færið. Ólafur Kristjánsson fyrirliði
þeirra átti þá. gott skot úr auka-
spyrnu, lagði knöttinn efst í mark-
hornið, en Bjarni Sigurðusson sá við
honum og varði vel í horn. Um miðj-
an fyrri hálfleikinn átti Pálmi mis-
heppnaða sendingu aftur á Stefán
markvörð og knöttuinn stefni í blá-
homið en Olfur Jóhannesson náði
honum áður en hann fór yfir marklín-
una.
Marktækifærin urðu ekki fleiri í
fyrri hálfleik. Leikmenn léku samt
ágætlega, boltinn gekk vel manna á
milli lengst af en það var eins og
enginn vildi taka af skarið. Leikmenn
voru óþarflega varkárir í öllum leik
sínum.
Valsmenn sterkari
Síðari hálfleikur var mun fjörugri
en sá fyrri og marktækifærin mý-
mörg, og flest féllu þau Valsmönnum
í skaut. Jón Grétar reyndi skot sjálf-
ur þegar hægara hefði verið að gefa
á Baldur sem var aleinn á miðjum
vítateig FH. Amaldur átti glæsiskot
af 30 metra færi sem Stefán varði
með tilþrifum í slánna og Stefán
bjargaði vel þegar Valsmenn komust
inní misheppnaða sendingu Ólafs Jó-
hannessonar aftur á Stefán mark-
vörð.
Bjarni varði tvívegis ágæt skot frá
Herði Magnússyni áður en Gunnar
Már Másson, hinn markheppni vara-
maður Valsmanna, kom Hlíðarenda-
piltum yfir á 79. mínútu eftir góðan
undirbúning félaga síns Baldurs
Bragasonar.
Valsmenn fengu færin
Við markið önduðu margir Valsar-
ar léttar og enn léttar önduðu þeir
þegar liðið fékk tvö gullin tækifæri
til að bæta um betur. Jón Grétar
átti skot í stöngina eftir að Stefán
hafði varið skot frá Arnaldi og bolt-
inn farið af honum út í teiginn. Gunn-
ar Már komst síðan inní sendingu
FH-inga sem ætluð var Stefáni mark-
verði. Hann ætlaði að vippa yfir Stef-
án sem kom út á móti en hitti bolt-
ann illa og fór hann beint í fang
markvarðarins.
Valsmenn í stúkunnu voru greini-
lega farnir að undirbúa sig fyrir sig-
urhátíð en Hafnfírðingar voru á öðru
máli og leikmenn FH höfðu ekki gef-
ist upp. Þegar fimm mínútur voru til
leiksloka jafnaði markahrókurinn
Hörður Magnússon og tryggði liði
sínu framlengingu.
Hafnfirðingar aðgangsharðari
FH-ingar voru mun aðgangsharð-
ari í framlengingunni en Valsmenn.
Andri var klaufi að skora ekki á 99.
mínútu þegar hann var einn í ákjós-
anlegu færi, en hitti illa og boltinn
fór langt framhjá. Steinar fékk svipað
dauðafæri hinum megin þremur
mínútum síðar. Hann komst í gegn
eftir langt útspark en Stefán sá enn
eina ferðina við Valsmönnum. Gunn-
ar Már átti síðan gott viðstöðulaust
skot rétt yfir markið eftir fyrirgjöf
frá Jóni Grétari áður en liðin skiptu
um vallarhelming.
FH-ingar áttu tvívegis skot í þverlá
Valsmarksins í síðari hálfleik fram-
lengingarinnar. Fyrst skallaði Dervic
knöttinn ofan á slánna eftir horn-
spyrnu og síðan sendi Andri hann
með föstu skoti í þverslánna af 25
metra færi. Fleiri urðu færin ekki í
þessum fjöruga bikarúrslitaleik og
mörkin ekki heldur þannig að liðin
þurfa að reyna með sér aftur annað
kvöld.
Allir stóðu fyrir sínu
Leikurinn var ágætlega leikinn
þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Leik-
menn voru þó óþarflega varkárir í
fyrri hálfleik en næstu 75 mínútur
var leikurinnopinn, spennandi og
skemmtilegur.
Bestu leikmenn FH voru án efa
Stefán markvörður Arnarson, Hall-
steinn Arnarson og Hlynur Eiríksson.
Allir léku Hafnfirðingar þó vel og
liðsheildin náði vel saman. Hörður
var í strangri gæslu allan leikinn og
náði sér ekki almenninlega á strik,
en hann sýndi að það má ekki gleyma
honum eitt andartak.
Um Valsliðið er í rauninni sömu
sögu að segja, allir stóðu fyrir sínu.
Varnarmennirnir þrír, Arnaldur, Ein-
ar Páll og Sævar, voru bestu menn
liðsing ásamt Baldri Bragasyni.
Bjarni Sigurðsson stóð sig einnig vel
í markinu.
SkúliUnnar
Sveinsson
skrifar
Klaufaskapur
- segir SævarJónsson fyrirliði Vals
„Það var klaufaskapur í okkur að
láta þá komast' inn í leikinn eftir
að við skoruðum og áttum síðan tvö
mjög góð færi í kjölfar þess,“ sagði
Sævar Jónsson fyrirliði Vals.
„Við áttum að klára þennan ieik,
en það var eins og menn tryðu því
ekki að við gætum skorað fleiri
mörk. Markið kom á besta tíma
fyrir okkur en við náðum ekki að
fylgja því eftir.
I fyrri hálfeik var mikil barátta
og við náðum síðan tökum á leikn-
um þar til í framlengingunni, þá
fengu þeir fleiri færi. Það var erfitt
að leika í þessum vindi, en ég held
að leikurinn hafi verið skemmtileg-
ur.
Nú er það bara meira Mæja á
miðvikudaginn og ég held mig við
2:1 sigur. Þá vinnum við sem sagt
1:0,“ sagði Sævar.
FH-ingar refsuðu okkur
„FH-ingar refsuðu' okkur fyrir
að skora ekki fleiri mörk eftir að
við gerðum þetta eina mark seint
í leiknum," sagði Ingi Björn Al-
bertsson þjálfari Valsmanna.
„Við reyndum að halda í fyrri
hálfleik á móti vindi og leikurinn
var þá í nokkru jafnvægi. Við vorum
sterkari í síðari hálfleik en þeir aft-
ur í framlengingunni þannig að
þetta var nokkuð kaflaskiptur og
skemmtilegur leikur og vonandi
verður framhald á því í leiknum á
miðvikudaginn,“ sagði Ingi'Björn.
Fengum færin
„Við fengum færin til að klára
þennan leik, en spennan og pressan
á leikmönnum veldur því að oft fer
örðuvísi en menn ætla,“ sagði
Gunnar Már Másson, hinn mark-
heppni varamaður Vals, en hann
gerði eina mark liðsins.
„Við áttum að skora fleiri mörk
en FH-ingar voru síðan óheppnir í
framlengingunni. Það hefði verið
ljúft að klára dæmið í dag, en við
verðum víst að gera okkur að góðu
að ljúka þessu á miðvikudaginn,“
sagði Gunnar Már.
Svekktur
„Ég er svekktur yfir að við skyldum
ekki ná að sigra, við fengum færin
til þess í venjulegum leiktíma, en
FH-ingar gáfust ekki upp og náðu
að jafna,“ sagði Bjarni Sigurðsson
markvörður Vals.
„Stefán varði vel hinum megin
og sýndi að hann er einn besti
markvörður landsins. Þetta var
skemmtilegur leikur og ég hafði nóg
að gera, ekta bikarleikur. Við vinn-
um á miðvikudaginn og það verður
aðeins 90 mínútna leikur,“ sagði
Bjarni.
Gleymdum okkur
„Maður er auðvitað svekktur að
klára ekki dæmið í venjulegum
leiktíma. FH-ingar voru hins vegar
sterkari í framlengingunni,“ sagði
Jón Grétar Jónsson.
„Við höfum ef til vill talið að
þetta væri komið hjá okkur og við
gleymdum okkur eitt andartak, og
það dugði FH. Vonandi verður ekki
vítaspyrnukeppni á miðvikudaginn,
það er aldrei stefnan hjá okkur, en
við erum óhræddir við vítaspyrnu- t
keppni," sagði Jón Grétar.
Morgunblaðið/RAX
Mark í uppsiglingu. Baldur Bragason kominn í gegn og rennir knettinum
til hægri þar sem Gunnar Már náði honum og skoraði. Stefán Arnarson og
Olafur Jóhannesson koma engum vörnum við.
Þeir hafa skorað í hverri umférð
Hörður Magnússon úr FH náði að skora í hverri umferð bikarkeppn-
innar í ár, en nú eru 30 ár síðan Þórður Jónsson, ÍA og Gunnar
Felixson, KR náðu báðir þeim árangri. Þeir gerðu báðir fimm mörk
í keppninni það sumar, og meira að segja báðir tvö mörk í úrslitaleikn-
um, þegar sem KR vann ÍA 4:3. Þá var bara um þijár umferðir að
ræða — keppni hófst með 8-liða úrslitum. Báðir gerðu eitt mark í
8-liða úrslitum, tvö í undanúrslitum og tvö í úrslitaleiknum.
Þórður Þórðarson úr ÍA endurtók leikinn 1963 er hann gerði eitt
mark í 8 liða úrslitum, tvö í undanúrslitum og eitt í úrslitaleiknum.
Hermann Gunnarsson er sá yngsti sem skorað hefur í hverri
umferð — var 19 ára er hann gerði það með Val 1965. Hermann
gerði eitt í 8-liða úrslitum, þrjú í fjögurra liða úrslitunum og tvö í
úrslitaleiknum.
Steinar Jóhannsson, ÍBK gerði mark í öllum umferðum bikar-
keppninnar 1973. Tvö i 16 liða úrslitum, eitt í 8 liða úrslitum, tvö
í undanúrslitum og eitt í úrslitaleiknum.
Teitur Þórðarson, ÍA bættist í hópinn árið eftir, 1974. Hann gerði
eitt mark í 16-liða úrslitum, tvö í 8-liða úrslitum, eitt í undanúrslitum
og eitt í úrslitaleiknum.
Ingi Björn Albertsson, núverandi þjáfari Vals, varð sá síðasti á
undan Herði til að skora í hverri umferð bikarkeppninnar. Það var
1977 er Ingi gerði eitt mark í 16-liða úrslitum, tvö í 8-liða- og undan-
úrslitum og eitt í úrslitaleiknum.
Hörður Magnússon hefur skorað í öllum bikarleikjum FH í sumar
sem fyrr segir. Hörður gerði eitt mark í 16-liða úrslitunum, eitt í 8-
liða úrslitum, þijú í undanúrslitunum, og eitt í úrslitaleiknum. Ef
Hörður skorar gegn Val á morgun verður hann sá fyrsti til að skora
í hverri umferð og aukaúrslitaleik.
!