Morgunblaðið - 15.10.1991, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI I #f?ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991
KNATTSPYRNA / EVROPA
vicini verður
látinn hætta
Arrigo Sacchi, fyrrum þjálfari AC Milan, líklegur eftirmaður
AZEGLIO Vicini, iandsliðs-
þjálfari ítala í knattspyrnu,
verður að öllum líkindum lát-
inn fara eftir slæmt gengi
landsliðsins í Evrópukeppn-
inni. ítalska liðið á ekki lengur
möguleika á að komast í loka-
keppnina í Svíþjóð og er það
mikið áfall fyrir ítalska knatt-
spyrnu. Vicini tók við liðinu
eftirHM íMexíkó 1986.
Italir gerðu aðeins markalaust
jafntefli gegn Sovétríkjunum á
laugardaginn og þurfa Sovétmenn
nú aðeins jafntefli gegn Kýpur i
síðasta leik til að tryggja sér sig-
ur í 3. riðli og um leið sæti í úr-
slitakeppninni í Svíþjóð.
Antonio Matarrese, forseti ít-
alska knattspymusambandsins,
sagði að Vicini yrði látinn fara
en hann vildi ekki staðfesta að
Azeglio Vicini, landsliðsþjálfari
Ítalíu.
Arrigo Sacchi, fyrrum þjáifari AC
Milan, myndi taka við eins og
margir vilja meina.
„Tími á breytingar”
„Ég held að það sé kominn tími
á breytingar. Það sem við þurfum
núna eru menn með nútíma hugs-
unarhátt. Við þurfum leikmenn
menn innri hvöt, leikmenn sem
hafa ekki unnið mikið en hafa
vilja til að gera mun betur,” sagði
Matarrese í samtali við íþrótta-
blaðið Gazzetta Sportvia á sunnu-
dag.
Itölsku blöðin tóku ekki vel á
móti Vicini, landsliðsþjálfara síð-
ustu fimm árin, er hann kom frá
Moskvu. ítölsku íþróttafrétta-
mennirnir voru harðorðir í skrif-
um sínum og sögðu þetta mikið
áfall fyrir ítölsku knattspyrnuna
og þjálfarinn yrði að fara frá.
Jean-Pierre Papin skorar í nær hveijum landsleik.
Fyrsta tap Spánverja í Sevilla í 69 ár:
Förum til Svíþjóð-
ar til að vinna
- sagði Michel Platini, þjálfari Frakka, eftir sigurinn á Spánverjum
tifám
FOLK
■ SIGUR Frakka í Sevilla var
nokkuð sérstakur fyrir Luis Fern-
andez, miðvallarspilara Frakk-
Iands. Hann er fæddur í smábæn-
um Tarifa, sem er rétt utan við
Sevilla. „Ég er ekki aðeins ham-
ingjusamur vegna þess að við erum
komnir til Svíþjóðar, heldur einnig
vegna þess að ég skoraði mark í
heimahaga. Mamma var hér í kvöld
til að sjá mig leika,” sagði Fern-
andez.
■ FRAKKAR léku sinn fyrsta
leik í Sevilla síðan þeir töpuðu þar
fyrir V-Þjóðverjum í vítaspymu-
keppni i HM 1982.
■ EFTIR að Sovétmenn gerðu
jafntefli, 0:0, gegn ítölum í
Moskvu, þurfa þeir aðeins jafntefli
í leik gegn Kýpur til að tryggja
sér farseðilinn til Svíþjóðar.
■ KARLHEINZ Riedle, lands-
liðsmiðheiji Þýskalands, sem leik-
ur með Lazio á ítaliu, er meiddur
á hné. Hann mun fara í læknisskoð-
un fyrir Evrópuleik gegn Wales á
morgun, sem fer fram í Niirnberg.
Þjóðverjar verða að vinna leikinn
til að eiga möguleika á að komast
til Svíþjóðar.
■ MIKIÐ er um meiðsli í herbúð-
um Englandinga, sem leika gegn
Tyrkjum. Gary Pallister, Man.
Utd., David Hirst, Sheff. Wed.,
Tony Adams og Ian Wright,
Arsenal, eru meiddir og Chris
Woods, markvörður Sheff. Wed.,
er í Skotlandi, þar sem dóttir hans
er á sjúkrahúsi.
■ GRAHAM Taylor, þjálfari
Englands, hefur kallað á Gary
Mabbutt, Tottenham, Earl Barr-
ett og Richard Jobson, Oldham
og markvörðinn Tony Coton í
landsliðshóp sinn.
■ ROY Aitken hjá St. Mirren,
sem hefur varið valinn í skoska
landsliðið, sem leikur gegn Rúmen-
íu á morgun, var rekinn af leik-
velli fyrir grófan leik þegar St.
Mirren tapaði heima, 0:1, fyrir
Hibs á laugardaginn.
■ SKOSKI landsliðsmiðheijinn
Ally McCoist,, skoraði tvö mörk
þegar Glasgow Rangers vann St.
Johnston, 3:2.
Fernandez skoraði í heimahögum.
FRAKKAR tryggðu sér farseðil-
inn í úrslitakeppni Evrópu-
keppni landsliða i Svíþjóð 1992
með því að leggja Spánverja
að velli, 2:1, í Sevilla. Spánverj-
ar höfðu ekki tapað þar lands-
leik í 69 ár, eða síðan 1923.
Þeir höfðu leikið 28 landsleiki
þar án taps, en þess má geta
að það var í fyrsta skipti sem
þeir hafa fengið á sig tvö mörk
í Sevilla, þegar þeirtöpuðu fyr-
ir Frökkum.
Michel Platini, landsliðsþjálfari
Frakklands, sem hefur nú
leikið átján leiki í röð án taps, var
að sjálfsögðu ánægður eftir leikinn,
enda Frakkar þeir fyrstu til tryggja
sér farseðilinn til Svíþjóðar. „Þetta
var harður leikur, en sigur okkar
var sanngjarn. Þetta var aðeins eitt
skref af mörgum fram á við og við
förum til Svíþjóðar til að vinna,”
sagði Platini, sem var fyrirliði
franska landsliðsins sem varð Evr-
ópumeistari 1984. Frakkar hafa
ekki tapað leik undir hans stjórn
síðan í mars 1989.
Það var annar gamalkunnur
kappi sem lék við hlið Platini 1984
- Luis Fernandez, sem opnaði leik-
inn með glæsilegu marki á tólftu
mín. og síðan skoraði markahrókur-
inn Jean-Pierre Papin annað mark,
LYIM gerði jafntefli, 1:1, gegn
Kongsvinger í síðustu umferð
norsku 1. deildarinnar i knatt-
spyrnu á sunnudaginn og hafn-
aði í 4. sæti deildarinnar.
Teitur Þórðarson, þjálfari Lyn,
sagðist vera þokkalega án-
ægður með leikinn gegn Kongs-
vinger og úrslitin
Erlingur sanngjörn.
Jóhannsson Ertu ánægður
skrifarfrá mes 4. sætið?
Nore91 „í rauninni er ég
ánægður með fjórða sætið þegar
þess er gætt að þetta er okkar
fyrsta keppnistímabil í 1. deild, en
ég er hins vegar ekki ánægður með
0:2, þremur mín. síðar. Abelardo
minnkaði muninn fyrir Spánveija á
33. mín.
Papin sagðist hafa verið óhrædd-
ur. „Lið okkar er byggt upp á mjög
hæfileikaríkum leikmönnum. Við
kappkostum að hafa gaman að því
sem við gerum og leikum vel.”
Hann var nálægt því að skora þriðja
mark Frakka rétt fyrir leikslok, en
skoti hans var bjargað á marklínu
á síðustu stundu. Frakkar réðu
gangi leiksins í fyrri hálfleik, en
síðan jafnaðist hann í seinni hálf-
leiknum.
Næsta verkefni Frakka er 20.
nóvember í París. Þá taka þeir á
móti Islendingum.
frammistöðu okkar í undanförnum
leikjum. Við höfum leikið góða
knattspyrnu og skapað okkur fjöl-
mörg marktækifæri en ekki nýtt
þau. Þetta er mjög svekkjandi þeg-
ar við erum einungis tveimur stig-
um frá öðru sætinu og þar með
sæti í Evrópukeppui á næsta ári.
Ekki nóg með það töpuðum við
þriðja sætinu á markahlutfalli, en
þriðja sætið getur gefið rétt tilþátt-
töku í Evrópukeppninni því Rosen-
borg leikur til úrslita í bikarnum
og vinnur að öllum líkindum.”
Hver er framtíð þín hjá Lyn7
„Ég er samningsbundinn hjá Lyn
og kann vel við mig hér og hef ekki
í hyggju að breyta til.”
Stórveisla í Dublin
Mjög fjölmenn matarveisla var í Dublin á írlandi á laugardags-
kvöldið. Veislan var haidin til styrktar Ronnie Whealan, fyrir-
Iiða Liverpool og leikmann með írska landsliðinu. 875 manns komu í
veisluná og borgaði hver fimm þús. ísl. kr. Margir snjöllustu leikmenn
Liverpool, sem hafa leikið með Whelan voru mættir á staðinn og einn-
ig írskir landsliðsmenn með Jackie Charlton, landsliðsþjálfara í farar-
broddi. Veislustjóri var framkvæmdastjórinn gamalkunni Tommy Doch-
erty. Whealan, sem er 30 ára, er fæddur í Dublin og lék þar með
Home Farm. Hann gekk til liðs við Liverpool þegar hann var 17 ára.
Ekki með British Airways
l%að hefur vakið mikla athygli í Englandi að enska knattspyrnusambandið
hefur gert þriggja ára samning við fiugfélagið American Airlines en
ekki British Airways. AA mun sjá um allar ferðir enskra landsliða. Enska
knattspyrnusambandið fær 300 þús. steríingspund fyrir samninginn og 100
þús. pund í bónus ef enska landsliðið nær að vinna sér sæti í HM í Bandaríkj-
unum 1994. Eins af ástæðunum fyrir að enska sambandið hætti viðskiptum
við British Airways er að á ýmsu gekk þegar enska landsliðið fór á HM á
Ítalíu 1990. Þegar breska flugfélagið ætlaði síðan að sjá um forð enska lands-
liðsins frá Ítalíu, sagði enska knattspyrnusambandið; Nei, takk.
Lyn hársbreidd
f rá Evrópusæti