Morgunblaðið - 27.08.1991, Side 12
ÍÞROmR
SIGLINGAR
Morgunblaðið/Benedikt Guðmundsson
Gauja Rúnarsdóttir var eini kvenskipsstjórinn á íslandsmóUnu í siglingum, og er raunar fyrsta konan sem gegnir því hlutverki. Hér stjórnar hún Skýjaborg-
inni. Frá vinstri: Þórarinn Eyijörð, Njáll Gíslason, Gauja og Árni Árnason. Jakob Þorsteinsson var einnig í áhöfninni.
Kjörvindur fyrir okkur“
ff
- sagði íslandsmeistarinn og skipstjórinn á Svölunni, GarðarJóhannsson
AHÖFN Svölunnar undir stjórn
Garðars Jóhannssonar tryggði
sér íslandsmeistaratitilinn í
siglingum um helgina þegar
fjóriraf fimm hlutum mótsins
fóru fram.
Sigur Svölumanna var nokkuð
öruggur þegar upp var staðið,
þeir fengu aðeins 5,7 refsistig en
áhöfn Píu, sem varð í öðru sæti
hlaut 25,7 refsistig og áhöfn Dög-
unar hlaut 26,7 refsistig í þriðja
sætið.
Enginn þessara þriggja báta er
hannaður sem keppnisbátur, heldur
eru þetta ferðabátar. Súlan er 34
fet og stærsta skútan sem þátt tók
í keppninni. „Þetta var algjör kjör-
vindur fyrir okkur,“ sagði Garðar
skipstjóri á Svölunni. „Báturinn er
þungur og við þolum mikinn vind.
Þetta var samt keppni allan tímann
og það var ekki fyrr en á laugardag-
inn sem við náðum að tryggja okk-
ur sigur,“ sagði Garðar.
Þetta er i fyrsta sinn sem ferða-
bátur verður í efsta sæti, en ekki
keppnisbátur. „Við erum með öll
þægindi um borð, miðstöð og sturtu,
en við notuðum reyndar sturtuna
ekki mikið í keppninni," segir Garð-
ar og bætti því við að þetta „skip-
stjóratal" ætti varla við. „Við erum
fjórir sem eigum bátinn og skipt-
umst á um að vera „skipstjórár“
og það var mitt ár núna,“ sagði
Garðar en í áhöfninni voru auk
hans Ingi Ásmundsson, Jóhann
Reynisson, Sigurður Ragnarsson,
Snorri Vignisson og Þór Oddsson.
Fjórtán skútur voru skráðar til
keppni og því má reikna með að
um 60 manns hafi keppt í mótinu.
Fyrsta keppnin var á föstudags-
kvöldið og síðan kepptu bátarnir
þrívegis á laugardaginn, en til stóð
að haf eina keppni á sunnudaginn.
Hún var flutt yfir á laugardaginn
vegna veðurs.
Urslit / B10
FATLAÐIR / EM FELAGSLIÐA
Haukur vann þrenn
gullverðlaun í Wales
HAUKUR Gunnarsson ÍFR
gerði sér lítð fyrir og vann
þrenn gullverðlaun á Evrópu-
móti félagsliða í frjálsum
íþróttum fatlaðra sem fram
fór í Wrexham í Wales um
helgina.
H
aukur - sigraði í þremur
hlaupagreinum og náði góð-
um tímum. Hann hljóp 100 m. á
13,00 sekúndum, 200 m. á 26,8
sek. og 400 m. á 62 sekúndum.
Arnar Klemensso'n frá Viljanum
á Seyðisfirði hampaði einnig gull-
verðlaunum á mótinu. Arnar keppti
í hjólastólaakstri, í fjórum vega-
lengdum. Hann vann í 100 metra
akstri á 18,8 sekúndum, lilaut silf-
ur í bæði 200 og 1.500 metra
akstri. Arnar fór 200 metrana á
34,8 sekúndum og 1.500 metrana
á 4.45,00. Þá varð Arnar þriðji í
400 metra akstri á 1.11,04 mínút-
um.
Reynir Kristófersson ÍFR, sem
einnig er í hjólastól, keppti í kúlu-
varpi og kringlukasti. Reynir varð
fimmti í kúluvarpinu og sjötti í
kringlukastinu.
Haukur Gunnarsson.
■ VIÐ sögðum frá frábærum ár-
angri Rangheiðar Runólfsdóttur
á Evrópumeistaramótinu í sundi á
fimmtudaginn og að það væri annar
besti árangur sem íslendingur hefði
náð á EM. Þetta er ekki rétt. Best-
um árangri náði Eðvarð Þór Eð-
varðsson 1987 er hann varð fjórði
í baksundi. Annan besta árangurinn
á Sigurður Jónsson úr KR en
hann varð sjötti í 200 m bringu-
sundi á EM í Monte Carlo árið
1947. Ragnheiður náði því þriðja
besta árangri íslendings á EM.
■ ÞRIR íslenskir sundmenn tóku
þátt í EM í Monte Carlo árið 1947.
Ari Guðmundsson og Sigurður
Jónsson, Reykvíkingur og Sig-
urður Jónsson, Þingeyingur, eins
og segir í Morgunblaðinu frá því
í september 1947. Sigurður Jóns-
son úr Reykjavík var í KR og var
oftast kenndur við félagið og kallað-
ur Sigurður KR.
■ HELGA Sigvrðardóttir og
Ragnheiður Runólfsdóttir koma
með íslenska sundlandsliðinu frá
Aþenu í dag og halda síðan til
Bandaríkjanna strax um næstu
helgHil náms og æfinga.
■ ARNI Þór Freysteinsson, leik-
maður KA, leikur ekki meira með
KA á þessu íslandsmóti. Hann rif-
beinsbrotnaði í leik Víðis og KA í
síðustu viku.
■ LUÐVIK Bragason, leikmaður
Fylkis í 2. deild leikur ekki meira
með liði sínu á keppnistímabilinu.
Lúðvík er farinn til Banda-
ríkjanna þar sem hann mun verða
við nám í vetur.
■ KRISTINN Freyr Guðmunds-
son jafnaði íslandsmet Helga
Ágústssonar í keilu frá því 1989
á laugardagsmóti KFR og Öskju-
hlíðar um helgina. Hann náði 279
stigum.
■ A UKA ÚRSLITALEIKUR bik-
arkeppninnar milli Vals og FH fer
fram annað kvöld kl. 18. Miðaverð
verður breytt frá því í fyrri leiknum,
kr. 1.000 fyrir fullorðna og kr. 300
fyrir börn.
■ SVEINN Sveinsson dæmir
aukaúrslitaleikinn eins og þann
fyrri á sunnudaginn og línuverðir
verða þeir sömu; Ólafur Sveinsson
og Ólafur Ragnarsson.
■ ÓMAR Torfason var útnefndur
maður leiksins _ í viðureign
Grindavíkur og IBK á föstudag-
inn, en nafn hans féll niður í blað-
inu á laugardag.
■ LARUS Orri Sigurðsson sem
gerði eina mark leiksins er Þór
vann á Selfossi í 2. deildinni á
föstudaginn, var ranglega sagður
heita Sigurður Orri í myndatexta.
Beðist er yelvirðingar á þessum
mistökum.
KNATTSPYRNA
Platini
hefur valið
Michel Platini, landsliðs-
þjálfari Frakka, hefur
valið 16 leikmenn fyrir lands-
leikinn gegn Tékkum í Brat-
islava í næstu viku. Silvestre og
Perez, sem voru ekki í landslið-
inu sem vann Albaníu 5:0, koma
nú inn fyrir Simba og Cocard,
sem eru meiddir.
Franski hópurinn er skipaður
eftirtöldum:
Bruno Martini, Gilles Rousset; Manuel
Amoros, Basile Boli, Bemard Casoni,
Laurent Blanc, Remy Garde, PYanck Sil-
vestre; Jocelyn Angloma, Didier Des-
champs, Franck Sauzee, Jean-Philippe
Durand, Luis Fernandez; Jean-Pierre Pap-
in, Christian Perez, Pascal Vahirua og
Christophe Cocard.
GETRAUNIR: 1 X X X 1 2 X X2 2 11
LOTT